Morgunblaðið - 11.03.1999, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Verðkönnun í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu
Bónus með
lægsta verðið
ÞAÐ er ódýrast að kaupa inn í Bón-
usi en fast á eftir kemur KEA-
Nettó og síðan Fjarðarkaup. Þetta
kemur fram í nýri'i verðkönnun í
matvöruverslunum á höfuðborgar-
svæðinu sem Neytendasamtökin og
verkalýðsfélög á höfuðborgarsvæð-
inu gerðu 3. mars sl. Farið var í 10
matvöruverslanir.
„Eftir skiptingu Hagkaups í tvær
mismunandi verslunarkeðjur jókst
samkeppni á matvörumarkaði veru-
lega,“ segir Ágústa Ýr Þorbergs-
dóttir, starfsmaður samstarfsverk-
efnis Neytendasamtakanna og
verkalýðsfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu.
„Ef þessi könnun er borin saman
við síðustu könnun sem framkvæmd
var í júlí sl. kemur í ljós að verð í
Hagkaupi og 10-11 hefur hækkað
mest á þessum tíma en verð í þess-
um tveimur verslunum hafði lækkað
mikið þegar könnunin í júlí var
framkvæmd."
Misræmi hillu- og kassaverðs
Ágústa segir að tekin hafi verið
upp sú nýbreytni að skrá bæði verð
á hillu og á kassastrimli.
Kassastrimill var þó látinn gilda í
öllum tilvikum nema einu. „Mikið
misræmi var milli hilluverðs og
kassaverðs í Nóatúni. Við töldum
rétt að sýna bæði verð sem var í
hillu og á kassa í Nóatúni því meðan
á verðkönnuninni stóð í Nóatúni
höfum við vitneskju um að verði
hafí verið breytt í tölvu sem síðan
kom fram á kassa.
Ef stuðst er við verð í hillu er
Nóatún í 6. sæti en sé tekið verð á
strimli lendir verslunin í 4. sæti og
þá er verðið lægra en í Hagkaupi og
10-11. Við munum fylgjast grannt
með matvörumarkaðnum á næst-
unni.“
Einar Jónsson, kaupmaður í Nóa-
túni, segist almennt vera nokkuð
sáttur við verðkönnunina sem sýni
að Nóatúni hafi tekist að lækka
verðið á undanförnum misserum án
þess að draga úr þjónustu við við-
skiptavini. Hvað snertir fullyrðing-
ar um að verðbreytingar hafi átt sér
stað meðan á verðkönnun stóð segir
hann að verðbreytingar eigi sér
stað daglega í versluninni og vinnu-
reglan sé sú að fyrst komi þær fram
á kassa og síðan á hillu. „Verð á
kassa er endanlegt verð. í þessu til-
felli var einmitt gerð verðkönnun á
sama tíma og verðbreyting átti sér
stað. Eingöngu var því um tilviljun
að ræða. „
Ágústa bendir á að lægsta verðið
sé í Bónusi en taka verði tillit til að
þar sé líka minna vöruúrval en í hin-
um verslununum. Að venju er um
beinan verðsamanburð að ræða og
ekki lagt neitt mat á þjónustustig
verslana sem er mismunandi.
Hlutfallslegur verðmunur milli matvöruverslana á höfuðborgarsvæðinu
Meðalverð úr öllum verslunum = 100
Niðurstöður m.v. hilluverð í Nóatúni
aO
* </
Verðbreytingar í verslunum á höfuðborgar-
svæðinu frá 8. júlí 1998 til 3. mars 1999
7,3%
-9,8%
SÚLURNAR sýna verðbreytingar
frá 8. júlí 1998 til 3. mars 1999 í
hverri verslun fyrir sig. Verðið
hefur lækkað mest í 11-11 eða um
7,5%. Það þýðir að matarkarfa
sem kostaði áður 10.000 krónur
kostar nú 9.250 krónur. Verðlagið
hjá Fjarðarkaupum, Samkaupum
og Nýkaupi helst svo til óbreytt.
Verðið hækkar mest í 10-11 eða
um 7,3% og í Hagkaupi um 5,6%
sem þýðir að matarkarfa sem kost-
aði áður 10.000 krónur í þessum
verslunum kostar nú 10.560 krón-
ur og 10.730 krónur.
Þá hefur orðið talsverð verð-
lækkun í Nóatúni eða 6,2% fyrir
verðkönnun og 9,8% eftir verð-
könnun. Ef þessar tölur standast
hefur Nóatún vinninginn í verð-
lækkunum.
í þessum samanburði eru 74
vörur, en mun fleiri vörur voru í
könnuninni núna eða 100 vöruteg-
undir.
ori/lcime
Náttúrulegar sænskar snyrtivörur
I Ný tilboð mánaðarlega
I Sími 567 7838 - fax 557 3499
e-mail raha@islandia.is
www.xnet.is/oriflame
Á fermingaborðið
Borðdúkaúrvalið
er hjá olekur
Uppsetningabúðin
Hverhsgötu 74, sfmi 552 5270
Spurt og svarað um neytendamál
Mismunandi næringargildi í salati
ÝMSAR salattegundir era á mark-
aðnum, blaðsalat, jöklasalat, lollo
rosso, kínakál, lambhagasalat, og
svo framvegis. Er næringargildi
svipað í öllum þessum tegundum
eða eru sumar tegundir hollari en
aðrar?
„Aðalatriðið er að borða salat
hvaða nafni sem það nefnist og það
er auðvitað best að hafa fjölbreytni
í vali á salati,“ segir Laufey Stein-
grímsdóttir, forstöðumaður Mann-
eldisráðs. Hún bætb' við að nær-
ingargildið sé töluvert misjafnt eft-
ir tegundum. „Almenna reglan er
sú að því dekkri sem græni liturinn
er því auðugra er salatið af járni og
A-vítamíni. Þetta á þó ekki við um
B-vítamín eins og t.d. fólasín. í því
tilviki ber kínakálið af þótt það sé
fólgrænt.“
Laufey bendir á að næringar-
gildi salats geti einnig verið mis-
munandi eftir árstíðum, ræktunar-
skilyrðum og uppranalandi svo og
ferskleika.
Hvar eru staðreyndakortin?
FYRIR skömmu var búið að
koma upp svokölluðum stað-
reyndakortum í Nýkaupi. Lit-
skrúðug kortin vora við ávexti og
grænmeti þar sem hægt var að fá
upplýsingar um næringargildi vör-
unnar, kílóverð og upprunaland.
Nú eru flest þessi kort horfin
a.m.k. í Nýkaupi í Kringlunni og
Nýkaupi á Eiðistorgi. Hvers
vegna?
Svar: „í Kringlunni og á Eiðis-
torgi era okkar stærstu grænmet-
is- og ávaxtatorg og þar var ákveð-
ið vandamál við að festa spjöldin,"
segir Árni Ingvarsson, innkaupa-
stjóri hjá Nýkaupi. „Lausn hefur
fundist á þessu vandamáli og innan
nokkurra daga ættu öll spjöld að
vera komin á sinn stað.“