Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 81
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 81
FÓLK í FRÉTTUM
Maður gleym-
ir öllu öðru
Þegar Andrés og Ásgeir voru litlir fengu
þeir báðir gítar sem þeir hentu inn í skáp
eftir stundarglamur. Þegar þeir urðu stór-
ir, urðu þeir gítarleikarar og sögðu Hildi
Loftsdóttur að þeir gætu ekki hugsað sér
neitt annað starf.
ÞAÐ ER spenna í loftinu í Tónlist-
arskóla FIH við Rauðagerði, þar
sem vorprófin standa yfír. Steikj-
andi hiti fyrir utan og þvalir putt-
arnir renna til á strengjum og pí-
anónótum. Blaðamanni tekst að
þefa uppi þá tvo nemendur sem eru
að útskrifast; Ásgeir Ásgeirsson og
Andrés Þór Gunnlaugsson. Þeir eru
báðir djassgítarleikarar, auk þess
sem Ásgeir er að líka að útskrifast
sem ryþmískur kennari, en þetta er
í fyrsta sinn sem Tónlistarskóli
FIH útskrifar kennara.
Enga þörf fyrir
9 til 5 vinnu
ANNAÐ KVÖLD heldur Andrés
útskrifartónleika kl. 20 í sal FÍH,
en Ásgeir sína á sunnudagskvöld
kl. 19.30. Það er eins gott fyrir
strákana að standa sig, því sjö ára
námsferill þeirra 1 skólanum verður
dæmdur þar, og mun fylgja þeim
inn í framtíðina.
- Eruð þið ekkert stressaðir?
Ásgeir: „Nei, nei, þetta verður ekk-
ert mál!“
Andrés: „Bara smá, ég var miklu
verri um síðustu helgi. Annars er-
um við búnir að vinna vel, það
skiptir miklu máli. Maður vill auð-
vitað gera yel."
Ásgeir: „Ég er á leiðinni til Am-
sterdam að sækja um tónlistarhá-
skóla þar, þannig að það er eins
gott að standa sig á öllum vígstöðv-
um.“
Andrés: „Ég er líka að pæla í fram-
haldsnámi í Islendinganýlendunni
Amsterdam, en ætla að doka við í
ár eða svo á meðan konan mín lýk-
ur við Háskólann."
Andrés og Ásgeir hafa fyrir
löngu fengið meira en smjörþefínn
af atvinnumennskunni, og var
Andrés í hljómsveitinni Sixties í
þrjú ár. Ásgeir er nýhættur í Sól-
dögg og var áður í sýrudjasssveit-
inni Sælgætisgerðinni.
-Eftir að gítarinn var sóttur í
skápinn, hefur stefnan alltaf verið
Morgunblaðið/Þorkell
ÁSGEIR og Andrés djassgítarleikarar halda útskriftarténleika á
fóstudags- og sunnudagskvöld.
að verða atvinnugítarleikari?
Ásgeir: „Kannski svona seinustu
fjögur árin, því það hefur verið nóg
að gera. Þegar maður hefur bara
spilað á gítar í þetta langan tíma
hefur maður enga þörf fyrir að fá
sér níu til fimm vinnu.“
Andrés: „Maður bara gleymir öllu
öðru.“
Fólkið gefur orku
- Blasir framtíðin björt við ykk-
ur?
Ásgeir: „Já, mér líst vel á að vera
að fara til Hollands næstu þrjú árin
með fjölskylduna."
- Er ekki sífellt ströggl að vera
tónlistarmaður?
Andrés: „Að vissu leyti. Það gengur
misvel hjá manni. Stundum hefur
maður nóg að gera án þess að vera í
föstu bandi.“
- Mynduð þið mæla með þessum
skóla fyrir þá sem viija fara sömu
leið og þið?
Ásgeir: „Já, kennararnir eru mjög
góðir og metnaðarfullir. Skólinn
verður sífellt betri, því það eru
alltaf nýir hljóðfæraleikarar að
koma heim frá útlöndum, og þeir
koma flestir inn í kennsluna. Er-
lendir hljóðfæraleikarar segja Is-
lendingana á heimsmælikvarða,
þeir séu bara svo fáir.“
Andrés: „Eins og Friðrik Karlsson
og Skúli Sverrisson. Þeir eru rjóm-
inn.“
- Ef þið verðið jafngóðir gítar-
leikarar og Friðrik, komið þið þá
afturheim?
Andrés: „Við erum báðir fjöl-
skyldumenn og verðum að taka til-
lit til þess, en auðvitað yrði rosa
freistandi að vera erlendis þar sem
allt er að gerast.“
- Lokaorð til lesenda?
Ásgeir: „Það væri gaman að sjá
sem flesta á tónleikunum.“
Andrés: „Það er nauðsynlegt að fá
fólk á tónleikana. Þá verður ein-
beiting svo góð, og einhvern veginn
þá gefur fólkið manni orku.“
Tónelsk tíska
ALÞJÓÐLEGI fataframleiðandinn
Triumph sýndi undirfatatísku
vetrarins í Japan nýverið. Tals-
maður fyrirtækisins sagði að
markmiðið væri að hanna glæsi-
legan, rómantískan og kynæsandi
undirfatnað og ætla má að tónlist-
armenn fái að minnsta kosti fiðr-
ing í magann þegar þeir sjá dömu
með g-lykla og nótur um háls sér
og höfuð.
Vélhundar
með innsæi
Á RÁÐSTEFNU Sony í Japan ný-
verið var vélhundurinn Aibo til
sýnis. Vélhundurinn getur Ijáð
ýmsar tilfinningar og getur bæði
brugðist við ytra áreiti og einnig
af eðlisávísun. Útlit hundsins er
þó enn langt frá því að vera „eðli-
legt“ og því er ekki víst að honum
verði klappað mikið og klórað
bak við eyrun þótt hann óski þess.
KVIKMYNDIR/Háskólabíó sýnír rómantísku gamanmyndina Kraftur
náttúrunnar, eða Forces of Nature, með þeim Söndru Bullock og
Ben Affleck í aðalhlutverkum.
Lífíð er skrýtið
og skemmtilegt
menn muna eftir úr sjónvarpsþætt-
inum Laus og liðug er hér í sínu síð-
asta kvikmyndahlutverki, en hann
lést fyrir stuttu. Hann leikur Steve
sem er fyrrverandi kærasti Bridget,
væntanlegrar eiginkonu Ben. Aðrir
leikarar f stórum hlutverkum eru
Steve Zahn sem nýlega lék í Úr aug-
sýn með George Clooney og Jenni-
fer Lopez og í myndinni Þú hefur
fengið póst með þeim Tom Hanks
og Meg Ryan. Blythe Danner,
mamma Gwyneth Paltrow, fer
einnig með stórt hlutverk í mynd-
inni sem leikstýrð er af Bronwen
Hughes. Hún hefur áður leikstýrt
bamamyndinni Harriet the Spy,
auk þess að hafa gert fjölda heimild-
armynda fyrir sjónvarp.
BRONWEN Hughes,
leikstjóri myndarinnar.
SANDRA
BULLOCK og Ben
Affleck í hlutverk-
um sínum.
Frumsýning
BEN (Ben Affleck) er á leið-
inni til Savannah frá New
York til að ganga í hjónaband
með Bridget (Maura Tiemey). Allt
gengur eftir áætlun þar til hann
hittir Söra (Söndm Bullock) sem er
æði sérstök. Þau era bæði að taka
sömu flugvélina en sú ferð á eftir að
verða talsvert öðruvísi en hann hafði
búist við. Aðstæður sem Ben hefði
aldrei getað ímyndað sér að lenda í
verða að veruleika og hin villta og
hugmyndaríka Sara kemur róti á
tilfinningar hans. Líf hans
sem var allt þaulskipu-
lagt og traust breytist
eftir þessi kynni og
hann kemst að því að
lífið getur gjörbreyst
þegar síst varir og
enginn veit hvað er
handan næsta
horas.
Sandra Bullock
sem vann hug og
hjörtu Banda-
rflcjamanna sem
góða stúlkan
úr næsta húsi
er í þessari
nýjustu
mynd sinni
talsvert frá-
brugðin því
sem menn
eiga að venjast.
Sara er nefnilega
ekki þessi týpíska
góða stúlka og Sandra
Bullock er því að
takast á við sitt villtasta
hlutverk til þessa. Sandra
segist lengi hafa beðið eftir tækifæri
til að fá að túlka fjölbreyttari per-
sónur en henni hefði auðnast til
þessa, en iðulega er erfitt að komast
frá fastmótaðri ímynd sinni í
Hollywood.
Ben Affleck komst fyrst í fréttim-
ar þegar hann ásamt Matt Damon
unnu til Óskarsverðlauna fyrir
myndina Good Will Hunting. Ný-
lega mátti sjá hann i Ástfóngnum
Shakespeare á móti Óskarsverð-
launahafanum Gwyneth Paltrow.
Hann varð strax hrifinn af handriti
Krafts náttúrunnar og ekki spillti
mótleikkonan fyrir áhuganum.
David Strickland sem
Stutt
Lifað á
Netinu einu
saman
►ER HÆGT að lifa af Netinu
einu saman? Fjórir sjálfboðalið-
ar munu finna svarið við því á
næstunni því þeir munu verða
lokaðir inni í 100 klukkustund-
ir og hafa meðferðis einungis
greiðslukort, baðslopp og að-
gang að Netinu.
Þátttakendurnir fjórir verða
hver í sínu herberginu og
verða að reiða sig á Netið til að
geta nálgast fæði og afþrey-
ingu. Einnig er fyrirhugað að
fólkið muni halda áfram með
sína daglegu iðju, og ætlar einn
þeirra t.a.m. að tefla skák á
Netinu meðan annar hyggst
leita sér að atvinnu.
Atferli þátttakendanna, sem
eru tvær konur og tveir karl-
menn á aldrinum 30-67 ára,
mun verða numið af tölvufor-
riti sem hannað var af Helen
Petrie frá háskólanum í Hert-
fordshire. Hún vonast til að
rannsóknin gefi vísbendingu
um það hvernig fólk bregst við
því að geta eingöngu haft sam-
band við umheiminn í gegnum
Netið.
Nemendur vilja
berja kennara
►MEIRA en tíu þúsund nemendur
í Bangladesh hafa verið reknir úr
skóla fyrir að skrifa ritgerðir beint
upp úr bókum. Þeir krefjast þess
að mega svindla á prófum og berja
kennara að sögn talsmanns
menntamála í Bangladesh. Hann
bætti við að meira en hálf milljón
nemenda hefði mætt í prófin sem
hófust á fimmtudaginn víðs vegar
um landið og eftir aðeins tvö próf
var komin upp alvarleg staða og
gripið til þess ráðs að reka verstu
uppreisnarseggina.
Ofbeldi ríkti í skólum fyrstu tvo
dagana í prófunum og voru kenn-
arar t.a.m. grýttir og kveikt var í
skólastofum. Nemendur voru æfir
yfir að mega ekki svindla á prófun-
um, rifu prófblöðin og réðust á
prófdómarana.
Skólayfirvöld hafa lýst miklum
áhyggjum yfir því að notaðar séu
óheiðarlegar aðferðir í prófum, en
standa ráðþrota gagnvart æstum
nemendum.
Þá varð kátt
í höllinni
►IMELDA Marcos, fyrrver-
andi forsetafrú á Filippseyj-
um, mætti aftur til forsetahall-
arinnar í Manilla á mæðradag-
inn en þangað hefur hún ekki
komið í 13 ár. Tilefnið var að
Borgararáðið útnefndi hana
„fyrirmyndarmóður“ og var
frúin, sem er á sjötugasta ald-
ursári, ánægð með titilinn.
„Ég er komin hingað aft.ur ...
en dásamlegt. Það er mæðra-
dagur, dagur kærleikans,“
sagði hún fréttamönnum og
svo virtist sem hún hefði
aldrei yfirgefið höllina.
Imelda var meðal þrjátíu
mæðra sem voru tilnefndar og
var hún valin fyrir að styðja
börnin sín til mennta og í
starfi og vegna þess starfs
sem hún vann í þágu fátækra
á valdatíma eiginmannsins.
Imelda hafði ekki komið til
hallarinnar síðan bylting var
gerð í landinu og fjölskylda
hennar hrakin til Hawaii árið
1986. Með þeim aðgerðum var
bundinn endi á harðstjórnartíð
forsetans Ferdinands Marco.
4
v