Morgunblaðið - 06.05.1999, Blaðsíða 1
100. TBL. 87. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Söguleg sátt
um A-Tímor
New York. Reuters.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR
Portúgals og Indónesíu undirrituðu
í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóð-
anna í New York í gærkvöldi sögu-
legan samning sem gæti orðið til
þess að Austur-Tímor fengi sjálf-
stæði.
Samningurinn snýst um þau
áform að efna til atkvæðagreiðslu
meðal hinna 800.000 íbúa Austur-
Tímor 8. ágúst nk. um hvort portú-
galska nýlendan fyrrverandi eigi að
fá víðtæka sjálfstjórn innan
Indónesíu.
Þarlend stjómvöld hafa sagt að
verði sjálfstjómartillögunni hafnað
- eins og flestir búast við - geti
Austur-Tímor fengið sjálfstæði.
Þetta loforð gaf Jusuf Habibie
Indónesíuforseti í janúar sl., og
kúventi þar með þeirri stefnu sem
Indónesíustjóm hafði framfylgt allt
frá því Austur-Tímor var innlimað í
Indónesíu með hervaldi árið 1976.
Samningurinn er afrakstur
samningaviðræðna á vegum Sam-
einuðu þjóðanna sem hafa staðið
með hléum í 15 ár. I samningnum
er kveðið á um tilhögun atkvæða-
greiðslunnar og ýmsar ráðstafanir
til að afstýra blóðugum átökum
milli sjálfstæðissinna og stuðnings-
manna Indónesíustjómar.
„Þetta er söguleg stund,“ sagði
Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ,
sem ásamt ráðherrunum, Jaime
Gama frá Portúgal og Ali Alatas frá
Indónesíu, undimtaði samninginn
sem vitundarvottur.
Ottast átök
„Eg hvet alla aðila og pólitískar
fylkingar á Austur-Tímor til að láta
vera með öllu að reyna að grípa til
ofbeldis og að vinna með Samein-
uðu þjóðunum að því að sinna sínu
mikilvæga verki,“ sagði Annan. 600
eftirlitsmenn á vegum SÞ munu
samkvæmt samkomulaginu fylgjast
með framkvæmd atkvæðagreiðsl-
unnar, auk nokkur hundruð óvopn-
aðra lögreglumanna.
Ottast er að vopnaðir hópar
Austur-Tímorbúa, sem vilja að
landsvæðið tilheyri Indónesíu,
reyni að hindra að atkvæðagreiðsl-
an fari fram með eðlilegum hætti.
Aniceto Guterres Lopes, lög-
Reuters
NÁMSMENN í Dili, höfuðstað Austur-Tímor, hrópa slagorð til stuðnings sjálfstæði þessarar fyrrverandi
nýlendu Portúgals, sem var innlimuð af Indónesíu árið 1976.
fræðingur og framkvæmdastjóri
mannréttindahreyfingar á Tímor,
sakaði í gær stjóm Indónesíu um
að hafa séð þessum hópum fyrir
vopnum og fjármagni. Hann áætl-
aði að 18.000 manns hefðu flúið
heimabæi sína vegna árása banda-
manna Indónesíustjómar.
Vesturveldin og Rússland sögð nálgast pólitíska lausn Kosovo-deilunnar
EÞ staðfest-
ir útnefn-
ingu Prodis
Strassborg. Reuters, Daily Telegraph.
EVRÓPUÞINGIÐ samþykkti í
gær með yfirgnæfandi meiri-
hluta útnefningu Romanos Prod-
is, fyrrverandi forsætisráðherra
Ítalíu, í embætti forseta fram-
kvæmdastjómar Evrópusam-
bandsins (ESB).
Atkvæði féllu þannig, að 392
Evrópuþingmenn lýstu stuðningi
við Prodi en 72 höfnuðu honum.
41 sat hjá. Leiðtogar ESB höfðu
á fundi í
Berlín í lok
marz ákveðið
samhljóða að
útnefna Prodi
eftirmann
Jacques
Santers, eftir
að öll fram-
kvæmda-
Stjómin Sagði Romano
af sér í kjölfar Prodl
skýrslu óháðra sérfræðinga um
misferli og svik innan hennar.
Staðfesting þingsins á útnefii-
ingu Prodis er aðeins fyrsta
skrefið í átt að skipun nýrrar
framkvæmdastjómai-. Leiðtogar
þingflokka á Evrópuþinginu
(EÞ) urðu í síðustu viku ásáttír
um að afgreiðsla þingsins á
fomlegri staðfestingu nýskip-
aðrar framkvæmdastjómar gæti
í fyrsta lagi faiið fram um miðj-
an september, eftir 10 daga
þingyfirheyrslur yfir þeim 19
einstaklingum sem ríkisstjómir
aðildarríkjanna munu þá hafa til-
neíht í framkvæmdastjómina,
auk forsetans Prodis. Þessi tíma-
áætlun er háð því að ríkisstjóm-
irnar 15 hafi - í samráði við
Prodi - lokið við að velja þá sem
eiga að skipa næstu fram-
kvæmdastjóm íyrir 21. júlí, þeg-
ar nýkjörið Evrópuþing kemur
saman í fyrsta sinn eftir kosning-
ar í júrú.
Bandaríkjaforseti segir
loftárásir verða hertar
Spangdahlem, Röm. Reuters.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti hét því í gær að enn yrði hert á loftárásum
Atlantshafsbandalagsins (NATO) á Júgóslavíu. Slæm veðurskilyrði vora í
gærkvöldi ekki látin hamla árásunum og sprengjum varpað á skotmörk víðs
vegar um Júgóslavíu. Samtímis tóku drættir að skýrast í hugsanlegu sam-
komulagi Vesturveldanna og Rússlands um hvemig hægt sé að ná pólitískri
lausn á Kosovo-deilunni.
Öllum að óvörum heimilaði stjórn-
in í Belgrad Ibrahim Rugova, póli-
tískum leiðtoga Kosovo-Albana, að
fara tO Rómar, í þeim yfirlýsta til-
gangi að fá ítalska ráðamenn til að
hjálpa til við að miðla málum í deil-
Kosið í Skotlandi
Stefnir í
tap SNP
Edinborg. Reuters.
ALLAR líkur eru á því að
Verkamannaflokkurinn vinni
sigur í kosningum til nýs þings
Skotlands, sem fram fara í dag.
Skoðanakönnun, sem birt var í
The Scotsman í gær, sýndi að
Verkamannaflokknum mun lík-
lega takast nokkuð sannfærandi
að halda höfuðandstæðingi sín-
um, Skoska þjóðarflokknum
(SNP), frá völdum. Flokkurinn
fengi skv. könnuninni u.þ.b.
42% atkvæða, SNP um 30%,
íhaldsmenn 14% og frjálslyndir
demókratar 12%.
í dag fara líka fram sveitar-
stjórnarkosningar í Bretlandi
og Wales-búar kjósa sitt eigið
heimastj ómarþing.
■ Sjá umfjöllun á bls. 33
Rugova hittir ráðamenn í Róm
Rugova, sem var í stofufangelsi í
Belgi-ad, hitti þegar í gær Massimo
D’Alema, forsætisráðherra Italíu, og
utanríkisráðherrann Lamberto Dini.
Tveir bandarískir hermenn fórast
í fyrrinótt er Apache-hérþyrla
þeirra hrapaði við æfingar í Albaníu.
Þeir voru fyrstu liðsmenn Banda-
ríkjahers sem létu lífið í herfór
NATO gegn Júgóslavíu frá því hún
hófst fyrir sex vikum. Önnur
Apaehe-þyrla hrapaði fyrir rúmri
viku, en áhöfnin bjargaðist.
Það gerðist ennfremur í gær, að
stjórnvöld í Makedóníu lokuðu aðal-
landamærastöðinni við Kosovo.
Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóð-
anna grunar að farið sé að vísa
flóttamönnum til baka inn í Kosovo.
Makedóníustjórn hafði áður varað
við því að hún kynni að grípa til þess
ráðs að loka landamærunum, ef al-
þjóðasamfélagið léti ekki meiri hjálp
Reuters
BILL Clinton Bandaríkjaforseti snæddi með hermönnum í gærkvöldi í
bandarísku herstöðinni við Ramstein í Þýzkalandi. Þar hitti Clinton
hermennina þrjá, sem losnuðu úr haldi Serba fyrr í vikunni.
af hendi vegna þeirra 200.000 flótta-
manna sem þegar era í landinu.
Samtímis því að fréttist af lokun
landamæranna fjölgaði frásögnum
flóttamanna, sem nýkomnir era yfir
landamærin, af voðaverkum serb-
neskra vígamanna í Kosovo.
„Við munum halda þessari herför
áfram. Við munum herða á henni og
ekki unna okkur hvíldar fyrr en
markmiðunum er náð,“ sagði Clinton
í ávarpi sem hann flutti á herflug-
vellinum við Spangdahlem í Þýzka-
landi, þar sem hann stappaði stálinu
í bandaríska herflugmenn.
Utanríkisráðherrar átta stærstu
iðnríkja heims - G-8 hópsins svokall-
aða, en í honum era Bandaríkin,
Kanada, Þýzkaland, Bretland,
Frakkland, ítalia, Japan og Rúss-
land - koma saman til fundar um
pólitíska lausn Kosovo-deilunnar við
Bonn í Þýzkalandi í dag. Þetta er
fyrsti fundur hópsins frá því herfor
NATO hófst 24. marz sl.
Gerhard Schröder, kanzlari
Þýzkalands, sem fer með for-
mennsku í G-8 í ár, tjáði þýzka
þinginu að vesturveldin og Rúss-
land hefðu nálgast það mikið í af-
stöðu sinni til þess hvemig fara
skyldi að við að ná pólitískri lausn
deilunnar, að vænta mætti að fúnd-
urinn yrði árangursríkur.
■ Karlar skotnir/32