Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ________________FRÉTTIR_____ Þrír símastrengir slitn- ir á einum sólarliring FJÖLDI símastrengja hefur farið í sundur á landinu undanfarna daga og valdið símasam- bandsleysi víða. í öllum tilvikum fóru strengirnir í sundur vegna framkvæmda á ákveðnum svæðum. Talsmaður Landssímans segir nauðsynlegt að framkvæmdaaðilar og verktakar afli sér upplýsinga um legu síma- strengja í jörðu svo komast megi hjá slíkum óhöppum. Svo óheppilega vildi til á þriðjudag að verktak- ar sem vinna að stækkun Kringlunnar grófu í sundur 200 lína streng við verslunarmiðstöðina. Af þeim sökum urðu tugir verslana símasam- bandslausir í um það bil þrjár klukkustundir. Pá gerðist það síðar sama dag að bóndi gróf í sundur símastreng á landareign sinni skammt frá Flúð- um. GSM-stöð á Langholtsfjalli fór við óhappið úr sambandi og einnig slitnaði samband við nokkra bæi. Símasamband komst aftur á snemma morguninn eftir. Verktakar afli sér upplýsinga Á þriðjudag fór einnig símastrengur í sundur vegna framkvæmda við Vesturlandsveg. Það tók starfsmenn Landssímans töluverðan tíma að fínna orsakir sambandsleysisins sem gætti hjá Tilraunastöð Háskóla íslands á Keldum. Síð- degis í gær var nýr símastrengur leiddur fram- hjá þessum framkvæmdum og verður notast við hann meðan á framkvæmdunum stendur. Ólafur Stephensen, forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála Landssímans, segir að komast mætti hjá óhöppum af þessu tagi ef verktakar öfluðu sér upplýsinga um legu símastrengja í jörðu. „P'ví miður er mikill misbrestur á því að menn kanni þessi mál áður en ráðist er í fram- kvæmdir. Við hvetjum verktaka eindregið til þess að afla sér upplýsinga og komast þannig hjá þeim óþægindum og kostnaði sem svona óhöpp valda. Hægt er að nálgast kort af legu síma- strengja í jörðu á teiknistofu Landssímans í Landssímahúsinu við Austurvöll,“ segir Ólafur. Barnapíur bregða á leik ÞÆR Aðalbjörg og Hörn voru að passa Rósu litlu á þriðjudaginn, en þá var blíðskaparveður og því kjörið að fara út og láta sólina skína aðeins á sig. Breitt var úr teppi á Miklatúni, farið úr skóm og brugðið á leik. Svo virðist sem Rósa sé hálf- undrandi á barnapíunum, enda æp- ir Höm undan kith vinkonu sinnar, sem er búin að koma sér 'vel fyrir og virðist ekki ætla að hætta leikn- um í bráð. Gert er ráð fyrir súld eða dálftilli rigningu vestantil á landinu í dag og einnig norðan- lands á morgun, en skýjað með köfhim suðaustan- og austanlands. Karlmaður áreitti stúlkubörn í Elliðaárdal Beraði kynfæn og leitaði á telpurnar FULLORÐINN karlmaður áreitti tvo átta ára gömul stúlkubörn í El- liðaárdal á mánudaginn sl. og sýndi kynfæri sín. Björgvin Björgvinsson lögreglufulltrúi hjá lögreglunni í Reykjavík segir að telpurnar hafi verið að leik í dalnum þegar þetta gerðist. „Hann leitaði á þær og bað þær að snerta sig og þar með er fremur um kynferðisbrot að ræða en blygðunarbrot," segir Björgvin. Stúlkurnar hlupu undan og til- kynntu þessa áreitni. Lögreglan í Reykjavík hefur nú málið til rann- sóknar, en viðkomandi hefur ekki náðst. Yfir 20 tilvik í fyrra Ómar Smári Armannsson aðstoð- aryfírlögregluþjónn í lögreglunni í Reykjavík segir að í fyrra hafi borist yfír 20 tilkynningar um áreitni af sama tagi þar sem böm urðu fyrir barðinu á einstaklingum með óeðli- lega sýniþörf. Sum þessara tilvika hafi verið kærð en önnur voru ein- vörðungu tilkynnt. Flest þessara tilvika hafí verið að vor- og sumarlagi og virðist að sögn Björgvins sem þeir sem hneigist til slíks athæfís komi aðallega fram á þessum árstíma. Hann segir fjóra gróðursæla staði innan borgarlandsins vera mest áberandi hvað þetta varðar, miðað við tilkynningar, Öskjuhlíð, Foss- vogsdal, Elliðaárdal og Laugardal. „Þeir virðast sækja í svæði þar sem þeir geta dulist. Við fengum talsvert margar tilkynningar um at- hæfi af þessu tagi í fyrrasumar. Með þessu fyrsta tilviki sumarsins er ástæða til að benda fólki á að halda vöku sinni.“ Böm hvött til varfæmi Björgvin segir mjög brýnt að öll slík tilvik séu tilkynnt lögreglu og hvetur fólk til að hafa sérstaka aðgát, ekki síst með tilliti til barna. „Það er mikilvægt að þessi dæmi séu tilkynnt, enda nauðsynlegt fyrir okkur að hafa vitneskju um þau. Þetta á líka við um þá sem verða vitni að þessu háttemi. Við hvetjum einnig foreldra til að brýna fyrir bömunum að láta ekld ókunnuga menn lokka sig eða reyna að hafa áhrif á sig,“ segir Björgvin. Ómar Smári segir lögregluna líta mál sem þessi mjög alvarlegum aug- um og leggja mikla áherslu á að hinir brotlegu náist. „Þeir sem þetta stunda þurfa oftast á einhvers konar meðferð að halda og það er einnig mikilvægt að við höfum hendur í hári þeirra til að auka líkur á að viðkomandi aðilar fái meðhöndlun við hæfí,“ segir Ómar Smári. Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær mann af ákæra um manndráp af gá- leysi með því að hafa ekið sendibif- reið sinni á gangandi vegfaranda sem lést af áverkum sínum eftir slysið, sem varð á Suðurgötu í Reykjavík árið 1997. Ekki þótti sannað að maðurinn hefði ekið of hratt miðað við að- stæður og var talið að hann hefði ekki haft tök á að afstýra slysinu. Morgunblaðið/Ásdís Fangelsisdómur fyrir ad hafa fé af aldraðri konu HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær 20 mánaða fangelsisdóm héraðs- dóms yfir 44 ára gömlum manni, sem sakfelldur var fyrir að hafa notfært sér bágindi aldraðrar konu sökum heilarýrnunar, einfeldni hennar og að hún hafi verið háð honum, til að hafa af henni rúmar 30 milljónir króna á áranum 1996-1997. Þá var ákærði ennfremur fund- inn sekur um að hafa fengið konuna til að gefa út yfirlýsingu, sem var viðbót í erfðaskrá, þess efnis að stæði eitthvað eftir af skuld ákærða við hana þá er hún félli frá skyldi skuldin falla niður að öllu leyti. Samkvæmt gögnum málsins tók konan á tímabilinu 11. aprfl 1996 til 3. febrúar 1997 átján sinnum út af einum bankareikningi sínum og einu sinni af öðram reikningi sam- tals 28,4 milljónir króna. Þá fékk ákærði hana til að afhenda við- skiptafélaga sínum 2,4 milljónir króna sem greiðslu upp í skuld ákærða við hann. Ákærði kannaðist við að hafa keyrt konuna í bankann þegar út- tektirnar fóra fram og hefði hún farið ein inn og hann beðið í bifreið- inni á meðan. Auk fangelsisrefsingar 1 héraði og í Hæstarétti var ákærði enn- fremur dæmdur til að greiða kon- unni alla þá fjárhæð sem hann var fundinn sekur um að hafa haft af henni. Spænski skip- verjinn ekki í lífshættu LÍÐAN spænska sjómannsins sem þyrla varnarliðsins sótti a Reykjaneshrygg í fyrrakvöld er eftir atvikum samkvæmt upplýs' ingum frá Landspítalanum. Mað- urinn veiktist um borð í togara sem hann er skipverji á og var óskað eftir tafarlausri hjálp. Hann mun ekki vera í lífshættu og eru veikindi hans raunar ekki talin mjög alvarleg. Þyrla vamarliðsins á Keflavíkur- flugvelli sótti manninn þar seW þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- LÍF, bilaði skömmu eftir flugtak, og lenti hún með manninn í Kefla' vík á þriðja tímanum í fyrrinótt- Þaðan var hann fluttur með sjúkra- bfl til Reykjavíkur. Bilun varð í sjálfstýringarbúnaði TF-Lífar, svo kölluðum „auto- pilot“. Viðgerð lauk um miðjan dag í gær og gekk reynsluflug sem far- ið var í kjölfarið að óskum. www.mbUs 32 SÍDUR i 16 SfiDUR j 4 SÍDUR • ••••••••••••••••••••••••••••••• ••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••« fRwgttttÞIafrtfe -------i TTTi n nFT.I i brúðkaupi BMafl m m KTtfa IBai I . * Bjarki Gunnlaugsson á ER HÆGT AÐ UNDIRBUA: ...... SIG FYRIR HJÓNABAND? i 11881 I l íslandsmeistaratitli / B2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.