Morgunblaðið - 24.04.1999, Síða 40

Morgunblaðið - 24.04.1999, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ 40 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999 Okkar ^ sj ónarmið urðu ofan á Stjórnarmenn Heimdallar, starfsárið 1968-1969, komu nýlega saman til hádegis- verðarfundar og rifjuðu upp gamlar minn- ingar og pólitískar sviptingar fyrir þrjátíu árum. Sveinn Guðjónsson kynnti sér störf og stefnu stjórnarinnar og hleraði samræður undir borðum... Stjórn Heimdallar starfsárið 1968-1969. Efri röð f.v.: Kolbeinn Pálsson, Önundur Björnsson, Árni Árnason, Pétur J. Eiríksson, Geir H. Haarde, Sigurður Ágúst Jensson. Fremri röð: Pétur Sveinbjarn- arson, Baldvin Jónsson, Steinar Berg Björnsson formaður, Pétur Kjai-tansson og Jón Steinar Gunnlaugsson. s AAÐALFUNDI Heimdallar hinn 24. október árið 1968 var Steinar Berg Björns- son kjörinn formaður fé- lagsins. Með honum í stjórn völdust ungir og áhugasamir menn, sem að sjálfsögðu höfðu kjörorð félagsis að leiðarljósi: „Gjör rétt, þol ei órétt." Þessir menn eru nú komnir af léttasta skeiði, en bera aldurinn vel, eins og glöggt mátti sjá þegar þeir komu saman til hádegisverðaifund- ar á Hótel Borg, nú þrjátíu árum síðar. Formaðurinn, Steinar Berg Björnsson, hefur dvalið langdvölum erlendis og starfar sem fram- kvæmdastjóri á vegum Sameinuðu þjóðanna. Aðrir stjórnai'menn, sem mættu til fundarins voru: Baldvin Jónsson verkefnisstjóri, Pétur Sveinbjarnarson framkvæmda- stjóri, Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður, Pétur J. Ei- ríksson framkvæmdastjóri, Pétur Kjartansson framkvæmdastjóri, Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Onundur Björnsson, sóknarprestur á Breiðabólsstað í Fljótshlíð, og Kolbeinn Pálsson, framkvæmda- stjóri Iþróttabandalags Reykjavík- ur. Fjarverandi voru Arni Arnason forstjóri, sem var staddur erlendis og Sigurður Ágúst Jensson, sem búsettur er í Bandaríkjunum. I upphafi fundar lýsti formaður- inn þeirri skoðun sinni að þeir félag- ar gætu vel við unað. „Öll okkar stefnumál hafa náð fram að ganga og gott betur,“ sagði hann hróðugur og í framhaldi af því fóru menn að rifja upp hver þessi stefnumál hefðu verið. Einhver hafði á orði að lík- lega hefði „mjólkursölumálið“ verið veigamesta málið, sem Heimdallur beitti sér fyrir á þessum áram, enda hefði það rutt brautina í baráttunni fyiár rýmkun verslunarfrelsis í landinu. tír skýrslu stjórnar Þegar gluggað er í skýi-slu stjórnar starfsárið 1968-1969 kem- ur fram að starfsemin hefur verið blómleg á þessum árum: „Félagsheimilið er mikið notað á starfstímabilinu. Haldin eru mörg umræðukvöld, skemmtikvöld og kvikmyndakvöld. Heimdallarfélag- ar í MR og MH halda sameiginlega jólagleði í félagsheimilinu þann 27. desember og Heimdallarfélagar í Hagaskóla hafa þar jólagleði kvöld- ið eftir. Heimdallarfélagar í VÍ og KI halda síðan sameiginlegan nýársfagnað í félagsheimilinu þann 2. janúar. Mjög vel var vandað til þessai’a skemmtana og þátttaka al- menn. Á starfsárinu er efnt til 8 fjáröfl- unardansleikja. Haldin er hausthá- tíð á Hótel Sögu þann 29. ágúst og eru ræðumenn þeir Jóhann Haf- stein og Steinar Berg Björnsson. Klúbbfundir eru sex á starfsár- inu. 2. nóvember Magnús Jónsson „Hvernig er eðlilegast að mæta efnahagsvandanum". 7. desember Hannibal Valdimarsson „Horfur í verkalýðsmálum að loknu ASÍ þingi“. 18. janúar Aron Guðbrands- son „Aðild íslands að NATO“. Þann 15. febrúar Sigurður Bjarnason „Prent- og skoðanafrelsi á íslandi". 29. febrúar Bjarni Benediktsson „Stjórnmálaviðhorfið" og 26. apríl Einar Sigurðsson „Atvinnurekstur í sjávarútvegi og fiskiðnaði." Dagana 8. og 9. febrúar er haldin ráðstefna um kjördæmamálið. Skoðanir manna eru mjög skiptar á ráðstefnunni. Önnur fundastarfsemi er mjög blómleg. 9. janúar er fundur um efnið „Er pólitískt vald í nefndum og ráðum hins opinbera óhóflegt?“ Frummælendur Halldór Blöndal og Jón E. Ragnarsson. 13. febrúar „Stjórnmálaflokkarnir og áhrif kjósenda á starf þeirra". Frum- mælendur Haraldur Blöndal og Friðrik Sophusson. 21. apríl „At- vinnumál skólafólks", frummælandi Ingólfur Jónsson. Almennur borg- arafundur er 26. febrúar um mjólk- ursölumál. Frammælendm-: Björg Stefánsdóttir, Höskuldur Jónsson, Sigurður Magnússon og Vignir Guðmundsson. Fundinn sóttu um 800 manns. 1. marz er almennur fundur um íþróttamál. Frummæl- endur Alfreð Þorsteinsson, Torfi Tómasson, Þorsteinn Hallgrímsson og Hannes Þ. Sigurðsson. Fundur- inn var mjög fjölsóttur. Efnt var til kappræðufunda Heimdallar og Fé- lags ungra Framsóknarmanna í Reykjavík 2. febrúar um utanríkis- mál. Framsögumenn Heimdallar vora Jón E. Ragnarsson og Hörður Einarsson og 2. marz um Efna- hagsmál. Framsögumenn Heimdallar vora Steinar Berg Björnsson og Styrmir Gunnarsson. Fundirnir voru fjölmennir og um- ræður fjörugar. Allmargir kynning- arfundir voru haldnir með Heimdallarfélögum úr framhalds- skólunum og nýjum félögum. Stjóm Heimdallar sigrar stjórn SUS í handknattleik, en dómari í leiknum var Geir Hallgrímsson. Stjórn SUS brást vel við ósigrinum og boðar til sameiginlegs stjórnar- fundar Heimdallar og SUS-stjórn- ar. Málfundanámskeið er í lok janú- ar. Ólafur B. Thors er leiðbeinandi á námskeiðinu. Haldinn er sameiginlegur fundur stjórnar Heimdallar, stjórnar Týs í Kópavogi og Stefnis í Hafnarfirði í félagsheimili Heimdallar 25. nóvem- ber. Efnt er til 7 umræðukvölda í fé- lagsheimilinu fyrri hluta starfsárs- ins og voru gestir félagsins á þeim Guðmundur H. Garðarsson, Baldvin Tryggvason, Magnús Þórðarson, Höskuldur Jónsson, Styrmir Gunn- arsson og Guðmundur J. Guð- mundsson. Tvær kynnisferðir á Keflavíkur- flugvöll era farnar seinni hluta vetr- ar og 28. júní er farin kynnisferð í Búrfell og þann 9. ágúst í álverið í Straumsvík. Auglýsingablaði er dreift í des- ember og eru ritstjórar þess Ingvar Sveinsson og Páll Stefánsson. Um haustið er haldið SUS þing á Blönduósi og sækja það um 70 Heimdallarfélagar. Framkvæmdastjóri á starfsárinu er Páll Stefánsson. Stjórnin heldur 51 bókaðan stjórnarfund og efnt er til 3 fulltrúaráðsfunda. 7 starfs- nefndir voru skipaðar. Félagið er rekið með nokkni tapi á starfsár- inu.“ Á bak við tjöldin Hin opinbera skýrsla stjórnar segir þó ekki alla söguna. Þegar blaðað er í fundagerðabókum frá þessum árum kemur í ljós að nokkr- ar sviptingar hafa verið í félaginu á bak við tjöldin. Pétur Sveinbjarnar- son hafði, í tilefni af þessum tíma- mótum, tekið saman nokkrar bók- anir sem sýna kannski frekar hina skondnu hlið mála og skulu hér til- færðar nokkrar: „Strax að loknum aðalfundi kom hin nýkjörna stjórn saman til fund- ar til að skipta með sér störfum. Upp kom mikill ágreiningur og hófst nú hörð kosningabarátta um varaformannsembættið. I framboði voru Pétur Sveinbjarnarson og Baldvin Jónsson. Var þá fundi frestað. Á öðram stjórnarfundi hélt varaformmannsslagurinn áfram. Pétur dró framboð sitt til baka, en harður kosningaslagur fór fram milli Baldvins Jónssonar og Péturs Kjartanssonar. Sigraði Pétur með 7 atkvæðum gegn 5. Full sátt náðist um kosningu í önnur mikilvæg emb- ætti. Baldvin Jónsson var kjörinn ritari og Jón Steinar Gunnlaugsson gjaldkeri." Síðan segir í fundargerð: „Þessu næst fór fram umræða um þjóðmál- in og landsmálin almennt og stýrði formaðurinn þeirri umræðu, sem var á þann hátt, að hann lét menn fyrst segja það sem þeim fyndist vera að, síðan hver orsökin væri og að lokum hver væri lausnin. Voru þessar umræður allfjörugar og komust menn að raun um að það lægi fyrir stjórninni alldrjúgt verk- efni,“ eins og segir orðrétt í fundar- gerðinni. Þótt jólahátíðin færi nú í hönd ríkti ekki fullui’ friður í Heimdalli. Á stjórnarfundi 13. desember las for- maðurinn upp bréf frá Heimdelling- um í MR, þar sem farið er fram á að Þórður Gunnarsson taki sæti í stjórn Heimdallar sem fulltrúi MR. Einnig er farið fram á í bréfinu, að þremur Heimdallarfélögum verði vísað úr félaginu. Samþykkt var að Steinar B., Jón Steinar og Pétur Kjartansson tækju að sér að finna mann úr MR til að taka sæti í stjóminni. Tilmælum um að vísa þremur félögum úr félaginu var vís- að frá. í fundargerð frá stjórnarfundi 11. janúar 1969 er kostuleg bókun und- Afhverju kemur sinadráttur? MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA Spurning: Karlmaður hringdi og hafði þetta að segja: Að undan- fórnu hef ég nokkrum sinnum fengið heiftai’legan sinadrátt í hægri fótlegg. Þetta lýsir sér þannig að kálfinn verður grjót> harður og ég get ekki hreyft fótinn á meðan þetta er að ganga yfir. Af hverju stafar sinadráttur og er hætta á að sinarnar slitni ef maður passar sig ekki á meðan köstin ganga yfir? Er eitthvað hægt að gera til að fyi’irbyggja sinadrátt? Það skal tekið fram að ég er kyrr- setumaður og stunda hvorki göng- ur, hlaup né líkamsrækt. Svar: Sinadráttur er ósjálfráður, kröftugur og sársaukafullur sam- dráttur í einum vöðva eða nokkrum samliggjandi vöðvum. Al- gengasta ástæða sinadráttar er óvenjuleg og mikil áreynsla eins og getur orðið við íþróttaiðkun, erfiða göngu eða áreynslu í starfi. Auð- velt er að koma í veg fyrir sina- drátt með því að stilla áreynslunni í hóf eða gera teygjuæfingar að henni lokinni. Sumai- konur eru illa haldnar af sinadrætti á vissu tíma- bili meðgöngutímans. Sinadráttur, t.d. í kálfavöðvum, getur líka komið að kvöld- eða næturlagi án sér- stakrar ástæðu. Sinadráttur af þessu tagi er algengastur í kálfum, lærum, fótum og höndum en hann er yfirleitt alveg meinlaus og leiðir Sinadráttur mjög sjaldan til skemmda á vöðv- um og enn sjaldnar á sinum. Ein- staka sinnum er sinadráttur svo bagalegur að grípa þarf til lyfja- gjafa og reynist þá yfirleitt best að nota kíníntöflu að kvöldi. Kínín má þó alls ekki nota á meðgöngu og þó að flestir þoli það vel geta sumir fengið ofnæmi eða aukaverkanir frá miðtaugakerfi og meltingarfær- um. Stundum er sinadráttur merki um sjúkdóm og rétt er því að leita læknis ef hann er til baga mánuð- um saman. Sinadráttur getur t.d. fylgt Pai’kinsonsveiki, sykursýki, vanstarfsemi skjaldkii’tils, æða- kölkun og ýmsum sjúkdómum í heila og úttaugakerfi. Þeir sem eru í gervinýra eða taka viss krabba- meinslyf fá oft sinadrátt. Ýmsar truflanh’ á blóðsöltum geta stuðlað að sinadrætti og jafnvel valdið ki-ömpum og má þar nefna truflan- ir á magni natríums, kalíums, kals- íums og magnesíums í blóði. Slíkar truflanir geta t.d. orðið við það að tapa miklum vökva eins og við óhóflega svitnun vegna hita eða áreynslu eða við mikil uppköst. Til að hindra slíkt tap á vökva og sölt- um er mikilvægt að reyna hæfilega mikið á sig, borða fjölbreyttan og hollan mat, drekka nægjanlega mikið af vökva og klæða sig rétt miðað við aðstæður. I miklum hita þegar fólk tapar vökva með svita skiptir miklu að bæta vökvatapið upp, ekki bara með vatni heldur líka söltum (ölkelduvatn, blandað- ur ávaxtasafí eða gosdrykkir). •Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækninn um það sem þeim liggur á bjarta. Tekið er á móti spurningum á virkum dögum milli klukkan 10 og 17 í síma 569 1100 og bréfum eða símbréf- um merkt: Vikulok, Fax 5691222. Einnig geta lesendur sent fyrirspumir sínar með tölvupósti á netfang Magnús- ar Jóhannssonar: elmag@hotmail.com
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.