Morgunblaðið - 13.04.1999, Síða 7

Morgunblaðið - 13.04.1999, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 7 Það er bæði fólki og fyrirtækjum í hag að velferðarþjónustan geri sem flestum kleift að samrýma fjölskyldulíf og virka þátttöku á vinnumarkaðnum. Þess vegna vill Samfylkingin: Lengra fæðingarorlof Samfylkingin vilL lengja fæðingarorlof í tólf mánuði og samræma rétt foreldra tiL fæðingarorLofs á fuLLum launum, óháð starfsgreinum. Fyrirkomulag fæðingarorlofs á að vera sveigjanlegt þannig að bæði mæður og feður geti nýtt sér það, tekió það allt í einu eða hLuta þess hálfan daginn eóa með hléum og unnið þess á milLi. Foreldraorlof Börnin okkar eru fjársjóður framtiðarinnar. Samfylkingin viLl að fólk fái rétt tiL að nýta sér foreldraorLof sem er vióbót við fæðingar- orlofið og feLst i rétti til aukinna fjarvista frá vinnu til að sinna börnum upp að ákveðnum aLdri. Stuðning við barnafólk SamfýLkingin vilL bæta stöóu barnafólks, meðal annars með því að hækka ótekjutengdar barnabætur og heimila foreldrum aó nota ónýttan persónuafsLátt barna aó 18 ára aldri. Þetta er mikiLvægt hagsmunamál foreldra um land aLlt, ekki síst þeirra sem eiga börn i skóla fjarri heimilum sinum. Burt með misréttið Samfylkingin vilL búa öldruðum öruggt ævikvöld. Það á meðal annars að afnema tengingu örorkubóta og elLilífeyris við tekjur maka og láta bætur aLmannatrygginga fylgja almennum launabreytingum. Annað er óréttLátt. Samfylkingin vill tryggja stuðning við fjöLskyldur sem eiga á brattan að sækja vegna sjúkdóma eða fötlunar. SamhLiða endurskoðun á velferðarþjónustunni á að gera nýjan samning um afkomutryggingu þannig að enginn þurfi að una fátækt og óvissu um kjör sín. Fjölskyldustefnu í samráói við samtök Launafólks og atvinnurekenda ætLar Samfylkingin að marka opinbera fjölskyldustefnu um styttan vinnutima og aukinn sveigjanleika á vinnumarkaði. í henni fælist líka aukinn réttur til fjarvista vegna veikinda barna og bætt réttarstaða gagnvart uppsögnum af fjöLskylduástæðum. Fyrirtækin hafa það fínt. Það er gott. En nú er komið að fólki. Breytum rétt www.samfylking.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.