Morgunblaðið - 11.03.1999, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 59
Dagbók
Háskóla
íslands
Dagbók Háskóla íslands 9.-13.
mars. Allt áhugafólk er velkomið á
fyrirlestra í boði Háskóla Islands.
Dagbókin er uppfærð vikulega á
heimasíðu Háskólans http://www.-
hi.is/hiHome.html.
Fimmtudagnrinn 11. mars:
Ólöf Ásta Ólafsdóttir, lektor í
ljósmóðurfræði, verður með rabb á
vegum Rannsóknastofu í Kvenna-
fræðum í stofu 210 í Odda kl. 12-13.
Ólöf Ásta nefnir rabb sitt: „Fæðing-
in, kraftmikið og skapandi ferli:
Hugmyndafræði ljósmæðra".
Ingibjörg Harðardóttir dósent
flytur fyrirlestur í málstofu lækna-
deildar um ,Áhrif ómega-3 fltusýra
í fæði á viðbrögð við sýkingum".
Málstofan fer fram í sal Krabba-
meinsfélags íslands, Skógarhlíð 8,
efstu hæð og hefst kl. 16.00 með
kaffiveitingum. Málstofan er öllum
opin.
„Gildi siðfræði og fagurfræði í
námi og starfí verkfræðingsins" er
fjórði fundur í fundarröð um nám
og starf verkfræðingsins á næst-
unni. Frummælendur: Pétur Stef-
ánsson, form. VFÍ. Þorvarður
Árnason, Siðfræðistofnun Háskóla
Islands, Jóhann Már Maríusson, að-
stoðarforstj. Landsvirkjunar, og
Anna Runólfsdóttir, verkfræðinemi.
Fundurinn er haldinn í fundarsal
VFÍ að Engjateigi 9 kl. 16.15.
Þór Whitehead, prófessor í sagn-
fræði, flytur fyrirlestur í málstofu
hagfræði- og sagnfræðiskorar um
hagstjórn á íslandi 1920-1960 og
nefnir erindi sitt: „Atvinnustefna
Framsóknarflokks og Alþýðu-
flokks á milli stríða". Málstofan fer
fram kl. 16.15 í stofu 422 í Árna-
garði, 4. hæð. í erindi sínu mun
Þór fjalla um pólitískar rætur og
forsendur atvinnustefnu Fram-
sóknarflokks og Alþýðuflokks með
sérstöku tilliti til stjórnar hinna
vinnandi stétta.
Föstudagurinn 12. mars:
Sigurður Snorrason dósent flytur
föstudagsfyrirlestur Líffræðistofn-
Kynning á
framboðs-
lista VG
FUNDUR í Vinstri hreyfingunni -
grænu framboði í Reykjavík verður
haldinn fimmtudaginn 11. mars.
Fundurinn verður á Kaffi Reykja-
vík á Vesturgötu 2 og hefst kl.
20.30.
Á fundinum verður framboðslist-
inn í Reykjavík við komandi Alþing-
iskosningar kynntur og borinn upp
til afgreiðslu félagsfundarins. Áð
því loknu verða umræður um
stjórnmálaástandið og kosningabar-
áttuna framundan.
Fundurinn er opinn félagsmönn-
um í Vinstri hreyfingunni - grænu
framboði í Reykjavík og hægt er að
ganga til liðs við hreyfinguna á
staðnum.
Oddviti uppstillingarnefndar
Vinstri hreyfingarinnar - græns
framboðs er Sigurbjörg Gísladóttir
og formaður kjördæmisfélagsins í
Reykjavík er Sigríður Stefánsdótt-
ir.
ar sem hann nefnir: „Breytileg lífs-
saga lax á íslandi: Vaxtarferlar og
lífslíkur í sjó“. Fyrirlesturinn eru
fluttur að Grensásvegi 12, stofu G-6,
og hefst kl. 12.20.
Laugardagurinn 13. mars:
Ráðstefna um fornar leiðir verður
haldin á vegum Náttúruverndar
ríkisins, Skipulagsstofnunar, Þjóð-
minjasafns Islands, Örnefnastofn-
unar og Samtaka um útivist. Ráð-
stefnan er haldin á Grand Hótel í
Reykjavík kl. 13-17. Dagskrá: Páll
Skúlason, rektpr Háskóla íslands,
flytur ávarp. Árni Bragason, for-
stjóri Náttúruverndar ríkisins: „Al-
mannaréttur og útivist". Hjörleifur
Stefánsson, Þjóðminjasafni Islands:
„Verndargildi fornra leiða“. Rögn-
valdur Guðmundsson, ferðamála-
fræðingur: „Ferðamenn og íslensk-
ur menningararfur". Svavar Sig-
mundsson, forstöðumaður Örnefna-
stofnunar íslands, „Örnefni og fom-
ar leiðir". Guðjón Kristinsson garð-
yrkjumaður frá Dröngum: „Viðhald
á vörðum og hleðslutækni". Gaute
Sönstebö, landslagsarkitekt hjá Di-
rektoratet for naturforvaltning:
„Skýrsla Norðurlandaráðs um forn-
ar leiðir á Norðurlöndum". Ágúst
Sigurðsson sóknai’prestur á Prest-
bakka: „Fornar leiðir frá Hólum í
Hjaltadal". Haukui; Jóhannesson,
forseti Ferðafélags Islands: „Merk-
ingar á fornum leiðum og útgáfa
fræðslurita“. Helgi Þorláksson, pró-
fessor: „Fornar leiðir á milli höfð-
ingjasetra". Ina Gísladóttir, leið-
sögumaður á Austurlandi: „Fornar
leiðir með tilliti til ferðaþjónustu".
Fyrirspumir og umræður. Ráð-
stefnan er öllum opin og er enginn
aðgangseyrir.
Sýningar
Stofnun Árna Magnússonar,
Árnagarði við Suðurgötu. Frá 1.
september til 14. maí er handrita-
sýning opin þriðjudaga, miðviku-
daga og fimmtudaga kl. 14.00-16.00.
Unnt er að panta sýningu utan
reglulegs sýningartíma sé það gert
með dags fyrirvara.
Þjóðarbókhlaða
1. Sýning á rannsóknartækjum
og áhöldum í læknisfræði frá ýms-
um tímum á þessari öld. Sögusýn-
ing haldin í tilefni af 40 ára afmæli
Rannsóknardeildar Landspítalans
(Department of Clinical Biochem-
istry, University Hospital of
Iceland) og að 100 ár eru liðin frá
því að Holdsveikraspítalinn í Laug-
amesi var reistur. (The Leper
Hospital at Laugames, Reykjavík).
Sýningin stendur frá 10. október og
fram í mars.
2. Bríet Bjarnhéðinsdóttir-Örsýn-
ing í forsal þjóðdeildar. Kvenna-
sögusafni íslands barst nýlega að
gjöf málverk Gunnlaugs Blöndal af
Bríeti Bjarnhéðinsdóttur frá 1934.
Gefandi er Guðrún Pálsdóttir,
tengdadóttir Bríetar. í tilefni af því
hefur verið sett upp örsýning um
Bríeti í forsal þjóðdeildar Lands-
bókasafns Islands- Háskólabóka-
safns. Þar er málverkið til sýnis
ásamt skrifborði Bríetar og gögnum
úr fórum hennar. Sýningin stendur
frá 8. febrúar til 31. mars.
Orðasöfn og gagnabankar
Öllum er heimill aðgangur að eft-
irtöldum orðabönkum og gagnsöfn-
um á vegum Háskóla Islands og
stofnana hans.
Rannsóknagagnasafn Islands.
Hægt að líta á rannsóknarverkefni
og niðurstöður rannsókna- og þró-
unarstarfs: http://www.ris.is Islensk
málstöð. Orðabanki. Hefur að
geyma fjölmörg orðasöfn í sérgrein-
um: http://www.ismal.hi.is/ob/
Landsbókasafn íslands - Háskóla-
bókasafn. Gegnir og Greinir:
http://www.b9k.hi.is/gegnir.html
Orðasafn íslenska stærðfræðifé-
lagsins:http://www.hi.is/~mmh/ord/-
leitun.html Gagnasafn Orðabókar
Háskólans: http://www.lexis.hi.is/
H/ES&\INl^URENf
Vor- ojj sumaríitirnir eru kvmnir
Skilaðu VR könnuninni fyrir
• Hún er hjálpartæki þegar þú semur um kaup og kjör.
• Valiö er fyrirtæki ársins.
• Niðurstöður hennar geta haft áhrif á næstu kjarasamninga.
Taktu þátt í könnuninni, niðurstöóur hennar gætu bætt kjör þín.
Mundu að spennandi ferðavinningar eru dregnir úr innsendum könnunum.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Defender STORM, ný og öflug Storm TD5 vél, 5 strokka
me5 túrbínu og millikæli. Umtalsvert meiri kraftur í hljóSlótari vél
TogiS er 300 Nm viS 2000 snúninga.
Suðuriartdsbraut 14
Sfmí 575 1200
Söludeild 575 1210