Morgunblaðið - 06.05.1999, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
í
Pizza Hut í Nýkaupsverslanir
Opna fyrst stóran fjöl-
skylduveitingastað
WUAi FLASH
Einnota
myndavél
HANS Petersen hf. hefur hafíð
sölu á APS „einnota" myndavél en
hún hefur þann eiginleika að hægt
er að velja milli tveggja mynda-
stærða við myndatöku. í fréttatil-
kynningu frá Hans Petersen hf.
kemur fram að í vélinni, sem er
með innbyggt leifturljós, er 400 asa
25 mynda APS fllma og yfírlits-
mynd fylgir við framköllun. Vélin
er fáanleg í flestum verslunum
Hans Petersen, hjá flestum Kodak
Express verslunum, í mörgum
stórmörkuðum og í Fríhöfninni.
Verð er 1.490 krónur.
Einnota myndavélar
endurnýttar
Þá kemur fram í fréttatilkynn-
ingunni að Kodak „einnota"
myndavélum hefur verið safnað
saman um allan heim sl. níu ár og
þær endurunnar og endurnýttar.
Vélamar eru notaðar allt að 10
sinnum áður en þær eru muldar og
endurmótaðar og fatlaðir starfa við
flokkun hluta úr myndavélunum.
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Gaum-
ur, sem er í eigu Jóhannesar Jóns-
sonar og fjölskyldu hans, hefur fest
kaup á veitingastaðnum Pizza Hut.
Jón Garðar Ögmundsson er nýráð-
inn framkvæmdastjóri Pizza Hut.
„Við stefnum að þvi að opna að
minnsta kosti þrjá nýja Pizza Hut
veitingastaði á þessu ári og sá fyrsti
verður opnaður í byrjun ágúst. Það
verður stór veitingastaður þar sem
fjölskyldufólki verður gert hátt und-
ir höfði.“
Jón segir að Steindór Olafsson,
fyrrum eigandi Pizza Hut, muni
reka fyrirtækið með sér fram á sum-
ar en Jón er að láta af störfum sem
framkvæmdastjóri Landsteina í
Danmörku og mun á næstunni
dvelja í Belgíu þar sem hann verður
í þjálfun hjá Pizza Hut.
Pizza Hut í miðbæinn
Á næstu mánuðum verður Pizza
Hut opnað í tveimur Nýkaupsversl-
unum, á Eiðistorgi og í Kringlunni.
„I Kringlunni verðum við með Pizza
Hut veitingastað í anddyri Nýkaups
og þar verðum við einnig með hrað-
þjónustu. Þá geta viðskiptavinir
annaðhvort sest niður og fengið sér
pítsu eða pantað pítsu, gert inn-
kaupin og þekið hana með sér á leið-
inni út. Á Eiðistorgi verður ein-
göngu um hraðþjónustuna að ræða.“
Morgunblaðið/Golli
JÓN Garðar Ögmundsson, nýráðinn frainkvæmdastjóri Pizza Hut, og
Steindór Ólafsson, fyrrum eigandi Pizza Hut, sem mun sjá um rekstur-
inn með Jóni fram á sumar.
Jón segir að ennfremur sé verið að
skoða húsnæði í miðbænum en þar á
að opna stóran fjölskylduveitinga-
stað.
Heimsendingarþjónusta
Þegar Jón er spurður hvort stefnt
sé að enn frekari útvíkkun segii-
hann, að ef Pizza Hut í Nýkaups-
verslunum gangi vel sé stefnt að því
að vera með slíka þjónustu í öðrum
verslunum Nýkaups. Þá verður
Pizza Hut í Smáralind.
Þegar Jón er inntur eftir því
hvort þeir ætli í beina samkeppni við
Domino’s í heimsendingarþjónustu
segir hann að til að byrja með verði
einblínt á að byggja upp fjölskyldu-
veitingastaði og hraðþjónustuna í
Nýkaupi. „Á næsta ári munum við
einbeita okkur að heimsendingar-
þjónustu og brydda upp á ýmsum
nýjungum í því sambandi."
Hann segir að innan skamms
verði nýr matseðill tekinn í notkun á
Pizza Hut.
Enrico’s-
tómatvörur
HEILSUHUSIÐ hefur hafið sölu á
Enrico’s-tómatvörum frá Ventre
Paking Company. Enrico’s-sósurnar
eru unnar úr fersku líf-,
rænt ræktuðu græn-^
meti og kryddjurt-|
um. I fréttatilkynn-
ingu frá Heilsuhús-
inu kemur fram að j
við framleiðsluna sé j
ekki notaður sykur,
ger, rotvarnarefni,
tilbúin bragðefni,
bætiefni né fylling-
arefni auk þess sem '
sósumar eru til með og án salts.
Bæklingur með uppskriftum liggur
frammi í verslunum Heilsuhússins.
aveusmmixi
P
...jamsKonur
aetur valdið slappleika leiða,
námsörðugleikum, lélegu úthaldi o.fl.
Ppro^!obinBi2
er bragógóo
pirobriB'a,
nkulega bætt
B vitamínum
og steinefnum.
tól.fc.
o
VITABIOTICS
- þar sem náttúran og vísindin vinna saman
Fæst í flestum lyfjaverslunum
N óatúnsbúðirnar
50 tonn af svína-
kjöti á útsölu
í DAG, fimmtudag, hefst svína-
kjötsútsala hjá Nóatúni. Að
sögn Jóns Þorsteins Jónssonar
markaðsstjóra hjá Nóatúni er
um að ræða 50 tonn af nýju
svínakjöti og afslátturinn er á
bilinu 20-40%.
Kjötið kemur frá Sláturfélagi
Suðurlands, Kjötumboðinu og
Þríhymingi á Hellu. Jón segir
að svínabógur og læri kosti nú
397 krónur kílóið en var áður
selt á 598 krónur. Hann segir að
ef miðað er við að þriggja
manna fjölskylda borði sem
samsvarar kílói kosti máltíðin
innan við 150 krónur á mann.
„Svínakótilettur kosta 798 krón-
ur kílóið núna en venjulegt verð
er 1098 krónur. Kílóið af svína-
snitzeli fer úr 1.469 krónum í
987 krónur.“
Þegar Jón er spurður hvort
þessi lækkun sé undanfari var-
anlegrar verðlækkunar á svína-
kjöti segir hann að undanfarið
hafi búum fækkað og þau sem
eftir eru hafi stækkað mjög mik-
ið. „Ég spái því að verð á svína-
kjöti eigi eftir að lækka á næstu
tveimur ámm um að minnsta
kosti 20%.“
NÝTT
Finnur Ingólfsson
í aratug töluðu menn um að breyta
Búnaðarbanka og Landsbanka í hlutafélög.
Nú hefur það verið gert og tugir þúsunda
einstaklinga eru eigendur að bönkunum.
Ný framsókn til nýrrar aldar
FRCLSI FCSTA FRAMSOKN
w w w . x b . i s / r ey kj a v i k
B