Morgunblaðið - 11.03.1999, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 21
___________ERLENT_________
Bretar h vetj a til um-
bóta á herafla ESB
Lundúnum. Reuters.
GEORGE Robertson, vamarmála-
ráðherra Bretlands, hvatti í gær
stjómvöld annarra aðildarríkja
Evrópusambandsins (ESB) til að
gera umbætur á herafla sínum til
þess að tryggja að herir Evrópu séu
færir um að gegna sem skyldi varn-
arhlutverki sínu fyrir álfuna, án
þess að þurfa að treysta á banda-
ríska hernaðaraðstoð.
I erindi sem Robertson flutti á
ráðstefnu sem haldin var í Lundún-
um í tilefni af 50 ára afmæli Atlants-
hafsbandalagsins, NATO, sagði
hann að engar líkur væru á að Evr-
ópusambandið nýtti sér efnahags-
legan mátt sinn og megin til áhrifa í
heiminum nema umtalsverðar um-
bætur væra gerðar á herafla aðild-
arríkjanna - sem flest eru reyndar í
NATO. Reynslan af afskiptum
ESB-ríkjanna af deilumálum síð-
ustu ára á Balkanskaga hefur sann-
fært marga evrópska ráðamenn um
nauðsynina á skilvirkari hernaðar-
mætti að baki pólitískum erind-
rekstri ESB út á við.
„An skilvirks hernaðarmáttar að
baki evrópskra utanríkisstefnumiða
erum við að sóa tímanum. Við hætt-
um á að vera efnahagslegur risi en
með áhrif á við dvergríki í hernaðar-
legu tilliti," sagði Robertson í gær.
Eftir að bandarísk stjómvöld eni
farin að þrýsta á um að Evrópuríkin
í NATO axli meira forystuhlutverk
innan bandalagsins hefur hefðbund-
in andstaða við hugmyndina um að
ESB fái sjálfstætt hernaðarhlut-
verk farið minnkandi.
I desember síðastliðnum sömdu
Bretar og Frakkar um að leggja
meiri vinnu í að gera alvöru úr því
sem kallað hefur verið „Evrópsk ör-
yggis- og vamarvitund", en undir
þessu heiti gengur áætlun sem mið-
ar að því að gera ESB-ríkjunum
kleift að grípa til hemaðaraðgerða
upp á eigin spýtur, í nafni sameigin-
legrar utaniTkis- og varnarmála-
stefnu ESB.
Enga pappírsheri, takk
A mánudag lýsti brezki forsætis-
ráðherrann Tony Blair því yfir, að
nauðsynlegt væri að styrkja hern-
aðarmátt ESB-ríkjanna svo að þau
legðu meira til hernaðarsamstarfs-
ins í NATO.
Robertson sagði Evrópuríkin
standa frammi fyrir bláköldum
veruleika; „Við þurfum á herafla að
halda sem er í raun hægt að beita á
vettvangi en ekki aðeins á pappírn-
um. Pappírsherir hafa aldrei unnið
stríð eða varið frið.“
Átök bankamanna og stjórnmálamanna
um peningamálastefnuna að baki evrunni
KYNNING
Kanebo
#mbl l.is L.L.TAf= GITTHt/'AO rJÝTI
Lafontaine kennt
um gengislækkun
Berlín, Brussel. Daily Telegraph.
BANKASTJÓRN þýzka seðlabank-
ans, Bundesbank, hefur að sögn
Daily Telegraph hafið herferð til að
grafa undan Öskar Lafontaine, fjár-
málaráðhema Þýzkalands, þar sem
honum er gefíð að sök að eiga stóran
þátt í því að evran hefur tapað um
átta prósentustigum af verðgildi sínu
gagnvart Bandaiíkjadollai- írá því
hinum nýja Evrópugjaldmiðli var
hleypt af stokkunum fyrir 10 vikum.
Sú gagnrýni sem ljóst og leynt
hefur beinzt gegn fjármálaráðherr-
anum er sögð til marks um vaxandi
spennu milli stjórnmálamanna og
bankamanna á evru-svæðinu um
peningamálastefnuna að baki evi'-
unni.
Meðlimir bankastjórnai' Bundes-
bank hafa látið í ljósi reiði sína yfír
því sem þeir kalla „ófaglegar" að-
gerðir Lafontaines sem lýstu sér í ít-
rekuðum áköllum hans um að Evr-
ópski seðlabankinn (ECB) lækkaði
vexti.
Þeii' hafa sagzt vera „hneykslaðir“
á því að Lafontaine skyldi ekki
standa við að láta vera að ráðast á
stefnu bankastjórnar ECB opinber-
lega. Hans Tietmayer, aðalbanka-
stjóri Bundesbank sem á sæti í
bankastjóm ECB, beindi orðum sín-
um fyrst og fremst til Lafontaines
þegar hann lét hafa eftir sér í þýzka
viðskiptablaðinu Handelsblatt í vik-
unni að stjórnmálamenn væru að
þrengja að valkostum þeim sem
stjórn ECB stæði til boða með því að
þrýsta á um vaxtalækkun.
„Því meira sem deilur um þetta
eru háðai- opinberlega, þeim mun
minna svigrúm gefst til að taka
ákvarðanir í peningamálum," segir
Tietmeyer í Handelsblatt.
Nýjar vorvörur
frá
dömubuxur,
3 lengdir,
peysur, bolir,
bermudas-
dragtir.
GÓUGLEDl
n
Hluti af málverkinu „Fishscape" eftir trro.
HEILDVERSLUN
Par sem allt snýst umfólk
Fiskbúð
Nú ætlum við að koma fiskiþjóðinni á óvart með ótal góm-
sætum fiskréttum.
Sturla Birgisson einn af 5 bestu matreiðslumeisturum í
heimsmeistarakeppninni Bocuse d'Or 99 er höfundurinn
að fiskréttunum.
Furðuheimur fiskréttanna
í Perlunni kemur þér
vissulega á óvart!
Borðapantanir
í síma 5620200