Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 55 kom inn heima hjá sér voru þessi fallegu orð: Rósa mín, hvar ertu rós- in mín. í dag kveðjum við þig elsku mág- ur og biðjum guð að gefa Rósu og börnum ykkar, bamabörnum og tengdabörnum styrk á þessari sorg- arstund. Hvíldu í friði. Ema Sigurbergsdóttir, Erla Sigurbergsdóttir. Eitt af því sem einkenndi upp- vaxtarár okkar sem fæddumst inn í Skófjölskylduna, voru mjög sterk fjölskyldubönd. Að minnsta kosti meðan við vorum að alast upp. Mæður okkar, systurnar Rósa, Gunna, Erla og Erna, dætur Sigur- bergs skóara, höfðu misst móðir sína þegar þær voru á barnsaldri og hafði sá atburður þjappað þeim saman með óvenjulega sterkum hætti. Með reglulegu millibili hittust fjölskyldurnar fjórar við ánægjuleg tímamót, á jólum og öðmm hátíðar- stundum. Pess á milli vai- samgang- ur mikill og við krakkarnir nutum þess að eiga mörg frændsystkin og félaga. Sem börn urðum við þess snemma áskynja að í okkar sam- hentu og lífsglöðu stórfjölskyldu var einn einstaklingur sem greinilega var dálítið sér á báti. Feður okkar kölluð hann doktorinn. Doktorinn gerði þetta og doktorinn sagði hitt og doktorinn hafði þetta svona. Mæður okkar kölluðu hann alltaf Gunnar mág, enda eiginmaður elstu systurinnar. Og allt sem um hann var sagt bar þess greinilega merki að hann naut mikillar aðdáunar í hópnum og verðskuldaðrar virðing- ar allra sem heilsteypt manneskja og glaðbeittur félagi. Þegar við uxum úr grasi og kynntumst Gunnari betur kom í ljós að þessi störfum hlaðni læknir og vísindamaður var skemmtilega mannlegur og notalegur. Gunnar gaf sér nefnilega tíma til þess að gefa sig að hverjum einstaklingi með athygli. Hann var fljótur að fínna út áhugamál hvers og eins og gefa sér tóm til þess að ræða við okkur af áhuga um allt milli himins og jarðar, jafnvel fánýta hluti, rétt eins og um sérlega mikilvæg mál væri að ræða. Á unglingsárunum urðu umræðuefnin flóknari eins og gengur, og voni þær ófáar ræðurn- ar sem hann hélt yfir okkur um póli- tík og þjóðfélagsmál, sem ætíð voru honum hugleikin. I þeim efnum fengum við notið þeirrar leiftrandi greindar og persónutöfra sem Gunnar bjó yfir, þó svo að við höfum ekki alltaf verið honum sammála. Enda sjaldan lognmolla kringum slíkar umræður. Frá því að ég kom fyrst til Rósu og Gunnars sem krakki á Lokastíginn hefur mér ætíð þótt heimili þeirra eitt það fal- legasta sem ég hef komið inn á. Bæði vegna smekkvísi og þess and- nlmslofts sem þeirra gagnkvæma traust og góða hjónaband mótaði innan veggja heimilisins. Líf þeiira saman hefur verið farsælt, við- burðaríkt og í alla staði okkur öllum traust fyrirmynd. Þegar við frændsystkinin komumst á fullorðins aldur og hóf- um okkar eigin lífsbaráttu í amstri daglega lífsins riðluðust eðlilega hin sterku bönd stórfjölskyldunnar frá æskuárunum. Og núna stöndum við mörg á miðjum aldri. En þá hefur komið í ljós við margs konar tíma- mót, erfiðleika og áfoll á undanfór- um árum hversu þýðingarmikill grunnur stórfjölskyldunnar er og hversu raunverulega stutt er milli okkai- allra í tilfinningalegum skiln- ingi. JXXXXXJflIIIIIJLXXJLj H H H H H H H H Erfisdrykkjur PERLAN Sími 562 0200 ixixiiiiiiiiiiix! Við andlát Gunnars Guðmunds- sonar er horfinn úr okkar hópi sá einstaklingur sem líkleg hefur gefið mest af sér til okkar allra. Ekki hvað síst til mæðra okkar. Þá ekki eingöngu sem vinur, heldur ekki hvað síst sem fyrirmynd. Það var gæfa okkar allra, og viss forréttindi, að fá að kynnast Gunnari á þennan hátt. Ekki sem mikilhæfum lækni og vísindamanni, heldur hinum glaðbeittu og heilsteyptu persónu- töfrum hans. Elsku Rósa frænka, megi guð vera með þér og þínum á þessum erfiðu tímamótum. Einar Páll Svavarsson. Á kveðjustund koma upp í hug- ann hlýjar minningar um vin okkar Gunnar Guðmundsson prófessor. Um hann eigum við systkinin góðar minningar frá fyrstu tíð. Faðir okk- ar, Ólafur Jensson, tengdist Gunn- ari sterkum vináttuböndum þegar þeir voru ungir námsmenn og lásu saman við læknadeild Háskóla Is- lands. Til er ljósmynd af þeim vin- unum frá því er þeir voru við fram- haldsnám í Bretlandi. Þeir standa hlið við hlið fyrir utan sameiginlegt heimili fjölskyldnanna við Kings Avenue í London. Á myndinni eru þeir ungir og glaðir, báðir nýorðnir feður og tilbúnir að takast á við framtíðina af bjartsýni og elju. Frá þessum tíma hafa sögur fjölskyldn- anna fléttast saman. Þegar þeir komu heim frá námi opnuðu þeir lækningastofur í sama húsnæði á Hverfisgötunni. Það tók tíma fyrir þá að vinna upp praksís og seinna þegar þeh- höfðu fest sig í sessi hvor á sínu sérsviði varð þetta tíma- bil tilefni margra skemmtisagna. Samstarf þeirra hélt áfram á sviði rannsókna og vísinda síðar á æv- inni. Vinirnir áttu börn á svipuðum aldri. Margar æskuminningar okk- ar tengjast leilgum og gleði á heim- ilum Gunnars og Rósu á Lokastíg og svo síðar í Hvassaleitinu. Okkur hefur þótt dýrmætt að eiga vináttu Gunnars og fjölskyldu hans. Á full- orðinsárum hittum við systkinin og makar okkar Gunnar einkum á fag- legum vettvangi. Þegar fundum okkar bar saman sýndi hann okkur alltaf sérstaka hlýju og umhyggju. Hann var ávallt léttur í lund með sögur á reiðum höndum. Gunnar var fágaður í framkomu, elegant til fara og slaufan var hans einkennis- merki. Um leið og við þökkum Gunnari og fjölskyldu hans íyrir ánægjulega samfylgd sendum við Rósu, Guð- mundi, Oddnýju, Gunnari Steini og Einari Erni okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Arnfríður, Isleifur og Sign'ður. Kveðja samstúdenta frá MR 1947 Fallinn er góður og gegn stúd- entsbróðir. Gunnar var í hópi skólasystkina sem útskrifuðust frá Menntaskólan- um í Reykjavík 16. júní 1947. Þegar í MR komu fram margir hinir miklu kostir hans. Hann var manna glað- astur og hláturmildastur, þegar við átti, eignaðist góða vini, sem hann var einstaklega ræktarsamur við, og stundaði nám sitt af kostgæfni. Heimili foreldra hans stóð við Lokastíg. Sumir skólafélaganna bjuggu þar í nánd, aðrir áttu tíðar ferðir þar um slóð á leið í skóla eða úr. Allir félagar hans voru jafnan velkomnir í foreldrahús hans og minnist ég foreldra hans, Guðmund- ar Guðmundssonar og Salóme Jóns- dóttur, með hlýju og virðingu. I skólaslitaræðu Pálma Hannes- sonar rektors sagði hann m.a. þegar hann afhenti okkur stúdentsskír- teinin: „I húfunni ykkar er stjarna. Hún er merki hugsjónarinnar, hinn- ar eilífu hugsjónar, sem leiftrar í dimmu tómi hins ókunna og aldrei næst. Þó stefnir þangað von manns- ins og viðleitni um allar aldir. Þessi stjarna í stúdentshúfunni er fest við liti landsins, hinn rauða, hvíta og bláa. Eins sé hugsjón ykkar tengd við landið sem hefur alið ykkur og þjóðina, sem með starfi harðra handa hefur látið ykkur í té mennt- un og atlæti umfram flesta jafnaldra ykkar.“ Líf og starf Gunnars var svo sannariega í samræmi við þessa hvatningu okkar mikilsvirta rekt- ors. Hann lærði til læknis við Há- skóla Islands. Aflaði sér framhalds- menntunar víða um lönd. Kom síðan heim til starfa fyrir þjóð sína sem læknir, yfirlæknir og prófessor í læknisfræðum. Starfssvið hans varð samt enn víðfeðmara. Hann stund- aði umfangsmikil vísindastörf í þágu læknavísinda á alþjóðlegum vett- vangi og hlaut fyrir mikið lof og við- urkenningu. Hann átti jafnan stjömu fyrir stafni, þar sem hann leitaði aukinn- ar þekídngar í þágu mannkyns „í dimmu tómi hins ókunna“. Hann bar hátt þann kyndil sem Pálmi rektor hvatti okkur ung til að bera og auðgaði vísindin með starfi sínu. Þrátt fyrir hið mikla anmTki við þau störf sem tóku hug hans svo fanginn gaf hann sér stundir til að rækja vináttutengsl. Hann fylgdist grannt með vinum sínum og brást hratt við, ef honum fannst hann geta rétt hjálpandi eða líknandi hönd. Hann var unnandi fagurra lista, fylgdist vel með á þeim vett- vangi og átti m.a. gott safn lista- verka. Gunnar mætti alltaf með Rósu sinni þegar við stúdentssystk- inin héldum fagnaði. Þar var hann manna glaðastur og löngum var mestur hlátur og kátína í kringum hann. Hann kunni vel að segja kímnar sögur. Ung og æskuglöð sungum við „Integer vitae“ af mikilli innlifun, en við sungum einnig aðra stúdenta- söngva, sem m.a. minntu á að lífið er skammvinnt. Við gáfum því ekki gaum fyrir hálfri öld. Lífið og fram- tíðin var okkar. En það hefur síð- ustu árin verið hnippt harkalega við okkur, að „Vita nostra brevis est, brevi finietur". Gunnar er sá fimmt- ándi úr hópi okkar, sem hverfur af þessum heimi. Fyi-ir hönd stúdentssystkina hans, sem eftir standa á ströndu, kveð ég hann með einlægri þökk fyrir samferðina. Rósu konu hans, afkomendum og öðrum ástvinum sendum við hlýjar samúðarkveðjur, en um leið ham- ingjuóskir með hversu mikils góðs þau hafa að minnast. Sveinbjörn Dagfmnsson. • Fleirí minningargreinar um Gunnar Guðmundsson bíða birting- ar og munu birtast i blaðinu næstu daga. Útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, DR. MED. GUNNARS GUÐMUNDSSONAR, fer fram frá Hallgrímskirkju á morgun, föstu- daginn 14. maí, kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknar- félög. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurrós Unnur Sigurbergsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Margrét María Þórðardóttir, Oddný Gunnarsdóttir, Ásgeir Smári Einarsson, Gunnar Steinn Gunnarsson, Berit Solvang, Einar Örn Gunnarsson og barnabörn. + Elskuleg kona mín, móðir, stjúpmóðir, amma, systir og frænka, ÞÓRA BJÖRK ÓLAFSDÓTTIR, (Dúa í Lótus), Áiftamýri 7, Reykjavík, lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 6. maí sl. Útförin ferfram frá Háteigskirkju föstudaginn 14 Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim, sem bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Jón R. Lárusson, Þór Bjarkar, stjúpbörn, barnabörn, systur og systrabörn. . maí nk. kl. 15.00. vilja minnast hennar, er + Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, BJÖRG RANNVEIG BÓASDÓTTIR, Túngötu 7, Reyðarfirði, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju á morg- un, föstudaginn 14. maí, kl. 15.00. Knut Oiav Kristjansen, Sigríður Sigurðardóttir, Örn Einarsson, Sveinn Á. Sigurðsson, Nanna Sigurðardóttir, María Þ. Sigurðardóttir, Svavar Sigurðsson, Bóas G. Sigurðsson, Edda Kristinsdóttir, Karl Sigurðsson, Fjóla Hjartardóttir. + Ástkær systir mín, GUÐRÚN INGÓLFSDÓTTIR frá Fornusöndum, síðast til heímilis á Kirkjuhvoii, Hvolsvelli, sem lést á Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, mánudaginn 3. maí, verður jarðsungin frá Stóra-Dalskirkju laugardaginn 15. maí kl. 14.00. Bílferð verðurfrá BSl kl. 11.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á minningarsjóð Stóra-Dalskirkju eða líknarfélög. Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna, Torfi Ingólfsson. + ÓLAFUR I. MAGNÚSSON frá ísafirði, fyrrum gjaldkeri Háskóla íslands, lést á heimili sínu, Dalbraut 27, þriðjudaginn 11. maí. Magnús Helgi Ólafsson. + Minningarathöfn um elskulega móður okkar, ÓLÖFU SIGURBJÖRGU JÓHANNESDÓTTUR frá Kvigindisfirði, fer fram frá Langholtskirkju á morgun, föstu- daginn 14. mai, kl. 15.00. Einar Guðmundsson, Sæmundur Guðmundsson, Guðmundur Guðmundsson, Jóhannes Guðmundsson, Ingimar Guðmundsson, Sæunn Guðmundsdóttir, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Gunnar Guðmundsson og fjölskyldur þeirra. Lokað Vegna jarðarfarar ÞÓRU BJARKAR ÓLAFSDÓTTUR verður verslunin og hárgreiðslustofan Lótus lokuð föstudaginn 14. maí. Verslunin Lótus, Hárgreiðslustofan Lótus, Álftamýri 7. V
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.