Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 13 Morgunblaðið/Þorkell ÓLAFUR B. Ólafsson gagnrýndi kjaradóm fyrir að leggja þróun launa opinberra starfsmanna til grundvallar ákvörðunum sínum. Vinnuveitendur tilbúnir að standa að breytingum á fæðingarorlofí Fæðingarorlof verði hlutfall af föstum launum ÓLAFUR B. Ólafsson, formaður Vinnuveitendasambands Islands, sagði á aðalfundi sambandsins að ný ríkisstjórn yrði að taka mark á þenslumerkjum í efnahagslífínu og grípa til aðhaldsaðgerða. Oraunhæft væri að gera ráð fyrir að hagvöxtur yrði jafnmikill á næstu árum og ver- ið hefði. Hann lýsti þvi jafnframt yfir að vinnuveitendur væru tilbúnir í næstu kjarasamningum tO að standa að breytingum á fæðingarorlofi með það að markmiði að jafna réttindin og að þau yrðu hlutfall af fóstum launum. „Hagvöxtur undanfarinna ára hef- ur verið borinn uppi af miklum fjár- festingum, en þó mest af aukinni einkaneyslu í kjölfar mikillar kaup- máttaraukningar. Að baki aukinni neyslu og fjárfestingum er gífurleg aukning útlána innlánsstofnana en þau jukust um þriðjung á síðasta ári. Útgjöld þjóðarinnar eru um þessar mundir langt umfram þjóðartekjur og það hefði þegar valdið miklum verðbólguþrýstingi, ef eyðslan hefði ekki fundið sér farveg í auknum inn- flutningi, sem aftur hefur valdið griðarlegum viðskiptahalla. Við- skiptahalli í slíkum mæli fær ekki staðist tO lengdar og kaOar á mark- viss viðbrögð stjórnvalda. Hagvöxtur á komandi árum þarf þvi að hvfla á auknu aðhaldi hins opinbera því við- skiptahallinn ógnar stöðugu gengi krónunar og þar með stöðugleikan- um í efnahagsmálum,“ sagði Ölafur. Ytri skilyrði þjóðarbúsins að versna Ólafur sagði að ytri skilyrði þjóð- arbúsins væru ekki eins hagstæð nú og þau hefðu verið. Verð á loðnuaf- urðum væri hrunið, rækjuverð væri lágt og verð á bolfiskafurðum færi lækkandi. Verð á áli og kísfljárni væri einnig lágt. Þá hefði olíuverð hækkað um þriðjung að undanfömu. „Ónógt aðhald í opinberum fjár- málum hefur leitt til þess að meginá- hersla í stjómun eftirspurnar er lögð á vextina. Á síðustu mánuðum hefur Seðlabankinn tvívegis hækkað stýri- vexti sína; úr 7,2% í 7,9%. Aðrir vext- ir hafa fylgt í kjölfarið. Vextir er- lendis hafa jafnframt farið lækkandi þannig að vaxtamunur mflli Islands og viðskiptalandanna hefur stórauk- ist. Jafnvægisleysið í hagkerfinu veldur því að stöðugt þarf meiri vaxtamun til að styðja gengi krón- unnar.“ Ólafur sagði að þenslumerkin sæj- ust einnig í launaþróuninni. Laun hefðu á síðustu 12 mánuðum hækkað um 7,5%, en laun í helstu samkeppn- islöndum okkar hefðu hækkað um 2,3%. Vinnuveitendur settu sér það markmið í næstu kjarasamningum að viðhalda stöðugleika og sam- keppnishæfni atvinnurekstrarins. Slæm reynsla af dreifðum samning- um, bæði á einka- og opinberum markaði, sýndi mikflvægi þess að að- flar vinnumarkaðarins kæmu sér saman um markmið í efnahags- og kjaraþróun. Það væri einnig æski- legt að í komandi samningum yrði reynt að semja um að kjarasamning- ar rynnu út á svipuðum tíma þannig að þjóðfélagið yrði ekki þrúgað af kjarasamningagerð langtímum sam- an. Hann sagði að deilur um skipu- lagsmál ASI væri áhyggjuefni því þær gætu haft áhrif á samstöðu við gerð kjarasamninga. Þeir sem beita ólögmætum aðgerðum sæti fjárhagslegri ábyrgð Ólafur sagði að mismunandi þróun á launum opinberra starfsmanna og launafólks á almennum markaði væri slæm. Hann gagnrýndi kjaradóm fyrir að vísa í forsendum sínum til þróunar launa á opinberum markaði. Embættismenn og alþingismenn ættu að taka mið af þróuninni á einkamarkaði. Það væri fráleitt að mistök í launaákvörðunum ríkis og sveitarfélaga ættu að verða vegvísir um það hvaða launahækkanir fyrir- tækin á einkamarkaðinum gætu bor- ið. Ólafur gagnrýndi kjarabaráttu kennara harðlega og talaði um „ógeðfefldar og ólögmætar aðgerðir“ í því sambandi. „Ég tel tímabært að fara að fordæmi grannþjóða okkar og láta þá sem grípa tfl ólögmætra aðgerða af þessum toga sæta fjár- hagslegri ábyrgð. Að öðrum kosti mun þetta tveggja þrepa kerfi margra starfshópa opinberra starfs- manna festast í sessi og þá eru kjarasamningarnir orðnir lítils virði.“ VSÍ tilbúið til standa að breytingum á fæðingarorlofi „Staða barnafólks á vinnumarkaði hefur fengið aukna athygli og einnig sú staðreynd að mikill munur er á gildandi löggjöf um rétt starfsmanna tfl fæðingarorlofs eftir því hvort þeir starfa á einkamarkaði eða hjá hinu opinbera. Vaxandi þrýstingur er á nýjar lausnir og hafa sjúkrasjóðir verkalýðsfélaga tekið upp gi-eiðslur í fæðingarorlofi sem hluta af sínu við- fangsefnum. Þetta er eðlilegt og get- ur gefið færi á lausn þar sem fleiri leggja tfl. VSÍ mun leita eftir nýjum lausnum á fyrirkomulagi fæðingar- orlofs og munu samtökin í tengslum við næstu kjarasamninga reiðubúin tO að standa að breytingum, sem miðist við að greiðslur nái tOteknu hlutfalli reglubundinna launa, enda náist samkomulag um fjármögnun og fyrirkomulag fyrir allan vinnu- markaðinn," sagði Ölafur. FRÉTTIR Varaformenn stjórnarflokkanna hefja málefnavinnu Eiga ekki von á því að vandamál komi upp Morgunblaðið/Ásdis VEL fór á með Finni Ingólfssyni, varaformanni Framsóknarflokks, og Geir H. Haarde, varaformanni Sjálfstæðisflokks, í gær. VARAFORMENN stjómarflokk- anna ræddust við síðdegis í gær tO að fara yfir þá málefnavinnu, sem framundan er, og sögðu Finnur Ing- ólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, og Geir H. Haarde fjármála- ráðherra eftir fundinn að þeir ættu ekki von á vandamálum í undirbún- ingi stjómarsamstarfs Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks fyrir næstu fjögur ár. Geir sagði að farið hefði verið yfir helstu mál, sem fjafla þyrfti um í við- ræðum sem þessum: „Það var ágæt- ur andi í þessu og svo munum við fara betur yfir málin á næstu dögum. Við höfum fengið til liðs við okkur tvo vana menn, Hrein Loftsson og Jón Sveinsson, sem hafa unnið við þetta áður, þannig að þetta lítur ágætlega út.“ Lögmennirnir Hreinn og Jón vom ritstjórar stjómarsáttmálans, sem flokkamir gerðu fyrir fjóram áram. Þeir vora þá fyrrverandi aðstoðar- menn forsætisráðhema, hvor úr sín- um flokki, Jón hjá Steingrími Her- mannssyni og Hreinn hjá Davíð Oddssyni. „Við gefum okkur tfl mánaðamóta eins og talað hefur verið um,“ ságði Finnur í gær. „Það er ekkert, sem liggur á, og við höfum nógan tíma.“ Finnur kvaðst ekki eiga von á vandamálum í viðræðum fjórmenn- inganna: „Flokkamir þekkja hvor annan býsna vel eftir fjögurra ára samstarf og vita um þeima áherslur. Sumt á síðasta kjörtímabili var þannig að mönnum sýndist sitt hvað um einstök mál og leystu þau þá á mflli flokkanna. Við höfum verið að fara yfir þá hluti núna, áherslur hvors flokks fyrir sig í kosningabar- áttunni og lögðum mat á það hvar gæti hugsanlega verið ágreiningur." Finnur kvaðst ekki vflja nefna nein einstök mál: „Það eru einhver atriði þar sem áherslur era mismun- andi, en það er ekkert, sem menn telja sig ekki geta leyst.“ Geir sagði einnig að ekki væri hægt að taka út úr einstök mál, sem krefðust meiri vinnu en önnur í þess- um viðræðum varaformannanna: „Það er ekki hægt á þessu stigi máls- ins. Síðast var búin tfl stefnuyfirlýs- ing, sem var mjög stutt, og við höf- um kannski ákveðna fyrirmynd í henni.“ Hann sagði að á síðasta kjörtíma- bili hefði margt af því verið fram- kvæmt, sem nefnt hefði verið í stefnuyfirlýsingu stjórnar Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks fyrir fjóram árum, en í granninn yrði hún ekki frábragðin: „Ég sé ekki fyrir mér að við munum reyna að gera öllum sköpuðum hlutum skfl í þessu, það er engin ástæða til þess.“ Ekki flóknir samningar Geir kvaðst vona að viðræður hans og Finns myndu duga tfl að komast að niðurstöðu. Flokkamir þekktu vel afstöðu hvor annars og þetta væra því ekki flóknir samningar, sem lík- legt væri að yrði lokið um mánaða- mót. Hann sagði ólíklegt að stofnaðar yrðu nefndir til að fjalla um hina ýmsu málaflokka og það yrði þá ekki fyrr en á síðari stigum. „Nú snýr þetta að meginmarkmið- um og hverju flokkamir muni beita sér fyrir nái þeir saman,“ sagði hann. „Það er engin óskapleg mál- efnaleg vinna, sem þarf að fara í gang. Hún hefur staðið yfir allt lqör- tímabflið.“ Geir kvaðst eiga von á því að for- menn flokkanna myndu koma beint að skiptingu ráðuneyta milli flokk- anna og öðra, sem því tflheyrði, lflrt og venja væri. Að sögn Finns er ekki farið að ræða skiptingu ráðuneyta. Byrjað yrði á að skrifa samstarfssamning mflli flokkanna fyrir næstu fjögur ár. Hann myndi í meginatriðum byggja á tilteknum markmiðum, sem ríkis- stjómin muni beita sér fyrir. Fór tvær ferðir á vegum Alþingis ÓLAFUR G. Einarsson, for- seti Alþingis, hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu: „í viðtali á baksíðu DV 12. maí upplýsir Pétur H. Blöndal alþingismaður að hann hafi gefið Hjálparstofnun kirkjunn- ar afgang af dagpeningum vegna 8 ferða sinna til útlanda á vegum Alþingis árið 1998 samtals að fjárhæð kr. 550 þús. í tilefni fréttarinnar skal það tekið fram að Pétur H. Blöndal fór einungis tvær utanlands- ferðir á vegum Alþingis árið 1998, samtals 8 ferðadaga, og var útborgaður gjaldeyrir vegna þeirra ferða kr. 94.110. Einnig fór hann í tvær ferðir til útlanda samkvæmt eigin ákvörðun þar sem hann not- færði sér heimild til að ráð- stafa starfskostnaði sínum til greiðslu ferðakostnaðar. Ráð- stöfun á starfskostnaði er ekki ákveðin af Alþingi heldur þing- manninum sjálfum." Akvæði um búsetuskilyrði í hluta- og einkafélagalögum Almenn undanþága frá skilyrði veitt 1997 Forvalsnefnd um varnarliðsflutninga tíndi til búsetu íslensks eiganda Atlantsskipa er fyrirtækinu var hafnað í forvali EIN af ástæðunum, sem tflgreindar era í fundargerð forvalsnefndar utan- rfldsráðuneytisins um flutninga fyrir vamarliðið á Keflavíkurflugvelli fyrir vanhæfi Atlantsskipa tfl að gegna þeim, er sú að 49% hlutur sé í eigu ís- lendings, sem búsettur sé í Banda- ríkjunum. í hluta- og einkafélagalög- um er ákvæði um búsetuskflyrði, en í auglýsingu frá viðskiptaráðuneytinu, sem gefin var út 1997, er veitt undan- þága frá því fyrir aðfldarríki OECD, þar á meðal Bandaríkm. í lögunum, sem sett vora um einka- hlutafélög 1994 og hlutafélög 1995, er með svipuðu orðalagi kveðið á um að meirihluti ríkisborgara og lögaðflja skuli hafa búsetu hér á landi. Búsetu- skflyrðið eigi þó ekki við um ríkis- borgara og lögaðfla þeirra ríkja, sem séu innan Evrópska efnahagssvæðis- ins. Kveðið er á um að viðskiptaráð- herra geti veitt undanþágu frá þessu skOyrði. Til hagræðingar fyrir aðila innan OECD í apríl 1997 var birt auglýsing frá viðskiptaráðuneytinu þess efnis að Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra hefði ákveðið að veita ríkisborguram og ýmsum lögaðOum aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinn- ar almenna undanþágu frá búsetu- skilyrðunum. í auglýsingunni, sem birtist í Stjórnartíðindum B 32, nr. 256-260, er þessi ákvörðun rökstudd þannig að hún dragi úr skriffinnsku, en sé einkum ætlað að vera tO hag- ræðis ríkisborgurum og lögaðflum frá öðram OECD-ríkjum, en séu að- ilar að EES. Jafnframt geti undan- þágan komið þeim ríkisborguram og lögaðilum EES-ríkja að notum, sem búsettir séu utan EES-svæðisins, en það á við um íslenska ríkisborgar- ann, sem nefndur er í fundargerð foiyalsnefndarinnar. I auglýsingunni segir að í þessari ákvörðun felist nánar tfltekið að „ríkisborgarar OECD-ríkja þurfa ekki að vera heimflisfastir hér á landi til að geta verið stofnendur, stjórnarmenn og framkvæmdastjór- ar íslenskra hluta- eða einkahlutafé- laga [...] heldur nægir að ríkisborg- ararnir séu heimilisfastir í einhverju OECD-ríkja“. Segir ennfremur að í vafatilvikum geti hlutafélagaskrá, sem umsóknir um skráningu hluta- eða einkahluta- félaga era sendar tO, þó borið ein- stök mál undir viðskiptaráðherra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.