Morgunblaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 35
MORGUNB LAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998 35 LISTIR Jólaboð(gleð)skapur Sjonvarpið Sunnudagsleikhúsið Æ,Æ Höfundur: Karl Ágúst Úlfsson, leik- stjóri: Hilmar Jónsson, leikmynd: Snorri Freyr Hilmarsson, tónlist: Margrét Ornólfsdóttir, Ieikendur: Ari Matthíasson, Björn Ingi Hilmarsson, Sigrún Edda Björnsdóttir. MAÐUR vaknar upp í ókunnugu rúmi, lítur varlega til hliðar og sér vangasvipinn á ókunnugri konu, stynur lágt „æ,æ,“ og smokrar sér síðan framúr af mikilli kúnst og tínir á sig spjarirnar eins hratt og hljóð- lega og grúttimbruðum manni er framast unnt. Konan rumskar, rís upp við dogg, þau horfast í augu, augnablik sannleikans er runnið upp. Hún segir allt sem segja þarf: „Æ,æ.“ Breskur stórleikari lét eitt sinn svo um mælt að kúnstin við að leika harmleiki Shakespeares væri að hafa vald á þeirri list að segja „Oh“ á sem fjölbreyttastan hátt. Karl Agúst gæti hafa tekið hann á orðinu og lagt upp í þessa stílæfíngu með „æ,æ“ eitt að vopni til að sýna hversu fjölbreytt tjáning getur farið fram þrátt fyrir einfaldan orðaforða. Svipbrigði og hreyfingar ásamt því sem kalla má „líkamlega framvindu" fylltu ágætlega út í hinn orðvana leik; meðan frávita eiginmaðurinn knýr dyra ofurölvi, berjast konan og hjásvæfíllinn öi-væntingarfullri bar- áttu í svefnherberginu við að hylja ummerki næturinnar, hann reynir að fela sig eða að hverfa á braut á hefðbundinn hátt út um gluggann niður samanhnýtt lök. Hvorugt tekst og að lokum er ekkert til ráða annað en opna dyrnar og taka í hornin á tudda. „Æ,æ“. Leikur, myndvinnsla, tónlist og leikmynd leggjast hér á eitt við að segja hefðbundna sögu á skemmti- lega stílfærðan hátt, undirstaðan er auðvitað hugmynd höfundarins að leik án orða svo úr verður leikþáttur sem veitir tækifæri til að nýta aðrar tjáningarleiðir. Hér var kunnáttu- samlega og hugvitsamlega unnið úr möguleikunum. Leikmyndin var að grunni til sami pallur og í fyrra leik- riti Karls Ágústs frá síðasta sunnu- degi, sennilega eins konar „konsept", svo séreinkenni hvers leikþáttar liggja í umgjörðinni um pallinn, húsgögnunum og skreyting- unum. Nútímahúsgögn eru greini- lega ekki hönnuð með grunnþarfir framhjáhalds í huga, því erfitt er að fela sig undir sökkulsíðum rúmum og til lítils að skríða inn í fataskápa með glerhurðum. Eins og góðum húmorista sæmir er Karl Agúst Ulfsson líka móralisti. Kannski er þó of langt seilst að leggja út af efni leikþáttar hans og fjalla um siðferðilegar hliðar fram- hjáhalds. „Eftirgleðileikur" var yfir- skrift verksins í kynningum sjón- varpsins og bendir orðið til inni- haldsins á þá lund að það snýst um hvað við tekur eftir að gleðinni lýk- ur. Höfundurinn læðir þó þeirri spurningu að strax í upphafi hvort gleði sem jafnskjótt er hulin móðu gleymskunnar sé ekki í það minnsta tvíbent. Og kannski er það tilviljun að leikþátturinn er sendur út þegar „eftirgleðileikir" jólaglöggvunar fara fram í ýmsum myndum útum borg og bæ. Hætt er þó við að hláturinn yfir sakleysislegum eftirgleðileikn- um á sunnudagskvöldið hafi einhvers staðar verið þvingaðri en ella. Æ, æ. Hávar Sigurjónsson I skugga fortíðar KVIKMYNPIR Ilognbogiiiii; Vetrarvindar LEFT LUGGAGE ★★★ Leikstjóri Jeroen Krabbé. Handritshöfundur Edwin de Vries, e. sögu Carls Friedman. Tónsmiður Henry Vrienteu. Kvikmyndatöku- stjóri Walther van den Ende. Aðalleikendur Laura Fraser, Isabella Rosselini, Maximilian Sehell, Jeroen Krabbé, Marianne Sagebrecht, Topol. 100 mín. Hollensk/belgísk/bandarísk. 1998. HUGHRIFIN sem Left Lugga- ge, fyrsta leikstjórnarverkefni hol- lenska leikarans góðkunna Jer- oens Krabbé, rifja upp þá samúð sem gyðingar nutu meðal vest- rænna þjóða eftir lok seinna stríðs. Níðingsverk nasista hvíldu jafnvel á pasturslitlum herðum barna og unglinga norður í Dumbshafi. Fortíðin plagar per- sónurnar í Left Luggage. Mara Helfararinnar víkur ekki frá þeim. Myndin hefst á stuttu atriði. Gyð- ingur á flótta felur sínar kærustu minningar um lífið fyrir Hitler, í tveimur koffortum sem hann gref- ur í jörð. Síðan víkur sögunni til Antwerpen 1972. Gyðingurinn sem faldi töskurnar (Maximilian Sehell) er enn að leita þeiiTa í um- turnuðum borgarhverfum Belgíu. Bæði hann og kona hans (Mari- anne Ságebrecht) eru enn með hugann við skelfingar útrýmingar- búðanna. Þriðji meðlimur fjöl- skyldunnar er Chaja (Laura Fra- ser), lífsglöð og uppreisnargjörn nútímastúlka, við heimspekideild háskólans. Hún veltir ekki mikið fyrir sér fortíðinni né trúarkredd- um gyðinga. Engu að síður gerist hún barnfóstra hjá hasídafjöl- skyldu þar sem strangtrúaður fað- irinn (Jeroen Krabbé) ríkir yfir eiginkonu sinni (Isabellu Rossel- ini) og fimm börnum þeirra. Chaja þiggur starfið fyrst og fremst sök- um Simcha (Adam Monty), fjög- urra ára drengs, sem talar ekki, er bældur og innilokaður, en tekur ástúð og frjálslyndu viðmóti barn- fóstrunnar fegins hendi. Gjörólík viðhorf Chaju og hasídanna hljóta að kalla á árekstra, þeir verða hastarlegir og myndin átakanleg, en sögð af hlýju og talsverðu lífsnauðsynlegu skopskyni. Tengsl Chaju og Simcha litla eru nístandi góð, skynsamleg og vel skrifuð. Megin- kostur myndarinnar er sterkur samleikur Fraser og Montys hins unga, sem sýnir ótrúlega hæfi- leika og er hinn ofurviðkvæmi kjarni myndarinnar. Annars eru allar persónurnar brothættar. Faðir Chaju í sinni endalausu leit að sjálfum sér í góssi koffortanna, eiginkonan og nágrannarnir, öll svipur hjá sjón. Stríðið lagði þau í rúst. Ástandið er öðruvísi en ekki betra hjá hasídafjölskyldunni, sem býr í skugga ofsatrúar heimilisföðurins. Isabella Rosselini er stórkostleg í lúðri persónu húsmóðurinnar og Krabbé er styrkur sem leikari og leikstjóri. Hann hefur verið í mikiu uppáhaldi hér, enda frábær vanmetinn leikari (Soldier of Orange, No Mercy, King of the Hill), sem sýnir að hann er jafn- framt athyglisverður, skynsamur leikstjóri, sem kann að töfra fram áhrifaríkt andrúmsloft og magnað- an leik hjá öllum þeim sem áður hafa verið nefndir og síðast en ekki síst hjá gamla góða Chaim Topol, sem skýtur óvart upp koll- inum í þessum áhugaverða leik- arahóp, í litlu en veigamiklu hlut- verki roskins vinar Chaju. Aldeilis eftirminnileg mynd um manneskj- ur í tilvistarkreppu, hágyðinglegi trúarþátturinn er þó sjálfsagt full fyrirferðarmikill fyrir aðra trúar- bragðahópa. Sæbjörn Valdimarsson Confortarle Fótlagainniskór Teg.: 7297 Litur: Dökkblár Stærðir: 40-46 verð kr.995 oppskórinn Veltusundi v/lngólfstorg, sími 5521212 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS Húsbréf Utdráttur húsbréfa Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: 1. flokki 1989 - 33. útdráttur 1. flokki 1990 - 30. útdráttur 2. flokki 1990 - 29. útdráttur 2. flokki 1991 - 27. útdráttur 3. flokki 1992 - 22. útdráttur 2. flokki 1993 - 18. útdráttur 2. flokki 1994 - 15. útdráttur 3. flokki 1994 - 14. útdráttur Koma þessi bréf til innlausnar 15. febrúar 1999. Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt í DV þriðjudaginn 15. desember. Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi hjá Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfa- fyrirtækjum. Óh HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS HÚSBRÉFAOEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SÍMI 569 690 Rit þetta er ómissandi smiðum, húseigendum, arkitektum og öllum þeim sem áhuga hafa á varðveislu gamalla húsa. í ritinu er að finna teikningar og verklýsingar um hvemig gera á við gömul timburhús.Markmiðið er að spoma við mistökum þegar gömul timburhús em lagfærð eða gerð upp.Gagnleg bók með fjölda ljósmynda og teikninga, tekin saman af Jon Nordsteien arkitekt mnal í samvinnu við Magnús Skúlason arkitekt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.