Morgunblaðið - 24.04.1999, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999 59
_________UMRÆDAN_______
Staða öryrkja lagfærð
Á undanförnum
mánuðum hefur margt
verið rætt og ritað um
stöðu og aðbúnað ör-
yrkja hér á landi. Að
mörgu leyti hefur um-
ræðan verið til góðs og
opnað augu margra
fyrir því að ákveðinn
hluti öryrkja býr við of
kröpp kjör. Það hef ég
áður tekið undir á opin-
berum vettvangi en
jafnframt beitt mér
fyrir ýmsum lagfæring-
um á kjörum öryrkja.
í kjölfar breytinga
sem urðu í lok síðasta
árs, þegar svigrúm ör-
yrkja og maka þeirra til tekjuöflun-
ar var aukið verulega án þess að
bætur lækkuðu, komu til viðtals við
mig tveir af forystumönnum Ör-
yrkjabandalagsins.
Aherslur þeirra
Þegar ég innti forystumennina
eftir hver væru mikilvægustu rétt-
indamál öi-yrkja að þessari leiðrétt-
ingu fenginni var svarið þrjú atríði:
1. Hækka vasapeninga vist-
manna á stofnunum.
2. Veita einstæðum mæðrum rétt
til heimilisuppbótar og sérstakrar
heimilisuppbótar.
3. Fjölga styrkjum til bifreiða-
kaupa hreyfihamlaðra, ásamt því að
hækka fjárhæð styrkja.
Allar þessar lagfæringar hafa nú
náð fram að ganga:
1. Vasapeningar vistmanna voru
hækkaðir, frá og með 1. apríl sl., úr
12.535 kr. í 16.829 kr., sem er hækk-
un um 4.294 kr.
2. Hinn 19. mars sl. var kveðinn
upp tímamótaúrskurð-
ur í Tryggingaráði
þannig að einstæðir
foreldrar eiga í fyrsta
sinn rétt á heimilisupp-
bót, og sérstakri heimil-
isuppbót, að öðrum
skilyrðum uppfylltum.
Það, hvort barn innan
við 18 ára aldur býr á
heimili öryrkjans,
skipth- því ekki máli
lengur. Með þessari
breytingu getur ein-
stætt foreldri því feng-
ið allt að kr. 67.179 í
bætur frá Trygginga-
stofnun á mánuði, í
stað 46.576 kr. áður.
3. Hinn 15. apríl sl. kynnti ég síð-
an nýja reglugerð þar sem styrkj-
um hreyfihamlaðra til bifreiðakaupa
er fjölgað um 70 og fjárhæð þeirra
jafnframt hækkuð. Þessi ákvörðun
var tekin í framhaldi af nefndastarfi
sem Öryrkjabandalagið og Sjálfs-
björg áttu aðild að. Þeir hlutar til-
lagnanna sem þarf lagabreytingu til
að ná fram verða hins vegar að bíða
næsta Alþingis.
Með þessum aðgerðum sem hér
er lýst hef ég nú náð fram brýnustu
breytingum sem þessir forsvars-
menn Óryrkjabandalagsins lögðu
áherslu á í byrjun árs.
Alltaf má gera betur
Á þessu kjörtímabili hefur kaup-
máttur bóta hækkað um 22%, eða
meira en launavísitala, og fjölmarg-
ar leiðréttingar og réttarbætur hafa
náð fram að ganga. Það er hins veg-
ar rétt sem kemur fram hjá fram-
kvæmdastjóra Öryrkjabandalagsins
í Degi hinn 20. apríl sl., að enn hefur
Kjaramál
Ég hef náð fram brýn-
ustu breytingum sem
forsvarsmenn Öryrkja-
bandalagsins lögðu
áherslu á, segir Ingi-
björg Pálmadóttir,
í byrjun árs.
ekki tekist að skila til baka öllum
skerðingum sem á voi*u settar á ár-
unum 1991-1995. Til þess nægir
ekki eitt kjörtímabil, enda þarf mik-
ið til.
Þótt lífeyrisþegar hafi fengið
kjarabætur sem eru fyllilega í sam-
ræmi við launahækkanir á almenn-
um markaði er ráðamönnum að
sjálfsögðu ljóst að alltaf má gera
betur. Það er lenska að gera lítið
úr þeim réttarbótum sem náð hef-
ur verið fram fyrir öryrkja. Það tel
ég hættulega stefnu til framtíðar
fyrir öryrkjana sjálfa, enda hefur
ítrekað komið fram hjá hinum
reyndari forystumönnum að þeir
virða það sem vel er gert. Enda
höfum við átt gott samstarf undan-
farin fjögur ár, við höfum getað
rætt hagsmunamál öryrkja í fullum
trúnaði, unnið saman af heilindum
og ég hef ávallt getað treyst orðum
þeirra. Slíkt er mikils virði fyrir
ráðherra en þó sérstaklega mikil-
vægt fyrir skjólstæðingana. Fyrir
það ber að þakka.
Höfundur er heilbrigðisrádherra.
Ingibjörg
Pálmadóttir
Félagsvist
í Reykjavík
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Sunnudaginn 25. cxpríl kl. 14:00 verður
haldin félagsvist f Súlnasal Hótel Sögu.
Utanlandsferð og önnur vegleg verðlaun.
Stutt óvörp frambjóðenda.
Aðgangur og veitingar ókeypis.
Allir velkomnir.
Sumarkveðja
Finnur Ingólfsson Ólafur Örn Haraldsson
Jónfna Bjartmarz Vigdfs Hauksdóttir
Benedikt Magnússon Birna Kr. Svavarsdóttir
*
AUGLYSINGADEILD
Sími: 569 1111, Bréfsími: 569 1110
Netfang: augl@mbl.is
vfj> mbl.is
I___ALL.TSkf= GITrH\SA£> A/ÝTT~
FILJAJT
BRAVA
Valinn af "auto motor & sport sem sá besti
í sínum flokki eftir 100.000 km prófun.
Eðalvagn frá Fiat.
Verð: kr. 1390.000
BRAVO
Lœgsta bilanatíðni í flokki þriggja ára
bíla skv. þýska bílablaðinu "auto motor
& sport". Sprœkur sportari.
Verð: kr. 1.360.000
Fjölskyldubíll framtíðarinnar.
Mikið pláss fyrir sex manns í sœti.
Auðvelt að fjarlœgja sœti og
breyta í flutningsrými.
Verð: kr. 1.590.000
PALIO WEEKEND
Rúmgóður skutbíll, hlaðinn búnaði.
Sumargjöf sem inniheldur dráttarbeisli
og burðarboga fylgir með.
Verð: kr. 1.260.000
MAREA WEEKEND
Glœsilegur fjölskyldubíll með miklum
búnaði og miklu rými.
Verð: kr. 1.550.000
SEICENTO
Stórskemmtilegur smábíll með
sportbílatakta og miklum búnaði.
Verð: kr. 960.000
ístraktor
B í L A R FYRIR ALLA
SMIÐSBÚÐ 2 • GARÐABÆ . SlTvl I 5 400 SOO