Morgunblaðið - 02.03.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
50. TBL. 87. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
MEÐLIMIR í samtökum mæöra hermanna í setuliði ísraela í Suður-Líbanon mótmæltu við varnarmála-
ráðuneytið í Tel Aviv í gær. Á skiltunum stendur: „Svo margir, svo ungir“ og „Farið frá Líbanon“.
Fjórir fsraelar felldir í Suður-Líbanon
Enn barizt í Kosovo
Hefndarloft-
árásir en hætt
við stórsókn
Kiryat Shmona. Reuters.
BENJAMIN Netanyahu, forsætisráðheiTa ísraels, tilkynnti í gær að ekki
yrðu gerðar frekari loftárásir á stöðvar skæruliða Hizbollah-hreyfingarinnar
í Líbanon en til þeirra var giipið er þeir feildu fjóra ísraelska hermenn á
sunnudag, þar á meðal einn hershöfðingja. ísraelar höfðu hótað stórsókn
gegn skæruliðum, úr lofti, á landi og af sjó, en í gær var fólki sem býr nálægt
líbönsku landamærunum sagt að óhætt væri að yfirgefa loftvarnabyrgin.
Kosningarnar í Iran
títlit fyrir
stórsigur
umbótasinna
Teheran. Reuters.
UMBÓTASINNAR í íran og stuðn-
ingsmenn Mohammads Khatamis
forseta virðast hafa unnið mikinn
sigur í sveitarstjórnarkosningunum,
sem fram fóru í landinu sl. föstudag.
Til dæmis bentu tölur til þess í gær,
að þeir fengju a.m.k. tólf sæti af
fímmtán í höfuðborginni, Teheran.
Talning hefur gengið hægt en töl-
ur, sem birtar voru í gær, sýndu, að
umbótasinnum og óháðum fram-
bjóðendum vegnaði ekki aðeins vel í
höfuðborginni, heldur víðast hvar
um landið. Vakti ekki síst athygli
góður árangur kvenna í mörgum
kjördæmum. í Teheran fór
Abdollah Nouri innanríkisráðherra
íyrir umbótasinnum og þar stefndi í
stórsigur þeirra á harðlínumönnum
og fulltrúum klerkaveldisins í land-
inu. Attu þeir síðamefndu aðeins
tvo fulltrúa af fimmtán samkvæmt
talningu og það voru raunar menn,
sem báðar fylkingar studdu. Þá
virtist stefna í, að tvær konur næðu
kjöri í borginni.
Sagði Netanyahu að ekki væri
lengur að óttast flugskeytaái-ásir
skæruliða, loftárásirnar í gær og
fyiTadag hefðu sýnt þeim við hverju
þeir mættu búast. I tOkynningu frá
hernum sagði að ráðist hefði verið á
ýmsar stöðvar skæruliða, meðal ann-
ars á höfuðstöðvar þeirra í Baalbek
og á vopnabúr.
Israelai- hafa misst sjö hermenn á
skömmum tíma í S-Líbanon og Ezer
Gerstein, hershöfðinginn sem lét lífíð
á sunnudag, er háttsettastur þeirra
sem þar hafa fallið frá því í innrásinni
1982. Var hann tengiliður milli ísra-
elshers og S-líbanska hersins, vopn-
aðra sveita sem styðja ísraela.
Netanyahu segir unnið
að brottflutningi
Netanyahu sagði að ísraelsstjórn
ynni að því bæði leynt og ljóst að
finna leið til að flytja burt herliðið í
S-Líbanon án þess að tefla öryggi
Israels í hættu. Setja ísraelar það
skilyrði að líbanski stjómarherinn
taki að sér gæslu á landamærunum
en Líbanonsstjóm krefst á móti skil-
yrðislauss brottflutnings.
Anwar Khalil, upplýsingaráðherra
Líbanons, fordæmdi í gær hótanir
ísraela um stórsókn inn I Líbanon og
lýsti jafnframt stuðningi við baráttu
Hizbollah og annarra hópa gegn
Israelum í S-Líbanon.
■ ísraelar engjast/25
Milosevic
„þverneit-
ar“ íhlutun
Belgrad, Pristina. Reuters.
SLOBODAN Milosevic, forseti
Júgóslavíu, þverneitaði að
heimila hvers konar afskipti er-
lends herliðs af framkvæmd
pólitísks samkomulags um
framtíð Kosovo-héraðs. Þetta
sagði Knut
Vollebæk, ut-
anríkisráð-
herra Noregs
og starfandi
yfirmaður
ÖSE, Örygg-
is- og sam-
vinnustofnun-
ar Evrópu,
eftir viðræður
þein-a Milosevic í Belgrad í
gær.
Chris Hill, aðalsáttasemjari
tengslahóps stórveldanna í
Kosovo-deilunni, sagði eftir við-
ræður við fulltrúa Kosovo-Alb-
ana í héraðshöfuðborginni Prist-
ina, að þeir væru líklegir til að
undirrita samkomulagið um
sjálfsstjórn Kosovo um miðjan
þennan mánuð.
Vollebæk var fyrsti háttsetti
fulltrúi Vesturveldanna sem átti
beinar viðræður við Milosevic
eftir að þriggja vikna samn-
ingalotu um framtíð Kosovo
lauk í Frakklandi í síðustu viku
með skilyrtu samþykki bæði
Serba og Kosovo-AIbana við
samkomulagi um pólitíska lausn
á deilunni.
Ekkert lát var á átökum í
Kosovo um helgina milli
serbneskra lögreglu- og her-
sveita og skæruliða Frelsishers
Kosovo (UCK). Á þriðja þúsund
manns flúði átök sunnan hér-
aðshöfuðborgarinnar Pristina á
sunnudag og í gær flúðu nokkur
hundruð manns til viðbótar til
skógar.
■ Á þriðja þúsund/24
Knut Vollebæk
Obasanjo lýstur sigurvegari í Nígeríu
Mótframbjóð-
andinn kærir
niðurstöðuna
Abuja. Reuters.
OLUSEGUN Obasanjo hershöfð-
ingi var í gær útnefndur sigurveg-
ari forsetakosninga sem fram fóru í
Nígeríu um helgina, nærri tveimur
áratugum eftir að hann
vék frá stjómar-
taumunum og hleypti
síðasta lýðræðislega
kjörna fulltrúanum að
þeim.
Mótframbjóðandi
Obasanjos, Olu Falae,
kærði þessa niðurstöðu
tafarlaust, en opinber-
ar kosningatölur sögðu
Falae hafa fengið rúm-
ar 11 milljónir atkvæða
en Obasanjo 18,7 millj-
ónir. Herstjórn hefur
verið við völd í Nígeríu,
fjölmennasta ríki Afr-
íku, síðastliðin fimmtán
ár.
„Grunnur hefur verið lagður að
því að sannkallað lýðræðiskerfi
komist á í Nígeríu," sagði Ephraim
Akpata, forseti kjörstjórnar, sem
lýsti Obasanjo sigurvegara þrátt
fyrir beiðni Falaes um að fresta til-
kynningu úrslitanna.
Akpata sagði að erlendir eftirlits-
menn, sem fylgzt hefðu með fram-
kvæmd kosninganna, hefðu viður-
kennt að „úrslitin endurspegluðu
vilja nígerísku þjóðarinnar“, þrátt
fyrir frásagnir af kosningasvindli.
Obasanjo, sem er 61 árs, á að
taka formlega við embætti 29. maí,
þegar Abdulsalami Abubakar hers-
höfðingi hefur heitið að láta af völd-
um, innan við ári eftir að skyndilegt
fráfall einræðisherrans Sani
Abachas opnaði fyrir möguleikann
á að efnt yrði til þessarar nýjustu
tilraunar til að finna lýðræðinu fót-
festu í Nígeríu.
„Kosningar eru ekki endir lýð-
ræðisins. Lýðræðið er ferli. Kosn-
ingar eru einungis mikilvægur
áfangi í ferlinu og lýðræðið mun
halda áfram undir minni stjórn,"
tjáði Obasanjo fréttamönnum í höf-
uðborginni Abuja er hann þakkaði
Nígeríumönnum stuðninginn.
Hann viðm'kenndi
að svo virtist sem
framkvæmd kosning-
anna hefði ekki verið í
öllu eins og vera ber,
en sagðist trúa því að
andstæðingar sínir
myndu taka niðurstöð-
una góða og gilda og
„taka saman höndum
við okkur öll, því á
þessari stundu er það
það sem við þurfum á
að halda“.
En Falae, sem er
sextugur, af Yoruba-
ættbálki eins og
Obasanjo og var um
skeið fjármálaráð-
herra, lýsti kosningunum sem
merkingarlausum sýndarleik. „I
krafti stjórnarskrárinnar, laganna
og stjórnmálanna munum við berj-
ast spönn fyrir spönn, alla leið,“
sagði Falae.
Blendin viðbrögð
umheimsins
Viðurkenning umheimsins á nið-
urstöðum kosninganna er Nígeríu
mjög mikilvæg, en landið vonast til
að geta varpað loks af sér ímynd
hins úthrópaða og þarfnast lífs-
nauðsynlega að koma viðskipta-
samböndum sínum, einkum í olíu-
geiranum, aftur í lag eftir óreiðu
síðustu ára. Lækkandi olíuverð á
heimsmarkaði hefur farið illa með
nígerískt efnahagslíf.
Bæði talsmenn Evrópusam-
bandsins og bandarískra stjórn-
valda fógnuðu því í gær að Nígería
væri að feta sig áfram inn á braut
lýðræðis, en lýstu því yfir að ásak-
anir um kosningasvindl yrði að
rannsaka nánar.
Olusegun Obasanjo
Þungar loftárásir
í Norður-írak
Washington. Reuters.
í EINNI þyngstu árásinni á írak í
tvo mánuði vörpuðu bandarískar
herþotur í gær yfir 30 sprengjum á
hernaðarlegar fjarskiptastöðvar og
loftvamabyssur íraka á nyrðra
flugbannssvæðinu í Irak.
William Cohen, vamai-málaráð-
herra Bandaríkjanna, lagði á það
áherzlu á fundi með fréttamönnum í
Washington að bandarísku herflug-
mönnunum hefði verið heimilað að
ráðast á hvert það skotmark innan
flugbannssvæðanna í Norður- og
Suður-írak, sem þeir teldu til þess
fallið að ógna öiyggi þeirra, þar
sem her Saddams Husseins væri sí-
fellt að reyna að beita loftvarna-
vopnum gegn eftirlitsflugi þeirra.
í íyrradag lentu bandarískar
sprengjur á fjarskiptastöð í Norð-
ur-írak, sem einnig mun hafa
gegnt hlutverki við flutning olíu
frá írak eftir leiðslu til Tyrklands,
en eftir þessari leiðslu rennur olía
sem Irökum er samkvæmt álykt-
un öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna heimilað að selja úr landi til
þess að fjármagna kaup á lyfjum
og nauðsynjavörum. Talsmaður
íraska olíumálaráðuneytisins sagði
nýjar árásir hafa verið gerðar í
gær á hluta stjórnkerfis olíuleiðsl-
unnar og á íbúðarsvæði í Ain
Zahla, sem er olíuvinnslustöð
skammt frá norður-írösku borg-
inni Mosul.