Morgunblaðið - 11.03.1999, Qupperneq 64
64 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
í DAG
Safnaðarstarf
Hjónanámskeið í
Akraneskirkju
FJÖLSKYLDUÞJÓNUSTA kirkj-
unnar og Akraneskirkja efna til
hjónanámskeiðs í Safnaðarheimil-
inu Vinaminni nk. laugardag, 13.
mars, frá kl. 13-18.
Leiðbeinendur verða sr. Þor-
valdur Karl Helgason og Kolbrún
Ragnars sem bæði eru fjölskyldu-
ráðgjafar að mennt.
Fjallað verður um ástina, kær-
leikann, samskipti kynjanna og
íjölskylduna - og það hvemig hægt
» er að gera gott samband betra.
Námskeið þessi hafa verið haldin
víða um land við miklar vinsældir.
Það stendur einnig fólki í sambúð
til boða.
Námskeiðsgjald er 2.500 kr. fyr-
ir parið én Akranessöfnuður býður
kaffiveitingar.
Skráning fer fram í síma
431 1690 alla virka daga frá kl.
13-16. Missið ekki af góðu og upp-
byggilegu námskeiði.
Sóknarprestur.
Samkoma Byrg-
isins og Hafnar-
fjarðarkirkju
SAMKOMA á vegum Byrgisins og
Hafnarfjarðarkirkju mun fara
fram föstudagskvöldíð 12. mars kl.
20.30. Hljómsveit á vegum Byrgis-
ins með þaulæfðum hljóðfæraleik-
urum mun leika gefandi og fjörleg
kristileg lög. Beðið verður fyrir
bágstöddum og lagðar bænahend-
ur yfir sjúka. Forstöðumaður
Byrgisins, Guðmundur Jónsson,
mun prédika og leiða samkomuna
ásamt sr. Gunnþóri Ingasyni. Fyrir
mánuði var haldin fyrsta samkom-
an í samstarfi Byrgisins og Hafn-
arfjarðarkirkju. Hún var fjölsótt,
gefandi og innihaldsrík. Þessar
samkomur eru haldnar til stuðn-
ings starfi Byrgisins og til að auka
fjölbreytni í helgihaldi kirkjunnar.
Eftir þær er Strandberg opið og
boðið þar upp á kaffi og meðlæti.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 14-17. Biblíulestur kl.
20.30 í safnaðarheimili Áskirkju.
Jóhannesarbréf lesin og skýrð.
Arni Bergur Sigurbjörnsson.
Bústaðakirkja. Foreldramorgnar
„ kl. 10-12.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla
aldurshópa í safnaðarheimilinu á
milli kl. 14-16.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl.
12. Orgelleikur, passíusálmalestur,
íhugun. Léttur málsverður í safn-
aðarheimili eftir stundina.
Háteigskirkja. Starf fyrir 10-12
ára böm kl. 17. I auga stormsins,
kyrrð, íhugun, bæn, lofsöngur og
fræðsla. Kl. 19.30 innri íhugun.
Kirkjan opnuð kl. 19.15 til kynn-
ingar fyrir þá sem eru að koma í
fyrsta skipti. Kl. 20.15 trúarreynsla
- fræðsla, kl. 21 Taizé-messa.
Langholtskirkja. Opið hús fyrir
foreldra yngri bama kl. 10-12.
Söngstund. Passíusálmalestur og
bænastund kl. 18.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12.10. Gunnar Gunnarsson leik-
ur á orgel frá kl. 12. Léttur máls-
verður að stundinni lokinni.
Seltjarnarneskirkja. Passíusálma-
lestur kl. 12.30. Starf fyrir 9-10 ára
börn kl. 17-18.15.
Breiðholtskirkja. Mömmumorg-
unn á föstudögum kl. 10-12.
Digraneskirkja. Foreldramorgnar
kl. 10-12 í umsjá Fjólu Grímsdóttur
og Bjargar Geirdal. Leikfimi aldr-
aðra kl. 11.15. Bænar- og kyrrðai'-
stund kl. 18. Bænarefnum má koma
til sóknarprests eða kirkjuvarðar,
einnig má setja bænarefni í bæna-
kassa í anddyri kirkjunnar.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir
11-12 árakl. 17.
Grafarvogskirkja. Mömmumorgn-
ar kl. 10-12. Áhugaverðir fyrir-
lestrar, létt spjall og kaffi og djús
fyrir bömin. Kyrrðarstundir í há-
degi kl. 12.10. Orgelleikur, fyrir-
bænir, altarisganga og léttur há-
degisverður.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar. St-
arf fyrir 7-9 ára börn kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Starf eldri borg-
ara í dag kl. 14-16 í safnaðarheim-
ilinu Borgum. Kyrrðar- og bænar-
stund í dag kl. 18. Fyrirbænarefn-
um má koma til prests eða kirkju-
vai'ðar.
Seljakirkja. Fundur KFUM fyrir
9-12 ára stráka er í dag kl. 17.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 10-12 ára börn frá kl.
17-18.30 í safnaðarheimilinu, Linn-
etstíg 6. Æskulýðsfundur kl. 20-22.
Hafnarijarðarkirkja.
Mömmumorgnar kl. 10-12 í Vonar-
höfn. ÁTN-starf fyrir 8-9 ára kl.
17-18.30 í Vonarhöfn.
Vídalínskirkja. Bænar- og kyrrð-
arstund kl. 22. Kaffi eftir athöfn.
Biblíulestur kl. 21.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgunn
milli kl. 10-12. Opið hús fyrir 10-12
ára börn kl. 17-18.30.
Akraneskirkja. Fyrirbænarstund
kl. 18.30.
Keflavíkurkirlga. Kirkjan opin kl.
16-18. Kyrrðar- og bænarstund í
kirkjunni kl. 17.30. Elísabet Berta
Bjarnadóttir, félagsráðgjafi hjá
íjölskylduþjónustu kirkjunnar,
flytur erindi sem hún nefnir: Að yf-
irgefa foreldrahús og verða sjálf-
stæður. Einkum ætlað fólki á aldr-
inum 18 til 35 ára, en allir em vel-
komnir.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
Kl. 11 helgistund í Hraunbúðum.
Kl. 17 TTT-starfið í fullum gangi.
Kl. 20.30 opið hús í KFUM og K.
Hjálpræðisherinn. Kl. 20.30 vakn-
ingasamkoma. Ofurstarnir Norunn
og Roger Rasmussen.
Akraneskirkja. Fyrirbænarstund
kl. 18.30.
„Be Happy“
Litir: Ijósir - bláir
Stæröir: 36-41
Verð kr. 6.900
Póstsendum
samdægurs
KRINGLUNNI, 1. HÆB, SIMI568 9345
Stjörnuspá á Netinu
vfj) mbl.is
^ALLTAf= e/TTHVA£? NÝTT
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Myndir eftir
Sölva Helgason
MYNDIR eftir Sölva
Helgason eru til hjá mörg-
um einstaklingum víða um
land. Af skiljanlegum
ástæðum er ekki jafn auð-
velt að vita hvar þær eru
niðurkomnai' og ef um op-
inbera aðila væri að ræða
(t.d. Þjóðminjasafn ís-
lands). Þetta er tilkynning
til þeirra einkaaðila, sem
eiga myndverk eftir Sölva
Helgason í fóram sínum.
Undirritaðui' er væntan-
legur útgefandi bókar um
myndlist Sölva og væri
mjög þakklátur fyrir að fá
upplýsingar um myndir
hans, þær sem eru í einka-
eign.
Bið ég þá sem málið er
skylt vinsamþega að hafa
samband við Ólaf Jónsson,
pósthólf 7077, 127 Reykja-
vík og í síma 895 9852.
Beðið er um nafn, heimilis-
fang og símanúmer við-
komandi og upplýsingar
um myndverkið (helst ljós-
rit af því).
Ágætir fréttamenn
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi.
Kæri Velvakandi.
Eg var undrandi yfir
kvörtunum vegna frétta-
manna Stöðvar 1. Mér
finnst þeir standa sig alveg
prýðilega. Mér þykir svo
gaman að fylgjast með
veðurfréttunum, sjá lægð-
irnar og hæðirnar færast
til. Ég á kunningja í öllum
nálægum löndum og hef
gaman af að sjá veðrið hjá
þeim. Maður þyi'fti að fara
á hraðlestrarnámskeið til
að geta lesið á töfluna sem
þeir bregða upp á Stöð 2.
Svo finnst mér leiðinlegt
þtta pot með hendurnar.
Ég hef verið að hugsa
hvort ég ætti að spandera
á þá kennarapriki, svo þeir
stæðu ekki svona fýrir
Austurlandi.
Svo í allt annað. Er það
ekki vanhugsað að reisa
margra metra háa brú á
Sundunum? Það er svo oft
rok þai'na og gæti þá verið
hættulegt að keyra yfir.
Þriðja atriði. Ganga-
gerð. Það er ekki bara
stytting á vegalengd, held-
ur mikið öryggi að fá göng
milli Fáskrúðsfjaðar og
Reyðarfjarðar. Vattar-
nesskriður eru nú ekki
skemmtilegar að sumar-
lagi, hvað þá heldur í snjó-
komu að vetri. Breiðdals-
heiðin er oft ófær að vetri
til og þá á fólk ekki ann-
arra kosta völ en aka firð-
ina.
Væri ekki nær að flytja
íbúa Siglufjarðar burtu
heldur en grafa göng? Það
þarf að gera snjóflóðavarn-
ir, gera við bryggjurnar.
Það þai'f líka að halda við
veginum frá Sauðárkróki,
þar sem fólki er ekið þaðan
frá flugvellinum.
Það gæti þétt byggðina í
Ólafsfirði eða á Dalvík, að
ég tali nú ekki um hvað
Sauðárkrókur er fýsilegur
staður með sjúkrahús og
skóla.
Ein áttræð.
Tapað/fundið
Gsm-sími í óskilum
GSM-sími fannst á bíl-
stæðinu við verslunarmið-
stöðina Glæsibæ sl. föstu-
dag. Upplýsingar hjá
Glæsiskónum, Glæsibæ,
sími 561 2966.
VIÐ HOFNINA
Víkveiji skrifar...
STJÖRNUBÍÓ sýnir um þessar
mundir einstæða kvikmynd sem
heitii' Savior. Hún er gerð af
júgóslavneska leikstjóranum Pre-
drag Antonijevic en flestir aðstand-
endur eru breskir eða bandarískir.
Meðal framleiðenda er Oliver Sto-
ne.
Kunningi Víkverja sá myndina
um daginn og varð fyrir sterkum
áhrifum. Þótt sögusvið myndarinn-
ar sé átökin í Bosníu hefur hún al-
menna skírskotun og fjallar á vægð-
arlausan hátt um það ótrúlega hat-
ur sem getur heltekið menn og lagt
fjölskyldur og samfélög í rúst.
Myndin leitar ekki skýringa á þeim
voðaverkum, sem unnin hafa verið í
Júgóslavíu sem var, í sögulegum
bakgrunni óvildarinnai' milli Serba,
Króata og muslima eins og svo oft
er gert. Sveitir allra þjóðarbrotanna
sjást fremja voðaverk í myndinni.
I stað þess að leita skýringa á
voðaverkunum með því að tala um
deilur trúarhópa og sögu þjóðar-
brota einblína kvikmyndagerðar-
mennirnir á aðstæður og ábyrgð
einstaklinganna, sem í hlut eiga;
ábyrgð sem þeir geta ekki skotið
sér undan í skjóli nokkurs málstað-
ar.
xxx
MYNDIN sýnir voðaverk í miklu
nágvígi en ekki til að velta sér
upp úr ofbeldinu heldur til þess að
spyrja spurninga eins og þessara:
Hvernig menn hafa tögl og hagldir í
heimi þar sem þunguðum konum er
misþyi-mt og útskúfað í nafni mál-
staðar? Hvemig getur nýbakaður
afi tekið á móti barnabarni með því
að heimta að dóttir sín stytti sér
aldur vegna fæðingarinnar? Hvað
getur fengið konu til að hafna ný-
fæddu barni sínu? Hvert er hugará-
stand manns, sem skýtur á börn að
leik? Er einhvern tímann of seint að
snúa við? Boðskapur myndarinnar
virðist vera sá að það sé aldrei of
seint. I návígi við brjálæðið geti
augu manna þrátt fyrir allt opnast
fyrir raunverulegum verðmætum
og að kærleikurinn geti fest rætur í
hörðustu brjóstum. Sá sem bjargar
lífi bjargar heiminum.
í máli manna eru villimannsleg
voðaverk stundum kennd við dýra-
ríkið eða lögmál frumskógarins en í
myndinni er að finna lítið og eftir-
minnilegt atriði þar sem leikstjór-
inn notar viðbrögð geitar við glóru-
lausum glæp gegn lífinu til að koma
því til skila að ástand eins og ríkir á
Balkanskaga gengur gegn öllum
lögmálum í ríki náttúrunnar.
Myndin Savior er ekki gallalaus
fremur en aðrar kvikmyndir eða
önnur mannanna verk en hún fjallar
um staðreyndir stríðsins og gerir
það svo eftirminnilega og á svo
áleitinn hátt að stundum er erfitt á
að horfa. Kunningi Víkverja sagðist
vilja hvetja fólk til að láta myndina
ekki fram hjá sér fara.
XXX
A
EG ER hættur að botna í þér,“
sagði kunningi við Víkverja um
daginn. Víkverja brá í brún því nú
kom í ljós að kunninginn vildi
kvarta yfir Víkverja sjálfum. „Þú
ert alltaf að lenda í fólki, sem veitir
lélega þjónustu. Eg lendi eiginlega
aldrei í svona veseni og þegar það
gerist reyni ég að yppta öxlum og
láta það ekki á mig fá. En hjá þér
virðist neikvæðnin öll leita beint út í
umhverfið. Þú ert stundum svo
pirraður að það er pínlegt. Svo er
annað. Þú ert sýknt og heilagt að
skrifa um knattspyrnu og íþróttir
en stundum tekurðu svo upp á því
að kvarta undan beinum útsending-
um af heimssögulegum atburðum á
íþróttasviðinu. Einn daginn kvart-
arðu undan Landssímanum og þann
næsta hrósarðu Halldóri Blöndal,
sem ber ábyrgð á þjónustu Lands-
símans. I dag hrósarðu þjónustu
Flugleiða en í gær máttirðu ekki
heyra á fyrirtækið minnst vegna
þess hve þjónustan sem þér hafði
verið veitt var léleg. Eg veit að í
skapgerð flestra er marga ólíka
þræði að fínna en hjá þér, Víkverji
minn, gengur þetta eiginlega út í
öfgar. Hvemig rúmast allar þessar
mótsagnir og stríðandi tilfinningar
undir einum blaðamannshatti?"