Morgunblaðið - 06.05.1999, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 06.05.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999 5 5 , UMRÆÐAN Fína fólkið og almúginn ÉG SÉ mig tilneydd- an til að skrifa nokkrar línur um réttlæti og ranglæti þjóðfélagsins. Nú verður kosið í vor, hvað viljum við? Obreytt ástand eða breytt þjóðfélag? Ráða- menn þjóðarinnar hafa öðru hvoru haft á orði um hið mikla góðæri sem ríkir í landinu. En því miður hefur það ekki náð að skila sér til allra, kannski til fárra útvalinna, þeirra sem hafa fengið eigur þjóð- félagsins gefins, t.d. sægreifa, hlutabréfa- braskara eða annarra sem skammta sér launin sjálfir. Hver hefur ekki tekið eftir hækk- unum þjónustugjalda t.d. í heil- brigðiskei'finu, sundstöðum eða samgöngum svo ég nefni ekki mat- vörumarkaðina nú á síðustu misser- um, svo eitthvað sé nefnt? En aðal- málið sem mig langar til að nefna eru jaðarskattar, tekjutengingar ýmiskonar bóta og afborganir námslána, sem valda því að meðal- tekjufjölskyldan með börn á fram- færi, öryrkjar og ellilífeyrisþegar eiga sér ekki viðreisnar von ef möguleiki er á að bæta við sig heið- arlegri vinnu til að auka við fram- færslu heimilanna. Ef einstaklingar með meðaltekj- ur hafa áhuga á því að auka við tekj- ur sínar með meiri vinnu er þeim refsað fyrir dugnað sinn með því að vaxtabætur og barnabætur eru skertar og jafnvel teknar af þeim. Einstaklingar og fjölskyldur eru orðin fangar bótakerfisins og sjá enga leið opna til að auka við tekjur sínar. Ef aukið er við vinnu koma bara hlutfallslega fæn-i aurar í vas- ann. Vegna jaðaráhrifanna frá tekjutengingunni getur það ekki verið hvetjandi fyrir duglegan mann að vinna ef fjárhagslegur ávinningur skilar sér ekki nema að litlu leyti í vasa launamannsins. Einnig eru þúsundir einstaklinga sem þurfa að borga meðlög með börnum en geta ekki staðið í skilum vegna lágra launa. Sambúðarfólk neyðist til að skilja til að sjá fjölskyldu sinni far- borða. Með því að skrá sig úr sambúð geta ráðstöfunartekjur auk- ist allt að milljón króna í formi bama-, vaxta- bóta og annama niður- greiðslna. Stórir hópar þjóðfé- lagsins fá laun sín greidd í öðru formi t.d. geta dagpeningar, risna, fjármagnstekjur, bílapeningar eða aðrar skattfrjálsar auka- sporslur tvöfaldað laun þessara hópa. Pessir hópar eru í þeirri aðstöðu að geta dregið neyslu og kostnað frá laun- um sínum og skammtað sér lága framfærslu mánaðarlega. Hjá for- réttindahópum virðist það vera einskonar þjóðaríþrótt að spila á keifið eins og sagt er. Þessir hópar Kosningar / Eg tel það sé svipað komið fyrir skattakerf- inu og kvótaúthlutunar- kerfinu, segir Arelíus Orn Þórðarson, þau eru bæði óréttlát. fmna alltaf smugur á öllum lögum og reglum þjóðfélagsins til að hagn- ast. Sem dæmi má nefna kvótaeig- endur sem hafa fengið úthlutaðan kvóta frá þjóðinni og veiða hann ekki sjálfir heldur leigja hann út öðrum fyrir himinháar upphæðir, síðan taka þeir sjálfh' á leigu kvóta sem þeir láta síðan sjómennina gi'eiða hluta leigunnar. I framtíðinni með óbreyttri út- hlutun veiðiheimilda verður draum- ur sjómannsins að komast yfir bát að engu. Draumurinn um dugnað og atorkusemi sjómannsins um að Árelíus Örn Þórðarson veiða og hagnast verður að engu. Ungir menn sjá ekki möguleika á því að kaupa bát og kvóta. Það mun aldrei verða reksti'argrundvöllm' fyr- ir útgerð sem þyrfti að kaupa kvóta á þúsund krónur kílóið, slík fjárfesting yrði nokkuð lengi að borga sig. Ég tel það sé svipað komið fyrh' skattakeifinu eins og kvótaúthlutun- arkeifinu, þau er bæði óréttlátt og geta ekki gengið upp. Þau eru ói'étt- lát gagnvart fólkinu í landinu, auka á misréttið og auka bilið milli forrétt- indahópa og þeiira sem reyna að framfleyta sér með heiðarlegri launa- vinnu. Hvað er til bóta? Gæti réttlætið verið fólgið í því að afnema tekju- skattinn, eða afnema hann að stórum hluta? Hver veit. Mín skoðun er sú að allt bamafólk eigi að fá sömu fjár- hæð í formi bamabóta óháð tekjum eða að bótakerfið sé hreinlega lagt niður og tekjuskattsprósentan lækk- uð um einhver tugi prósenta og þeir sem minna mega sín fái sérstaka úr- lausn sinna mála. Ég skora á ráða- menn þjóðarinnar að búa til hvetj- andi umhverfí þannig að fjölskyldan í landinu fái að blómstra. I góðæri ráðamanna þjóðarinnar hafa skuldir heimilanna aukist um tugi milljarða, mikil neysla er í formi greiðslukortaviðskipta og annarra lánaíyrirkomulaga, sveitarfélögin hafa aukið við sig skuldum, viðskipta- halli er við útlönd og boltinn heldur áfram að rúlla. Fólk utan af landi flýr til höfuðborgarinnar, skilur eignir sínai' eftir og getur ekki selt eða leigt þegar kvótinn er hoifinn úi' byggðar- laginu. Framsóknaifiokkurinn sagð- ist vera fyrir síðustu kosningar með fjölskylduna í fyrirrúmi. Stjómar- flokkamir hafa þegar náð að kroppa um 2200 milljónir af bamabótum á síðustu þremur árum vegna þess að viðmiðunarmörk bóta hafa verið mið- uð við hungurlús. Ég ætla ekki að skrifa um sægreifa og kvóta að þessu sinni, það bíður betri tíma. Ég hef ákveðið að styðja nýtt afl, Frjáls- lynda flokkinn, sem er með mjög góða stefnu í öllum málum og boðar jafnrétti þegnanna. Ég bið fólk að hugsa um það á næstu vikum hvort það vilji hafa tvær þjóðir í þessu landi. „Fína fólkið" og almúgann. Þar sem almúginn þarf sífellt að herða sultarólina. Ég skora á alla, unga sem aldna, sem vilja réttlæti að hugsa vel áður en það ráðstafar at- kvæði sínu. Höfundur er fyrrverandi stýrimaður. NÚ UM helgina var borið til mín blað Sam- fylkingarinnar um helstu stefnumál henn- ar. Það sló mig að sjá mynd af Guðnýju Guð- björnsdóttur með til- lögum Samfylkingar- innar um sjávarútvegs- mál. Þá minntist ég þess að í umræðum um sjávarútvegsmál og veiðiheimildir sagði hún eitthvað á þá leið, að því meira sem hún hugsaði um kvótamál því meir kæmist hún á þá skoð- un að best væri að leigja allar veiðiheim- ildimar til útlendinga. Vissulega væri hægt að leigja ís- lenskar veiðiheimildir til erlendra aðila fyrir jafnvel meiri fjármuni en þá sem við erum að fá út úr rekstri Fiskveiðistjórnun Ég tel það skyldu Sam- fylkingarfólks að svara því, segir Svanur Guð- mundsson, hvort það standi til að Samfylk- ingin standi í braski með veiðiheimildir. íslensks sjávarútvegs í dag. Reynd- ar þyrftum við þá að afskrifa allar fjárfestingar í útgerð, frystihúsum, höfnum, einbýlishúsum, þjónustu- fyrirtækjum og öllu því er sjávarút- vegi tengist á einhvern hátt. En af hverju að hætta þar? Við getum flutt inn mun ódýrari landbúnaðar- afurðir en þær sem eru hér á boðstólum. Vinnuafl í Asíulöndum er mun ódýrara en hér á landi og myndi vera hagkvæmt að flytja það inn í stórum stíl. Ekki vil ég gera henni Guðnýju upp þessa skoðun en miðað við þessi ummæli hennar um framsal veiðiheimilda til er- lendra aðila gæti þetta alveg eins verið hennar skoðun. Reyndar er það tillaga Samfylking- ’ arinnar að taka 5-10% af núverandi veiði- heimildum af útgerð- inni og leigja aftur, þ.e.a.s. 75-150 þúsund tonn. Eflaust vildu margar þjóðir taka þátt í þessum kvóta og borga mikið fyrir en aftur á móti margir myndu missa vinnuna sína hér á landi. Ég tel það skyldu Guðnýjar og samfylkingarmanna að svara land- verkafólki og sjómönnum því hvort það standi til að Samfylkingin ætli að standa í braski með veiðiheimild- ir með útlendingum og ógna þar * með atvinnuöryggi landverkafólks. Því vil ég spyrja Guðnýju Guð- björnsdóttur: Hvaða áhrif hafa þær breytingar á kvótakerfinu, sem Samfylkingin hefur boðað, á at- vinnuöryggi fólks í sjávarútvegi og á sjávarútvegsfyrirtækin í þeim byggðum sem algerlega eru háð sjávarútvegi? Ég leyfi mér að fullyrða að þessar tillögur Samfylkingarinnar verða ekki til þess að bæta afkomu sjávar- útvegs og þar með afkomu íslend- . inga. Höfundur er sjávarútvegs- fræðingur. mb l.i is /\LLTAf= GITTHXSAÐ /VÝT7 Á að leigja kvótann til útlendinga? Svanur Guðmundsson Samvinnunefnd um svæðis- skipulag í Mýrarsýslu Samvinnunefnd um svæðisskipulag í Mýrar- sýslu boðartil tveggja kynningarfunda um væntanlegt svæðisskipulag fyrir Mýrarsýslu. Fyrri fundurinn verður í Hótel Borgarnesi mánu- daginn 10. maí 1999 kl. 21.00 og seinni fundur- inn í Félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi, þriðjudaginn 11. maí 1999 kl. 21.00. Allir þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, eru hvattirtil að mæta á fundina og kynna sér skipulagið. Samvinnunefnd um svæðis- skipulag í Mýrarsýslu. TÓNUSMRSKÓU KÓPWOGS Innritun nýrra nemenda í forskóla, skólaárið 1999—2000, stendur yfir til 15. maí. Skráning fer fram á skrifstofu skólans Hamraborg 11,2. hæð. Sími 554 1066. Staðfesta þarf umsóknir í haust í samræmi við auglýsingar frá skólanum þar að lútandi. Skólastjóri. Veljum X-D Dagar senn með djörfung í nýja öld og árþús- und. Sigur með Sjálfstædisflokki. Kjósum D-listann fyrir land og lýð. TILKYNNIISIGAR Lumene snyrtivörukynning í Nesapóteki, Eiðis- torgi, Seltjarnarnesi, föstudaginn 7. maí kl. 14.00-18.00. 10% kynningarafsláttur. Lumene snyrtivörur. Mosfellsbær Frá kjörstjórn í Mosfellsbæ Kjörfundur vegna Alþingiskosninga hinn 8. maí 1999 verður haldinn í Varmárskóla. Kosið er í þremur kjördeildum samkvæmt nán- ari skilgreiningu á kjörstað. Kjörfundur stendur frá kl. 9 til 22. Kjörstjórn í Mosfellsbæ. Björn Ástmundsson, Leifur Kr. Jóhannesson, Fróði Jóhannsson. SMAAUGLYSINGAR FELAGSLÍF FERÐAFÉLAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Laugardagur 8. maí kl. 10.00 Fuglaskoðunarferð „Suður með sjó". Árleg ferð, farin í 30. sinn. Leið- sögn: Gunnlaugur Pétursson og Hallgrímur Gunnarsson. Hafið með sjónauka og fuglabók. Hvað skyldu sjást margar tegundir nú, en metið er 59. Kjörin fjölskyldu- ferð. Verð 1.800 kr., frítt f. börn m. fullorðnum. Sunnudagur 9. mai kl. 13.00 Þorbjarnarstaðir — Alfara- leiðin: Um 3 klst. fróðleg ganga. Verð 900 kr. Brottför frá BSÍ, austan- megin og Mörkinni 6. Helgarferðir 14.—16. maí. 1. Þórsmörk — Langidalur. 2. Eyjafjallajökull — Fimm- vörðuháls, skíðaganga. Hvítasunnuferðir: 1. Snæ- fellsnes — Snæfellsjökull. 2. Öræfajökull — Hvannadals- hnúkur. 3. Þórsmörk. Uppl. og miðar í helgarferðir á skrifst. 9 daga spennandi vorferð til Færeyja 26/5—3/6. Kynnið ykkur fjölbreytt úrval sumar- leyfisferða og staðfestið pantanir strax. Uppl. um ferðir eru á textavarpi bls. 619 og á heimasíðu: www.fi.is. I.O.O.F. 11 - 180567'/2 = Lf. I.O.O.F. 5 s 180567 = Lf. Hjálpræóis- herinn Kirkjustræti 2 Kl. 20.30 Kvöldvaka i umsjón Fataverslunar Hjálpræðishers- ins. Allir hjartanlega velkomnir. TILKYNNINGAR " Frá Sálar- rannsóknar- félagi íslands Hugleiðslukvöld I kvöld, fimmtudaginn 6. maí kl. 20.30, leiðir Jórunn Sigurðardótt- ir hugleiðslu í Garðastræti 8. Húsið opnað kl. 20.00. Verð kr. 200 fyrir félaga og 300 fyrir aðra. SRFl. Dilbert á Netinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.