Morgunblaðið - 13.04.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.04.1999, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir ÓSKAR Ásgeirsson og Sigrún Davíðsdóttir fyrir utan Hótel Ilvols- völl og má þar sjá nýju hóteibygginguna í baksýn. Ný hótelálma við Hótel Hvolsvöll Hvolsvelli - Ný hótelálma við Hótel Hvolsvöll verður tekin í notkun í byrjun maí. í hinni nýju byggingu verða 24 fullbúin 2 manna herbergi og að sögn eigenda hótelsins, þeirra Óskars Ásgeirssonar og Sigrúnar Davíðsdóttur eykst gistirými hót- elsins um meira en helming. Hin nýju herbergi verða rúmgóð eða 26 fermetrar að stærð. Fjögur herbergi verða sniðin að þörfum fatlaðra og einnig verða tvær svít- ur á hótelinu. „Þetta verður alger bylting á gistiaðstöðu hér á Hvols- velli. Nú munum við geta tekið á móti mun stærri hópum en áður og boðið miklu betri gistingu sem samrýmist þeim kröfum sem gerð- ar eru í dag. Þá munum við einnig bráðlega breyta matsal hótelsins og færa eldhúsið þannig að betri aðstaða skapast bæði fyrir starfs- fólk og gesti,“ sagði Óskar hótel- stjóri þar sem hann gaf sér tíma til að líta uppúr málningarvinnunni í hinni nýju hótelbyggingu, en sjálf- ur sér hann um alla málningar- vinnu. Þau hjónin, Óskar og Sigrún, segja að bókanir fyrir sumarið lofi góðu og ljóst sé að um mikla aukn- ingu sé að ræða hjá þeim. Sex til sjö manns starfa á hótelinu í sumar. Fyrsti hópurinn sem gistir á nýja hótelinu er væntanlegur 9. maí. Það er byggingarfélagið Krappi ehf. sem séð hefur um byggingar- framkvæmdimar en allar innrétt- ingar eru íslenskar, smíðaðar hjá Ingvari og Gylfa. Reykskynjari bjargar hjónum og fjórum börnum Sluppu með skrekkinn Höfn - Hjón ásamt fjórum börnum sínum sluppu með skrekkinn að- faranótt sunnudags þegar reyk- skynjari vakti heimilisfólkið eftir að eldur hafði kviknað í kerta- stjaka út frá kerti á neðri hæð hússins, sem er tvílyft timburhús. Var þá neðri hæðin orðin full að reyk en eldur ekki mikill. Eiginmaðurinn, Þorsteinn Guð- mundsson, hófst handa við að slökkva eldinn á meðan eiginkona hans, Bára Baldvinsdóttir, forðaði börnunum út út húsinu og hringdi á lögreglu og slökkvilið. Þegar slökkviliðið mætti á staðinn fáein- um mínútum síðar hafði Þorsteini að mestu tekist að ráða niðurlög- um eldsins, enda vildi til happs að lítill eldsmatur var nálægt kerta- stjakanum. Stjakinn var gerður úr tré og plasti sem bráðnaði í eldin- um og gaf frá sér mikinn reyk. Nokkrar skemmdir urðu á borð- stofuskáp og sót barst víða um húsið. Húsráðendur voru samdóma um að reykskynjarinn hefði bjargað fjöldskyidunni, enda aðeins tíma- spursmál hvenær eldurinn næði að breiða úr sér og þá vart að sökum að spyrja. Bára segist strax hafa munað eftir að hafa gleymt að slökkva á kertinu þegar hún vakn- aði við reykskynjarann. Kei’ta- stjakann hafði dóttir þeirra hjóna smíðað í skólanum og töldu þau að margir slíkir væru á heimilum á Morgunblaðið/Eíríkur P. Jörundsson ÞORSTEINN Guðmundsson, húsráðandi, stendur við upptök eldsins. Fyrir miðri mynd má sjá brunarústir kertastjakans sem kviknaði í. Höfn. Þorsteinn og Bára vildu Slökkviliðs Hornafjarðar fyrii' að koma á framfæri þakklæti til hafa brugðist ótrúlega skjótt við. Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir KOLBRÚN Þóra Oddsdóttir afhendir Stefáni Gíslasyni fyrstu skýrsluna í gerð Staðardagskrár 21. Úttekt fyrir Staðardag- skrá 21 lokið í Hveragerði Hveragerði - Hveragerðisbær varð fyrst íslenskra sveitarfélaga til að ljúka fyrsta áfanga í vinnu við Stað- ardagskrá 21. Sá áfangi felst í út- tekt á núverandi stöðu umhverfis- mála hjá bæjarfélaginu. 31 sveitar- félag tekur þátt í verkefninu sem ætlað er að standa í átján mánuði, þ.e. til marsloka árið 2000. Fyrir þann tíma er ætlunin að öll þátt- tökusveitarfélögin hafi búið til og staðfest fyrstu útgáfuna af Staðar- dagskrá 21. Það var Kolbrún Þóra Oddsdótt- ir, garðyrkjustjóri Hveragerðisbæj- ar, sem afhenti Stefáni Gíslasyni verkefnisstjóra útttekt Hveragerð- isbæjar. Að sögn Kolbrúnar er margt í gangi varðandi umhverfis- mál í Hveragerði. „Úttekt eins og slík sem við af- hendum hér hjálpar okkur við að skilja þau vandamál sem við okkur blasa og einnig gleður það okkur að sjá að hér er margt til fyrirmyndar. Má þar meðal annars nefna virkt innra gæðaeftirlit vatnsveitunnar. Heilsustofnun NLFÍ hefur hlotið viðurkennda vottun frá Vottunar- stofu Túns fyrir ræktun á lífrænu grænmeti. Og einnig hefur mikið starf verið unnið bæði í leikskólum og grunnskólanum varðandi um- hverfismál og margt spennandi er í bígerð þar,“ sagði Kolbrún Þóra. Að sögn Stefáns Gíslasonar er Staðardagskrá 21 ætlað að móta heildaráætlun um þróun hvers sam- félags, þ.e. áætlun um þróun sem gerir okkur kleift að mæta þörfum okkar án þess að stefna í voða möguleikum komandi kynslóða á að mæta sínum þörfum. „Með öðrum orðum Staðardag- skrá 21 er áætlun um sjálfbæra þró- un. Nú þegar fyrsta áfanga vinn- unnar hér í Hveragerði er lokið, er næst að setja fram markmið sem samfélagið hyggst stefna að á næstu öld og lokaáfanginn er síðan framkvæmdaáætlun sem lýsir því hvernig Hvergerðingar hyggjast ná þessum markmiðum," sagði Stefán Gíslason. I máli Stefáns kom einnig fram að sveitarfélögin 31 eru mjög mis- langt komin með sína vinnu við Staðardagskrána. En hann vonast til að sem flest sveitarfélög muni ná að halda áætlun. Allir nemendur skólans með hlut- verk á sviðinu Reykholti - Fyrir ýmsa flnía í Borgarfjarðarsveit hófst páskafrí- ið með árshátíð grunnskólans á Kleppjárnsreykjum á fimmtudegi fyrir pálmasunnudag. Þar fluttu nemendur leikþætti og má það teljast sérstakt að allir nemendur skólans fá hlutverk á sviðinu á árs- hátíðum skólans. Fullt var út úr dyrum í félagsheimilinu Logalandi og mættu þar fiestir þeir sem á einhvern hátt tengjast skólanum. Kvöldið fyrir skírdag var svo kaffihúsastemnming á sama stað, en þá skemmtu KK og Magnús Ei- ríksson með sínum alþekkta ís- lenska seið um óbyggðir, ómissandi fólk o.fl. Þar með var páskahátíðin gengin í garð og íbú- ar höfuðborgarinnar tóku að streyma í sveitakyrrðina. Eins og víðast hvar á landinu var veður stillt og bjart yfir páskana og fallegt að horfa eftir glampandi hvítum fjallahringnum. Umferðin var mikil, eins og veðrið gaf tilefni til og sagði vanur jeppafari af Langjökli að þar hefði verið mikill ijöldi jeppa á föstudaginn langa. í Húsafelli er á annað hundrað sumarbústaða og var fólk í þeim flestum og hefur sundlaugin þar mikið aðdráttarafl í sólbjörtu veðri. Forráðamenn Ferðaþjónustunnar þar segja að aukning á notkun bú- staðanna frá því í fyrra sé umtals- verð og álíta helst að það sé Hval- fjarðargöngumnn að þakka. Mildur vetur hefur auðvitað ekki skemmt fyrir, en aðsókn í bústaðina hefur verið vaxandi undanfarin ár. Messað var í öllum sóknum og var messusókn almennt góð. Á annan dag páska var friðsælt að vera við messu í gömlu kirkjunni á Gilsbakka sem stendur hátt yfir sjávarmáli með mjög fallegt út- sýni. Nú er Borgarfjarðarsveit að losna við síðustu skammdegis- skuggana, og upp úr þessu má svo fara að búast við lömbum með hlýnandi vormánuðum. Morgunblaðið/Sigríður Kristinsdóttir MAGNÚS Eiríksson og KK í Logalandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.