Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÓLAFUR Baldvinsson, eigandi
fyrirtækjanna.
Morgunblaðið/Júlíus
MESTUR eldur var í vesturhluta hússins en húsið er að mestu leyti ónýtt.
Tugmilljóna tjón í eldsvoða á Smiðjuvegi
Starfsmaður var í lífshættu
EINN starfsmaður Barnagamans og
Pólýhúðunar á Smiðjuvegi 4 var í
lífshættu þegar mikill eldur breidd-
ist hratt út um vinnustaðinn um eitt-
leytið í gærdag. Starfsmaðurinn var
staddur á efri hæð hússins og átti í
erfíðleikum með að fínna útgöngu-
leið vegna reykjarkófs. Ólafur Bald-
vinsson, eigandi fyrirtækjanna, segir
að tjónið nálgist 100 milljónir króna
og óvíst sé að hve miklu leyti trygg-
ingar bæti skaðann.
I fyrirtækjunum var rekin járna-
húðun, leikfangaframleiðsla fyrir
leikskóla ásamt lakkhúðun á tréhús-
gögnum. Svo virðist sem eldurinn
hafi komið upp í hitaofni sem brennir
lakk á jámhluti og náði hann að
magnast upp i mikið eldhaf á afar
skömmum tíma.
Ólafur Baldvinsson, eigandi fyrir-
tækjanna, var í hópi fjölmargra veg-
farenda sem fylgdust með eldhafinu.
„Ég var héma fyrir utan þegar eld-
urinn kom upp. Þegar ég kom inn
lagði mikinn reyk úr stómm bökun-
arofni. Um leið og ég opnaði hann
stóð loginn út úr honum. Ég get
ómögulega skýrt það hvers vegna
eldur kemur upp í ofninum. Það var
einn maður í húsinu í mikilli lífs-
hættu uppi á millilofti. Það tókst að
ná honum út á síðustu stundu,“ sagði
Ólafur.
Húsið alelda þegar vatnið þraut
Hann sagði að slökkviliðið hefði
verið komið á staðinn 4-5 mínútum
SLÖKKVILIÐSMENN lögðu sig alla fram í baráttunni við eldinn.
eftir að eldurinn kom upp. „Þeir náðu
nokkmm tökum á eldinum en svo
urðu þeir vatnslausir í a.m.k. fimmt-
án mínútur og á meðan varð húsið al-
elda á ný. Ég hef enga skýringu feng-
ið á vatnsskortinum," sagði Ólafur.
Allt sem í húsinu var er gjörónýtt.
Ólafur sagði að tækjabúnaðurinn
væri metinn á 40-50 milljónir kr.,
lagerinn á 20-25 milljónir kr. svo er
það húsið sjálft sem virðist vera
ónýtt. „Ég er logandi hræddur um að
tryggingar séu ekki nærri nógu góð-
ar,“ sagði Ólafur.
Sigurður Jóhannsson, starfsmaður
þjá Bamagaman, var inni í húsinu
þegar eldurinn kom upp í því vestan
megin. „Við voram allir við vinnu, um
SIGURÐUR Jóhannsson, starfs-
maður Barnagamans.
fimm manns, og einn var uppi á kaffí-
stofu fyrir ofan hitaofninn. Hann
komst út við illan leik. Það blossaði
strax upp eldhaf og það sá ekki
handa skil. Fyrsta hugsun var sú
hvemig maðurinn kæmist þarna nið-
ur þvi reykurinn var svo þykkur,“
sagði Sigurður.
Jón Viðar Matthíasson vara-
slökkviliðsstjóri segir að samtals hafí
sjö slökkvibílar verið á staðnum þeg-
ar mest var auk körfubíls. Mikill eld-
ur var í vesturenda hússins þegar að
var komið og einbeitti slökkviliðið sér
að því að verja tvær sambyggðar
byggingar fyrir eldinum. Jón Viðar
segir að það hafi teldst þótt reyk-
skemmdir hafi orðið þar. Erfiðleikum
hafi verið bundið að ná vatni og hafí
vatnsskortur hamlað slökkvistarfinu.
Bæði sé ívið of langt á milli vatns-
hana í þessu hverfi Kópavogs og
sömuleiðis grannar lagnir. Hann seg-
ir að sprengingar hafi verið í húsinu
og af og til hefði eldurinn blossað upp
á ný, sem líklega megi rekja til þess
að kútar með leysiefnum spmngu.
Jón Viðar segir að ekki hefði
reynst unnt að bjarga húsinu þótt að-
gangur að vatni hefði verið greiðari.
„Húsið var mjög illa farið strax í upp-
hafi, sérstaklega í vesturenda þess.
Greiðari aðgangur að vatni hefði ekki
skipt sköpum,“ segir Jón Viðar.
Serm
Stæröir
36-47
lar kr. 3.900
*} Ropí áfife
Sendið mér nýja
sumarlistann:
Nafn:
Heimilisfang:
Sendið úrklíppu eða hringið til:
Útivistarbúðarinnar,
Laugavegi 25,101 Reykjavfk.
Stæröir
36-47
kr. 4.980
S?OTT
m0L E I G A N I
ÚTIVISTARBÚÐIM
vlðUmferðarml&töðna
tmi!invRiiif!i síitnsöi nnnh
Sími: 551 9800
Fékk sænsk verkfræðiverð-
laun fyrir lokaverkefnið
LOKAVERKEFNI sem Jón
Ingvi Árnason verkfræðingur
vann við Danska tækniháskól-
ann, DTU, í samstarfí við
sænskan verkfræðinema, hefúr
verið valið til verðlauna af
sænska verkfræðingasamband-
inu, Civilingenjörsförbundet.
Verðlaunin, sem afhent voru
fyrir skömmu, nema um 174
þúsund íslenskum krónum, sem
skiptust milli Jóns Ingva og
samstarfsmanns hans við verk-
efnið, Claes G. Eskilsson við
Tækniháskólann Chalmers í
Gautaborg. Verðlaunin, sem
nefnast Lilla Polhemspriset,
hafa ekki áður verið veitt út-
Iendingi.
Jón Ingvi og Claes gerðu Iík-
an af flóðinu á Skeiðarársandi
árið 1996 og jafnframt reikn-
uðu þeir út hvað myndi gerast
ef ákveðin stífla brysti á há-
lendinu. Seinna verkefnið var
unnið fyrir og í samstarfí við
Landsvirkjun.
Framsetningu hrósað
„[Claes] var skiptinemi í DTU
í einn vetur og við vorum mikið
í sömu námskeiðum og unnum
mikið saman. Við höfðum sama
áhugamál í náminu, vildum báð-
ir skoða stíflubresti og flóð í
ám,“ segir Jón Ingvi. „Við vörð-
um síðan verkefnið bæði í
Gautaborg og Kaupmannahöfn.
í umsögn dómnefndar segir
að aðferðafræði þeirra Jóns og
Claes hafí verið vandlega hugs-
uð og tekist hafí verið á við
verkefnin og þau skilgreind á
verkfræðilegan hátt. Framsetn-
ingu efnisins er einnig hrósað,
hún hafi gert það að verkum að
verkefnið sé skiljanlegt fleirum
en sérfræðingum á þessu sviði.
Niðurstöðurnar hafi verið ítar-
lega ræddar og jafnframt
áframhaldandi þróun aðferðar-
innar.
Jón Ingvi söðlaði um að loknu
námi og starfar nú að forritun
og þróun Qarskiptatæknimála
fyrir Netman, danskt dótturfyr-
irtæki tölvurisans Compaq.