Morgunblaðið - 06.05.1999, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 06.05.1999, Blaðsíða 72
72 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999 MINNINGAR MORGUNB LAÐIÐ t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KONRÁÐ ÓSKAR AUÐUNSSON bóndi, Búðarhóli, Austur-Landeyjum, sem lést á Landspítalanum að morgni mið- vikudagsins 28. apríl, verður jarðsunginn frá Stóra-Dalskirkju, Vestur-Eyjafjallahreppi laugardaginn 8. maí Athöfnin hefst kl. 14.00. Sigríður Haraldsdóttir, Jóna Gerður Konráðsdóttir, Sigurjón Sveinbjörnsson, Héðinn Konráðsson, Harpa Sigurjónsdóttir, Haraldur Konráðsson, Helga Bergsdóttir, Guðlaug Helga Konráðsdóttir, Andrés Ingólfsson, Ingigerður Konráðsdóttir, Sigmar Gíslason, Gunnar M. Konráðsson, Rosana Ragimova, Auður I. Konráðsdóttir, Margrét Ósk Konráðsdóttir, Ásgeir Ólafsson, Unnur Brá Konráðsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Útför systur okkar, HELGU BJARNADÓTTUR frá Hörgsdal, Sléttuvegi 15, Reykjavík, verður gerð frá Prestbakkakirkju á Síðu laugar- daginn 8. maí kl. 14.00. Jón Bjarnason, Friðrik Bjarnason. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, bróðir og afi, HANNES EINARSSON bóndi, Eystri Leirágörðum, sem lést laugardaginn 1. maí, verður jarðsung- inn frá Leirárkirkju föstudaginn 7. maí kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Sjúkrahús Akraness Ólöf Friðjónsdóttir og aðstandendur. t Innilegar þakkir fyrir hlýhug og vináttu við and- lát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HALLDÓRS BALDVINSSONAR stýrimanns, Álfaskeiði 36, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Vífilsstaðaspítala, einnig til starfsfólks Hrafnistu Hafnarfirði. Sigríður Þorleifsdóttir, Baldvin Halldórsson, Ragnhildur Lýðsdóttir, Margrét Halldórsdóttir, Gunnlaugur Gunnlaugsson, Björgvin Halldórsson, Ragnheiður Reynisdóttir, Helga Halldórsdóttir Sur, Rafael V. Sur, Oddur Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ÍVARS NÍELSSONAR frá Flögu, Strandgötu 8, Hvammstanga. Guðrún Sigfúsdóttir, Jón ívarsson, Guðrún Sigurðardóttir, Sigríður ívarsdóttir, Ármann Olgeirsson, Sigfús ívarsson, Elísabet Halldórsdóttir, Halldóra l'varsdóttir, Páll Sigurðsson, María ívarsdóttir, Símon H. ívarsson, Níels ívarsson, Jónína Skúladóttir, Ólafur fvarsson, Sigríður Fossdal, Hermann ívarsson, Sigurbjörg Dagbjört Jónsdóttir, Sigurður ívarsson, Ásdís S. Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. MARGRÉT ODDNÝ JÓSEFSDÓTTIR + Margrét Oddný Jósefsdóttir fæddist 14. ágúst 1917. Hún lést 28. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigríður Jós- epsdóttir og Jósef Þorsteinsson. Fóst- urforeldrar Mar- grétar voru Þor- steinn Konráðsson, f. 16.9. 1873, d. 9.10. 1959, og Mar- grét Oddný Jónas- dóttir, f. 11.10. 1879, d. 4.7. 1961, frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal. Eiginmaður Margrétar var Guðmundur Jóhannesson, f. 3. október 1914, d. í maí 1976. Þeirra börn: 1) Margrét Oddný Guðmundsdóttir, f. 28.8. 1942, maki Jónas G. Þorvaldsson. Börn: a) Guðmundur Grétar Lúðvíksson, f. 13.9. 1960, maki Vala Björk Jóhannesdóttir, f. 16.10. 1971. Dóttir hennar er Teresa Dröfn Freysdóttir. Dætur Grétars af fyrra hjóna- bandi: Eva Björk Guðmunds- dóttir, f. 5.8. 1980 og Auður Margrét Guðmundsdóttir, f. 4.7. 1986. b) Arnar Fahning Lúðvíks- son, f. 31.5. 1964, maki Sigríður Sæ- mundsdóttir. Þeirra barn: Oskírð Arnarsdóttir, f. í ágúst 1996. Dóttir Arnars er Birna Fahning Arnars- dóttir, f. 1986. c) Dóróthea Margrét Fahning Lúðvíks- dóttir, f. 29.4. 1967, maki Jón Gíslason,_ f. 25.3. 1963. Barn: Hlynur Örn Inga- son, f. 21.10. 1985. 2) Jóhannes Guðmundsson, f. 15.4. 1948, d. 23.5. 1995. Börn hans: a) Birta Jóhannesdóttir, f. 25.2. 1970. b) Þór Jóhannesson, hans barn er Daníel Þórsson. c) Guðmundur Jóhannesson. d) María Jóhann- esdóttir, f. 24.12. 1984. e) Anna Jóhannesdóttir. Utför Margrétar fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. En meðan árin þreyta hjörtun hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (Tómas Guðm.) Nú hefur Margrét kvatt þetta líf. Móðir okkar og Magga, eins og hún var alltaf kölluð, voru vinkonur allt frá æskuárum, er þær voru saman við nám við Kvennaskólann á Blönduósi veturinn 1938-1939. Vinátta þein-a hélst alla tíð á með- an báðar lifðu og bar aldrei skugga á. Fyrstu minningar okkar systkin- anna tengjast Möggu, því stutt var á milli heimila okkar. Magga og maður hennar Guðmundur, sem nú er látinn, bjuggu við Bergstaða- stræti 64, en foreldrar okkar + Eiginmaður minn, fósturfaðir, faðir, tengdafaðir og afi, JÓHANN ÞÓRIR JÓNSSON fyrrv. ritstjóri tímaritsins Skákar, ....... Meistaravöllum 5, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 2. maí, verður jarð- sunginn frá Langholtskirkju mánudaginn 10. maí kl. 13.30. Sigríður Vilhjálmsdóttir, Kristín María Kjartansdóttir, Ingólfur Hauksson, Hannes Jóhannsson, Beth Marie Moore, Steinar Jóhannsson og barnabörn. + Útför GUÐRÍÐAR NIKULÁSDÓTTUR, Droplaugarstöðum, sem andaðist mánudaginn 26. apríl, fer fram frá Fossvogskirkju á morgun, föstudaginn 7. maí og hefst athöfnin kl. 13.30. Þeir, sem vilja minnast hennar, láti líknarstofn- anir njóta þess. Stefán Nikulásson Edda Ingibjörg Eggertsdóttir, Guðrún Edda Gunnarsdóttir, vinir og vandamenn. + Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur sam- úð, hlýhug og vináttu við andlát og útför eigin- manns míns, föður, tengdaföður og afa, SOFFANÍASAR CECILSSONAR útgerðarmanns, Grundarfirði. Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarfólki Sjúkrahúss Akraness fyrir einstaka umönnun. Hulda Vilmundardóttir, Bára Bryndís Vilhjálmsdóttir, Magnús Soffaníasson, Sigríður Finsen, Kristín Soffaníasdóttir, Rúnar S. Magnússon, Sóley Soffaníasdóttir, Sigurður Sigurbergsson og barnabörn. bjuggu á Bragagötu 26A. Magga og Guðmundur áttu tvö böm, Maggý og Jóa, og voru þau á svip- uðum aldri og við systkinin. Lékum við okkur oft saman. Seinna eign- uðust Magga og Guðmundur sum- arbústað í landi Helgafells, þar sem foreldrar okkar áttu bústað við hliðina og var stutt á milli þeirra. Þar áttum við öll góðar stundir. Þegar foreldrar okkar Ní- elsar og Mörtu hófu búskap á Helgafelli æxlaðist það þannig að Jói kom í sveit til þeirra, sjö ára að aldri. Hann dvaldi þar öll sumur og varð heimilisfastur þar eftir skóla- göngu. Var hann eins og bróðir okkar og tengdi vináttu foreldra okkar og Möggu fastari böndum. Magga og móðir okkar gerðu margt skemmtilegt saman. Þær fóm sína fyrstu utanlandsferð sam- an með Gullfossi. Þær minntust oft á þessa ferð og var mikið hlegið. Þær skemmtu sér oft saman við að minnast gamalla stunda og þá var glatt á hjalla. Asa var þeim góð vinkona og afar kær. Lifir hún þær báðar. Bergstaðastræti 64 var alltaf opið öllum, allir velkomnir og þaðan eigum við góðar minningar. Magga var föst fyrir og mjög góð kona. Faðir okkar þakkar Möggu fyrir góða vináttu gegnum árin. Við sendum fjölskyldu Margrétar okkar innilegustu samúðarkveðjur og kveðjum Möggu með þessum ljóðlínum sem afi okkar orti: Veik er trú en vonin björt vöxtur tærra linda. Nótt þó dvelji svöl og svört senn mun roða tinda. (Steingrímur Davíðsson.) Systkinin á Helgafelli, Níels og Marta. Til að minnast ömmu er eitt orð líklegast til að segja allt, „HVÍTT“ sem er litur hreinleikans, sakleysis og sannleikans. Það tók ekki lang- an tíma fyrir ókunnugan að þykja vænt um þessa konu sem alltaf tók öllum opnum örmum og setti sjálfa sig ætíð til þjónustu reiðubúna bæði fjölskyldu sinnar sem öðrum. Lýsandi dæmi þar sem hún stóð og ætlaði að fara að vaska upp diska í eigin stórafmæli og eftir að veislu- gestir yfirgáfu samkvæmið var reynt að gefa okkur hinum afmæl- isgjafimar því hún taldi að við þyrftum meira á þessu að halda en hún. Þessi einstaka jákvæðni og eiginleiki til að fyrirgefa er ekki fundin í hverjum sem er og ekki gefin af eins hreinu hjarta og henn- ar. Það fór lítið fyrir þessari konu sem sjaldan vildi hringja í nokkurn mann nema af brýnni nauðsyn, því hún var alltaf smeyk um að vekja fólk eða trafla þó að væri um miðj- an frídag flestra. Heimili ömmu var alltaf miðja fjölskyldunnar, þó meðlimir hennar tvístruðust.flyttu eða færa af landi brott, var ekki sjaldan skotið skjólshúsi yfir þá sem áttu í vandræðum, vantaði væntumþykju eða að leita hjálpar á einn eða annan hátt, alltaf var hún reiðubúin jafnt á nóttu sem degi. Hún lifði fábrotnu lífi, gerði litlar kröfur og gaf miklu meira en sjálf- sagt þykir. Lítillæti var hennar lífs mynstur og hjálpsemi hennar áhugamál, kvartaði aldrei jafnvel í sínum verstu veikindum talaði hún um eymd þeirra sem bágt áttu og hafði áhyggjur af okkar líðan. Eg mun aldrei geta þakkað nóg fyi’ir allt sem hún gerði fyrir mig og mína og veit að allir sem henni kynntust eru mér sammála um að hún var besta amma í heimi. Pú varst mér sem leiðandi ljós lagðir veginn, aldrei brásL Ei þáðir þakkir né hrós þú átt mína eilífu ást. Nú ertu flogin, burtu frá oss falleg ei' minningin mín. Ömmu ég sendi minn síðasta koss svo innilega td þín. (Guðmundur G. Lúðvíksson) Guðmundur G. Lúðvíksson, Vala Björk, Rafnar Máni og Teresa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.