Morgunblaðið - 31.03.1999, Síða 2

Morgunblaðið - 31.03.1999, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Lögbann á notkun orðsins veltukort SÝSLUMAÐURINN í Reykjavík varð í gær við lögbannskröfu VISA- Islands vegna notkunar Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis á orðinu Veltukort. Lagði sýslumaður lögbann á að gerðarþoli noti orðið Veltukort í starf- semi sinni sem auðkenni fyrir hvers konar greiðslukort, fjármálaskjöl eða fjármálaþjónustu. Jafnframt leggur sýslumaður lögbann við notkun auð- kennisins Veltukort í auglýsingum og annarri kynningu á nefndum vörum eða þjónustu. Kort Sparisjóðsins heitir héðan í frá Veltukreditkort SPRON að sögn Guð- mundar Haukssonar sparisjóðsstjóra. „Þessi aðferð keppinautanna að tefja markaðssetningu okkar með því að fara í hártoganir á nafni breytir engu,“ segir Guðmundur. Forstjóri VISA-íslands, Einar S. Einarsson, lýsti yfir ánægju sinni með úrskurðinn „Við töldum að SPRON hefði farið svolítið geyst fram með því að hertaka okkar vemdaða þjónustu- heiti og við leggjum ekki mikinn trún- að á að það sé alvara á bak við það að taka upp afbökun á þessu heiti,“ segir Einar og segist líta svo á að SPRON sé ekki að hlíta úrskurðinum með því að nefna kortið Veltukreditkort. Guðmundur Hauksson segir að um- mæli forstjóra VISA-íslands í Morg- unblaðinu í gær, þess efnis að það hafi verið „einbeittur brotavilji“ sinn sem hafi valdið því að VISA hafi farið fram ‘a lögbann, sé mjög alvarleg framsetn- ing á málinu hjá Einari og taki hann þau mjög alvarlega. Hátt í Morgunblaðið/Eiríkur P. Jörundsson 500 manns á borgarafundi á Höfn Hornafirði. Morgunblaðið. FULLT var út úr dyrum á borg- arafundi á Höfn í Hornafirði í gærkvöldi. Hátt í 500 manns fylgdust með og tóku þátt í um- ræðum uin fíkniefnamál og for- varnir, en nokkuð hefur borið á vaxandi fíkniefnaneyslu í bænum undanfamar vikur. Greinilegt var að bæjarbúar eru nokkuð uggandi vegna þess- arar þróunar sem og aukins of- beldis í tengslum við þá einstak- linga sem gmnaðir em um mis- notkun fíkniefna. Lögregluyfir- völd á staðnum voru gagnrýnd harðlega og var það mál margra fundarmanna að lögreglan á staðnum væri ekki í stakk búin til að taka á vandanum vegna þess hversu fáir lögreglumenn- irnir væm og hefðu úr litlu fjár- inagni að moða. A fundinum fræddu Ólafur Guðmundsson, rannsóknarlög- reglumaður frá fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík, og Ast- þór Ragnarsson frá SÁÁ fundar- gesti um fíkniefnamál og for- varnir. Að því loknu hófust harð- orðar umræður um þá óöld sem margir íbúar telja að nú ríki á Hornafirði. 1,2 milljón- ir í háseta- hlut FRYSTITOGARINN Amar HU 1 hefur enn einu sinni bætt Islandsmetið í aflaverðmæti úr einni veiðiferð. Aflaverðmætið í síðasta túr var um 114 milljónir króna. Túrinn tók 33 daga svo afla- verðmæti á dag var að meðaltali um 3,5 milljónir króna. 26 menn eru í áhöfn Arnars og verður há- setahluturinn úr þessari veiði- ferð um 1.200 þúsund. ■ Verðmesti/B2 Margir fá laun og bætur í dag RÍKISSTARFSMENN fá laun sín útborguð í dag, 31. mars, þrátt fyrir að ekki sé skylt að gi’eiða út laun fyrr en fyrsta virka dag hvers mánaðar. I sumum kjarasamningum á almenna vinnumarkaðinum er kveðið á um að laun skuli greidd út fyrir mánaðamót ef fyrsti dagur næsta mánaðar er helgi- dagur. Þá hefur verið ákveðið að Tryggingastofnun greiði bætur almannatrygginga í dag. Baugur kaupir helmingshlut í Partafélaginu SMS í Færeyjum Með 50% verslunar í Færeyjum eftir kaupin BAUGUR hf. hefur fest kaup á helmingshlut í Partafélaginu SMS í Færeyjum og hefur í kjölfarið verið ákveðið að sameina SMS og P/f För- is, sem rekur verslanir Bónuss í Færeyjum en þær eru tvær. I sameiningu reka þessi fyrirtæki sex verslanir í Færeyjum og er áætl- uð markaðshlutdeild SMS í Færeyj- um um 50% eftir sameininguna. SMS á og rekur einu verslunarmið- stöðina á eyjunum, auk annars versl- unareksturs. Um 2 milljarðar í veltu Að sögn Jóns Ásgeirs Jóhannes- sonar, forstjóra Baugs hf., er áætluð velta SMS á næsta ári um tveir millj- arðar króna. Helsta markmiðið með sameiningunni sé að auka hagræð- ingu í rekstri, efla samstarf um inn- kaup, meðal annars með nýtingu vöruhúss Baugs hérlendis, og skapa að auki nýja möguleika á sviði sér- vöru og er þá m.a. miðað við rekstur Hagkaups. „Umsvif okkar í Færeyjum stór- aukast með þessum kaupum. Við horfum mikið til sérvörumarkaðar- ins og teljum að þar séu vannýtt tækifæri í Færeyjum. Við eigum kost á að nota verslunarmiðstöð SMS í Færeyjum í því skyni að þróa þann markað og þar er gott hús- næði undir sérvöruna," segir Jón Ásgeir. Bónus keypti hlutinn í SMS af Hans Mortensen sem byggði versl- unarmiðstöðina og átti 80% í fyrir- tækinu og einnig af dönskum aðil- um. Kaupverðið er ekki gefið upp en Jón Ásgeir kveðst telja að um ágæt kaup hafi verið að ræða. „Aðil- ar nálguðust hvor annan á svipuðum tíma. Við sáum að framtíðin fælist í að ná meiri markaðshlutdeild og um leið meiri hagræðingu. Þetta er ekki stór markaður en við töldum okkur þurfa að ná ákveðinni stærð til að nýta okkar úrræði betur, svo sem vöruhúsið hér heima og vöruhúsið í Danmörku. Við sjáum t.d. fram á að kaup af Baugi hér heima muni aukast,“ segir Jón Ásgeir. Hann kveðst jafnframt telja að með kaupunum opnist fleiri mögu- leikar fyrir íslenska framleiðendur og nefnir í því sambandi framleið- endur hreinlætisefna, sælgætis og ávaxtasafa. Hann telji einnig að ís- lenskar landbúnaðarvörur eigi fullt erindi á færeyskan markað, en til þess að svo megi verða þurfi að koma á nokkurs konar fríverslunar- samningi milli landanna. „Við mun- um hvetja stjórnvöld til að athuga þau mál. Við teljum að þarna séu t.d. mikil tækifæri íyrir íslenskar mjólk- urafurðir,“ segir Jón Ásgeir. „Okkur sýnist að ónýtt fram- leiðslugeta íslenskra framleiðenda nemi oft á tíðum um 20-25%, ein- göngu vegna þess að menn komast ekki yfir tæki sem framleiða minna, og því teljum við að með 45 þúsund manna markaði í Færeyjum geti ís- lenskir framleiðendur fullnýtt af- kastagetu sína. Um leið gæti það leitt til lægra vöruverðs á íslandi og í Færeyjum og gert vörurnar sam- keppnishæfari við erlendar fram- leiðsluvörur." Rekstur í A-Evrópu í athugun Baugur hf. undirbýr nú í samstarfi við verslunarkeðjuna Reitangrupp- en, sem á 20% í Baugi, sókn fyrir- tækisins erlendis og er meðal annars horft til þess að færa út kvíarnar í Austur-Evrópu undir merkjum Bón- uss, að sögn Jóns Ásgeirs Jóhannes- sonar, forstjóra Baugs. „Við erum að skoða ýmis mál með þeim sem gætu leitt til frekari land- vinninga. Reitangruppen er aðallega á Norðurlöndunum en hefur verið að hasla sér völl í Tékklandi og Pól- landi, svo eitthvað sé nefnt. í því samstarfi er fyrst og fremst horft til Bónuss og hafa forsvarsmenn Reit- angruppen lýst því yfir að þeir séu afar spenntir vegna þein-a mála. Mönnum líst vel á þessar hugmynd- ir,“ segir Jón Ásgeir. U Sfe)!HI ► f VERINU í dag er sagt frá mesta afla- verðmæti Islandssögunnar og góðum þorskafla í netin. Tæp 90.000 tonn af loðnu urðu eftir af loðnukvótanum og má áætla að útflutningsverðmæti afurða úr því magni hafi getað numið 550 millj. króna. MORGUN- BLAÐINU í dag fylgir tuttugu og átta síðna sérblað í til- efni þess að hálf öld er liðin frá stofnun Atlantshafs- bandalagsins. Dagskipunin vörn hjá Íslendingum/C2 FH er komið í undanúrslit/C3

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.