Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 68
jþí)8 FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Álfasala í þágu ungra vímuefnaneytenda FÍKNIEFNA- NEYSLA hefur aukist mjög á síðustu árum og vandinn samfara henni að sama skapi marg- faldast. Nú er svo kom- ið að eiturlyf og neysla þeirra eru eitt stærsta heilsufarsvandamál sem heilbrigðiskerfið stríðir við. Fyrir utan beinan heilsuvanda þarf engum að blandast hug- ur um þær ógnir og sorgir sem fíknieíha- neysla veldur fíklunum og ekki síður hans nán- ustu. _ SÁÁ hefúr, á þeim 22 Laugavegi 60, sími 551 2854 árum sem samtökin hafa starfað, unnið af framsýni og krafti í baráttunni gegn vímu- eftium með öflugu for- vama- og meðferðar- starfi. SÁÁ hefur mikla og góða yfirsýn yfir starfsvettvang sinn og hafa samtökin verið ötul við að koma nauð- synlegum upplýsingum á framfæri og vekja fólk til meðvitundar um fíkniefnavandann. Þörfín er brýn Undanfarin ár hefur SÁÁ einkum beint sjónum sínum að ungu fólki, bæði hvað varðar forvamir og meðferð. Tölur um fjölda ungra fíkla sem sprauta sig í æð hafa sýnt versnandi ástand á síðustu áram. Fyrir utan það að sprautufíklar era langt leiddir af fíkniefnaneyslu eiga þeir á hættu að fá langvarandi og ólæknandi sjúkdóma eins og lifrarbólgu og alnæmi. Þörfin fyrir ný meðferðarúrræði og vamarstarf Aðsendar greinar á Netinu vÁ>mbl.is _A.LLTAf= &/TTH\SAÐ A/ÝTT Alfasala Þörfín fyrir ný með- ferðarúrræði fyrir ungt fólk er brýn, segir Sigurður Guðmunds- son, sem hvetur lands- menn til að styðja starf SÁÁ með því að kaupa Alfínn. íyrir ungt fólk er því brýn. Leiðin sem SÁÁ hefur farið er að hafa sérstaka meðferð íyrir ungt fólk og er hluti af þeirri stefnu SÁA bygging sérstakrar meðferðardeildar fyrir ungt fólk við sjúkrahúsið Vog. Álfurinn - fyrir unga fólkið Starfsemi SÁÁ byggist á velvild og fjárframlögum almennings og skiptir Álfasalan þar miklu. Álfa- sala SÁA er um helgina. Líkt og síðustu ár rennur ágóðinn til upp- byggingar á starfi SÁÁ í þágu unga fólksins. Því hvet ég lands- menn til að taka vel á móti sölu- mönnum ÁLfsins um helgina og styðja gott starf SÁÁ. Sá stuðning- ur er mikilvægur. Hufundur er landlæknir Sigurður Guðmundsson Mörghundruð ára reynsla frænda okkar Færeyinga af sjósókn á hafinu umhverfis okkur og bátasmíðum endurspeglast í einstakri hönnun AWI bátanna. AWI smábátarnir eru afrakstur þekkingar og reynslu og eiga sér vart hliðstæðu hvað varðar sjóhæfni og endingu. Atlas Borgartúni 24,105 Reyk|ayík Síml: 5621155, Fax: 561 6894 Aðalvélar Beitningavélar Skrúfubúnaður Bógskrúfur Lensiskiljur Skipakranar Ljósavélar Bílkranar Ræsiloftspressur Togvindur Vindustjórnkerfi Lensidælur Sjódælur Snigildælur Olíudælur Girar Varahlutir Skipaviðgerðir Þjónusta Ráðgjöf Styðjum SAA - kaupum Álfínn SÁÁ hefur í 22 ár unnið merkt starf í þágu Islendinga sem að mínu mati er mesta þjóðþrifaverk sem unn- ið er fyrir íslensku þjóðina. Fáir gera sér fyllilega grein fyrir því gífurlega mikilvæga starfi sem fram fer inn- an veggja hjá SAÁ SÁÁ hjálpar mönn- um að takast á við eigin veikleika og gera líf þeirra og fjölskyldna þeirra þess virði að lifa því. Mikið hugrekki þarf til að viðurkenna að ekki sé allt í lagi. Slíka ákvörðun verður að virða þar sem hún ber vott um mikinn kjark og þor; ákvörðun um að taka ábyrgð á sjálfum sér; taka ábyrgð á fjölskyldu sinni og velferð henn- ar. I þessu sambandi er vert að hafa í huga að það er sama hversu slæmt það er í byijun - það mun alltaf batna. SÁA á í því stóran þátt sem ekki verður ofmetinn. Mikilvægi forvamarstarfs Áherslan sem SÁÁ hefur lagt á ungt fólk og forvamarstarf er lofs- verð. Sýnt hefur verið fram á að eftir því sem áfengisneysla hefst fyrr á æviskeiðinu því meiri líkur eru á misnotkun vímuefna. Ung- lingadrykkja er alltof algeng og sorglegt það umburðarlyndi sem ríkir gagnvart henni í þjóðfélaginu. Gott fjölskyldulíf og íþróttaiðkun ásamt fræðslu hefur íyrirbyggj- andi áhrif. Sá aðili hér á landi sem hefur mesta reynslu af forvama- starfi er SáÁ sem hefur starfrækt sérstaka forvamadeild. Starf henn- ar er öflugt og vel skipulagt. SÁÁ hefur auk þess á undanfömum ár- um veitt skólum, íþróttafélögum og sveitarfélögum aðstoð við upp- byggingu forvamastarfs. Kaupum Álfinn! Því miður er ekki allt ungt fólk jafn lánsamt að geta geng- ið hinn gullna meðal- veg. Því hefur SAÁ, af brýnni þörf, ráðist í uppbyggingu sér- stakrar deildar iyrir ungt fólk á sjúkrahús- inu Vogi. Byggingin hófst í vetur og er áætlað að henni verði lokið í nóvember. I nýju byggingunni verða rúm fyrir 12 ungmenni. Starfsemi forvama- deildar SÁÁ og uppbygging með- ferðarstarfs byggist á fjáröflun meðal íslensku þjóðarinnar. Ágóð- inn af hinni árlegu Álfasölu SÁA Álfasala Áherslan sem SÁÁ hef- ur lagt á ungt fólk og forvarnarstarf er lofs- verð, segir Guðjón Þórðarson, sem hvetur Islendinga til að styðja ---------7—7----------- starf SAA og kaupa Álfinn um helgina. skiptir þar mestu. Álfasalan verður um næstu helgi. Ég vona að fólk taki vel á móti Álfasölumönnum um helgina og leggi mannbætandi starfi SÁÁ lið með því að kaupa Álfinn. Höfundur er landsliðsþjálfari í knatlspymu. Guðjón Þórðarson Opið hús í dag! Árkvörn 2, ÁrtúnsHolti Mjög björt og góð 2ja herb. 67 fm íbúð á 1. hæð (beint inn). Sérinngangur, lítið áhvílandi, bílskúr fylgir með. Garður í suður. Frábær staðsetning. Áhvílandi húsbréf 3,9 millj. Verð 7,8 millj. Kristinn og Hildur taka á móti þér og þínum í dag á milli kl. 14 og 16. Gimli fasteignasala, Þórsgötu 26, sími 552 5099. 7 gíra kvenreiðhjól hlaðið öllum búnaði Litir: Vínrautt eða grænt Bremsur: Fót- og handbremsa Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKINN Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Símí; 540 7000 »>DBS« Verð kr. 49.900,- (j/assio citi// <|> mbUs _ALLTAf= eiTTHVAÐ PJÝTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.