Morgunblaðið - 06.05.1999, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Þjóðarbókhlaðan
Áhugaljós-
myndarar í
Reykjavík
1950-70
Simon Armitag’e
aldamótaskáld
London. Morgunblaðið.
SIMON Armitage hef-
ur verið falið að yrkja
opinbera aldamóta-
drápu, sem flutt verður
við ýmis tækifæri í
haust, þegar aldamót-
unum verður fagnað,
og þá m.a. í aldamóta-
hvelfingunni, sem nú
rís í Greenwich. Simpn
Armitage kom til ís-
lands ásamt skáldbróð-
ur sínum Glyn Maxwell
fyrir tveimur árum og
fetuðu þeir í fótspor
Auden og MacNeice.
Afrakstur þeirrar ferð-
ar varð bókin Moon
Country, ferðasaga
með ljóðum, viðtölum og ýmsu efni.
Simon Armitage sagði á blaða-
mannafundi, þegar útnefning hans
var tilkynnt, að hann hefði í hyggju
að skrifa ljóð upp á þúsund línur og
hann myndi nota rím; annað hefði
hann ekki fast í hendi um þetta ljóð
ennþá. Ef allt væri með felldu, væri
þetta Ijóð á könnu lárviðarskálds
Breta, en nú skipar ekkert Ijóðskáld
það sæti eftir fráfall Ted Hughes.
Armitage hefur verið í hópi þeirra,
sem sagðir eru koma til greina, sem
næsta lárviðarskáld þótt ekki hafi
hann verið þar fremstur í flokki. En
hann er mjög vinsæll meðal yngra
fólks og hafa t.d. ungir skólanem-
endur nefnt hann til lárviðarskálds,
næst á eftir Seamus Heaney. Talið
er, að útnefningin sem aldamóta-
skáld geti komið Armitage til góða
varðandi sæti lárviðar-
skáldsins, en á blaða-
mannafundinum svar-
aði hann spumingum
þaraðlútandi á þann
veg, að aldamótadrápa
hans væri ekki umsókn
um starf lárviðar-
skáldsins.
Samningur Simon
Armitage sem alda-
mótaskálds er til sex
mánaða og fær hann
5000 pund að launum,
en ljóðinu skal hann
skila í október. Alda-
mótaljóðið mun koma
út á bók, en skipa sinn
sess í aldamótahvelf-
mgunm.
Bygginganefnd aldamótahvelf-
ingarinnar segir allt stefna í að
framkvæmdum verði lokið á til-
skildum tíma án allt of mikils auka-
kostnaðar og fi’amkvæmdanefnd
hátíðarinnar, sem vinnur hörðum
höndum að því að fá fyrirtæki til að
leggja fram fé, tilkynnti á dögunum
að nú vantaði aðeins 6 milljónir
punda til að ná því 150 milljóna
punda kostunarmarki, sem sett var.
Alls kyns ráðir og nefnd hafa verið
að skipuleggja sýningar og m.a.
verður sýnd kvikmynd, þar sem
Rowan Atkinson í hlutverki
Blackadder og Tony Robinson sem
þjónn hans Baldrick, munu fara á
kostum gegn um brezka sögu þess-
arar aldar með aðstoð margi-a ann-
arra þekktra leikara.
Simon
Armitage
ALFREÐ Alfreðsson,
Viðurkenning
stuðnings-
fyrirtækja
I.C. Art
I.C. ART (The Icelandic Art
Connection) veitti stuðningsfyrir-
tækjum sínum viðurkenningu á
dögnnum. Þau eru Gull- og silf-
ursmiðja Ernu, Þóra Sigurþórs-
dóttir, Gullsmiðja Hansínu Jen-
sen, Guðlaugur A. Magnússon,
TVG Zimsen, VÍS, Myndskjóðan,
Prentstofa Reykjavíkur, ís-
lenska útvarpsfélagið og G og G
veitingar.
I.C. Art hóf göngu sína í árs-
byrjun 1997, og er tilgangur fé-
lagsins að kynna og selja verk ís-
lenskra listamanna á erlendri
grund en fyrirtækið hefur aðal-
lega sinnt markaðsstörfum í Am-
eríku. A siðasta ári nam útflutn-
ingsverðinæti íslenskra lista-
verka rúmum 50 milljónum
króna, og gera áætlanir forráða-
manna I.C. Art ráð fyrir því, að
sú upphæð muni tvöfaldast á
þessu ári.
Sýningum lýkur
Listasetrið Kirkjuhvoll,
Akranesi
SYNINGU Jóhanns Maríussonar
og Zoran Kokotovic „Duus Straum-
ar“ lýkur nú á sunnudag.
Jóhann sýnir skúlptúra unna í tré
í bland með öðrum náttúruefnum,
s.s. gleri, málmi, steinum og bein-
um. Zoran sýnir grafíkmyndir, sem
hann vann eftir gömlum ljósmynd-
um frá Keflavík um síðustu alda-
mót, aðallega fólki í fískvinnslu og
nokkrum konumyndum.
Listasetrið opið daglega frá kl.
15-18.
---------------
Lesið úr
ljóðabókinni
Eftirkeimur
RITLISTARHÓPUR Kópavogs
lýkur vetrarstarfi sínu í dag
fimmtudag. Þá mun Kópavogs-
skáldið Steinþór Jóhannsson lesa úr
nýrri ljóðabók sinni í kaffistofu
Gerðarsafns. Bókin heitir Eftir-
keimur og er hún sjötta ljóðabók
skáldsins.
Dagskráin stendur frá kl. 17-18
og er aðgangur ókeypis.
---------------
Sýningum Kjar-
valsstaða lokað
SÝNINGUM á Kjarvalsstöðum
verður lokað frá kl. 14 á morgun,
fóstudag, vegna alþingiskosning-
anna. Þær verða opnaðar aftur kl.
10 á mánudagsmorgun. Leiðsögn
um sýningarnar fellur niður sunnu-
daginn 9. maí.
Morgunblaðið/Golli
talsmaður IC-Art, þakkar fulltrúum stuðningsfyrirtækjanna.
Vel heppnuð
frumraun
KVIKMYJVÐIR
Sambfðin
PERMANENT MIDNIGHT
★★★
Leikstjórn og handrit: David Veloz.
Byggt á samnefndri ævisögu Jerry
Stahl. Aðalhlutverk: Ben Stiller,
Maria Bello og Elizabeth Hurley.
Artisan Entertainment 1998.
JERRY Stahl afgreiðir hamborg-
ara þegar ung stúlka fær hann upp í
ból til sín. Þar sem þar er lítið ann-
að hægt að gera en að elskast og
tala, segir þessi fyrrverandi eftir-
sótti handritshöfundur í Hollywood
ástmeynni frá því hvernig honum
tókst að eyðileggja ferilinn með eit-
urlyfjaneyslu.
Þetta er frumraun Senior Veloz
sem leikstjóra, en hann er reyndur
handritahöfundur. Það er því
kannski engin tilviljun að hann fjalli
um einn slíkan í sinni fyrstu mynd,
hann ætti að þekkja vel til. Honum
hefur ekki bara tekist vel upp með
handritið sem er skemmtilegt og
hnitmiðað. Leikstjórnin er fín og
allar myndrænar úrlausnir í frá-
sögn vel til fundnar.
Það er í sjálfu sér ekki nýjasta
hugmyndin að gera mynd um eitur-
lyfjaneytanda. Veloz kýs að hafa
frásögnina alla mjög hógværa og
raunsæja, með léttu yfirbragði og
nær þannig auðveldlega til áhorf-
andans. Honum tekst að nýta sér
húmorinn til að gagnrýna og sýna
fram á fáránleika eiturlyfjaneyslu.
Þetta nær mjög auðveldlega til
áhorfandans.
Ben Stiller er mjög sannfærandi í
aðalhlutverkinu, þar sem hann sýn-
ir á sér margar hliðar og sannar að
hann er alvöru leikari.
Bara virkilega fín og skemmtileg
mynd.
Hildur Loftsdóttir
LJÓSMYNDASÝNING áhuga-
ljósmyndara í Reykjavík árin
1950-70 verður opnuð í anddyri
Þjóðai’bókhlöðunnar á morgun,
föstudag, kl. 17.30.
Helsti vaxtarbroddur listrænnar
ljósmyndunar á Islandi á árunum
1950-70 var meðal áhugaljósmynd-
ara í faginu, segir í fréttatilkynn-
ingu. Allnokkrir klúbbar voru
stofnaðir í þessu sambandi en þeir
helstir voru Litli ljósmyndaklúbb-
urinn, Ljósmyndafélag Reykjavík-
ur, síðar kallað Félag áhugaljós-
myndara, og Fótóklúbburinn Iris.
Félagsmenn þein’a héldu fundi
reglulega og ræddu myndir sínar.
Litli Ijósmyndaklúbburinn hafði
ákveðna sérstöðu hvað varðar
formlega uppbyggingu verkefna
sinna.
A sýningunni í Þjóðarbókhlöð-
unni getm- að líta bæði æfingar í
myndskurði og myndbyggingu sem
gefa ákveðna innsýn í hvað félagar
klúbbsins voru að glíma við í þess-
um efnum á sjötta áratugnum. Auk
ÚR MJÓLKURBÚÐ. Ljósmynd
eftir Ralph Hannam.
þessa eru á sýningunni myndir eft-
ir áhugaljósmyndara úr áðurnefnd-
um félögum, en þeir eru Freddy
Lausten úr Fótóklúbbnum írisi,
Gunnar Pétursson, Kristinn Sigur-
jónsson, Óttar Kjartansson og
Rafn Hafnfjörð úr Litla ljos-
myndaklúbbnum og Hjálmar R.
Bárðarson og Ralph Hannam úr
Félagi áhugaljósmyndara.
Sýningin er á vegum Mynddeild-
ar Þjóðminjasafns Islands og lýkur
28. maí.
Kvennaraddir
syngja
sumrinu lof
GrundarQörður. Morgunblaðið.
KVENNAKÓR Bolungarvikur var á túnleika-
ferð á Snæfellsnesi um síðustu helgi. Kórinn
hélt tónleika í Ólafsvíkurkirkju þann 30. aprfl
og í Grundarijarðarkirkju daginn eftir.
Efnisskráin var fjölbreytt, bar lit vorkom-
unnar en einnig var hluti dagskrárinnar helg-
aður konum. Kórinn tók líka þátt í 1. maí há-
tíðarhöldum í Grundarfírði, en var svo með
sjálfstæða tónieika í kirkjunni.
Grundfírðingar tóku sérlega vel á móti
kórnum og var mikil stemmning í Grundar-
íjarðarkirkju og kórinn klappaður upp aftur
og aftur.
Kvennakór Bolungarvíkur sem heldur ár-
lega tónleika sína á sumardaginn fyrsta í Bol-
ungai-vík, þótti tilhlýðilegt að leggja siðan
land undir fót á Snæfellsnes til að gleðjast yf-
ir vorkoinunni og ljúka vetrarstarfínu.
Stjórnendur kórsins eru þær Guðrún Bjarn-
veig Magnúsdóttir og Margrét Gunnarsdóttir.
Kynnir á tónleikunum var Soffía Vagnsdóttir.
Morgunblaðið/Karl
HVÍLDARSTUND Kvennakórs Bolungarvíkur í Grundarfjarðarkirkju.