Morgunblaðið - 13.04.1999, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 13.04.1999, Blaðsíða 68
68 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM Skrímsli hreiðrar um sig á fróni Bandaríski leikstjórinn Hal Hartley stefnir að gerð skrímslamyndar sem yrði tekin á Islandi og í Bandaríkjunum. Pétur Blöndal talaði við hann um myndina Henry Fool, sem sýnd verður hérlendis á næstunni, nýja Jesúmynd og sitthvað fleira. væg í kvikmyndum. „Aðeins til þess að jafna út há- vaðann. Mér líkar einnig hávaði, - en ekki allan tímann." Geturðu sagt mér frá nýju mynd- inni, Henry Fool? Hún fjallar um öskukarl sem hefur ekki náð sér á strik í lífínu og sjálfyfirlýstan snilling og vandræðamann sem flytur í hverfið. Hún er mjög fynd- in og afar dapurleg.“ í myndinni geríst öskukarlinn ljóðskáld og eftir það er komið inn á líf rithöfundarins. Er það byggt á persónulegri reynslu þinni? „Örlítið. Ekki mikið. Hvaða skapandi veru sem er. Hvers sem hefur upplifað að vera tekinn í við- tal af ókunnugum vegna þess að hann eða hún skapaði eitthvað... allir slíkir myndu skilja myndina." Afhverju fáum við ekki að steypuna, sem mun framleiða myndina, og sjálfur stefnir hann á að leikstýra. I heimsókninni hér á landi leitaði hann að tökustöðum með Friðriki Þór og virtist sáttur við afrakstur ferðarinnar. Hvað á barnið að heita? „Þetta er vísir að kvikmynd sem nefnist Skrímsli." Ertu búinn að semja við ís- lensku kvikmyndasamsteypuna? „Við höfum náð samkomulagi og höfum uppkast að handriti til hlið- sjónar. Það yrði verkefni íslensku kvikmyndasamsteypunnar að framleiða myndina og ef allt geng- ur að óskum má búast við að tökur hefjist um vorið á næsta ári.“ Hafa verið ráðnir leikarar? „Nei.“ Hefurðu hugmynd um hversu mikið myndin á eftir að kosta? „Eins mikið af peningum og ég kemst yfir.“ Nú semurþú tónlist fyrir flestar myndir þínar, reyndar undir nafn- inu Ned Rifle. Kom aldrei til greina hjá þér að gerast tónlistar- maður? „Eg ætlaði mér upprunalega að hella mér út í tónlistina en þrátt fyrir að ég væri ágætur gítarleik- ari átti ég erfitt með að tileinka mér fræðilegu hliðina á tónsmíð- um. Eg gekk í listaskóla í Boston árið 1978 og gerði þá nokkrar super-8 myndir. Ég komst að því að kvikmyndagerð átti vel við mig og innritaði mig eftir það í kvik- myndaskóla." Pögnin virðist vera þér mikil- Morgunblaðið/Kristinn HAL Hartley í kunnuglegu umhverfi á Fróni. heyra ljóð öskukaiisins í mynd- inni? „Ég vildi ekki gefa áhorfendum færi á að dæma um listrænt gildi ljóðsins. Það hefði dregið athyglina frá því sem máli skiptir sem er að mínu mati vinátta Simons [öskukarls] og Henrys [vandræða- mannsins]. Myndin Henry Fool er almennt talin grófari en myndh• þínar hafa verið fram að þessu. Er þetta ný stefna hjá þér? „Þetta eru ókönnuð lönd, já. Að gera grófar myndir er krefjandi þegar maður vill ekki ganga of nærri áhorféndum.“ I hvaða átt hleypur Henry í lok- in - í átt að flugvélinni eða í burtu. Var margræðnin með vilja gerð? Henry hleypur að fiugvél- inni. Við uppgötvuðum möguleikann á þessari tví- ræðni þegar við vorum að klippa myndina og líkaði það vel.“ Stefnirðu á Hollywood? „Nei.“ Næsta mynd þín Lífsbókin stát- ar af ekki ómerkari sögupersónum en Jesú Kristi og Lúsifer. Um hvað fjallar hún? „Jesú kemur til jarðarinnar til að fella hinstu dóma og skiptir um skoðun því hann er bara góður ná- ungi eftir allt saman.“ Söngkonan P.J. Harvey leikur Maríu Magdalenu. Erhún eins kröftug og Ijóðræn og á sviði? Þetta er frumraun hennar í kvikmyndum. En hún er mjög falleg, sjálfsörugg og skýr í tjáningu sinni. Svo, já, ég myndi segja að hún væri ljóðræn." Hver er framtíð óháðrar kvik- myndagerðar? „Ég bíð eftir næstu bylgju.“ Geturðu sagt mér örlítið um Hal Hartley. Er lífþitt viðlíku dram- tískt og sögupersónanna sem þú skapar? „Ég ólst upp í dæmigerðu út- hverfi New York. Ég lifi skemmti- legu lífi. Ég vinn mikið, að því að mér er sagt. En það er vinna sem ég hef að mestu gaman af. Ég er alltaf að fá tækifæri til að kynnast áhugaverðu fólki. Og það er virki- lega mikið af fallegu kvenfólki í þessum iðnaði," segir hann og kímir. „Engin furða að allir vilji búa til kvikmyndir." Bandaríski jaðarleikstjórinn Hal Hartley Handritið kynnt í Cannes Hér er gríðar- legt skrímsla- umhverfí HANDRITIÐ að myndinni Skrímsli eða „Monster" eftir Hal Hartley verður tilbúið fyr- ir Kvikmyndahátíðina í Cannes, að sögn Frið- riks Þórs Friðrikssonar. „Ætli við höldum ekki blaðamannafund þar og kynnum það.“ Hann segir að þeir séu famir að velta fyrir sér hug- myndum um leikhóp og hafi nokkur nöfn vei-ið nefnd í því sambandi. „Þetta eru allt alþekkt nöfn,“ segir hann. Ætli kostnaður við myndina verði ekki um 300 milljónir. Við byrjum auðvitað ekkert að leita fjár- magns fyrr en handritið er tilbúið en þetta hefur spurst út og ég hef heyrt af miklum áhuga í Evrópu og Bandaríkjunum. Fiskisagan flýgur.“ Að sögn Friðriks er þetta óvenjulegt verkefni. „Ég held að við verðum ekki í erfiðleikum með að fjár- magna myndina. Hún gæti jafnvel orðið dýrari. Það fer eftir því hverja við ráðum í hlutverkin. Við erum að vonast til þess að Ijúka fjármögnun í Cannes, sem er eftir mánuð, og ef það tekst heljum við gerð myndar- innar í haust. Annars má búast við að gerð myndar- innar hefjist næsta vor.“ En um hvað fjallar myndin? „Hún fjallar um ski'ímsli á íslandi," svarar Friðrik Þór. Frí,)rik^^ðFik::^ Er það andlegt skrímsli? „ H o 1 d 1 e g t skrímsli," svarar hann og glotth-. „Þetta verður æv- intýramynd í anda gömlu skrímsla- myndanna." Hvernig stendur á því að myndin verður tekin á íslandi? „Þetta er bara hug- mynd sem ég skaut að honum að vinna með. Hér er gríðarlegt skrímslaumhverfi; allt fullt af skrímslum. Ég er búinn að uppfylla hann af skrímslasögum sem Þoivaldur Friðriksson, vinur minn, hefur sagt mér. Ég ætlaði sjálfur að gera svip- aða mynd.“ Ertu hættur við það? „Nei, ekkert endilega," svarar Friðrik Þór og bros- ir. „Ég held við séum að starta bylgju af skrímsla- myndum og hefja þær aftur til vegs og virðingar. Ég verð meira á þjóðlegu nótunum. Þetta er meira alþjóð- leg mynd sem tekin er bæði í Bandaríkjunum og á ís- landi.“ En það er Ijóst að ný lagasetning Alþingis sem ætl- að er að laða að erlenda kvikmyndagerðarmenn er að skila árangri. „Þetta er að koma í gegn,“ svarar Friðrik Þór. „Og maður verður að skila árangri til að sýna að þetta borgar sig. Því fleirí myndir sem fara af stað strax því betra." ÞAÐ er með vissri til- hlökkun að ég dýfi syk- urmolanum í kaffið þennan blíðviðrisdag í miðborg Reykjavíkur. Ég á von á bandaríska kvikmynda- leikstjóranum Hal Hartley í viðtal. Hann er hérlendis í vettvangsskoð- un á landi og þjóð fyrir handrit að skrímslamynd sem hann er að skrifa um þessar mundir. Hartley þarf vísast ekki að kynna fyrir áhugamönnum um kvikmyndir. Hann gerði sína fyrstu mynd í fullri lengd árið 1990; nefndist hún Ótrúlegt en satt - , eða „Unbelievable Truth“ og tókst honum að fjármagna myndina með 700 þúsund króna bankaláni á „ótrúlega" lágum vöxtum og með því að fá skólabróður sinn Robert John Burke í aðalhlutverkið. Myndin þótti sérstæð og vakti athygli á kvik- myndahátíðum víða um heim; ekki síður myndirnar sem fylgdu á eftir Trust og Simple Men en allar áttu þær það sameiginlegt að gerast á æskuslóðum Hartleys, Long Island. Hartley hefur alls gert fimm myndir í fullri lengd og fjölmargar stuttmyndir. Eftir að franska leik- konan Isabelle Huppert horfði á myndina Trust, sem var verðlaun- uð fyrir besta handrit á Sundance- hátíðinni, skrifaði hún Hartley og bað um að fá hlutverk í einni af myndum hans. Það gekk eftir í myndinni Amateur árið 1994. Par- ker Posey, skólasystir Hartleys, fór með aðalhlutverk í Flirt frá ár- inu 1996 og náði frama eftir það í Hollywood. Það var svo með myndinni Henry Fool, sem tekin verður til sýninga í Háskólabíói í maí, að Hartley var verðlaunaður fyrir besta handrit á Kvikmyndahátíð- inni í Cannes og er svo komið að hinn 39 ára gamli Hal Hartley • verður að teljast einn virtasti leik- stjóri í óháða kvikmyndageiranum. Og nú er hann sestur í stólinn gegnt mér. Hvað er hann að bardúsa á íslandi? „Þetta er vegna sögu sem ég hef unnið að undanfarið og á að gerast á Islandi," segir Hartley. „Þegar mér bauðst að fara til Evrópu fór ég að ráðum Friðriks Þórs [Frið- rikssonar] og kom við hér á landi til þess að skoða mig um. Eftir þessa heimsókn þarf ég ekki að láta söguna gerast í einhverri ímyndaðri veröld heldur get ég heimfært hana upp á íslenska menningu og landslag." Hartley dregur ekki dul á að hann er með mörg handrit í bígerð og því þurfi ekki að vera að rætist úr þessari kvikmynd sem hann ^stefnir annars á að gera hérlendis. Hann hefur þó náð samkomulagi við Islensku kvikmyndasam-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.