Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 92

Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 92
Aðsendar greinar á Netinu MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Tuga milljóna tjón í eldi Iðgj aldagreiðslur LÍtí til VSÍ hækka TALIÐ er að tjónið sem varð í eldsvoða í fyrirtækjunum Barnagamni og Pólýhúðun á Smiðjuvegi í gær nemi allt að 100 milljónum kr. Allt tiltækt slðkkvilið var kallað á staðinn. Starfsmaður fyrirtækjanna var í hættu staddur á kaffístofu á millilofti en það tókst að bjarga honum á síðustu stundu. Eldurinn kom upp um eitt- leytið í gær og magnaðist á örskotsstundu. Þegar slökkvi- lið kom á staðinn logaði upp úr þaki í vesturhluta hússins. Var lögð áhersla á að koma í veg fyrir útbreiðslu eldsins í við- byggingar og tókst það. Olafur Baldvinsson, eigandi fyrirtækjanna, segir að tjón á húsi, tækjabúnaði og lager nálgist 100 milljónir króna. Hann segir að vatnsskortur hafi háð slökkvistarfinu í a.m.k. fimmtán mínútur og á meðan haf! húsið orðið alelda. Jón Viðar Matthíasson vara- slökkviliðssljóri segir að ekki hefði tekist að bjarga húsinu þótt aðgangur að vatni hefði verið greiðari. Húsið hafi verið illa farið þegar að var komið. ■ Starfsmenn/6 SJÁVAR ÚTVEGSFYRIRTÆKI, sem aðild eiga að LIU, munu greiða iðgjöld til Samtaka atvinnulífsins sem hlutfaO af heildarlaunum sjó- manna, en ekki sem hlutfall af kaup- tryggingu þeirra eins og verið hefur. Iðgjald til samtakanna mun hins vegar lækka úr 0,34% niður í 0,21% og hefur það þá lækkað um helming á tíu árum. Aðalfundur VSI samþykkti í gær tillögu um stofnun Samtaka atvinnu- lífsins í haust, en aðild að þeim munu eiga m.a. Vinnumálasambandið og Samband íslenskra viðskiptabanka. Fyrirtæki sem aðild eiga að Vinnu- málasambandinu munu kaupa sig inn í vinnudeilusjóð VSÍ með tæp- lega 11 milljóna eingreiðslu. I sjóðn- um eru núna tæplega 1.200 milljónir og hefur sjóðurinn vaxið um einn milljarð á tíu árum. Meðal nýmæla í skipulagi SA er að gert er ráð fyrir að fyrirtæki geti fengið aðild að samtökunum án þess að framselja þeim umboð til að gera kjarasamninga. Þórarinn V. Þórar- insson, framkvæmdastjóri VSI, segir að áhugi hafí komið fram hjá fyrir- tækjum í hugbúnaðargerð á að fá að- ild að SA án þess að framselja um- boð til kjarasamningagerðar og sjálfsagt sé að koma á móts við þessi sjónarmið. Laun í hugbúnaðarfyrir- tækjum lúti ekki sömu lögmálum og laup í fyrirtækjum almennt. Á aðalfundinum lýsti Davíð Odds- son forsætisráðherra því yfir að sala á Landssíma og ríkisbönkunum gæti verið mikilvægur hluti aðgerða til að auka sparnaðí þjóðfélaginu. Ólafur B. Ólafsson, framkvæmda- stjóri VSÍ, gaf þá yfirlýsingu á fund- inum að VSI myndi við gerð næstu kjarasamninga leita eftir nýjum lausnum á fyrirkomulagi fæðingar- orlofs þannig að greiðslur tækju mið af tilteknu hlutfalli reglubundinna launa. ■ Starfsmenn/12 ELDTUNGUR stóðu út úr húsinu þegar að var komið. Morgunblaðið/Júlíus Spáð auknum verðbólgu- þrýstingi VÍSITALA neysluverðs miðað við verðlag hefur undanfarna þrjá mán- uði hækkað um 1,5% sem jafngildir 6,2% verðbólgu á ári, að sögn Hag- stofu Islands. Hún birti í gær niður- stöður könnunar sem gerð var í byrj- un maímánaðar á verðlagi þá. Hækkunin frá fyrra mánuði var 0,5% og er vísitalan nú 187,3 stig. Matvæli höfðu í maíbyrjun hækkað um 1%, fatnaður og skór um 2,5% og bensín ogplía um 2,1%. Birgir Isleifur Gunnarsson seðla- bankastjóri segist aðspurður ekki telja ástæðu til ótta þrátt fyrir þess- ar tölur í maí. Hins vegar horfi málið öðruvísi við ef framhald verði á þess- ari þróun næstu mánuði. Ymislegt valdi því að vísitalan sé að jafnaði hærri- í maí en ella, það hafi hún einnig verið í fyrra. Hafa beri í huga að vorútsölur séu nú búnar en þær valdi verðlækkunum á fatnaði. Einnig hafi erlent grænmeti nú orðið að þoka fyrir innlendu sem er dýrara og þrýstir verðlagi upp. Áðspurður um gengið, sem hefur sigið nokkuð síðustu mánuði, segii- Birgir ísleifur að líklegt sé að að- dragandi kosninga hafi eins og alltaf haft neikvæð áhrif á gengið, óvissa sé slæm fyrir gengi gjaldmiðla. ■ Verðbólga gæti aukist/C2 Fiskrétta- verksmiðja á Rif FYRIRHUGUÐ er stofnun fiskréttaverksmiðju á Rifi á Snæfellsnesi og er áætlað að framleiðsla hefjist í verksmiðj- unni í haust. Áð stofnun verk- smiðjunnar standa Humall ehf., Frostfiskur ehf., Klumba ehf. og Hraðfrystihús Hellissands. Verksmiðjan tekur við rekstri Humals ehf. og heldur áfram þeirri framleiðslu sem Humall hefur staðið að undanfarin ár, auk þess sem áhersla verður fögð á frekari þróun fiskrétta. Stofnað hefur verið félag um rekstur verksmiðjunnar og er nú unnið að frekari undirbún- ingi. Þegar hafa verið fest kaup á húsnæði á Rifi sem hýsa mun starfsemina. ■ Tekur til starfa/30 EFTA-dómstóllinn gefur álit fyrir Hæstarétti Islands í máli Fagtúns Skilyrði um íslenskar þak- einingar ekki réttlætanlegt EFTA-dómstóllinn í Lúxemborg telur í ráðgef- andi áliti sínu að ekki sé unnt samkvæmt EES- samningnum að réttlæta skilyrði sem byggingar- nefnd Borgarholtsskóla í Reykjavík setti um að nota skyldi íslenskar þakeiningar við byggingu skólans. Nefndin fór fram á þetta við lægstbjóð- anda þegar gengið var frá verksamningi við hann. Hæstiréttur Islands óskaði eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins vegna máls sem Hæsti- réttur hefur til meðferðar en áfrýjandinn, Fag- tún ehf., sem átti lægsta tilboð í byggingu Borg- arholtsskóla, gerði ráð fyrir að við verkið yrðu notaðar einingar sem fyrirtækið flytur inn frá Noregi. Dómstóllinn taldi að ákvæði í opinberum verk- samningi sem tekið er upp í samninginn að kröfu samningsyfirvalds eftir að útboð hefur farið fram, þ.e. að nota skyldi íslenskar þakeiningar, feli í sér ráðstöfun sem hefur samsvarandi áhrif og magntakmarkanir á innflutningi en 11. grein EES-samningsins bannar slíkar magntakmark- anir. Telur dómstóllinn slíka ráðstöfun ekki rétt- lætanlega en samkvæmt 13. gr. EES-samnings- ins geta takmarkanir verið lögmætar vegna mik- ilvægra sjónarmiða svo sem um vemd lífs og heilsu manna. Þá taldi dómstóllinn ekki skipta máli að skil- yrði um smíði þakeininga innanlands var ekki sett fram fyrr en að því kom að ganga frá verk- samningi þar sem ekki yrði skilið á milli útboðs- ins sjálfs og samningsgerðarinnar. Akvæðið væri talið til þess fallið að koma í veg fyrir að innflutt- ar þakeiningar yrðu notaðar og fæli því í sér tak- markanir á viðskiptum í skilningi áðumefndrar 11. greinar. Ekki búið Að sögn Jakobs R. Möllers lögmanns Fagtúns ehf. er dómsmálið sem er til meðferðar hjá Hæstarétti ekki búið þótt álit EFTA dómstóls- ins sé komið, því áfrýjandi á eftir að sýna fram á það fyrir Hæstarétti að hin ólögmæta aðgerð byggingarnefndar Borgarholtsskóla hafí valdið áfrýjanda tjóni og hversu mikið það tjón var. „Ur þessu mun Hæstiréttur skera auk þess sem Hæstiréttur mun skera úr um það hvaða stöðu álit EFTA dómstólsins hefur fyrir íslenskum dómstóli,“ segir Jakob.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.