Morgunblaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998 37 LISTIR Falleg jólasaga TOIVLIST iVESKIRKJA TÓNLEIKAR OG ÓPERU- FLUTNINGUR Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, ein- söngvarar, Kammerkór Kópavogs Kór Neskirkju og nemendur í List- dansskóla íslands fluttu lög eftir Atla Heimi Sveinsson, Concerto grosso eftir Corelli og óperuna Amal og næturgestina eftir Gian Carlo Men- otti, Ingvar Jónasson stjórnaði. Sunnudagskvöld kl. 20.30. SINFÓNÍ UHL JÓMSVEIT áhugamanna hefur nú starfað í hartnær áratug undir stjórn stofn- anda hljómsveitarinnar, Ingvars Jónassonar. A þeim tíma hefur hljómsveitin færst æ meira í fang, og jafnframt vaxið að burðum. Á jólatónleikum hljómsveitarinnar var efnisskráin þrískipt; fyrst gat að heyra fjóra söngva eftir Atla Heimi Sveinsson, sem hljómsveitin lék með Kór Neskirkju, þá var fluttur Concerto grosso, eða Jólakonsert- inn eftir Archangelo Corelli, og í lokin var flutt óperan Amal og næt- urgestirnir eftir Gian Carlo Men- otti. Söngur Kórs Neskirkju á lögum Atla Heimis Sveinssonar með hljóm- sveitinni var daufur og litlaus. Strax í fyrsta tónbili Man'ukvæðis við ljóð Halldórs Laxness átti sópraninn í erf- iðleikum með hæðina og þar með var lagið fallið til enda. Festingin víða, hrein og há og Dalvísa, við ljóð Jónas- ar Hallgrímssonar, voni sömuleiðis líflaus, en í lokalaginu, Snert hörpu mína, við Kvæðið um fuglana eftir Davíð Stefánsson fór loks að birta til. Þar átti Inga Backman skínandi sóló, og söngur kórsins lifnaði um leið. Jólakonsert Corellis, Concerto grosso í g-moll, op. 6 nr. 8 heyrist oft á þessum árstíma, - enda saminn til flutnings á jólanótt. Þetta ljúfa verk er eins og vorboði að vori, boðberi góðra frétta, jólin eru í nánd. Hljóm- sveitin lék verkið vel, og einleikarar úr röðum hljómsveitaxinnar, Ragn- heiður E. Þorsteinsdóttir, Helga Oskarsdóttir og Páll Einarsson, skil- uðu sínu hlutverki með stakri prýði. Með verkinu dönsuðu nemar frá Listdansskóla íslands dans sem Ástrós Gunnarsdóttir samdi við það. Einhvern veginn var eriitt að upplifa dansinn og tónlistina sem eina heild, og þótt dansinn væri bæði fallegur og listilega dansaður verkaði hann truflandi á tónlistina. Þriðja atriðið á efnisskránni, óperan Amal og næturgestirnir eftir Gian Carlo Menotti, var toppurinn á kvöldinu, og hefði að ósekju mátt vera eina verkið á efnisskránni. Þeir eru margir sem muna fyrstu upp- færslu verksins hér á landi með Sig- urði Rúnari Jónssyni í hlutverki Amals, og fyrstu sjónvai-pskynslóð- inni er Olafur Flosason ógleyman- legur í þessu hlutverki. Síðan hefur óperan verið flutt nokki’um sinnum. Þessi hugljúfa jólasaga hefur notið gríðarlegra vinsælda frá því hún var frumflutt í amerísku sjónvarpi jólin 1951. Óperan er sú fyrsta sem samin var sérstaklega fyrir sjónvarp, og að því leyti tímamótaverk. Óperur Menottis, Síminn og Miðillinn, hafa einnig notið mikilla vinsælda hér og verið settar upp nokkrum sinnum. Þeir eru tveir sem skipta með sér hlutverki Amals nú, og söng Rúrik Fannar Jónsson á sunnudagskvöld- ið. Með hlutverk móðurinnar fer Hulda Guði’ún Geirsdóttii’, en þeir Skarphéðinn Þór Hjai’tarson tenór, Ólafur Rúnarsson bariton og Bene- dikt Ingólfsson bassi fara með hlut- verk vitringanna Kaspars, Melkjörs og Baltasars, en Egill Gunnarsson bariton er skósveinn þeirra. Kam- merkór Kópavogs fer með hlutverk hjai’ðmanna og þorpsbúa. Hulda Guðrún Geirsdóttir er fín í hlutverki móðurinnar. Raddlega beitir hún sér um of, mætti gjarnan vera létt- ari í söngnum í anda þessarar ljúfu tónlistar og gefa orðunum jafnframt meiri gaum. Söngur hennar var þó jafnan fallega músíkalskur og hi’einn. Vitringarnir þrír voru skín- andi góðir hver og einn, - þeir dýpka söguna með jafnt húmor og djúpri alvöru. Sá sem kom mest á óvart var Rúrik Fannar Jónsson, sem söng hlutverk Amals einstak- lega fallega, klingjandi hreint og af- burða músíkalskt, og hvert orð í ágætri íslenskri þýðingu verksins heyrðist skýrt og greinilega. Kór og dansarar færðu verkinu svo enn nýja vídd. Þótt strengirnir ættu í einhverjum erfíðleikum með að spila hreint í upphafi verksins náði hljóm- sveitin sér fljótt á strik og spilaði verkið ákaflega vel til enda. Upp- setning verksins var einfóld og lát- laus en snotur, kannski fullstöð - hefði kannski mátt vera meiri hreyf- ing á söngvurum, sérstaklega vitr- ingunum sem eru hreyfiafl sögunn- ar. Heildarsvipur óperuflutningsins var þó mjög þokkafullur og umfram allt skemmtilegur. Það er í honum hlýja og gleði sem gerði þessa stund virkilega ánægjulega, og ekki er verra að nú gefst nýjum kynslóðum enn tækifæri til að kynnast Amal og fallegu jólasögunni hans. Bergþóra Jónsdóttir Nemar úr skúlptúrdeild MHÍ sýna myndverk NEMENDUR úr skúlptúrdeild Myndlista- og handíðaskóla íslands sýna myndverk dagana 15. og 16. des- ember. Myndverkin hafa verið unnin í tengslum við ýmsar stofnafr og fyr- frtæki í Reykjavík undir handleiðslu kennara þeirra, Halldórs Ásgefrsson- ar. Verkin eru margvísleg að efni og gerð og verða flest þeirra til sýnis á viðkomndi stöðum. Sum verkanna eru unnin í samvinnu við starfsfólk en önnur eru hugsuð og unnin fyrir ákveðið rými. Verkin verða til sýnis á opnunar- tíma fyrirtækjanna sem taka þátt í verkefninu. Þau eru: Tal hf., Fálkinn hf., íslenska útvarpsfélagið, Máln- inigarverksmiðjan Harpa, Vegagerð- in, Tæknival hf., Hrafnista, Teitui’ Jónasson, Sundhöll Reykjavíkur, Al- menningsvagnar hf., Borgarbóka- safnið við Þingholtsstræti, Radíómiðl- un hf. og Hallveigarstaðir. SLOPPAR Dömusloppar Herrasloppar Velúrgallar, renndir, hnepptir og hnýttir. I__I lympiSL Kringlunni 8-12, sími 553 3600 H>mb l.i is A.LUTAf= eiTTH\SA£> NÝTl Morgunblaðið/Golli SONGVARAR og strengjasveit á æfíngu í Grensáskirkju. Grensáskórinn flytur tvær jólakantötur KIRKJUKÓR Grensáskirkju flytur tvær jólakantötur á aðventutónleik- um á morgun, miðvikudag kl. 20.30. Fluttar verða Lobet, Christen, euren Heiland eftir D. Buxtehude og Uns ist ein Kind geboren, kantata nr. 142 eftir J.S. Bach. Ein- söngvarar verða Ingibjörg Ólafs- dóttir, Hellen Helgadóttir, Ingimar Sigurðsson, Matthildur Matthías- dóttir, Guðlaugur Viktorsson og Ingimar Sigurðsson. Kammerveit leikur með í báðum kantötunum undir stjórn Árna Arinbjarnarsonar. Birna Ragnardóttir, sem stundað hefur söngnám við Nýja tónlistar- skólann og síðai’ á Italíu, mun syngja ai’íu úr Magnificat efitr Bach á milli kantatanna. Þá leikur strengjasveit Nýja tónlistarskólans Concerto grosso op. 6 nr. 1 eftir G.F. Hándel. Þar sem þjálfunin byrjar púlsmælar P. Ólafsson ehf., Trönuhrauni 6, Hafnarfiröi, sími 565 1533, fax 565 3258. Söluaðilar POLAR púlsmæla: Akranes: Guöm. B. Hannah úrsm. Ólafsvfk: Verslunip Hrund. ísafjörður: Vestursport. Sauðárkrókur: Sundlaugin. Úlafsljörður: Tíska og sport. Akureyri: Úrsmíðavinnust. Halldórs Ólafssonar. Húsavík: Skokki, heilsurækt. Egilsstaðir: Apótekið. Neskaupstaður: SÚN-búðin.Veslmannaeyjar: Hressó, heilsurækt. Selloss: Styrkur. Ketlavík: Georg V. Hannah úrsm. Hlaupasíðan: http://www.mmedia.is/hlaup /OLATRE TIIK OKIGIXAL/USA ★ TÍU ÁRA ÁBYRGÐ, ÆVIEIGN ★ VERD ADEINS FRÁ 2900,- ★ MARGAR STÆRDIR ★ /ÓLASERÍA & FÓTUR FYLGIR ÚTSÖLUSTADIR ALASKA | Alaska v/BSÍ, Borgartúni 22 a Ármúla 34 s: 562 2040 Morgunblaðið/Karl HAUKUR Guðlaugsson og Gunnar Kvaran héldu tónleika í Hvammstangakirkju. Orgel- og sellóleikur í Hvammstangakirkju Hvanistanga. Morgunblaðið. HAUKUR Guðlaugsson, organisti og söngmálastjóri þjóðkirkjunn- ar, og Gunnar Kvaran, sellóleik- ari, héldu aðventutónleika í Hvammstangakirkju sunnudag- inn 6. desember. Tónleikarnir voru vel sóttir og voru liður í tónleikaröð Tónlistarfélags Vest- ur-Húnvetninga. Á efnisskránni voru nokkur verk eftir J.S. Bach, m.a. Svíta nr. 2 fyrir einleiksselló og verk eftir Carl Piutti, J. Pachebel, G.F. Hándel, L.N. Clérambault, F.Chopin, Bach-Gounod, C.Saint- Saens, L. Boccerini og W.H.Squire. Ymist léku listamennirnir ein- leik eða samleik á pípuorgelið og selló, en síðustu lög tónleikanna léku listamennirnir saman á selló og píanó. Gunnar Kvaran kynnti dagskrána og lét þess getið að rætur hans lægju um Miðfjörð- inn. Hann hafi átt heima á Hvammstanga sem barn og síðar á sumrum á Laugarbakka, hjá Jósefínu Helgadóttur ömmu sinni. Með þennan bakgrunn væru tónleikar á Hvammstanga sér afar ánægjulegir. Súrefnisvönir Karin Herzog Kynning í dag í Háaleitis Apóteki kl. 15-18 og Heilsu og fergurð, Síðumúla 34, kl. 14-17.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.