Morgunblaðið - 11.03.1999, Síða 53

Morgunblaðið - 11.03.1999, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 53 insár og var hjónaband þeirra far- sælt. Fyi-ir rúmum sjö árum lamaðist Frissi, vai-ð umtalsvert hreyfihaml- aður og átti mjög erfitt með að tjá sig. Eftir það annaðist móðir mín hann heima og sýndi þar einstaka natni og umhyggjusemi. Hann and- aðist á sjúkradeild Hrafnistu eftir nokkurra mánaða legu. Frissi var einstakur persónuleiki. Hann var að eðlisfari glaðlyndur og gaf mikið af sér. Hann var dugnaðar- forkur og gat verið ákveðinn ef því var að skipta. Frissi var félagslyndur og naut þess að blanda geði við fólk. Söng með kirkjukór og Samkór Nes- kaupstaðar í mörg ár, var keppnis- maður í brids og sat í stjórn Spari- sjóðs Neskaupstaðar um árabil. Frissi var rausnarlegur og gestris- inn og góður heim að sækja, en heimilið var mjög gestkvæmt, sér- staklega áður en hann veiktist. Oft áttum við ánægjulegar samveru- stundir bæði fyrir austan og hér syðra. Frá fyrstu kynnum vorum við Frissi afar góðir vinir. Við gátum spjallað um allt milli himins og jarð- ar. Frissi var góðum gáfum gæddur og víðlesinn, hann leyfði mér að njóta góðs af, og las upphátt fyrir mig ýmislegt sem honum þótti at- hyglisvert, þar sem ég vegna sjónskerðingar les ekki prentletur. Hann var heimsmaður og kunni vel að meta það sem lífíð hafði að bjóða. Hann hafði ferðast víða um lönd og hafði frá mörgu merkilegu og skemmtilegu að segja. Fjtít nokki-um árum naut ég þess að vera með honum og móður minni suður á Kanai-íeyjum og fór hann þá daglega með mér í gönguferðir með- fram ströndinni og var þá ýmislegt spjallað og spekúlerað. Frissi hafði hlýlega framkomu og var óspar á að lýsa fyrir mér umhvei-fi og aðstæð- um þar sem við vorum stödd. Systkinabömum mínum var hann góður afí, naut þess að gleðja þau og bar mikla umhyggju fyrir þeim, en hann var afar barngóður. Það var lærdómsríkt að kynnast Frissa, hann var einstaklega góður maður. Hann var sterkur persónu- leiki og var aðdáunarvei't að fylgjast með dugnaði hans og sálarþreki eftir að hann fatlaðist og má með sanni segja að hann hafí borið fötlun sína með reisn. Ég kveð Frissa með söknuði og þakka íyrir að hafa verið svo lánsöm að fá að kynnast honum. Brynja Arthúrsdóttir. Mér er það minnisstætt þegar Frissi frændi minn kom einu sinni til mín í heimsókn á sumardaginn fyrsta. Hann hafði orð á því að það hefði alltaf verið uppáhaldsdagurinn sinn. Og það var yfír honum nánast barnsleg einlægni. Þegar ég rifja upp kynni mín af Frissa er það einmitt einlægni hans og góðjátleg glettni sem eru efst í huga. I allri sinni hógværð lumaði hann jafnan á smellnum gamansögum sem hann hafði yndi af að krydda samtöl með. Þetta voru sögur af mönnum hvaðanæva af landinu, enda Frissi vinmargur og fundvís á kímni tilver- unnar. Á æskuárum mínum í Nes- kaupstað leigði Frissi herbergi í Blómabúðin öat^Sskom v/ 1 . V.SVÍ 1<I i'Uif Sími: 554 0500 ^iiixxiiixinxxxy Erfisdrykkjur H H P E R L A N Sími 562 0200 EIiiiiii ii i miix£ húsi foreldra minna. Þetta var ósköp venjulegt herbergi en ég man að mér fannst vera yfir því ákveðin dulúð. Frissi hafði ferðast töluvert um heiminn og í herberginu voru ýmsir skemmtilegir munir sem hann hafði safnað á þessum ferða- lögum. Hann átti líka forláta „græjur" á þeirra tíma mælikvarða, myndarlega hljómflutningssam- stæðu með útvarpi og plötuspilara. Þegar hann var að vinna leyfði Frissi okkur bræðrunum oft að vera í herberginu sínu á daginn og spila plötur. Þar kynntist ég leikgerð ís- landsklukkunnar eftir Halldór Lax- ness og nýjustu twistlögum Chubbie Checker, svo dæmi séu tekin. Þá átti Frissi líka safn góðra bóka sem ég nýtti mér til hins ýtrasta. Síðar varð netaverkstæðið sem Friðrik rak af miklum myndar- brag í Neskaupstað vettvangur bæði sumarvinnu og leikja. Það var gaman að skapa sér ævintýi-aheim í gríðarstórum kjallaranum þar sem svartar síldarnætur flæddu út í hvert horn. Síðan rann mesti ævin- týrabragurinn af nótunum þegar þær voru færðar upp í vinnslusal til viðgerða. Frissi réð stundum til sín unglinga í sumarvinnu og naut ég þar frændseminnar. Á námsárum mínum bar fundum okkar mun sjaldnar saman eins og gefur að skilja. En það var alltaf bæði gott að leita til hans og gaman að tala við hann. Hann átti það þó til að setja ofan í við mig og mína líka sem „þekktum ekki lífíð“ og höfðum kynnst því mest af bókum. Þegar ég MINNINGAR var við nám í Bandaríkjunum heim- sótti Frissi mig í nokkra daga. Hann var þá á leið til Flórída, en lét sig ekki muna um að taka á sig krók til Indiana í miðvesturríkjunum. Þetta var skemmtileg heimsókn og kynntist ég þá margvíslegu örlæti hans jafnvel enn betur en áður. Hann hafði alla tíð mikið yndi af börnum og fundu börnin mín vel hve mikill ljúflingur frændi þeirra var. „Hann er svo góðlegur,“ sagði dóttir mín. Hún gaf ekki betri ein- kunnir. Síðustu árin bjó Friðrik við afar skert líf. Hann lamaðist og missti málið eftir heilablóðfall, Hann virtist þó yfírleitt skilja það sem við hann var sagt og gat gert sig skiljanlegan með ýmsu móti. I þessum þrengingum bar hann sig ótrúlega vel, þótt hann hnýtti oft saman þegar honum var um megn að tjá sig með öðrum hætti. í grunninn virtist mér hann halda áhuga sínum á lífinu og umhverfinu og alltaf var stutt í glettnina og glaðvært brosið. Síðasta árið dvaldi Frissi á Hrafnistu og líkaði honum greinilega vel sá sjómennskubragur sem þar er sýnilegur. Þóranna, eig- inkona Friðriks, annaðist hann af stakri umhyggjusemi á þessum erf- iðu árum í lífi hans. Ég sendi henni og öðrum ástvinum Friðriks einlæg- ar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning góðs drengs. Vilhjálmur Árnason. • Fleiri miimingargreinar um Frið- rik Vilhjálmsson bíða birtingar og munu birtast íbhiðinu næstu daga. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUÐRÚN STEINSDÓTTIR, Reynistað, Skagafirði, sem lést á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki að morgni 7. mars, verður jarðsungin frá Reynistaðarkirkju laugardaginn 13. mars kl. 16.00. Sigurður Jónsson, Jón Sigurðsson, Sigurbjörg Guðjónsdóttir, Steinn L. Sigurðsson, Salmína S. Tavsen, Hallur Sigurðsson, Sigríður Svavarsdóttir, Helgi J. Sigurðsson, Sigurlaug Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + SIGURÐUR ÁSGEIRSSON frá Reykjum, í Lundarreykjadal, verður jarðsunginn að Lundakirkju í Lundar- reykjadal laugardaginn 13. mars kl. 14.00. Sætaferð verður frá Umferðarmiðstöðinni laugardaginn 13. mars kl. 11.30 og frá Hyrnunni í Borgarnesi kl. 13.00. Ásgeir Sigurðsson, Björg Sigurðardóttir, Sveinn J. Sveinsson, Freysteinn Sigurðsson, Ingibjörg Sveinsdóttir, Ingi Sigurðsson, Magnús Sigurðsson og barnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamms, SESSELJA MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR, Garðvangi, Gerðahreppi, áður búsett á Vatnsnesvegi 13, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstu- daginn 12. mars kl. 14.00. Birgir Axelsson, Elsa Lilja Eyjólfsdóttir, Páll Axelsson, Dagný Hermannsdóttir, Kristín Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, DAÐÍNA MATTHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR frá Arnarnúpi í Dýrafirði, Bogahlíð 15, Reykjavík, lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 9. mars. Elsa Kristinsdóttir, Jóhannes Kristinsson, Halla Kristinsdóttir, Lára Kristinsdóttir, tengdabörn, barnabörn og langömmubörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, BÁRA MAGNÚSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Breiðholtskirkju á morgun föstudaginn 12. mars kl. 15.00. Frímann Frímannsson, Margrét Kristín Frímannsdóttir, Jón K. Friðgeirsson, Elísabet Frímannsdóttir, Valdimar Leó Friðriksson, Ingveldur Bára Frímannsdóttir, Ingvar Bjarnason og barnabörn. + Fósturfaðir okkar, afi og langafi, RAGNAR JÓNSSON, fyrrverandi bóndi Bollakoti, Fljótshlíð, síðast til heimilis að Kirkjuhvoli, Hvolsvelli, verður jarðsunginn frá Hlíðarendakirkju, Fljóts- hlíð laugardaginn 13. mars kl. 14.00. Vilmunda Guðbjartsdóttir, Árni Ólafsson, Ólafur Þorri Gunnarsson, Sigrún Þórarinsdóttir, Ragnar Björn Egilsson, Þórir Már Ólafsson, Ólína Dröfn Ólafsdóttir. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, SVAVA KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR, Norðurgötu 20, Sandgerði, verður jarðsungin frá Safnaðarheimilinu í Sand- gerði föstudaginn 12. mars kl. 14.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Henrik Jóhannesson. + Útför eiginkonu minnar, ÖNNUJÓNSDÓTTUR, Stóru-Ökrum, Skagafirði, fer fram frá Miklabæjarkirkju laugardaginn 13. mars kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurður Hólm Jóelsson. + Ástkær eiginkona mín, ÞÓRUNN ÓLÖF JÓNSDÓTTIR, Túngötu 38, Eyrarbakka, er lést á Ljósheimum 6. mars, verður jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 13. mars kl. 14.00. Torfi Nikulásson og aðstandendur. t

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.