Morgunblaðið - 02.03.1999, Blaðsíða 60
- ' 60 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Catherine Zeta-Jones
Leikkona í ætt
við Sophiu Loren
ÞEGAR fyrstu myndirnar af
Catherine Zeta-Jones fóru að birtast
í bandarískum blöðum þegai' kynn-
ingin á Giimu Zorrós var að hefjast
spurði hver annan: Hver er þessi
ótrúlega fallega kona? Er hún ítölsk
og skyld Sophiu Loren? Er hún fyrr-
verandi fyrirsæta? Var hún búin til á
ókunnri plánetu? Hver er þessi
Catherine Zeta-Jones?
Kona með fortíð
Svarið við þessari spurningu er
ekki einhlítt, því Zeta-Jones hafði átt
blómlegan leiklistarferil í Bretlandi
þótt Bandaríkjamenn vissu ekkert af
því að hún væri til. Eins hafði hún átt
lítil hlutverk í nokkrum bandarískum
myndum eins og The Phantom, The
Return of the Native og sjónvarps-
mynd CBS-sjónvarpsstöðvarinnar
um Titanic. Það var einmitt hlutverk
hennar í Titanic sem vakti áhuga
leikstjórans Steven Spielbergs á
henni, en hann benti Martin Camp-
beil, leikstjóra Grímu Zorrós, á hana.
Zeta-Jones fæddist í Swansea í
Wales fyrir 29 árum, sama bæ og ól
> ljóðskáldið Dylan Thomas og leikar-
ann Anthony Hopkins. Hún var að-
eins 11 ára þegar hún fékk hlutverk í
Annie og þrettán ára lék hún í Bugsy
Malone á West End. Sextán ára
hlaut hún aðalhlutverkið í West End-
söngleiknum 42nd Street sem sló í
gegn. En mestu frægð sína í Bret-
landi hlaut Zeta-Jones þegar hún lék
í sjónvarpsþáttunum The Darling
Buds sem voru gífurlega vinsælir. En
eins og hún átti eftir að kynnast var
það ekki tekið út með sældinni að
vera frægur í Bretlandi.
Fylgifískar frægðarinnar
Hún var aðeins tvítug þegar ljós-
myndai-ar eltu hana á röndum og
slúðurblöðin gerðu sér efni úr henni
nánast daglega. Hún segist engan
veginn hafa kunnað á þessa athygli
og það hafi endað með því að breska
pressan hafi snúið við henni baki.
Þegar hún var 24 ára gömul voru
blöðin farin að tala um hana í þátíð.
Árið 1995 ákvað hún að færa sig um
set, freista gæfunnar í kvikmynda-
borg Bandaríkjanna, Los Angeles.
Eftir nokkur lítil hlutverk hneppti
Zeta-Jones hlutverkið í Zorró eins og
Nokkur hlutverk
Catherine Zeta-Jones
I Darling Bud of May.
í Christopher Columbus: The
Discovery.
í Splitting Heirs.
I Blue Juice.
Og í The Mask ofZorro.
frægt er orðið og í dag blasir heimur-
inn við þessari ungu leikkonu sem
margir telja að eigi meira skylt með
kvikmyndastjömum eldri tíma, eins
og Sophiu Loren, Claudiu Cardinale
og Natalie Wood, en nútímakvik-
myndastjörnum.
Væntanlegar myndir með Zeta-Jo-
nes eru Entrapment þar sem hún
leikur á móti Sean Connei'y og The
Haunting of Hill House þar sem hún
leikur á móti þeim Liam Neeson, Lili
Taylor og Owen Wilson.
Zeta-Jones segir að aidursmunur-
inn á henni og Connery hafi ekkert
trafiað hana. „Ef maður hugsar um
kvikmyndapör fyrri tíma var maður-
inn alltaf miklu eldri en konan, eins
og Bogart og Bacall, Spencer Tracy
og Katharine Hepburn, Cary Grant
og Grace Kelly. En það sem var
áhugavert við þessi sambönd var að
konan var alltaf jafnoki mannsins.
Það var akkúrat það sem ég vildi ná
fram með Connery. Hann er fjörutíu
árum eldri en hún veit samt jafnmik-
ið og hann, bara fjöratíu árum fyrr!“
BÍÓIN í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/ Arnaidui- Indriðason/ Hildur Loftsdóttir
BÍÓBORGIN
Pöddulif ★★★
Ágætlega heppnuð tölvuteikni-
mynd frá höfundum Leikfanga-
sögu; fjörug, litrík og skemmti-
leg.
You’ve Got Mail ★!/&
Það er því miður ekkert nýtt að
sjá í þessari langdregnu og gjör-
samlega fyrirsjáanlegu róman-
tísku gamanmynd.
Fear and Loathing
in Las Vegas ★
Sýrusull og eintómt bull frá upp-
hafi til enda. Johnny Depp og
Benicio del Toro eru samt býsna
góðir í aðalhlutverkunum.
Hamilton
HÁSKÓLABÍÓ
Shakespeare in Love ★★★Vá
Snillingurinn William Shakespe-
are lifnar við á kraftmikinn hátt í
þessari bráðskemmtilegu og fal-
legu kvikmynd.
Ánægjubær ★★Ví>
Frumleg og falleg ævintýramynd
um yndislegheit lifsins, sem verð-
ur heldur tuðgjörn undir lokin.
Egypski prinsinn ★★%
Laglega gerð en litlaus teikni-
mynd um flóttann frá Egypta-
landi. Líður fyrir alltof mörg,
iöng og tilþrifalítil lög og söngat-
riði.
Elizabeth ★★★
Vönduð og falleg mynd um stór-
merkilega drottningu og konu.
Cate Blanchett er framúrskar-
andi í aðalhlutverkinu.
Festen ★★★
Dönsk dogma-mynd um sifjaspell
sem nær að hreyfa við áhorfend-
1 um.
Björgun óbreytts Ryan ★★★★
Hrikaleg andstríðsmynd með trú-
verðugustu hernaðarátökum
kvikmyndasögunnar. Mannlegi
þátturinn að sama skapi jafn
áhrifaríkur. Ein langbesta mynd
Spielbergs.
Dansinn ★★★
Nett og notaleg kvikmyndagerð
smásögu eftir Heinesen um af-
drifaríka brúðkaupsveislu í Fær-
eyjum á öndverðri öldinni. Skilur
við mann sáttan.
BÍÓHÖLLIN,
ÁLFABAKKA
Thin Red Line ★★★★
Metnaðarfullt og áhrifaríkt
meistaraverk um andstæðurnar
mikli - fegurð og ljótleika. Aðrir
kvikmyndagerðarmenn gera ekki
betur.
Vatnsberinn ★★V2
Eins konar þrjúbíó sem sækir
talsvert í heimskramyndahúmor
Faraelly-bræðra og segir frá
vatnsbera sem verður hetja.
Ronin ★★
Gamaldags og ópersónuleg
glæpamynd með stórum nöfnum
og fínum bílaeltingaleikjum.
Stjörnustrákurinn ★Ví2
Leiðinleg barna- og unglinga-
mynd um Spencer sem fínnur
geimverabúning.
You’ve Got Mail ★V2
Það vantar kjöt utan á gömul
bein sem fengin eru að láni í þess-
ari langdregnu mynd.
Pöddulíf ★★★
Ágætlega heppnuð tölvuteikni-
mynd frá höfundum Leikfanga-
sögu, fjörug, litrík og skemmti-
leg.
KRINGLUBÍÓ
Seinustu dagar diskósins ★V2
Mynd um leiðinlegt, sjálfselskt og
fordómafullt ungt fólk undir lok
diskóæðisins.
You’ve Got Mail ★Vá
Klisjusúpa soðin upp úr gömlu
hráefni svo allan ferskieika vant-
ar. Myglubragð.
Wishmaster ★
Hryllingsmeistarinn Wes Craven
stendur á bak við þennan slaka,
sataníska trylli um baráttu góðs
og ills.
Pöddulíf ★★★
Ágætlega heppnuð tölvuteikni-
mjmd frá höfundum Leikfanga-
sögu, fjörug, litrík og skemmti-
leg.
LAUGARÁSBÍÓ
I still know what you did
last summer
A Night at the Roxbury ★★
Tveir Bakkabræður næturllfsins
reyna að slá í gegn en verður lítið
ágengt vegna heimsku sinnar.
The Truman Show ★★★★
Jim Caraey fer á kostum í frá-
bæm ádeilu á bandaríska sjón-
varpsveröld. Ein af frumlegustu
og bestu myndum seinasta árs.
REGNBOGINN
Thin Red Line ★★★★
Metnaðarfullt og áhrifaríkt
meistaraverk um andstæðurnar
miklu - fegurð og ljótleika. Aðrir
kvikmyndagerðarmenn gera ekki
betur.
Thunderbolt
Studio 54 ★★
Diskódans, dóp og djörf hegðun
eru aðal Studio 54. Vantar sögu.
The Siege ★★
Alríkislögreglan í útistöðum við
hryðjuverkamenn og eigin her.
Gott útlit, tónlist og átök en líður
fyrir meingallað handrit. Köflótt.
There’s Something
About Mary ★★★
Ferskasta gamanmyndin í mjög
langan tíma sem allir verða að sjá.
STJÖRNUBÍÓ
I still know what you did
last summer
Chairman of the Board ★
Endaleysa um brimbrettakappa
sem verður forstjóri stórfyrir-
tækis.
Stjúpa ★★
Tragikómedía um fráskilið fólk,
börnin þess og nýju konuna. Gæti
heitið „Táraflóð".
Bjargvætturinn ★★!4
Grimmileg lýsing á stríðinu í
Bosníu, séð með augum banda-
rísks málaliða. Ekki fyrir við-
kvæma.
VINSÆLUSTU
MYNDBÖNDIN
A ISLANDH i"
Nr.; vor; vikur; Mynd Útgefondi Tegund
1. ; 1. : 2 i Perfect Murder 2. i NÝ i 1 i MaskofZorro 3. i NÝ i 1 i Odd Couple II Worner myndir Skífon CIC myndbönd Spenna Spenna Gaman
4. : 11.* 2 ; Palmetto 5. i 2. I 3 ! X-files Movie, The Warner myndir Skífan Spenna Spenna
6. i 7. ! 2 i Kissing A Fool Myndform Gamon
7. i 3. i 3 i Deep Rising Myndform Spenna
8. i NÝ i 1 i Sporlaust Hóskólabíó Spenna
9. i 4. i 3 i Avengers 10. ; 5. : 7 ; Six Days Seven Nights Warner myndir Sam myndbönd Gaman Gaman
11.: 10.: 2 : Disturbing Behavior Skífan Spenna
12. : 6. | 4 : Mafia! 13. : 8. ; 6 i Senseless Sam myndbönd Skífan Gaman Gaman
14. i 9. i 8 i Sliding Doors Myndform Gaman
15. i 15. i 9 i RedCorner Warner myndir Spenna
16. i NÝ i 1 i When the Bough Breaks 2 17. i 14.; 11 i Mercury Rising 18. : 19.; 10 i Lethal Weapon 4 Myndform CIC myndbönd Warner myndir Spenna Spenna Spenna
19.: 12.; 5 : Hope Floats Skífan Drama
20.: 16.j 4 : 1 Got The Hook-up Skífan Gaman
I
íslenski myndbandalistinn
Zorró fellir grímuna
FULLKOMIÐ Morð eða „Perfect
Murder“ heldur sæti sínu í efsta
sæti íslenska myndbandalistans
aðra vikuna í röð. Gríma Zorrós
er í öðru sæti með leikurum á
borð við Anthony Hopkins og
Antonio Banderas að ógleymdum
senuþjófnum Catherine Zeta-
Jones sem þykir geisla af
kynþokka í myndinni. Odd
Couple II heimtir þriðja sæti
listans og Palmetto rís úr
öskustónni í íjórða sæti. Annars
ber það helst til tíðinda að
íslenska myndin Sporlaust fer í
áttunda sæti sína fyrstu viku á
lista sem verður að teljast
viðunandi árangur.
I þessari viku má búast við
harðri samkeppni frá nýjum
myndum á borð við Blade með
hörkutólinu Wesley Snipes,
Smáum hermönnum úr smiðju
Spielbergs og Vesalingum
danska Ieikstjórans Bille August.
Þá er sígilda myndin American
Graffíti endurútgefin með
bættum gæðum.