Morgunblaðið - 10.01.1999, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
AFMÆLI
ASGEIR LARUSSON
Ásgeir Lárasson full-
trúi, Hlíðargötu 4, Nes-
kaupstað, er 75 ára í
dag.
Asgeir er fæddur í
Neskaupstað og ólst
þar upp hjá foreldram
sínum og 11 systkinum
í Sjávarborg s. st., en
foreldrar hans voru þau
Láras Ásmundsson,
ættaður úr Vöðlavík, og
Dagbjört Sigurðardótt-
ir, ættuð úr Mjóafirði.
Ásgeir sótti skóla í
Neskaupstað og lauk __
gagnfræðaprófi þaðan.
Á yngri áram stundaði Ásgeir
sjóinn svo sem títt var í þá daga og
var m.a. á síldveiðum og síðar
einnig um tíma á farskipi. Npkkru
eftir seinna stríð eignaðist Ásgeir
forláta Austin-vörabifreið og var
hún um árabil notuð við margvísleg
verkefni á Norðfirði. Hann var um
tíma olíuafgreiðslumaður í Nes-
kaupstað. Framkvæmdastjóri
Pöntunarfélags alþýðu var hann í
tvö ár og sá þá um rekstur verslun-
arinnar Pan í Neskaupstað sem
seldi matar- og vefnaðarvörar svo
°g byggingavörar. I 14 ár var Ás-
geir fréttaritari Morgunblaðsins í
Neskaupstað.
Ásgeir hóf störf sem fulltrúi hjá
bæjarfógetaembættinu í Neskaup-
stað 1. ágúst 1959, síðar sýslu-
mannsembættinu s. st., og hefur
starfað þar allar götur síðan eða í
tæp fjörutíu ár. Á þessum tíma hef-
ur hann gegnt nánast öllum störf-
um sem undir sllkt embætti falla og
var m.a. alloft settur bæjarfógeti í
Neskaupstað í fjarveru reglulegs
bæjarfógeta, en slíkt telst óvana-
legt þar sem hann er ólöglærður og
slíkur ráðahagur útilokaður nú á
dögum. Þetta lýsir því vel hve ráðu-
neyti dómsmála bai- mikið traust til
Ásgeirs.
Hann sat sem varabæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn
Neskaupstaðar í fjögur ár og var
formaður Lionsklúbbs Neskaup-
staðar í fjögur ár.
Ásgeir er mikill áhugamaður um
leiklist og starfaði með leikfélagi
Neskaupstaðar í 18 ár. Hann er
einnig mikill tónlistarannandi og
söng með ýmsum kóram í Nes-
kaupstað í ein 30 ár og einnig hefur
hann fengist við að leika á mand-
ólín.
Hinn 25. desember 1955 kvæntist
Ásgeir Unni Bjarnadóttur, en hún
er dóttir Bjarna Sveinssonar, sem
ættaður var úr Viðfii’ði, og Guðrún-
ar Friðbjörnsdóttur, sem ættuð var
úr Skriðdal. Pau eignuðust fjögur
börn og era tvö þeirra á lífi: Oskírð
dóttir, fædd og dáin 22. september
1951, Heimir, f. 1. júní 1955, verk-
stjóri í Neskaupstað, maki Theresa
Ásgeirsson ræstitæknir, fædd á
Bretlandi, og eiga þau þrjú börn,
Sævar, f. 4. desember 1959, en
hann lést í snjóflóði í
Norðfírði 1978, og
Sveinn, f. 18. ágúst
1964, tannlæknir í
Reykjavík, maki
Hólmfríður Brynjólfs-
dóttir tannlæknir og
eiga þau þrjú böm.
Sá sern þetta ritar
kynntist Ásgeiri fljót-
lega eftir að hafa hafið
störf sem fulltrúi
sýslumannsins á Eski-
firði árið 1983, en tals-
verð samskipti hafa
verið með embættun-
um í gegnum tíðina og
hefur sú vinátta sem fljótlega skap-
aðist haldist síðan. Undirritaður
hefur starfað með Ásgeiri alloft
sem settur bæjarfógeti í Neskaup-
stað og loks sem sýslumaður s. st.
frá 1. júlí 1992 til 1. okt. 1998. Ás-
geir er mjög drífandi og traustur
starfsmaður en hann hefur lagt
mikinn metnað í að halda öllu til
haga og fylgjast með að hin ýmsu
verkefni embættisins gangi snurðu-
laust fyrir sig og án óþarfa dráttar.
Útivist og íþróttir skipa veglegan
sess hjá Ásgeiri og hann fer dag-
lega í langar gönguferðir með
Unni, en þau era nýlega hætt að
stunda badminton. Hann fylgist af
miklum áhuga með helstu íþrótta-
viðburðum og þá sérstaklega knatt-
spyrnu og situr ekki á skoðunum
sínum um framgang einstakra
leikja og annarra viðburða og er
ákaflega gaman að skiptast á skoð-
unum við hann um íþróttir, en við
þær rökræður ríkir engin logn-
molla af hálfu afmælisbarnsins.
Ásgeir er ákaflega raddmikill og
fer ekki í grafgötur með skoðanir
sínar sem hann tjáir með sinni
hljómmiklu rödd og fer aldrei á
milli mála hver þar er á ferðinni og
er hann hrókur alls fagnaðar á
góðri stundu. I Neskaupstað er
starfræktur einstakur gufubaðs-
klúbbur sem stofnaður var hinn 14.
október 1948, en það ár var sund-
laug Neskaupstaðar tekin í notkun
og hefur Ásgeir verið félagi í hon-
um um 30 ára skeið. Mikið er skraf-
að og skeggrætt í þeim ágæta
karlaklúbbi og þætti mörgum fróð-
legt að vera fluga á vegg þegar ým-
is málefni eru tekin fyrir og þau
brotin til mergjar að hætti „Elsta
og virðulegasta gufubaðsklúbbs
bæjarins", en svo kallast klúbbur-
inn af alkunnri hógværð félaga
hans.
Að lokum vill undirritaður þakka
Ásgeiri fyrir einstaka viðkynningu
og samstarf á liðnum áram jafn-
framt því að óska honum tO ham-
ingju með afmælið og þeim Unni
alls velfarnaðar í framtíðinni.
Á afmælisdaginn munu þau Ás-
geir og Unnur dveljast hjá syni sín-
um, Sveini Ásgeirssyni, í Grófarseli
28 í Reykjavík.
Bjarni Stefánsson.
Aðsendar greinar á Netinu
v^>mbl.is
_ALLTAf= e/TTHVAO HÝTT
^USI%
SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1999 49.
MYNDLISTANAMSKEIÐ
fyrir börn, unglinga og fullorðna
- byrjendur og lengra komna.
Teikning, málun (vatnslitir, akríl, olía, silkimálun), myndvetnaður,
teiknimyndasögur og fjöltækninámskeið fyrir börn og unglinga.
UPPLÝSINGAR OG INNRITUN
í SÍMA 562 2457 OG 552 6570
Þú fiefur áJirif
á síefnu Sjálfsfaeðisflokksins
33. landsfundur Sjálfstæðisflokksins
verður haldinn 11. - 14. mars n.k.
Næstu daga halda eftirtaldar málefnanefndir Sjálfstæðisflokksins
opna fundi þar sem drög að ályktunum landsfundar verða kynnt.
W Fundirnir eru opnir öllum sjálfstæðismönnum. Fundarstaður er
Valhöll og eru fundartímar sem hér segir:
AVánudagur 11. janúar:
KI. 17.15 íþrótta-, æskulýðs- og tómstundanefnd
Kl. 17.15 Landbúnaðarnefnd
Kl. 17.15 Menningarmálanefnd
Kl. 17.15 Tryggingamálanefnd
Þriðjudagur 12. janúar:
Kl. 17.15 Heilbrigðisnefnd
Kl. 17.15 Iðnaðarnefnd
Kl. 17.15 Skattamálanefnd
Kl. 17.15 Skóla-og fræðslunefnd
AViðvikudagur 13. janúar:
Kl. 17.15 Jafnréttisnefnd
Kl. 17.15 Nefnd um samgöngu- og fjarskiptamál
Kl. 17.15 Réttarfars- og stjórnskipunarnefnd
Kl. 17.15 Sveitarstjórnar- og byggðanefnd
Fimmfudagur 14. janúar:
Kl. 17.15 Ferðamálanefnd
Kl. 17.15 Nefnd um upplýsingamál
Kl. 17.15 Umhverfis- og skipulagsnefnd
Kl. 17.15 Vinnumarkaðsnefnd
Fösfudagur 15. janúar:
Kl. 17.15 Fjölskyldumálanefnd
Kl. 17.15 Nefnd um málefni aldraðra
Kl. 17.15 Orkunefnd
Kl. 17.15 Viðskipta- og neytendanefnd
/VYánudagur 18. janúar:
Kl. 17.15 Sjávarútvegsnefnd
Allar frekari upplýsingar um fundina er hægt
að fá á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins
í síma 5151700 eða á heimasíðu flokksins
www.xd.is SJÁLFSTÆDISFLOKKURINN
Lokað mánudaginn 11. janúar
l þrið; J.tS3.1^n hefst judaginn 12. janúar ^ l ♦ ♦ ^3 C3 Tískuverslun • Kringlunni 8-12 • Sími 553 3300