Morgunblaðið - 24.04.1999, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Stór sprengja fínnst í bandarískum skóla eftir blóðuga árás tveggja unglinga
Taldir hafa ætlað að
myrða hundruð manna
Littleton, Washinglon. Reuters, The Daily Telegraph.
LÖGREGLUMENN í Colorado hafa fundið stóra
sprengju í eldhúsi framhaldsskólans í Littleton
þar sem tveir vopnaðir unglingar urðu 13 manns
að bana áður en þeir sviptu sig lífí á þriðjudag. Að
sögn lögreglunnar leikur nú grunur á að tilræðis-
mennimir hafi notið aðstoðar annarra ungmenna
og að þeir hafí ætlað að drepa hundruð manna
með því að sprengja skólann í loft upp.
Lögreglan taldi í fyrstu að tilræðismennimir
tveir hefðu verið einir að verki en rannsakar nú
hvort þeir hafi skipulagt árásina með hjálp félaga
sinna í svokallaðri „rykfrakkamafíu“, fámennum
hópi illa liðinna nemenda við skólann.
„Við útilokum ekki að fleiri hafí tekið þátt í
þessu,“ sagði talsmaður lögreglustjórans í Jeffer-
son-sýslu eftir að níu kg sprengja fannst í sjó-
poka í eldhúsi skólans í fyrradag.
„Þyngd og stærð sprengjunnar bendir til þess
að tilræðismennirnirnir hafí fengið hjálp við að
koma henni í skólann," sagði John Stone, lög-
reglustjóri Jefferson-sýslu. „Við eram að yfir-
heyra nokkra vini þeima, sem geta ef til vill
hjálpað okkur.“
Lögreglumenn, sem rannsaka málið, sögðust
ekki hafa fengið neinar upplýsingar um að ung-
lingarnir tveir hefðu borið svo stóran poka inn í
skólann. I pokanum var própantankur, sem
tengdur var við bensíntank og sprengihettu.
„Engin sá þessa tvo unglinga bera slíkan bún-
að inn í skólann," sagði Dave Thomas, umdæm-
issaksóknari Jefferson-sýslu. „Ég veit ekki
hvernig þetta var flutt þangað. Við ætlum að
i'annsaka til hlítar hvemig þetta var skipulagt.“
Talsmaður lögreglunnar sagði það mikla mildi
að sprengjan skyldi hafa fundist því hún hefði
getað valdið mikilli eyðileggingu ef hún hefði
sprungið.
Lögreglan kvaðst ekki geta fullyrt að engar
sprengjur væm nú í skólanum og sagði að
sprengjusérfræðingar þyrftu að leita í öllum
skólanum fet fyrir fet.
Talsmaður lögreglustjórans sagði að rann-
sóknin yrði tímafrek og erfíð. „Ljóst er að við
munum safna saman þúsundum sönnunargagna
og það tekur marga daga,“ sagði talsmaður lög-
reglustjórans.
Samtök byssueigenda
hætta við byssusýningu
Borgarstjóri Denver, Wellington Webb, hefur
hvatt samtök bandarískra byssueigenda til að af-
lýsa ársfundi sínum sem ráðgert er að verði hald-
inn 1. maí í Denver, nokkmm kílómetrem frá
Littleton. Samtökin neituðu að aflýsa fundinum
en sögðust hafa ákveðið að hætta við byssusýn-
ingu, námskeið og veislu sem samtökin ráðgerðu
í tilefni ársfundarins.
Arásin í Littleton hefur vakið mikla umræðu í
Bandaríkjunum um „byssumenninguna“ í land-
inu og blásið nýju lífí í deiluna um hvort setja
Grunur leikur á að fleiri
sóu viðriðnir tilræðið
Reuters
NEMENDUR við framhaldsskólann í Little-
ton faðmast fyrir utan kaþólska kirkju þar
sem nemendur skólans og foreldrar þeirra
liafa leitað huggunar.
beri strangari lög um byssueign landsmanna.
Tugir fmmvarpa um að rétturinn til byssueignar
verði takmarkaður bíða afgreiðslu á Bandaríkja-
þingi en stuðningsmenn þeiiTa segja að samtök
byssueigenda séu svo öflug að ólíklegt sé að vem-
legar breytingar verði gerðar á byssulögunum.
Stjórn Bills Clintons forseta kvaðst í fyrradag
vonast til þess að blóðsúthellingamar verði til
þess að þingið fallist á breytingar á byssulögun-
um. Eric Holder, aðstoðardómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði að stjórnin myndi beita sér
íyrir lögum, sem myndu torvelda ungmennum að
útvega sér byssur, og skera upp herör gegn
vopnasölu byssukaupmanna, sem hafa ekki tilskil-
in leyfi til að selja skotvopn.
Tengf ofbeldl í sjónvarpi?
Clinton varpaði fram þeirri spumingu hvort of-
beldi í sjónvarpi og kvikmyndum og greiður að-
gangur ungmenna að upplýsingum um sprengju-
gerð á Netinu kynnu að hafa stuðlað að blóðsút-
hellingunum í Littleton. Umræðan í Bandaríkjun-
um hefur einkum snúist um þöi’fina á því að
stemma stigu við ofbeldi í samfélaginu og kenna
börnum og unglingum að „tjá reiði sína í orðum
en ekki með vopnum", eins og Clinton orðaði það
á fyrsta blaðamannafundi sínum eftir árásina.
Minna hefur hins vegar borið á kröfum um að sett
verði strangari lög til að koma í veg fyrir að börn
og unglingar geti útvegað sér byssur.
Kennari fómaði lífi sínu
Tilræðismennirnir vom vopnaðir fjómm byss-
um og alls þrjátíu sprengjum. Árásin er sú mann-
skæðasta sem gerð hefur verið í bandarískum
skóla.
Tilræðismennirnirnir í Littleton myrtu tólf
nemendur og einn kennara áður en þeir sviptu
sig lífi á bókasafni skólans. Kennarinn var í
mötuneytinu á fyrstu hæð skólans þegar árásin
hófst og er sagður hafa átt stærstan þátt í því að
koma hundruðum nemenda út úr byggingunni.
Hann var að reyna að bjarga fleíri nemendum á
stiga, sem tilræðismennirnir fóru um á leið sinni
frá mötuneytinu í bókasafnið á annarri hæð,
þegar hann varð fyrir skoti í bringuna og beið
bana.
Nemendur skotnir
af handahófí
Tilræðismennirnir voru 17 og 18 ára og að sögn
nemenda við skólann vom þeir mjög hugfangnir
af nasistum og vopnum. Margir þeirra, sem urðu
vitni að árásinni, sögðu að tilræðismennirnir
hefðu sagst ætla að drepa þeldökka nemendur og
vinsæla íþróttamenn við skólann.
Einn skólabræðra þeima kvaðst hafa séð
myndbandsupptöku sem þeir hefðu gert og sagði
hana sýna viðhorf þeirra til íþróttamanna. Ung-
lingar sáust þar ganga í skrokk á körfuknattleiks-
manni.
„Allir héldu bara að þeir væru að búa til bíó-
mynd,“ sagði nemandinn. „Allii’ vissu að þeir vora
furðufuglar og litu svo á að þeir hefðu gaman af
svona myndum. Þetta var bara myndband og við
töldum þetta ekkert merkilegt."
Aðeins einn þeirra tólf nemenda, sem tilræðis-
mennirnir myrtu, var blökkumaður. Þótt nokkrir
hinna hefðu stundað íþróttir benti flest til þess að
tilræðismennimir skotið nemenduma af handa-
hófi. „Svo virðist sem flest fórnarlambana hafi
verið drepin vegna þess að þau vora þarna, ekki
vegna þess að þau hafí verið valin sérstaklega,“
sagði Thomas umdæmissaksóknari. „Ég veit ekki
hvað fékk þá til að gera þetta, annað en reiði.“
A1 Gore, varaforseti Bandaríkjanna, og eigin-
kona hans ætla að fara til Littleton á sunnudag til
að vera viðstödd athöfn til minningar um fómar-
lömbin.
Sex særast
í skotárás
á Englandi
SEX manns særðust, þar af
fjórir alvarlega, þegar tveir
menn hófu skothríð úr bfl sín-
um á fólk er beið eftir strætis-
vagni við verslun í bænum
Rochdale á Englandi í gær. Að
sögn fjölmiðla í Bretlandi
höfðu mennirnir rænt verslun í
Rochdale og síðan tekið BMW-
bifreið og eiganda hennar
traustataki er þeir reyndu að
komast undan á flótta.
Lögregla hóf eftirför og það
var á meðan eltingarleiknum
stóð sem mennimir létu skot-
unum rigna yfír fólkið á stræt-
isvagnabiðstöðinni. Eltingar-
leikurinn fékk hins vegar
skjótan endi þegar ódæðis-
mennirnir óku bfl sínum á
ljósastaur og neyddust til að
gefast lögreglunni á hendur.
Gandhi fær
tvo daga
SONIA Gandhi, leiðtogi Kon-
gressflokksins, sagði i gær að
hún myndi fara að beiðni K.R.
Narayanan, forseta Indlands,
og reyna að mynda nýja sam-
steypustjórn innan tveggja
daga. Spenna í stjórnmálum
landsins náði hámarki í vikunni
er Gandhi tilkynnti að flokkur
hennar hefði náð stuðning
imeirihluta þingsins.
Gandhi hefur sagt flokk sinn
hafa stuðning 273 þingmanna
af 543 í neðri deild þingsins og
hyggst hún afhenda Narayan-
an stuðningsyfirlýsingu þeima
eftir tvo daga.
Vagnorius og
Adamkus
takast á
ÞINGIÐ í Litháen lýsti í gær
yfír stuðningi við Gediminas
Vagnorius, forsætisráðherra
landsins, þegar 77 af 138 þing-
menn greiddu atkvæði með því
að rfldsstjóm Vagnorius sæti
áfram. Vagnorius hafði sætt
mikilli gagnrýni frá forseta
landsins, Valdas Adamkus, og á
þriðjudag sagðist hann reiðubú-
inn til að segja af sér embætti ef
þingið færi fram á afsögn hans.
Verkamannaflokkurinn í mikilli sókn í Skotlandi
Þjóðernissinnar boða
breyttar áherslur
SKOSKI þjóðarflokkurinn (SNP)
varð fyrir miklu áfalli á fimmtudag
þegar ný skoðanakönnun sýndi að
fylgi flokksins, fyrir þingkosningar
sem fram eiga að fara 6. maí næst-
komandi, hefur minnkað vemlega.
Er nú farið að hitna undir Alex
Salmond, leiðtoga SNP, en hann
brást þó skjótt við tíðindunum og til-
kynnti strax á fimmtudagskvöld að
flokksmenn myndu bretta upp
ermarnar og breyta áherslum sínum
í kosningabaráttunni í því augnamiði
að styrkja stöðu SNP á nýjan leik.
SNP berst fyrir sjálfstæði
Skotlands og hefur heitið því að boða
til þjóðaratkvæðagreiðslu um skilnað
frá Bretlandi innan fjögurra ára,
komist fiokkurinn til valda að aflokn-
um kosningum. Sá möguleiki virtist
hins vegar úr sögunni skv. skoðana-
könnun sem The Glasgow Herald
birti á fimmtudag en þar kom fram
að Verkamannaflokkurinn hefði
vemlega styrkt stöðu sína á kostnað
SNP og væri nú ekki nema hárs-
breidd frá því að tryggja sér hreinan
meirihluta á nýju skosku heima-
stjómarþingi, en næstum þrjú hund-
rað ár em síðan Skotar áttu síðast
sitt eigið þing.
Fulltrúar Verkamannaflokksins
vom varkárir í yfirlýsingum sínum á
fimmtudag og Gordon Brown, fjár-
málaráðherra bresku ríkisstjórnar-
innar, neitaði í samtali við The
Scotsman að velta vöngum yfir lík-
unum á því að flokkurinn tryggði sér
þau 65 þingsæti sem þarf til að hljóta
hreinan meirihluta. „Ég held að við
munum ná góðum árangri í kosning-
unum ef við sofum ekki á verðinum,"
sagði Brown, sem er Skoti.
SNP lofar snörpum endaspretti
Verkamannaflokkurinn myndi,
skv. könnuninni, hljóta 63 af 129
þingsætum, SNP ekki nema 34,
Frjálslyndir demókratar 18 og
íhaldsmenn 11. Framan af hafði virst
lfldegt að Verkamannaflokkurinn og
SNP myndu hljóta álíka mörg þing-
sæti í kosningunum og var því þessi
nýjasta skoðanakönnun mikið áfall
fyrir SNP.
Salmond hét því á fimmtudag að
SNP myndi á næstu dögum birta op-
inberlega stefnu sína í efnahagsmál-
um sjálfstæðs Skotlands, en mjög
hefur verið til umræðu í kosninga-
baráttunni hvort Skotland geti í raun
staðið fjárhagslega eitt og sér. í frétt
The Scotsman segir að Salmond hafi
lofað því að flokksmenn SNP myndu
berjast eins og ljón, SNP myndi til-
einka sér „Braveheart“-baráttuhug,
en þar vísaði Salmond til viðurnefnis
sjálfstæðishetjunnar Williams
Wallace, og að baráttan þær tæplega
tvær vikur sem eftir væm fram að
kosningunum yrði „snörp, öflug og
afdráttarlaus“.
Connery til liðs við
þjóðernissinna
London. Morgunblaðið.
SKOZKI þjóðernis-
flokkurinn brýst nú
um hart eftir að
skoðanakannanir
sýna minnkandi fylgi
flokks og formanns.
Hefur flokkurinn
leitað til kvikmynda-
leikarans Sean
Connei'y um aðstoð
og er hann væntan-
legur í kosningaslag-
inn eftir helgina.
Samkvæmt skoð-
anakönnunum er
meirihluti á skozka
heimastjórnarþinginu nú innan
seilingar Verkamannaflokksins,
en Þjóðernisflokkurinn naut
lengi vel fylgis til jafns við hann
og jafnvel meira fylgis, en leið-
in hefur legið niður á við alla
kosningabaráttuna.
Connery er mikill þjóðernis-
sinni, þótt búsettur sé á Spáni,
og hefur fylgt
Skozka þjóðernis-
flokknum að málum,
stutt hann bæði í
ræðu og riti og gefið
fé í sjóði hans. Það
segir sína sögu um
vinsældir hans með
skozkum, að í fyrra,
þegar Skotar
greiddu atkvæði um
það, hvort koma ætti
á heimsljórn þar eða
ekki, fékk ríkissijórn
V erkamannaflokks-
ins Connery í lið við
sig til að fá Skota til að greiða
stofnun heimasfjómarþings
atvkæði sitt. Þá böðuðu ráðherr-
ar Verkamamiaflokksins og for-
ystumenn flokksins skozkir sig í
fnegðarljóma kvikmyndaleikar-
ans, sem nú grípur til vopna til
að koma í veg fyrir stórsigur
þeirra í kosningunum 6. maí nk.