Morgunblaðið - 13.04.1999, Side 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS H. SIGURÐSSON,
Hólmagrund 13,
Sauðárkróki,
andaðist á Sjúkrahúsi Skagfirðinga sunnu-
daginn 11. apríl.
Sigurlaug Magnúsdóttir, Guðmundur Guðmundsson,
Unnur Elfa Guðmundsdóttir, Jón Viðar Magnússon,
Alfa Lára Guðmundsdóttir,
Guðmundur Víðir Guðmundsson,
Sigurlaug Rún Jónsdóttir.
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
ARNFRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR,
Austurbrún 6,
Reykjavík,
áður til heimilis á Þingeyri,
Dýrafirði,
sem andaðist á Landspítalanum mánudaginn
5. apríl sl., verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju
í Hafnarfirði fimmtudaginn 15. apríl, kl. 13.30
Grétar Sig. Arnaz,
Ósk Árnadóttir,
Kristján S. Sverrisson,
Arnar Sverrisson,
Sigurlaug Kr. Pétursdóttir,
Garðar J. Grétarsson,
Arnfríður Ingibjörg Grétarsdóttir,
Bjarni Sigurður Grétarsson
og langömmubörn.
Elísabet Sigurbjarnadóttir,
Sólveig Hilmarsdóttir,
Stefán Þór Jónsson,
Kristín Högnadóttir,
Viktor Jónsson,
+
Elskuieg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
MARI'A ANNA MAGNÚSDÓTTIR,
frá Ólafsfirði,
áður til heimilis í Lönguhlíð 25,
sem lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, mánudaginn
5. apríl sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
á morgun, miðvikudaginn 14. apríl, kl. 13.30.
Kristín Hartmannsdóttir, Guðbrandur Sæmundsson,
Halldóra Hartmannsdóttir,
Ásta Hartmannsdóttir, Bragi Jónsson,
Guðrún Hartmannsdóttir, Ásgeir Jónsson,
Adda Hartmannsdóttir, Halldór Ólafsson,
Erna Hartmannsdóttir, Anton Þórjónsson,
Ásdís Hartmanns,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
EYRÚN ÁRNADÓTTIR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
áður Baðsvöllum 13,
Grindavík,
verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju fimmtudaginn 15. apríl kl. 14.00.
Ásta Karlsdóttir Lauritsen, Jens Christian Lauritsen,
Edda Karlsdóttir, Finnbogi Björnsson,
Ásrún Karlsdóttir, Kristján Árni Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Systir okkar,
HÓLMFRÍÐUR S. ÁRNADÓTTIR,
LILLÝ,
tannsmiður,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu fimmtu-
daginn 15. apríl kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Styrkt-
arfélag vangefinna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Helgi. H. Árnason
Jóhanna M. Árnadóttir.
VIGDÍS KLARA
STEFÁNSDÓTTIR
+ Vigdís Klara
Stefánsdóttir
fæddist á Fitjum í
Skorradal 22. janú-
ar 1909. Hún lést á
Hrafnistu í Hafnar-
firði 31. mars síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Stefán
Guðmundsson
bóndi og kona hans
Karólína Hall-
grímsdóttir.
Hinn 30. maí 1930
giftist hún Gísla
Sigurðssyni, yfir-
lögregluþjóni í Hafnarfirði, f.
23. júní 1903, d. 29. okt. 1985.
Börn þeirra eru: 1) Þóra Eyja-
lín, f. 24. júlí 1937. Sonur
hennar er Gísli Grettisson.
Fyrri eiginmaður hennar var
Sveinn Sveinsson. Þau skildu.
Síðari eiginmaður
hennar var Ottó B.
Björnsson. Þau
skildu. Með honum
átti hún dótturina
Ingibjörgu Vigdísi.
2) Gunnlaugur
Stefán, f. 28. júlí
1944. Fyrri eigin-
kona hans var As-
laug Jónsdóttir,
sem er látin.
Seinni eiginkona
hans er Áslaug Ás-
mundsdóttir. Börn
þeirra eru: A)
Andrés Þór, kvæntur Sigríði
Jónsdóttur. Þau eiga eitt
barn, Þórdísi Dröfn. B) Stefán
Örn.
Utför Vigdísar Klöru fer fram
frá Víðistaðakirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Vigdís Klara Stefánsdóttir, sem
kennd var við Fitjar í Skorradal,
var við háan aldur er hún lést, ný-
lega komin á nítugasta og fyrsta
aldursárið. Kvödd er góð kona, yf-
irlætislaus og hiý. Hún bar mikinn
yndisþokka, var fögur og glæsileg
kona.
Sá sem ritar þessi minningarorð
sem kveðju frá sér og systkinum
sínum, Valdísi, Vildísi, Ragnheiði
og Gísla, átti því láni að fagna að
kynnast Vigdísi Klöru og eigin-
manni hennar, Gísla heitnum Sig-
urðssyni, á æskuárum. Tengdumst
við þeim órjúfandi vináttuböndum.
Upphaf þess var vinátta milli henn-
ar og móður okkar, Matthildar,
sem lést á sl. ári. Sem ung brúður
kom Vigdís Klara til Hafnarfjarðar
í kringum 1930 og leigðu þau hjón-
in fyrstu húskaparár sín litla íbúð
hjá móðurömmu okkar, Vigdísi
Þorgilsdóttur, Merkurgötu 3, en
hún var þá orðin ekkja.
Vigdís Klara var fædd og uppal-
in í einni fegurustu sveit á Islandi,
á Fitjum í Skorradal, dóttir Stef-
áns Guðmundssonar, bónda og
sýslunefndarmanns, og Karolínu
Hallgrímsdóttur, eiginkonu hans.
Stefán var sonur Guðmundar
Olafssonar alþingismanns, en hann
var mjög handgenginn Jóni Sig-
urðssyni forseta í sjálfstæðisbar-
áttu Islendinga á seinni hluta 19.
aldar. Þau Stefán og Karolína eign-
uðust fjögur börn. Elst var Vigdís
en síðan komu Stefán, Hallgrímur
og Guðmundur. Þeir Stefán og
Guðmundur bjuggu á Fitjum með-
an aldur entist en Hallgrímur flutt-
ist til Reykjavíkur þar sem hann
gegndi störfum lögregluþjóns í
áratugi.
Á sínum tíma var Skorradalm-
afskekkt sveit og náttúran óspillt.
Landið skógi vaxið. Veiði góð í
vatninu. Farið var um einstigu
milli bæja í gegnum kjarr og skóga
eða með bátum um vatnið. Þá var
fuglalíf fjölbreytilegt og gróður lit-
skrúðugur. Fitjar voru kirkjustað-
ur og meðal bestu jarða í sveitinni.
Eðli málsins samkvæmt voru Fitj-
ar því ákveðinn miðpunktur í fá-
mennri og strjálbýlli sveit. Yfir
húsbændum var reisn, þau voru
sómi sinnar sveitar. Vigdís Klara
naut góðs atlætis í föðurhúsum.
Eigi er ofsagt að segja að það hljóti
að hafa verið mikil viðbrígði að
hverfa úr kyrrðinni og fegurðinni í
Skorradal suður á mölina í Hafnar-
firði á fyrstu áratugum aldarinnar.
Þótt Fjörðurinn sé fallegur jafnast
hann ekki á við Skorradal hvað
náttúrufegurð áhrærir. Aldrei
+
Ástkær eiginmaöur minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGURÐUR H. GUÐMUNDSSON
flugvirki,
sem lést sunnudaginn 4. apríl, verður jarð-
sunginn frá Bústaðakirkju í dag, þriðjudaginn
13. apríl kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarfélög
Elísabet María Víglundsdóttir,
Ásdfs Sigurðardóttir, Gísli Geir Jónsson,
Víglundur Sigurðsson, Margrét Rósa Sigurðardóttir,
Þórhildur Sigurðardóttir, Ólafur Viðar Birgisson,
Guðmundur Sigurðsson, Kolbrún S. Jóhannesdóttir,
Guðrún Sigurðardóttir, Guðmundur Þorkelsson,
Sigurður Sigurðsson, Eyrún Guðnadóttir,
Halldór Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
ÓSKARS E. LEVY,
Ósum.
Sesselja Eggertsdóttir,
Jónína Edda Ó. Levy, Guðmundur Víðir Vilhjálmsson,
Guðmann Ó. Levy,
Knútur Arnar Óskarsson,
Eggert Ó. Levy, Álfhildur Pálsdóttir
og fjölskyldur.
hafði Vigdís orð á því en eigi duld-
ist í fari hennar, hversu tengd og
mótuð hún var af áhrifum æskuár-
anna á Fitjum.
I Borgfirðingaljóðum, ljóðabók
sem gefin var út árið 1991, birtist
kvæði eftir hana sem heitir Skorra-
dalur. Lýsir það vel ást hennar til
æskustöðvanna.
Geng ég nú um græna móann þinn,
góði, fagri dalur, enn eitt sinn, -
horfi á þig, holtasóley fín -
hvíta skrúðann mýkri en silkilín.
Kn minning, tengd við sólskin, söng og
blóm,
sumardýrð og vorfuglanna róm.
Fagna sál mín, öllu angri gleym.
Æskudalur, ég er komin heim.
Vigdís var fáguð kona og falleg,
hafði sterkan svip, tindrandi dökk
augu og var mjög rómantísk. Góð-
ur skáldskapur og listir voru henni
hugleikin. Á heimili Gísla og Vig-
dísar voru bókmenntir í hávegum
hafðar. íslendingasögur skipuðu
þar heiðurssess svo og ljóðabækur
og íslenskar skáldsögur. Þar voru
bækur ungra og upprennandi
skálda; Halldórs Kiljans Laxness,
Þórbergs Þórðarsonar, Gunnars
Gunnarssonar og Kristmanns Guð-
mundssonar svo nokkuð sé nefnt.
Þar las höfundur þessarar minn-
ingargreinar sína fyrstu íslend-
ingasögu, Grettissögu. Þessi heim-
ilisumgjörð var fátíð hjá almennu
launafólki á Islandi á kreppuárun-
um 1930-1940, þegar fjöldinn hafði
varla í sig og á. Gísli var þá lög-
reglumaður í Hafnarfirði og síðar
yfirlögregluþjónn. Fróðleiksíysn
húsbóndans og menningarbragur
húsmóðurinnar áttu ríkan þátt í
myndun þessa listræna og bók-
mermtalega heimilis.
Á heimili þeirra dvaldist fóður-
systir Vigdísar, Þóra Guðmunds-
dóttir, sem var nokkuð komin til
aldurs þegar hún fluttist til Hafn-
arfjarðar. Þóra var einstaklega
bamgóð. Bakaði jafnan dýrindis
kökur og kransa hringlagaða,
smurða kremi og skrautsykri fyrir
hina ungu heimilisvini, þegar þá
bar að garði. Ogleymanlegt er,
hvað þessi hjartahlýja og góða
kona lét sér annt um þá sem hún
komst í snertingu við. Heimili Gísla
og Vigdísar og barna þeirra, Þóru
Eyjalínar og Gunnlaugs Stefáns,
myndlistarmanns, naut þess ríku-
lega. Þá tóku þau síðar til sín dótt-
ursoninn Gísla Grettisson sem var
þeim sem þriðja barn.
Þau Vigdís og Gísli Sigurðsson
voru að ýmsu leyti mjög ólík. Að
útliti var hún grönn og fingerð.
Gísli var hins vegar sterklega
byggður og gat virkað hranalegur í
fasi, en undir niðri sló viðkvæmt
hjarta. Vigdís var að eðlisfari fag-
urkeri og blíð í umgengni. Hafði
mikið yndi af skáldskap og ljóðum.
Hún vildi vita af hinu góða í lífinu
og færa allt til betri vegar. Þannig
var Gísli maður hennar einnig en
hans vettvangur var meira út á við.
Hann var íþróttamaður, fjallagai'p-
ur og náttúruunnandi. Síðustu ár
ævi sinnar helgaði Gísli sig upp-
byggingu minjasafns Hafnai-fjarð-
arbæjar, sérstaklega húsi Bjarna
Sivertsen.
Vigdísar Klöru verður ekki
minnst án þess að Gísla manns
hennar, sem lést 1985, sé einnig
getið. Gísli var athafnasamur mað-
ur, jafnframt lögregluþjónsstarf-
inu, og kom víða við. Hann setti
svip á bæjarlíf Hafnarfjarðar með-
an hans naut við. Var í áraraðir
einn af fremstu forustumönnum
íþróttahreyfingarinnar í Hafnar-
firði og kom mikið við sögu FH og
Hauka á sínum tíma. Að baki hans
stóð Vigdís Klara með sinni ein-
stöku rósemi og annaðist heimilið.
Þá var hún um tíma í kirkjukór
Fríkirkjusafnaðarins í Hafnarfirði,
en Vigdís hafði fallega söngrödd.
Komið er að kveðjustund. Við
systkinin kveðjum Vigdísi Klöru
með þakklæti og virðingu. Að-
standendum eru sendar innilegar
samúðarkveðjur.
Guðmundur H. Garðarsson.