Morgunblaðið - 24.04.1999, Síða 36
36 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
MÁLVERK
í EYJUM
Vika
bókarinnar
DAGSKRÁ viku bókarinnar í dag,
laugardag, er eftirfarandi:
Menningarmiðstöðin
Gerðuberg
Ráðstefna um barna- og ung-
lingabækur. Kl. 10.30-14.30. Þuríð-
ur Jóhannsdóttir bókmenntafræð-
ingur segir frá nýjum kenningum
um bókmenntauppeldi. Hildur
Heimisdóttir kennari ræðir um
veruleikann í nýlegum íslenskum
barnabókum. Áslaug Jónsdóttir
myndlistarmaður og Sigurborg
Stefándsóttir myndlistarkennari
ræða vinnuaðferðir myndskreytar-
ans og helstu þætti athugunar við
lestur myndabóka. Fullti-úar frá
Máli og menningu, Skjaldborg,
Vöku-Helgafelli og Æskunni ræða
stefnu bókaútgefenda. í lokin gefst
gestum kostur á að bera fram
spumingar. Aðalsteinn Ásberg Sig-
urðsson, formaður Rithöfundasam-
bands Islands, stýrir dagskránni.
Bústaðasafn
Maturinn hennar mömmu. Sýn-
ing á úrvali matreiðslubóka.
Sögufélagið, Fischersundi
Bókamarkaður. Kl. 13-18.
Perlan
Rithöfundar, bóksalar, útgefend-
ur og bókagerðarmenn og aðrir
þeir sem vinna að gerð bóka og
dreifingu koma saman og gera sér
glaðan dag. Kl. 19.
Styrktartón-
leikar í Fella-
og Hólakirkju
BARNA- og unglingakór
Fella- og Hólakirkju heldur á
norrænt kóramót, sem nefnist
Norbusang, um miðjan maí
nk. Styrktartónleikar verða
haldnir í kirkjunni á rnorgun,
sunnudag, kl. 16. Á efnis-
skránni eru kórsöngur, ein-
söngur og hljóðfæraleikur.
Mótið er haldið í Grankulla í
Finnlandi. Norbusang er hald-
ið árlega og verður næsta mót
haldið á Islandi árið 2000.
Stjórnendur kóranna eru
Lenka Mátéová og Þórdís
Þórhallsdóttir.
Kór Hafnar-
fjarðarkirkju
í Hásölum
KÓR Hafnarfjarðarkirkju
heldur vortónleika í Hásölum
Hafnarfjarðai-kirkju á morg-
un, sunnudag, kl. 16. Fluttir
verða madrigalar, mótettur,
íslensk þjóðlög, lög úr söng-
leikjum og fleira. Stjórnandi
er Natalia Chow en hún mun
einnig syngja einsöng. Undir-
leikari er John Gear.
Kór Hafnarfjarðarkirkju er
skipaður 30 manns. Meðal
verka sem kórinn hefur flutt
er Messias eftir Handel. Kór-
inn hyggur á tónleikaferð til
Hafnar í Hornafirði í lok maí
og verða tónleikar haldnir þar
í Hafnarkirkju.
MYJMPLIST
Gamla álialclaliúsiö
f Vestmannaeyjnm
MÁLVERK
TUMI MAGNÚSSON OG
KRISTJÁN STEINGRÍMUR
JÓNSSON
Opið 14-18 frá föstudegi til sunnu-
dags. Sýningin stendur til 25. apríl.
UM FJÓRÐU sýninguna á
myndlistarvori Islandsbanka í
Vestmannaeyjum sjá þeir Tumi
Magnússon og Kristján Steingrím-
ur Jónsson en þeir félagar eiga það
sameiginlegt að hafa fengist við að
teygja og víkka skilgreiningar mál-
verksins með ýmsum hætti. Krist-
ján Steingrímur sýnir hér verk sem
þegar hafa sést í Reykjavík og eru
eins konar endursköpun eða um-
myndun á listaverkum, bæði eftir
hann sjálfan og aðra. Tumi heldur
hins vegar áfram litarannsóknum
þeim sem hann hefur stundað og
sýnir röð átta málverka sem hann
nefnir „Hrá og soðin eggjahvíta“
auk tveggja mynda sem hann hefur
unnið beint inn í salinn í gamla
áhaldahúsinu.
Myndum Kristjáns Steingríms
má skipta í þrjá flokka: Myndir eft-
ir hann sjálfan, myndir eftir aðra
og endurgerðir mynda eftir aðra.
Mesta athygli vekja líklega myndir
eftir málarana Bernd Koberling og
Kristján Davíðsson sem Kristján
Steingrímur hefur eytt niður með
sandblæstri svo vart sér nema rétt
móta fyrir málningu á striganum
lengur. Það er afar ögrandi að nota
á þennan hátt verk annarra lista-
manna, jafnvel þótt með samþykki
þeirra sé, og þá ekki síst að „eyði-
leggja“ þau eins og hér er gert. Það
ögrar ekki einasta þeirri tilfinningu
áhorfandans að listamenn eigi sjálf-
ir að búa til verk sín, leggja í þau
tilfinningar og vinnu, heldur ráðast
þessi verk líka að hugmjmdum okk-
ar um að listaverkum beri ákveðin
virðing, að þau séu heilög í ein-
hveijum skilningi; að skemma lista-
verk er mikið alvarlegra en til
dæmis að klessa bfl og er jafnvel
hliðstætt því að brenna bækur.
Tvær myndir eru endurgerðir á
verkum eftir Birgi Andrésson ann-
Sjálf-
stætt
fólk efst
VIÐ athöfn í Þjóðarbókhlöðunni í
gær tilkynnti Ánna Elín Bjarka-
dóttir bókavörður hver hlýtur
titilinn Bók aldarinnar á Islandi.
f tíu efstu sætunum höfnuðu eft-
irtaldar bækur: Sjálfstætt fólk
eftir Halldór Laxness (1934-35)
sem telst því Bók aldarinnar, ís-
landsklukkan eftir Halldór Lax-
ness (1943), Englar alheimsins
eftir Einar Má Guðmundsson
(1993), Ileimsljós Halldórs Lax-
ness (1937-40), Nóttin lifnar við
eftir Þorgrím Þráinsson (1998),
Margt býr í myrkrinu eftir Þor-
grím Þráinsson (1997), Salka
Valka eftir Halldór Laxness
(1931-32), Híbýli vindanna - Lífs-
ins tré eftir Böðvar Guðmunds-
son (1995-96), Gæsahúð eftir
Helga Jónsson (1997) og Aldrei
að vita eftir Guðrúnu Helgadótt-
ur (1998).
ars vegar og Kristján Kristjánsson
hins vegar. Þetta eru ekki frum-
myndir eftir þá, heldur verk unnin
útfrá þeirra verkum, og hér hefur
striginn fengið sömu sandblásturs-
meðferð. I þriðja hópnum era þrjár
myndir eftir Kristján Steingrím
sjálfan og aftur hefur hann „eyði-
lagt þær með sandblæstrinum".
Það furðulega við sýningu Krist-
jáns Steingríms er einmitt að hann
sýnir okkur þrjú stig þeirrar um-
myndunaraðferðar sem hann beitir
og niðurstaðan er ólík eftir því á
hvert stigið við horfum. Þar sem
hans eigin myndir eru annars vegar
getur sandblásturinn verið einfald-
lega nýr kafli í sköpun verkanna og
enginn getur amast við slíku. End-
urgerðu verkin eftir Kristján og
Birgi era strax vafasamari: Þótt
verkin séu ekki frammyndir er hér
að minnsta kosti verið að ráðast á
hugverk annarra listamanna. Al-
varlegast er síðan eins og áður er
nefnt þegar frammyndir Kristjáns
Davíðssonar og Bemd Koberlings
era eyðilagðar. Ekkert af þessu er
nýtt og það má finna hliðstæður
fyrir athöfnum Kristjáns Stein-
gríms hér og þar í listasögu aldar-
innar. En það sem er nýtt og at-
hyglisvert er að stilla öllum þremur
stigum eyðileggingarinnar upp
saman. Er eyðileggingin kannski
hliðstæð í öllum þremur tilfellun-
um? Er á endanum enginn munur á
því að nota eigin verk, verk út frá
hugmyndum annarra eða bókstaf-
lega verk annarra?
Við hliðina á verkum Kristjáns
Steingríms verka myndir Tuma af-
skaplega blátt áfram og sakleysis-
legar. Eins og á undanförnum áram
tekur hann liti úr veruleikanum og
sýnir þá á stórum flötum. Myndirn-
ar tvær sem unnar era beint í sal-
inn eru annars vegar „Hænsna-
kjöt“ sem sprautað er á vegg og
hins vegar „Heróírí* sem málað er á
glugga milli herbergja í húsinu.
Myndröðin „Hrá og soðin eggja-
hvíta“ er í átta hlutum, máluð með
olíu á striga, og sýnir, eins og titill-
inn gefur til kynna, litbrigðin milli
eggjahvítu sem er hrá og eggja-
hvítu sem er soðin. Þessi verk era
nær einlit eða „mónóki-óm“ og
verka fullkomlega afstrakt en er þó
eins og kemur fram í nöfnunum
hlutbundin og sýna okkur nákvæm-
Auði Laxness
sérstaklega þakkað
Við þetta tækifæri fluttu Arnar
Jónsson og Kristbjörg Kjeld stutt
atriði úr sýningu Þjóðleikhússins
á Sjálfstæðu fólki, Guðmundur
Andri Thorsson talaði um bók-
menntasmekk þjóðarinnar og
Stefán Ólafsson færði Auði Lax-
ness blómvönd fyrir hönd Félags
bókagerðarmanna og þakkaði
þeim hjónum samstarf, ekki síst
Auði fyrir að búa skáldinu að-
stöðu til að skrifa, en í gær var
lega tilgreinda hluti úr veraleikan-
um. Munm-inn á þeim og „venjuleg-
um“ hlutbundnum málverkum er
að þau sýna ekki form eða lögun
hlutanna heldur aðeins litinn.
Þannig mætti kannski segja að
myndir Tuma séu „minimalískur
natúralismi“ ef gefa ætti aðferðinni
listfræðilegt heiti og hlýtur það að
hljóma afkáralega. Engu að síður
era myndirnar seiðandi og fallegar
og búa yfir dýpt sem alltaf kemur á
óvart.
afmælisdagur Halldórs Laxness.
Að lokum flutti Þröstur Helga-
son, formaður Bókasambandsins,
erindi þar sem hann las kaflann
Heimssögu kotbóndans úr
Skeggræðum gegnum tíðina, bók
þeirra Halldórs Laxness og
Matthíasar Johannessen, þar sem
fjallað var um Sjálfstætt fólk og
Islandsklukkuna og viðhorf Hall-
dórs til skáldsagnagerðar.
Bókasamband íslands stóð fyr-
ir kosningunni 12.-21 mars. Þátt-
takendur voru á fjórða þúsund
og á öllum aldri.
Á þessari sýningu gefst tækifæri
til að skoða saman verk tveggja
málara sem eru báðir með þeim
bestu af sinni kynslóð og sýna hér
vandlega unnin og úthugsuð verk.
Hvor á sinn hátt takast þeir á við
grandvallarspurningar um listina
og eðli málverksins, en þeir eiga
það líka sameiginlegt að auðvelt er
að njóta verka þeirra eins og þau
koma fyrir.
Vortónleikar
Kvennakórs
Suðurnesja
KVENNAKÓR Suðumesja heldur
tónleika í Hafnarborg, Hafnarfirði, á
morgun, sunnudag, kl. 20.30. Stjórn-
andi er Agota Joó. Píanóundirleik
annast Vilberg Viggósson. Annar
hljóðfæraleikur er í höndum Þórólfs
Þórssonar á bassa, Baldurs Jósefs-
sonar á trommur, Ásgeirs Gunnars-
sonar á hai-moníku, Erlu Bi-ynjars-
dóttur og Gróu Margrétar Valdi-
marsdóttur á fiðlu og Birnu Rúnars-
dóttur á þverflautu. Einsöng syngja
þær Birna Rúnarsdóttir, Guðrún
Egilsdóttir, Laufey H. Geirsdóttir og
Sigrún Ó. Ingadóttir.
------------
Kvöldvökukór-
inn syngur í Há-
teigskirkju
KVÖLDVÖKUKÓRINN heldur tón-
leika í Háteigskirkju í dag, laugar-
dag, kl. 17. Sungin verða innlend og
erlend lög. Stjórnandi er Jóna Kristín
Bjamadóttir. Undirleik annast Jakob
Hallgrímsson. Kórinn syngur í Hall-
grímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðai-
strönd á morgun, sunnudag kl. 17.
Jón Proppé
Úrslit úr vali Bókar aldarinnar
Morgunblaðið/Ásdís
AUÐUR Laxness tekur við blómura á afmælisdegi skáldsins.