Morgunblaðið - 24.04.1999, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Fundur leiðtoga NATO 1 Washingion
„Ljúkum verkinu þótt það
reynist erfitt og tímafrekt“
NOKKRIR af leiðtogum NATO klappa við setningu fundarins í Washington í gær. Á myndinni eru: Davíð
Oddsson forsætisráðherra, Jacques Chirac Frakklandsforseti, Vaclav Havel, forseti Tékklands, Bill Clinton
Bandaríkjaforseti, Javier Solana, framkvæmdasljóri NATO, og Suleyman Demirel, forseti Tyrklands.
Eindrægni og samstaða
einkenna viðræður á
leiðtogafundi NATO að
sögn talsmanns banda-
lagsins. Asgeir Sverris-
son er í Washington og
fylgist með fundinum.
JAMIE Shea, talsmaður Atlants-
hafsbandalagsins (NATO), sagði á
blaðamannafundi í Washington í gær
að leiðtogar aðildaríkjanna 19 væru
algjörlega sammála um nauðsyn
þess að herförinni gegn Serbum í
Kosovo lyki með sigri. Talsmaðurinn
lét þessi orð falla er leiðtogamir
ræddu um átökin í Kosovo en það
var fyrsta málið á dagskrá þriggja
daga fundar leiðtoga NATO sem
hófst í Washington í gær. Kvað Shea
mikla eindrægni og samstöðu ein-
kenna viðræður leiðtoganna.
,jUgjör eining ríkir um að ljúka
þessu verkefni og skiptir þá engu
hversu erfitt það reynist né hversu
tímafrekt,“ sagði Shea á blaða-
mannafundi í Ronald Reagan-bygg-
ingunni í miðborg Washington, en
þar og í nálægum byggingum fara
fundahöldin fram. „Við ætlum ekki
að láta Slobodan Milosevic komast
upp með þetta,“ bætti hann við en
Milosevie Júgóslavíuforseta lýsti
talsmaðurinn sem „einræðisherra“
sem níddist á þeim sem væru
„minnimáttar" og stefndi að því að
raska stöðugleika í nágrannaríkjun-
um.
Talsmaðurinn lét engar yfrlýsing-
ar falla sem vísað gátu til þess að
NATO hygðist hefja landhernað
gegn sveitum Serba í Kosovo. Miklar
getgátur og vangaveltur í þá veru
hafa einkennt upphaf leiðtogafund-
arins í Washington þar sem 50 ára
afmæli bandalagsins er jafnframt
fagnað. Þrátt fyrir fyrirferðai-mikinn
fréttaflutning af hugsanlegum land-
hernaði NATO í Kosovo hefur ekk-
ert komið fram sem bendir til þess
að leiðtogar aðildarríkjanna muni
samþykkja slíka ákvörðun á fundin-
um í Washington.
„Tíminn vinnur með okkur“
Raunar fullyrti talsmaður banda-
lagsins að loftárásir NATO væru að
skila árangri. „Engin ástæða er til að
breyta þeirri herfræði sem við höfum
fylgt, hún er sú eina sem skila mun
árangri,“ sagði Shea og bætti við að
aðrir kostir, einfaldari og fljótvirkari,
væru ekki fyrir hendi í Kosovo-deil-
unni. „Við þurfum að sýna fram á að
tíminn vinnur með okkur.“
Shea tók fram að NATO teldi að
þörf væri á því að efla enn frekar
herstyrkinn í nágrenni Kosovo og
minnti á að öflugar árásarþyrlur af
Apache-gerð hefðu nú verið búnar til
átaka. Jafnframt hygðist NATO
áfram ráðast beint að „taugakerfi“
einræðisstjómar Milosevic með
áframhaldandi árásum á svonefnd
„pólitísk skotmörk“ svo sem sjón-
varpsstöðvar og stjómarbyggingar.
Ennfremur þyrfti að tryggja að olíu-
birgðir kæmust ekki til Serbíu.
„Þolir mikið mótlæti"
Mai-gir fréttaskýrendur og sér-
fræðingar hafa lýst undrun sinni yfir
því hversu mjög átökin hafa dregist
á langinn. Jamie Shea vék að þessu
og sagði að Milosevic væri „einræð-
ishema sem þolfr mikið mótlæti".
„Það breytfr hins vegar engu um
nauðsyn aðgerðanna og allir hafa
leiðtogarnir sagt að NATO megi
ekki við ósigri í þessum átökum.“
I máli talsmannsins kom fram að
NATO hefur eyðilagt sjötíu
júgóslavneskar flugvélar frá því að
átökin hófust. Pimm hafa verið
skotnar niður. Þá fullyrti Shea að
NATO hefði tekist að granda um
40% af loftvarnaskotpöllum Jú-
góslavíuhers. NATO hefði tekist að
tryggja sér algjöra yfirburði í lofti.
Hátíðleg athöfn
í gær var þess einnig minnst með
hátíðlegum hætti að fimmtíu ár eru
um þessar mundir liðin frá því Atl-
antshafsbandalagið var stofnað. Fór
sú athöfn fram í svonefndu Mellon
Auditorium í gamalli stjómarbygg-
ingu, Old Customs Building, stein-
snar frá Hvíta húsinu. Þar var Atl-
antshafssáttmálinn, stofnskrá
NATO, undiiTÍtaður 4. apríl 1949.
Athöfnin einkenndist af formfestu
og hátíðleika. Hún hófst með því að
fánar aðildarríkjanna, sem nú eru
orðin nítján eftir inngöngu Tékk-
neska lýðveldisins, Póllands og Ung-
verjalands, voru bornir inn undfr
lúðrablæstri í þeirri röð sem löndin
gengu í bandalagið. Síðan flutti hver
leiðtoganna stutt ávarp og mynda-
taka fór fram.
Um kvöldið snæddu leiðtogamir
og makar þeima kvöldverð í Hvíta
húsinu í boði Bills og Hillary Clinton
en utanríkisráðherrar NATO-ríkj-
anna, sem í gær funduðu með utan-
ríkisráðherrum nágrannaríkja Kos-
ovo, snæddu kvöldverð í boði utan-
ríkis- og varnarmálaráðhema
Bandaríkjanna.
NATO hefur uppfyllt
meginmarkmið sitt
Hér fer á eftir ræða
sem Davíð Oddsson
forsætisráðherra flutti
við upphaf hátíðarfund-
ar NATO í Washington
BILL Clinton forseti, Javier Solana
framkvæmdastjóri, forsetar, starfs-
bræður, hemar mínir og frúr:
Atlantshafsbandalagið (NATO) er
einstakt í sinni röð. Sagan varðveitir
engin dæmi um annað hernaðar- eða
varnarbandalag frjálsra ríkja sem
starfað hefur jafn lengi og af slíkri
eindrægni. Það sem mestu skiptir er
árangur starfsins. NATO hefur upp-
fyllt meginmarkmið sitt um frið og
öryggi aðildarríkjanna hnökralaust.
Og nú gegnir bandalagið, í samstarfi
við önnur samtök og ríkjahópa, lyk-
ilhlutverki við að skapa undirstöðu-
atriði nýmar Evrópu og varanlegan
frið í álfunni.
Hver er töfrauppskriftin að þess-
um árangri? Þrjú orð segja allt sem
segja þarf. Tiltrú, sannfæring og
vilji. Tiltrú á málstað lýðræðis og
friðar, sannfæringin um að lýðræði
og friður séu gildi sem verðugt sé að
verja miklu til að tryggja, og viljinn
til að gera það og færa þær fórnir
sem skila árangri.
Innan NATO fara saman hags-
munir stærsta herveldis heims og
óvopnaðrar smáþjóðar, sem á
lengsta þinghefð allra ríkja heims.
Vináttubönd liggja yfii' Atlantshafið,
varnarbandalag Evrópu og Amer-
íku, bönd sem reynst hafa traust og
tvisvar ráðið úrslitum á örlagatím-
um. I fyma skiptið meðan á heims-
styrjöld stóð og síðar 1 kalda stríð-
inu sem fylgdi í kjölfarið.
Og af tilviljun hefur NATO á
fimmtugasta ári sínu axlað byi'ðar
þess að verja hundelta þjóð á þrösk-
uldi bandalagsins gegn grimmdar-
verkum sem enginn annar gat
brugðist við.
NATO er ekki til vegna sjálfs sín.
Tilvera þess grundvallast af stuðn-
ingi og trausti aðildamíkjanna.
Ríkja með tiltrú, sannfæringu og
Reuters
DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra undirritar áiyktun leiðtogafundar
NATO.
vilja til að tryggja frið og öryggi í NATO og að starfa með ríkjunum
Evrópu. sem saman mynda hið einstaka
Island er stolt af aðild sinni að bandalag.
Cit'
L í f s
S T í L L
STÓRSÝNING
LAUGARDALSHÖLL
28.-30. MAÍ
SÝNINGAR ehf
AUSTURSTRÆTI 6 SÍMI 562 0600
NETFANG: lifsstill@kom.is
www.lifsstill.kom.is