Morgunblaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998 13
FRÉTTIR
Átak gegn ölvunarakstri
UNDANFARNAR þrjár helgar
hafa bifreiðatryggingafélögin og
Umferðarráð verið með kynningar-
bás í Kringlunni þar sem öku-
mönnum gefst kostur á að setja
upp sérhönnuð gleraugu, sem sýna
umhverfið eins og það lítur út með
augum drukkins manns.
Þannig fá ökumenn tækifæri til
að ganga eftir línu á gólfinu með
gleraugun á sér og finna hvernig
jafnvægisskynið skerðist, líkt og
þeir væru drakknir. Að þeirri raun
lokinni geta þeir ímyndað sér
hvernig er að setjast undii- stýri
þannig á sig komnir.
Kynningarbásinn er liður í
átakinu Endum ekki jólagleðina
með ölvunarakstri. Geta ökumenn
jafnframt tekið þátt í við-
horfskönnun um ölvunarakstur og
lagt nafn sitt í pott, en úr honum
verður síðar dregin út utanlands-
ferð.
Of margir ökumenn teknir
fyrir ölvunarakstur
Georg Kr. Lárusson varalög-
reglustjóri og Olafur Olafsson,
fyrrverandi landlæknir, mættu í
Kringluna um helgina, settu upp
gleraugun og gengu „vínhaltir“
um gólf til að hvetja ökumenn til
aðgæslu þegar vín er haft um
hönd og bíllinn í seilingarfjar-
lægð.
Veldur það lögreglu miklum
áhyggjum hversu margir hafa
verið teknir fyrir ölvun við akstur
síðan átakið hófst í lok nóvember.
A annan tug ökumanna var tekinn
um síðastliðna helgi og alls hafa
margir tugir ökumanna verið
teknir síðan átakið hófst. Lög-
reglunni finnst að ökumenn og -
konur mættu nota strætisvagna
og leigubíla í ríkari mæli til að
koma í veg fyrir að setja sig í að-
stöðu, sem þau hefðu aldrei óskað
eftir, eingöngu vegna augnabliks
óaðgætni.
Morgunblaðið/Golli
GEORG Kr. Lárusson, varalögreglustjóri í Reykjavík, gengur sem
drukkinn væri í Kringlunni með sérhönnuð ölvunargleraugu. Okumenn
fengu að prófa að vild og meðtóku skilaboðin: „Nei takk, ég er á bíl.“
Skipaður
skólastjóri
Garðyrkju-
skóla ríkisins
•DR. SVEINN Aðalsteinson,
plöntulífeðlisfræðingur, hefur verið
skipaður, af landbúnaðarráðherra, í
stöðu skólastjóra
Garðyrkjuskóla
ríkisins að
Reykjum frá 1.
janúar 1999.
Skipað er í stöð-
una til fimm ára.
Dr. Sveinn
Aðalsteinsson er
fæddur 1 Hvera-
gerði 2. ágúst
1960. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
við Sund 1979 og B.Sc. prófi í líf-
fræði frá Háskóla íslands árið 1983
og kennsluréttindanámi frá Há-
skóla Islands 1984. Lauk doktors-
prófi frá plöntulífeðlisfræðideild
Háskólans í Lundi 1990.
Dr. Sveinn var skipaður aðstoð-
arprófessor frá 1991 við Garðyrkju-
vísindastofnun sænska landbúnað-
arháskólans í Alnarp (SLU), að-
stoðardeildarstjóri rótar- og rótar-
beðsefnadeildar Garðyrkjuvísinda-
stofnunar SLU í Alnarp. Varði dós-
ent titil í garðyrkjuvísindum við
SLU í apríl 1997. Starfaði sem fag-
deildarstjóri við Garðyrkjuskóla
ríkisins að Reykjum frá 1. ágúst
1997 til 1. janúar 1998 og sem til-
raunastjóri við skólann frá 1. janú-
ar 1998.
Dr. Sveinn er kvæntur Helgu
Pálmadóttur og eiga þau tvö börn.
Níu umsækjendur voru um stöð-
una og mælti skólastjóm Garð-
yrkjuskólans einróma með dr.
Sveini Aðalsteinssyni.
-----------------
Á 141 km
hraða á Breið-
holtsbraut
LÖGREGLAN í Reykjavík stöðvaði
ofsaakstur ökumanns á Breiðholts-
braut fyrir ofan Víðidal á laugar-
dagskvöld. Ók hann á 141 km hraða
á klst., en hámarkshraði þar er 70
km á klst. Var hann sviptur ökuleyfi
á staðnum og á yfir höfði sér fjár-
sekt.
Annar ökumaður var einnig
sviptur ökuleyfi þegar hann var
stöðvaður eftir að hafa mælst aka
bifreið sinni á 103 km hraða á Gull-
inbrú þar sem 50 km hámarkshraði
er leyfður.
Enn annar ökumaðm- var síðan
sviptur ökuleyfi þegar hann var
stöðvaður á Bústaðavegi að morgni
sunnudags eftir að hafa mælst aka
bifreið sinni á 108 km hraða. Hann
er einnig grunaður um ölvun við
akstur.
Lögreglan stöðvaði alls 24 öku-
menn fyrir hraðakstur um helgina
og heldur áfram eftirliti með
hraðakstri og ölvunarakstri.
nýfar sendinsar
♦Columbia
Sportw car Companj »
Úlpur - enn fleiri litir
og tegundir, gott verð
- henta öllum...
AColumbia
Sportswcar Company*
Kuldaskór ný
sending - góð
í slabbio...mai
gerðir og litir.
AColumbia
nr Sportswear Company*
Hanskar ný sending -
brettahanskar,
fleecehanskar,
- pottþéttir í kuldann,
verðfrá kr. 1.490.-
Úrval af
bakpokumog
töskum í
jólapakkann...
□□□□□ □□□□□ □□□□□ 00000 □□□□□ □□□□□!
SpOtÍ VÖRUÍUÍS
i 1 - Sími 577-5858