Morgunblaðið - 24.04.1999, Blaðsíða 84
84 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Kvikmyndir/Sambíóin og Nýjabíó á Akureyri hafa tekið til sýninga myndina Message in a Bottle með Kevin
Costner, Robin Wright Penn og Paul Newman í aðalhlutverkum.
Ást í flösku
Frumsýning
EFTIR sársaukafullan skilnað
gerir Theresa Osborne
(Robin Wright Penn) það að
tilgangi lífsins að hugsa um son
sinn og vinna sem rannsóknamaður
'fyrir dagblaðið Chicago Tríbune.
Hún reynir að koma fyrir sem
áreiðanleg, metnaðargjörn og fjar-
læg en þannig felur hún vonbrigði
sín yfir hjónabandinu sem brást og
þann ásetning sinn að gefa ekki
færi á sér aftur.
En þegar hún er ein í fríi meðan
sonurinn er hjá föður sínum rekst
hún á flöskuskeyti á strönd og í því
er ástríðufullt bréf undirritað G.
Ljóðrænn og tilfinningaþrunginn
stíllinn höfðar til hennar og hún fer
að leita að höfundinum, enda vön
rannsóknum af ritstjórninni. Sú leit
leiðir til þess að í Norður-Karólínu
finnur hún bátasmiðinn Garret Bla-
ke (Kevin Costner). Frá því eigin-
kona hans lést hefur Garret verið
einmana og varla haft samskipti við
nokkurn mann annan en föður sinn,
Dodge (Paul Newman), sem reynir
að ná syni sínum út úr sorginni og
til lífsins. „Þú velur fortíðina eða
framtíðina. Veldu annað hvort og
haltu þig við það,“ segir faðirinn.
Myndin er byggð á metsölubók
eftir Nocholas Sparks og handriti
Gerald DiPego sem áður hefur m.a.
skrifað handrit að Phenomenon.
Leikstjóri er hinn mexíkanski Luis
Mandoki, leikstjóri White Palace,
Born Yesterday og When A Man
Loves A Woman.
Framleiðandinn, Denise Di Novi,
keypti kvikmyndarétt að skáldsög-
unni og vildi að Kevin Costner yrði
í hlutverki Gan-ets. Costner féllst á
‘Jxceturgalinn
Smiðjuvegi 14, ‘Kópavo^i, sími 587 6080
í kvöld sjá hinir eldhressu Gammel dansk
_______um fjörið. Opið ffrá kl. 22—3._____
Boróapantanir í símum 557 9717 og 587 6080
V
HARMONIKUBALL
verður í kvöld
í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima.
Dansinn hefst kl. 22.00.
Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur
leika fyrir dansi.
Söngvari er Ragnheiður Hauksdóttir.
ALLIR VELKOMNIR
Heilsubötar dansleikur
eftir skemmtidagskrá Ladda og
* >*1 1 * X
Klass
leikurfyrirdansi
frákl. 23.30 íkvöld.
Söngvarar: Sigriin Eva Ármannsdöttir
og Reynir Guðmundsson
Radisson SAS
SagaHotel
Reykjavík
KEVIN Costner leikur Garret og Robin Wright
Penn leikur Theresu.
ÞAÐ byrjaði með því að Theresa
fann flöskuskeyti.
tilboðið: „Mér fannst sagan
afar tilfinningarík. Hún snýst
um þrjár manneskjur og
getuleysi þeirra til þess að
nálgast hvert annað og kom-
ast fram hjá áföllunum og
veggjunum sem halda þeim
niðri og halda þeim hverju frá
öðru,“ segir hann. „Garret er
afkvæmi umhverfisins og
kringumstæðna. Hann er
bátasmiður og ekkjumaður og
vegna þess hve hann er mikill
einfari er hann næstum því
orðinn sambandslaus við fólk
í kringum sig.“
Leikstjórinn Mandoki seg-
ir: „Mér fellur vel við sögur
um fólk, baráttuna sem það á
í og umbreytinguna sem bar-
áttan kallar fram. Myndin
segir okkur sögu af nánd við
aðrar manneskjur, nánd sem
allir þrá en fæstir öðlast."
Paul Newman leikur Dod-
ge, eina hlekk ekkilsins við
mannlífið. Newman er sjald-
séður á hvíta tjaldinu núorðið.
„Þegar ég hef ekki unnið í dá-
PAUL Newman, Kevin Costner og Robin
Wright Penn leika í myndinni.
lítinn tíma fer ég að verða
óstyrkur og velti því fyrir mér
hvort enginn ætli að bjóða
mér hlutverk framar. En mér
finnst gaman að vinna og
þetta fína handrit bai'st mér á
réttum tíma,“ segir Newman.
„Mér líkar það vel að í Dodge
er að finna flókna blöndu af
tilfinningalegri fjarlægð og
nánd.“
Kevin Costner, sem einnig
er í hópi framleiðanda fékk
Robin Wright Penn svo til liðs
við leikarahópinn. Hún segist
hafa dregist að myndinni:
„Mér fannst eins og hrein-
ræktuð ástarsaga hefði ekki
sést á hvíta tjaldinu lengi.
Mér líkaði við þá hugmynd að
það fyrirfinnist andleg teng-
ing milli tveggja manneskja
áður en þær nokkurn tímann
hittast í eigin persónu; að
tveimur öndum geti verið ætl-
að að unnast."
I helstu aukahlutverkum
eru John Savage, Illeana
Douglas og Robbie Coltrane.
Sparklistin
ofar öllu
SÍÐASTLIÐINN sunnudag gekk
svo mikið á í boltaleikjum, að sama
var hver þriggja stöðvanna var
opnuð, alls staðar var sparklið að
djöflast á grænum völlum eða þá
handboltalið á parketi og mátti sjá
að þar væri enginn ballett á ferð.
Nýíega varð að færa bamatíma
frá klukkan sex að kvöldi sunnu-
dags til sjö að kvöldi og hefur þó
barnatíminn frá
upphafí verið
sýndrn- klukkan
sex. I þetta sinn
varð hann að víkja fyrir boltaleik.
Engu skal spáð um úr hverju heil-
inn er gerður í þeim áhangendum
boltaliða, sem ráða því að bolta-
leikir skuli ryðjast svona fast um í
dagskrá sjónvarpa, en hinu verður
ekki neitað, að ekkert dagskrár-
efni nýtur annars eins forgangs og
boltaleikir og hlýtur það að vera
umhugsunarefni ráðamanna
þeirra öflugu menningar- og
skemmtitækja sem sjónvörp eru,
að leggja þau með þessum hætti
undir boltaíþróttir. Frekjan er
með ólíkindum í þeim hópi, sem
vill ekkert nema boltaleiki í sjón-
vai-pi. Gott væri að sjá svo sem
eina skoðanakönnun um áhorf að
boltaleikjum áður en meira verður
um þessa „veiki“ fjallað.
Nú er á döfinni eitthvað sem
nefnist bókavika, enda vita bóka-
útgefendur, þeir fáu sem þrífast
við hlið Máls og menningai-, varla í
hvom fótinn þeir eiga að stíga,
þegar bækur eru annars vegar.
Bókaútgáfa kemur raunar engum
við, svo svívirðilega hefur verið
farið með hana á undanfómum
tímum. Nú byggist allt á því að fá
nýjar bækur keyptar á tvö hund-
ruð krónur eða svo, þegar afslátt-
arhrinan byrjar næstum strax eft-
ir útkomu eða sala hefst hjá mark-
aðsverslunum hlutabréfakóng-
anna, sem allt árið era að telja
gróða sinn í fréttum. Hafi ein-
hvemtíma verið hægt að segja að
bókin sé dauð þá er það núna, þeg-
Q IiSMUADD Á ar markaðsvitring-
OJUNVAhr A ar hafa gert hana
LAUGARDEGI ?£
við bækur inní skólakerfið, en þar
hafa stjómvöld og kennarar
tiyggt Máli og menningu allan
rétt til fjölda ára, svo miðlungshöf-
undar eiga kost á sölu tugþúsunda
eintaka í heilaþvottarmaskínuna.
En svona aðfarir eru ekki eins-
dæmi íyrii' ísland. Farið er að
sýna framhaldsþætti á ríkisrásinni
um ævi Knuts Hamsun. Þar er
enn verið að reyna að svipta þenn-
an snilling ærunni og nú með hjálp
bresks höfundar. Hann er að
mestu látinn vera ruglaður og
heymarlaus aumingi, sem talar vel
um Hitler, þótt staðreynd sé að
hann beitti sér mjög við að bjarga
löndum sínum undan meiðslum og
dauðadómum nasista og sneri sér
jafnvel til Hitlers persónulega til
að biðja löndum sínum griða. I
fyrsta lagi hélt Hitler að hann
væri að tala við finnskan höfund
og í öðra lagi fannst honum að
Hamsun væri óþolandi ósvífinn og
raku menn til og björguðu honum
úr Þýskalandi af því þeir væntu
þess að Hitler myndi láta drepa
hann. En þessar staðreyndir virð-
ast ekki hæfa íslendingum, íyrst
svona þætth- era valdir. Það er
eins og Mál og menning hafi ráðið
valinu.
Enn halda þættirnir um kalda
stríðið áfram. Nú á mánudaginn
var fjallað um þær systur, atóm-
sprengjuna og vetnissprengjuna.
Það mun vera amerískt fyrirtæki
í eigu mógúlsins Teds Turner,
sem framleiðir þættina. Hann
gætir áfkaflega hlutleysis og þor-
ir ekki að segja sannleikann, sem
hefur legið á borðinu til fjölda ára
og verið gefinn út á bókum bæði
austan hafs og vestan af þeim
sem gerst máttu vita. Látið er að
því liggja að sovéskir vísinda-
menn hafi fundið upp atóm-
sprengjuna, skömmu eftir stríðs-
lok, þótt Stalín hefði komið notk-
un sprengjunnar á óvart á
stríðslokafundi þjóðhöfðingjanna
þriggja, Trumans, Attlee og Sta-
líns. Þegar kommúnistar myrtu
Leon Trotskí í Mexíkó skömmu
eftir að styrjaldarátök hófust,
vora um þrjátíu sovéskir njósnar-
ar fluttir til landsins. Eftir morðið
á Trotskí var þeim sagt að setjast
að í Mexíkó og bíða átekta. Þegar
starfið við atómsprengjuna byrj-
aði í Los Alamos fékk þessi hópur
njósnara í Mexíkó skipun um að
gerast innflytjendur til Kaliforn-
íu. Margir þeirra komust síðan í
vinnu við undirbúning atóm-
sprengjunnar. Þessi saga hefur
verið rakin af einum helsta yfir-
manni njósna erlendis í Sovétríkj-
unum á stríðsáranum.
Indriði G. Þorsteinsson