Morgunblaðið - 11.03.1999, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Aldursdreifing sprautufíkla með lifrarbólgu C
á Sjúkrahúsinu Vogi 1998 25
Hlutfall amfetamínfíkla og sprautufíkla
á Sjúkrahúsinu Vogi 1983-1998
30%--------:----;--—-------------------
Hepatítis C hjá þeim
sem hafa sprautað
sig í æð og komu á
Sjúkrahúsið Vog
1991-1998, N=860
Fengu bata eftir lifrarbólgu C (66)
LIFRARBÓLGA C
er veirusýking sem
veldur stundum
skemmdum á lifrinni.
Fimmtungur þeirra
sem smitast losa sig
við veiruna en hinir
(um 80%) fá langvinna
veirusýkingu. Þessi
veirusýking er oftast
væg og engin ástæða
til að reyna að lækna
hana með flókinni og
kostnaðarsamri lyfja-
meðferð. Einstakling-
arnir deyja með
veiruna án þess að hún
geri þeim teljandi
mein. Hluti þeirra sem
smitast fær þó alvarlegri sjúkdóm
og eftir 10-20 ár geta þeir dáið úr
iifrarbilun eða lifrarkrabbameini.
Þó að hlutfall þeirra sem deyja úr
þessum sjúkdómi sé ekki hátt er
fjöldi þeirra sem hafa sjúkdóminn
það mikill að í óefni stefnir á Vest-
urlöndum og einnig hér.
Á íslandi er þessi heilbrigðis-
vandi nýr og almenningi hér nán-
ast ókunnur. Ætla má að um 100
milljónir manna í heiminum hafi
lifrarbólgu C og um 400 á íslandi.
Fjöldi þeirra sem deyja vegna lifr-
arbólgu C fer hratt vaxandi á
Vesturlöndum og nálgast fjöldinn
að verða sá sami og deyr úr al-
næmi á þessu svæði. Ástæður þess
eru framfarir í lyfjameðferð við al-
næmi og vaxandi fjöldi þeirra sem
LÍMMIÐAPRENT
Þegar þig vantar límmiða
Skemmuvegi 14,200 Kipovogi. S. 58/ 0980. Fox 557 4243
fá lifrarbilun eða lifr-
arkrabbamein vegna
C lifrarbólgu.
Segja má að lifrar-
bólga C jiafi verið afar
fátíð á Islandi fram á
miðjan áttunda ára-
tuginn. Kom einkum
til góður Blóðbanki en
sjúkdómurinn barst
oftast með blóðgjöfum
áður en fundnar voru
rannsóknaraðferðir til
að finna sýkt blóð af
C-veiru. Eftir að
menn höfðu yfir að
ráða slíkum aðferðum
og gátu gert blóð-
bankana hreina á
þessu sviði barst sýkingin fyrst og
fremst á milli sprautufíkla þegar
þeir notuðu sömu áhöldin til að
sprauta sig í æð. Sprautufíklar
sáust ekki á Islandi fyrir en eftir
1980. Upp frá því hefur sprautu-
fíklum stöðugt fjölgað og með tím-
anum hafa æ fleiri þeirra fengið
lifrarbólgu C.
Hvernig smitast fólk
af lifrarbdlgu C?
Islendingar smitast nær ein-
göngu af lifrarbólgu C með því að
sprauta sig í æð með áhöldum sem
sprautufíklar með langvinna lifrar-
bólgu C hafa notað. Óhreinar
sprautur eru aðal skaðvaldurinn
en nálarnar og ílátið eða skeiðin
sem amfetamínið er leyst upp í áð-
ur en því er sprautað getur líka
haft veiruna að geyma. Aðrar
smitleiðir sem era fátíðari eru þeg-
ar óhrein áhöld eru notuð við
tattóveringu eða þegar notað er
sama sogrörið til að sjúga vímuefni
í nef. Lifrarbólga C getur smitast
við kynmök en hættan er lítil og
langt innan við 1%. Hverfandi
hætta er nú orðin á að fá sýking-
una við blóðgjöf þó að slíkt hafí
ekki verið óalgengt hér áður. Lifr-
arbólga C fer frá móður með lang-
vinna lifrarbólgu C um fylgju yfir i
barn í 6% tilvika.
Hversu algeng
er lifrarbólga C?
Lifrarbólga C er fyrst og fremst
sjúkdómur sprautufíkla og orðin
býsna algeng hér á landi. Á
sjúkrahúsinu Vogi hafa greinst 860
sprautufíklar á áranum 1991-1998
og 560 þeirra sprautuðu sig reglu-
lega í æð einhvem tímann á tíma-
bilinu. Ur sjúklingabókhaldinu á
Vogi fyrir árið 1998 má lesa að
14% þeirra sem hafa sprautað sig
1 til 10 sinnum í æð hafa smitast af
lifrarbólgu C. Meðal þeii'ra sem
sprauta sig reglulega í æð hafa
63% fengið lifi'arbólgu af C-gerð.
Alls hafa fundist 345 tilfelli af lifr-
arbólgu C á síðustu átta áram á
Vogi og þar af fundust 46 ný tilfelli
á síðasta ári.
Hvernig er hægt að
greina sjúkdóminn?
Sjúkdómurinn er fyrst og
fremst greindur með blóðrann-
sóknum sem gerðar era á Rann-
sóknarstofu Háskólans í veiru-
fræði. Hægt er að fá slíkar rann-
sóknir gerðar á öllum heilsugæslu-
stöðvum og sjúkrahúsum þessa
lands og líka á sjúkrahúsinu Vogi.
Margir sem sýkjast af lifrarbólgu
C era einkennalausir í fyrstu og
sjúkdómurinn fer því framhjá
flestum nema þessar rannsóknir
séu gerðar hjá þeim sem era lík-
legir til að fá sýkinguna. Um sex
Heilbrigðismál
C lifrarbólga er þegar
orðið stórkostlegt heil-
----------------------7--
brigðisvandamál á Is-
landi, segir Þórarinn
Tyrfíngsson, sem mun
á komandi árum fjölga
verulega frá því sem
nú er tilfellum af
skorpulifur og lifrar-
krabbameini.
vikur líða fi'á því að veiran kemst í
blóð fólks, þar til mótefni gegn
veiranni finnast og einkenni koma
fram hjá viðkomandi sjúklingi.
Mikill meirihluti sjúklinga losar
sig ekki við C-veiruna og rann-
sóknir á Vogi sýna að tæplega 80%
hafa veirana áfram í blóðinu og
era smitandi. Sjúkdómsþróunin,
þegar svo er komið, er mjög mis-
munandi og margt enn á huldu um
hana. Flestir sjúklingar virðast fá
vægan sjúkdóm sem óþarfi er að
hafa áhyggjur af eða meðhöndla
með kostnaðarsamri lyfjameðferð
sem getur haft í för með sér fylgi-
kvilla. Hluti sjúklinganna, um 10
til 20%, fær þó meiri bólgur í lifr-
ina og hún eyðileggst smám saman
ef ekkert er að gert, oftast á 10-15
árum. Með núverandi þekkingu er
erfitt að spá fyrir um framvinduna
eða í hvorn hópinn sjúklingar fara.
Sjúklingarnir verða því að vera
undir stöðugu lækniseftirliti svo að
hægt sé að grípa inn í ef í óefni
stefnir.
Meðferð við lifrarbóigu C
Það er einungis á færi sérfróði'a
lækna að meta hvenær beita á
lyfjameðferð gegn lifrarbólgu C.
Áður en meðferðin hefst þarf að
gera ítarlegar rannsóknh’ og meta
stöðuna. Ef ástæða þykir til að
hefja slíka meðferð er hún dýr og
getur tekið allt að einu ári. Fram-
farir hafa orðið nokkrar í meðferð-
inni þótt enn sé bati alls ekki
tryggður þó meðferð sé hafin.
C lifrarbólga er þegar orðið stór-
kostlegt heilbrigðisvandamál á ís-
landi sem mun á komandi áram
fjölga veralega frá því sem nú er
tilfellum af skorpulifur og lifrar-
krabbameini. Til að takast á við
þennan vanda hafa læknar Lands-
spítala, Sjúki-ahúss Reykjavíkur,
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyi'i og SÁA tekið höndum saman
um að veita þessum sjúklingum þá
þjónustu sem nauðsynleg er. Þeir
meðhöndla með lyfjum þá sem hafa
þörf iýrir slíkt og halda uppi nauð-
synlegu eftirliti og rannsóknum.
Fyrirbyggjandi aðgerðir
Til að stemma stigu við frekari
útbreiðslu þessa sjúkdóms er nauð-
synlegt að auka aðhald að sprautu-
fíklum og koma þeim í meðferð um
leið og þeir era fræddh' um smit-
leiðir. Leggja ber áherslu á forvam-
ir sem beinast að ólöglegri vímu-
efnaneyslu, einkum kannabisneyslu,
sem gjaman er grannuiinn sem
amfetamínneysla og sprautufíkn er
reist á. Þannig verður rámlega
helmingur stómeytenda kannabis
einnig stómeytendur amfetamíns
og rámlega helmingur amfetamínn-
eytenda fer að sprauta sig í æð.
Mikið er í húfi því sprautufíklum
með langvinna lifrarbólgu C má
ekki fjölga mikið frá þvl sem nú er
til þess að sjúkdómurinn breiðist
frá þeim til annarra í þjóðfélaginu.
Höfundur er yfírlæknir Sjúkraluíss-
ins að Vogi.
Lifrarbólga C er nýr og
alvarlegur heilbrigðisvandi
Þórarinn
Tyrfingsson
KOMIN
AFTUR
@ Husqvarna
Husqvama heimilistækin ern
kominafturtil landsins.
Þau taka á móti gestum í verslun okkar
alla virka daga frá 9:00 -18:00.
Endumýjum góð kynni!
lógmúlo 8 • Slmi 533 2800
„Auðlindir sævar ótæmandi bruna“
FÆRA má lyrir því
rök að röng fiskveiði-
stjórn hafi haft af ís-
lenska þjóðarbúinu að
meðaltali útflutnings-
tekjur upp á 30-40
milljarða króna árlega
undanfarin ár eða
hundrað milljarða
króna alls síðan kvóta-
kerfið var tekið upp
1984. Ef upphæðin
hefði öll farið í að
greiða niður erlendar
skuldir þjóðarinnar
væram við skuldlaus
og ættum digran vara-
sjóð í þokkabót.
Þrátt fyrir að kvóta-
kerfið hafi átt að byggja upp fiski-
stofnana nú um 14 ára skeið eram
við þessi árin að veiða aðeins um
40% af þeim þorskafla sem veiddist
á Islandsmiðum áratugum saman
eða á áranum frá 1952 til 1984.
Þessa þrjá áratugi
veiddum við Islend-
ingar og ýmsar aðrar
þjóðir að meðaltali um
450 þúsund tonn af
þorski á Islandsmiðum
samkvæmt aflaskýrsl-
um. Veiðin hefur ef-
laust verið mun meiri
þar sem aflaskýrslur
veiðiskipa sumra þjóða
hafa ekki verið tæm-
andi. Má því varlega
áætla að þorskveiðin
hafi verið a.m.k. 500
þúsund tonn árlega í
stað um 200 þús.
tonna árlega nú.
Það eru því í meira
lagi grátbrosleg öfugmæli að
þakka kvótakerfinu aukna hag-
ræðingu innan sjávarátvegsins,
betri afkomu þjóðarbúsins og upp-
byggingu fiskstofnanna. Kvóta-
kerfið hefur leitt af sér gjaldþrot
Fiskveiðistjórn
Ég hef það frá fjölda
sjómanna, segir,
Valdimar Jóhannes-
son, að brottkastið
er gífurlegt.
fjölda útgerða og fískverkenda.
Kvótakerfið veldur skerðingu út-
flutningstekna svarandi til þriggja
álverksmiðja í þorskafurðum.
Kvótakerfið hefur leitt til vannýt-
ingar þorskstofnanna en ofnýting-
ar annarra fiskstofna að mati lang-
flestra sjómanna. Skerðing þjóðar-
tekna af þessum sökum jafngildir
fleiri álverksmiðjum en meira að
segja framsóknarmönnum dytti til
hugar að hola hér niður.
Ekkert gefur ástæðu th að ætla
að pkki sé hægt að veiða jafn mikið
á Islandsmiðum eins og gert var
ofangreinda þrjá áratugi við ýms-
ar sveiflur náttúrannar. Sumir sjó-
menn, þar með taldir landsfrægir
aflamenn, halda því fram að mis-
muninum á því sem veiðist nú og
því sem veiddist hér á áranum, áð-
ur en velmeinandi en misvitrir
menn komu á hinu makalausa
kvótakerfi, sé kastað í hafið. Erfitt
er að tráa því að magnið geti verið
svo gífurlegt. Hitt er alveg ljóst að
vannýtingin og brottkastið nemur
árlega samtals 200-300 þúsund
tonnum af þorski.
Eg hef það frá fjölda sjómanna
að brottkastið er gífurlegt. Skip-
stjóri og útgerðarmaður, sem þarf
að leigja kvóta, sagði mér frá því
fyrir skömmu að hann neyddist nú
til að henda 9 af hverjum 10 þorsk-
um í hafið aftur vegna þess að stór-
þorskurinn einn færði honum nægt
Valdimar
Jóhannesson