Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 43 LISTIR ABBA þegar sveitín var upp á sitt besta. ANDREW Langtre og Lisa Stokke, sem er norsk, eru nýgræðingar á sviði í West - End. ar tilfelli, þar sem hlutverk Sophie er stærra. En hún hefur sakleysi æskunnar með sér. I stuttu máli sagt, er Mamma mia dúndurgóð skemmtun. Það leyndi sér ekki á þeirri sýningu, sem ég sá, að áhorfendur voru vel með á nótunum og kunnu sína texta. Brezk kona við hliðina á mér söng hástöfum með alla sýning- una og Svíarnir fyrir aftan mig þekktu ABBA eins og handarbökin á sér. Mamma mia hefur hlotið geysigóðar viðtökur og er mér sagt, að uppselt sé á all- ar kvöldsýningar fram í júní. En það eru líka síðdeg- isssýningar á fímmtudögum, föstudögum og laugardög- um, sem hægt er að fá miða á, sérstaklega fimmtudags- sýningamar. enny Anderson og Bjom Ul- vaeus hittust fyrst 1968. Þeir vom þá hvor í sinni hljóm- sveitinni, en það var hljómsveitar- stjórinn og framleiðandinn Stig „Stikkan" Anderson, sem leiddi þá saman. Arið eftir kom Bjom fram í sjónvarpsþætti, þar sem Agnetha Faltskog kom líka fram og tókust með þeim nánari kynni. Um líkt leyti kynntist Benny norskri stúlku, Anni- Frid Lyngstad og þegar þau tóku saman, var kvartettinn kominn á koppinn. 1970 komu þau fyrst fram á veitingahúsi í Gautaborg undir nafn- inu Trúlofuðu pörin. Stig Anderson byrjaði að nefna þau með upphafs- stöfum þeirra, en um ABBA-nafnið varð hann svo að semja við sænska fyrirtækið ABBA, sem ég merkti í æsku á tunnubotna á síldarplani í Siglufírði, en niðursuðufyrirtækið Aktiebolaget Brödrene Amen (ef ég man nafnið rétt (sem keypti þá sfld af Skafta á Nöf, féllst á, að hljóm- sveitin fengi að nota nafnið, ef hún hagaði sér vel! Og þá var ekkert því til fyrirstöðu að halda til Englands og syngja Waterloo til sigurs. Síðan rak hvert lagið annað og vel- gengnin jókst með hverju þeirra. ABBA varð raunverulegt heims- veldi. Einhvers staðar sá ég, að hljómsveitin hefði verið næststærsti útflytjandi sænskur á eftir Volvo. En þótt allt blómstraði út á við komu brestir í innviðina og þegar kom fram á árið 1981 voru bæði hjóna- böndin fyrir bí. Benny og Bjom hafa unnið áfram saman og í sundur líka. Þeir sömdu m.a. söngleikinn Skák (Chess) með Tim Rice. Sá söngleikur var frum- sýndur í London 1986 og það var framleiðandi hans, Judy Craymer, sem átti hugmyndina að söngleik með ABBA-lögunum. Þeir Benny og Bjorn sömdu líka sænskan söngleik um Kristínu frá Duvemaala, og hafa einnig unnið saman að ýmsum hljóm- sveitarverkum. Stúlkumar fóm að syngja hvor í sínu lagi; Agnetha til 1986 og hún kvaddi sér aftur hljóðs tíu ámm síðar með ævisögu sinni, og Frida söng síðast inn á plötu 1996. 011 giftust þau aftur og em gift, nema Agnetha. Og öll búa þau í Sví- þjóð, nema Frida, sem býr í Sviss. n ABBA-lögin hljómuðu áfram, þótt hljómsveitin væri þögnuð. Og þau reyndust lífseig, dag eftir dag, ár eftir ár - alltaf einhvers staðar skutu þau upp kollinum. 1992 ákvað PolyGram að gefa út ABBA Gold með nítján vin- sælum lögum og í Ástralíu, þar sem ABBA var reyndar alltaf mjög vin- sæl, kom fram hljómsveitin Bjorn Again og tónlist ABBA var tekin upp í kvikmyndir, m.a. Brúðkaup Muriel, sem varð mjög vinsæl. Og eftir ára- tug baksviðs hljómuðu ABBA-lögin nú aftur um heimsbyggðina af full- um krafti. Eiginlega má segja, að vegur laganna hafí vaxið aftur þenn- an áratug í líkingu við það sem gerð- ist á þeim áttunda. Það hlaut þvi að koma að því, að þessi lög rötuðu upp á söngleikasvið í West End. Bjom er meðframleiðandi að Mamma mia og eru það að hans sögn fyrstu afskipti hans af ABBA-tónlist í nærri 20 ár. Þeir Benny voru báðir viðstaddir frumsýninguna í London. Kemur ABBA aftur saman? spurðu menn. Nei. Ekkert þeirra langar til þess. Þau búa ekki lengur yfir þeim glaðlega krafti, sem var aðalsmerki ABBA. Án hans yrðu þau hjóm eitt. En þessi glaðværi kraftur hljómar áfram í lögunum. „Stundum þegar ég er á göngu,“ sagði Bjorn, „heyri ég tónlist einhvers staðar. Og þótt ég heyri kannski ekki lagið, bara hljóm- inn, þá veit ég, að þetta eru lögin okkar.“ Líttu vel út Há kommóða: 50.550,-. Spegill: 17.490,-. Breið kommóða: 63.390,-. Náttborð: 28.680,-. Höfðagafl Queen Size: 27.140,- King Size: 35.510,- Há kommóða: 52.740,-. Spegill: 19.130,-. Breið kommóða: 66.940,-. Náttborð: 28.140,-. Höfðagafl Queen Size: 24.580,- King Size: 30.140,- Há kommóða: 46.450,-. Spegill: 16.390,-. Breið kommóða: 65.580,-. Náttborð: 26.780,-. Höfðagafl Queen Size: 21.850,- King Size: 27.310, Há kommóða: 59.980,-. Spegill: 27.330,-. Breið kommóða: 69.980,-. Náttborð: 31.430,-. Höfðagafl Queen Size: 32.790,- King Size: 40.980,- Glæsileg Amerísk svefnherbergishúsgögn. Sérlega vönduð og mikil prýði fyrir heimilið. Fallegar kommóður, höfðagaflar og rúm, sem henta mjög vel fyrir hinar frábæru SERTA dýnur. Láttu það eftir þér að gera svefhherbergið að sannkölluðu draumalandi. Við bjóðum íjölbreytt úrval og tökum vel á móti þér. Há kommóða: 51.370,-. Spegill: 19.130,-. Breið kommóða: 59.290,-. Náttborð: 27.150,-. Höfðagafl Queen Size: 28.680,- King Size: 39.610, HÚSGAGNAHÖLLIN 112 Reykjavík, sími 510 8000 Draumaheimur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.