Morgunblaðið - 24.04.1999, Blaðsíða 23
ESSEM M
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999 23
Dctgur1
nnxhxrerfiöin*
VIÐBURÐIR Á DEGI UMHVERFISINS 1999
• Akranes
Dagskrá við Blautós: Umhverfisnefnd Akraneskaupstaðar býður bæjarbúum á fyrirlestur um
fuglalíf, fuglaskoðun og skoðunarferð út á Innsta-Vogsnes.
Kl. 14:00 Fuglalíf Blautóssins, Guðmundur A. Guðmundsson frá Fuglaverndarfélagi Islands
heldur erindi í félagsheimili hestamanna Æðarodda.
Kl. 15:30 Gengið frá Æðarodda út á Innsta-Vogsnes undir leiðsögn kunnugra.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að lýsa 25. apríl ár hvert
sérstakan Dag umhverfisins.
Þessi dagur er fæðingardagur Sveins Pálssonar, fyrsta íslenska náttúrufræðingsins
og er hugsaður sem hvatning til skólafólks og almennings að kynna sér betur
samskipti manns og náttúru. Dagurinn er einnig tækifæri fyrir stjórnvöld,
félagasamtök og fjölmiðla til að efla opinbera umræðu um umhverfismál.
Pað er von umhverfisráðuneytisins að sem flestir haldi upp á
Dag umhverfisins, svo sem með þátttöku í einhverjum þeim viðburðum sem
efnt er til í tilefni dagsins eða með því að heimsækja Umhverfisvefinn, en þar
eru tengingar við yfir 100 íslenskar vefsíður um umhverfismál.
Skoðaðu umhverfisvefinn www.umvefur.is
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ
• Árborg
Umhverfisnefnd og íþrótta- og tómstundanefnd vilja í tilefni dagsins hvetja íbúa Árborgar til að
skilja bílinn eftir heima sé það mögulegt. Jafnframt hvetja nefndirnar til almennrar útivistar í
sveitarfélaginu enda er fjölbreytt dagskrá í boði, sem hefst kl. 10:00 með skokki frá
heilsuræktarstöðinni Styrk og fræðslugöngu frá ráðhúsi Árborgar um Hellisskóg. Ókeypis
samgöngur eru í boði á milli þéttbýlissvæða Árborgarsvæðisins.
• Egilsstaðir
Félag um verndun hálendis Austurlands heldur fund með frambjóðendum til Alþingis í
Golfskálanum að Ekkjufelli kl. 14:00 þar sem þeir kynna stefnu flokka sinna i málefnum
hálendisins.
• Hólmavík
Opinber umræðufundur með umhverfisnefnd Hólmavíkurhrepps verður í Félagsheimilinu á
Hólmavik, kl. 16:00.
• Hveragerði/Ölfushreppur
Opið hús verður í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í tilefni 60 ára afmæli skólans. Undirritaður
verður samningur um umhverfisátak kl. 15:00.
• Reykjavfk
Umhverfisráðherra afhendir viðurkenningar ráðuneytisins til fyrirtækja og fjölmiðla á Café
Flórunni í Grasagarðinum í Laugardal kl. 13:00.
• Reykjavfk
Fuglaverndarfélag fslands í samstarfi við Magnús Magnússon býður almenningi á
kvikmyndasýningu í Bíósal Hótel Loftleiða (við ráðstefnusali í Suðurálmu).
Frumsýnd verður kvikmyndin Undir smásjánni - Mývatn, sem fjallar um lífríki Mývatns og starf
Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn. Sýningartími er kl. 16:00 fyrir almenning (boðsgestir
ki. 14:00). Einnig verður sýnd kvikmyndin Hinn helgi örn.
• Reykjavfk
Sýningunni Samspil Manns og Náttúru í Perlunni lýkur á Degi umhverfisins, 25. apríl og er
opin frá 13:00-18:00 þann dag. Fjölmörg fyrirtæki og samtök taka þátt í sýningunni, en á henni
er kynnt vara og þjónusta sem teljast má umhverfisvæn, auk þess sem fyrirlestrar um umhverfismál
verða á dagskrá. Á Degi umhverfisins kynna m.a. Umhverfisverndarsamtök (slands og
Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd starfsemi sína á sýningunni.
• Reykjavfk/Suðurnes
Ferðafélag íslands verður með tvær ferðir í tilefni dagsins.
Kl. 10:30 Hvalsnes - Básendar - Djúpivogur. Gengið um gamla þjóðleið á Suðurnesjum.
Kl. 13:00 Stafnes - Básendar - Sandgerði. Fjölskylduferð.