Morgunblaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998
LISTIR
MORGUNBLADIÐ
Fjöldafram-
leiddir hermenn
GRÆNA fljótið eftir Ólaf Elíasson í Ingólfsstræti 8.
Hin ummyndaða náttúra
MYMILIST
Gallerf Ingólfsstræti 8
BLÖNDUÐ TÆKNI
ÓLAFUR ELÍASSON
Til 10. janúar. Opið frá fímmtudegi
til sunnudags frá kl. 14-18. Lokað
ylir hátíðirnar frá 20. desember, en
sýninguna má skoða frá götunni
um glugga.
GAGNVART náttúrunni hegðar
maðurinn sér eins og utan og ofan
við lögmál hennar. Sköpunarsagan
er reyndar ekki annað en óburðug
tilraun til að bregða ljósi á þá til-
fínningu sem ávallt hefur herjað á
mannkynið; að hluti þess af um-
hverfínu sé aðeins til hálfs. Þessi
„erfðasynd“ eins og kirkjan kýs að
kalla framandleik mannsins frammi
fyrir náttúrunni kemst samt hvergi
til skila með auðveldum hætti, ekki
frekar en svo margt í ritningunni,
og má þar eflaust um kenna
breyskri mennsku Biblíuhöfundar.
Honum tókst ekki frekar en öðrum
að lýsa sakleysinu í paradís fyrir
eplisátið, einfaldlega vegna þess að
hann gat ekki séð heiminn með aug-
um þess sem ekki hefur etið af
ávöxtum skilningstrésins.
Hið eina sem við mennirnir
skynjum er að til er önnur sýn en sú
hefðbundna, þótt sú sýn sé ekki
endilega náttúrulegri en okkar eðli-
legu viðhorf. Á sinn hægverska
máta áminnir Olafur Elíasson okk-
ur um það að listin getur aldrei ver-
ið náttúruleg. Við getum aldrei um-
breytt skynjun okkar í mynd eða.
hlut, öðruvísi en útkoman verði eitt-
hvað allt annað en fyrirbærið sem
kveikti með okkur löngun til að búa
til myndina eða hlutinn. Við getum
með öðrum orðum aldrei miðlað
skynjun með ómenguðum hætti.
Þannig er hugtakið „raunsæi" full-
komin þverstæða og tilbúningur.
Hvort sem útkoman er í bland við
náttúruna ellegar með hennar aðstoð
verður hún ætíð listaverk; tæknileg
afurð sem lýtur eigin lögmálum. Það
er einmitt þessi postmódemíska af-
staða Ólafs til fyrirmyndarinnar sem
slær okkur út af laginu þegai- við
skoðum verk hans. Vatnið sem renn-
ur ofan í brunninn umbreytist við
áhrif blikkljósanna í eins konar
kvikasilfur gullgerðarmannsins.
Gesturinn verður að snerta bununa
til að sannfærast um það að vatnið
renni ekki í slumpum um gagnsæja
slöngu; sé ekki glitrandi silfurskraut;
heldur ómenguð buna sem rennur
viðstöðuiaust ofan í keraldið.
Gesti rekur enn í rogastans
frammi fyrir myndröðinni af fagur-
grænni kvíslinni sem rennur í árfar-
vegi sínum. Slík óvænt ummyndun
á náttúrulegu fiæði fær áhorfand-
ann til að hugsa margt í senn; fyll-
ast skelfmgu; spyrja um tegund fílt-
ers sem ljósmyndarinn notaði eða
velta fyrir sér hvort varanleg meng-
un stafi ekki af svona tiltæki. Styrk-
ur Ólafs er fólginn í því flóði af
spurningum sem verk hans vekja,
um leið og áhorfandinn reynir að
treysta sjóntaugunum, því mjög svo
brigðula haldreipi.
Halldór Björn Runólfsson
KVIKMYNPIR
Itfóborgin
HERMAÐUR „SOLDIER"
★★
Leikstjóri: Paul Anderson. Handrit:
David Webb Peoples. Framleiðandi:
Jerry Weintraub. Aðalhlutverk: Kurt
Russell, Gary Busey, Jason Scott,
Connie Nielsen. Warner Bros. 1998.
í NÝJUSTU mynd sinni, fram-
tíðartryllinum Hermanni eða
„Soldier", segir Kurt Russell varla
meira en 20 til 30 orð. Hann er
næstum þögulli en gröfin, sem
kannski er ekkert skrítið því hann
er talinn af og settur á einhvem al-
heimsruslahaug þar sem hann lifnar
við aftur. Ástæðan fyrir því að hann
næstum lét lífið er sú að hann er af
úreltri tegund hermanna. Hann var
tekinn úr vöggu og alinn upp á of-
beldi og stríðum og er raunar í
toppformi þegar nýju módehn koma
á markaðinn, erfðafræðilega skap-
aðar drápsmaskínur, sem Russell
hreinlega getur ekki drepið - nema
hann sé að reyna það með þögninni.
„Soldier" er undarlegur samsetn-
VERK eftir Línu Rut.
Lína Rut sýnir
á Kaffi 17
NU stendur yfir sýning Línu Rutar
á olíumálverkum á Kaffí 17, Lauga-
vegi.
Lína Rut útskrifaðist úr MHI
1994 úr málaradeild.
Sýningin er opin á verslunartíma
út desember.
Fréttir á Netinu
mbl.is
__/\L.LTa/= EITTH\#\0 NYTT
ingur stjómað af Paul Anderson,
sem þekktur er fyrir tölvuleikja-
myndina „Mortal Kombat". Hún er
fyrir það fyrsta dæmigerð Rambó-
mynd þar sem Russell stígur skrefið
til fulls og verður Sylvester Stallone.
Hún er geimvestri þar sem Russell
er einnig í hlutverki Shanes, manns-
ins sem enginn veit hver er en
bjargar heiðri og sóma landnem-
anna er smám saman binda traust
sitt við hann. Landnemamir í þess-
ari mynd er fólk sem brotlent hefur
á mslahaugnum og búið sér til eins-
konar líf með aðferðum endurvinnsl-
unnar. Handritshöfundurinn David
Webb Peoples þekkir sína vesti-a,
hann skrifaði „Unforgiven“, þótt
hann hafi kannski ekki áður stolið
þeim í heilu lagi. Svo er þetta líka
framtíðartryllir og það er jafnvel
hennar sterkasta hlið. Umhverfi
framtíðarinnar, gengdai-lausar
styrjaldir, böm gerð að hermönn-
um, einhverskonar fasismi sem ræð-
ur ríkjum, allt er það ágætlega
ft-amsett. Og sviðsmyndimar, rasla-
plánetan, er hugvitsamlega notuð;
kemur í ljós að íslensk flugvél
Arnaldur Indriðason
Umfjöllun um
Ævisögu
þorsksins
HREINN Ragnarsson, sagnfræð-
ingur, tekur til umfjöllunar og at-
hugunar bókina Ævisaga þorsksins,
fiskurinn seny breytti heiminum, í
Sjóminjasafni Islands, Vesturgötu 8,
Hafnarfirði, í dag, þriðjudag, kl.
20.30. Bókin er eftir Mark Kurlan-
sky og var nýlega gefin út í íslenskri
þýðingu Ólafs Hannibalssonar. Er-
indið er flutt í boði Rannsóknarset-
urs í Sjávarútvegssögu og Sjóminja-
safns íslands.
-----------------
Nýjar hljómplötur
• GA UDETE! - Fagnið! er með
söng Kammerkórs Hafnart'jarðar.
Þetta er fyrsta plata kórsins og
liefur að geyma 24 lög, gamla og
nýja jólatónlist. Kórinn var stofnað-
ur vorið 1996 og leitast við að syngja
andleg og veraldleg verk frá hinum
ýmsu tímum, innlend og erlend, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Einsöng syngur Þórunn Guð-
mundsdóttir sópransöngkona, Helga
Loftsdóttir mezzósópran, Eyjólfur
Eyjólfsson tenór og Rúnar Matthí-
asson bassi. Gunnar Gunnarsson
leikur á þverflautu, Ástríður ur Alda
Sigurðardóttir leikur á píanó, Lenka
Mátéová á orgel, Þröstur Þorbjörns-
son á gítar og Jón Björgvinsson á
slagverk. Stjórnandi Kammerkórs
Hafnarfjarðar er Helgi Bragason.
Kórinn gefur sjálfur út. Upptakan
var hljóðrituð í október og nóvember
sl. í sal Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
og íVíðistaðakirkju. Stjórn upptöku
önnuðust Bjarni Rúnar Bjarnason og
Hreinn Valdimarsson. Hjóðvinnsla:
Bjarni Rúnar Bjarnason. Utlit og
hönnun: Gamla útgáfufélagið. Verð:
1.990 kr.
-------♦«♦"♦--T--
Upplestur á Sól-
oni Islandusi
FJÓRIR rithöfundar lesa úr verkum
sínum á 2. hæð Sólons Islandusar
annað kvöld, miðvikudagskvöld, kl.
20.30.
Jónas Jónasson les úr bókinni
Náðuga frúin á Ruzomberok, Kristín
Helga Gunnarsdóttir les úr bókinni
Keikó - hvalur í heimsreisu, Gunnar
Dal les úr ljóðabókinni Maður og
jörð og Súsanna Svavarsdóttir les úr
þýðingu sinni á bókinni Ekki klúðra
lífí þínu, kona.
SIEMENS
ivnii
Qiomono Kol
Siemens bakstursofn
Réttl ofninn fyrir þig.
Fjölvirkur (vfir- og undirhiti, blástur, glóðarsteiking
með blæstri, venjuleg glóðarsteiking),
létthreinsikerfi, rafeindaklukka og sökkhnappar.
Búhnykksverð:
borð, fjórar hraðsuðuhellur, ein
stækkanleg hella, fjórfalt eftirhitagaumljós, fjölvirkur
bakstursofn, létthreinsikerfi, geymsluskúffa,
gufuútstreymi að aftan, loftkæld ofnhurð.
iilegt k
með áföstum rofum, fjórum hraðsuðuhellum,
tveimur stækkanlegum hellum, fjórföldu
eftirhitagaumljósi.
UMBOÐSMENN:
Atianis: Ral^ítiisli Sipitíii - Baiganie:: Bii - Snsfellsbaer: Kntimii - erandaifiöríur: Eiiii Hiljiiirai - Snttiifiilni: Stigirit - Búðaidalur: talii - iiafjöiiti: filin
Hviuinngi: Skjuai - Siilíitiitir: Rafsji - Sigliljtilidqii - Atnvii: Ijiaipfiu - Hiiavit: Dnfjgi - VounafjöifSui: Rafm|isieliiia II - Nestaupstaður: RafilÉ - Reiðailjörður
Hiiiétabl Íib f. - Egilsstaðii: Sœii tiiniai - Bieilialnit Slefin I. Sleliisis - Höfn i Höinafirði: Iiii i| M - Vít i Uýidal: BÉn - Vestinannaerjarfimik - Hialnillc
Ralngisieitst. m - Hella: Eti • Selfoss: hbii ■ Eriiiaiít: latiij • Gaiður. Raftzkjn Si; legniss • (ellaiit: Ijútijiii • Hafnarfjöiðui: láil Stili fateii
SMITH &
NORLAND
w 7 ’ %
Nóatúni 4
105 Reykjavík
Sími 520 3000
www.sminor.is
■