Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 72
72 FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
*
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Kirkjudagur
aldraðra
EINS og undanfarin ár er uppstign-
ingardagur kirkjudagur aldraðra í
kirkjum landsins. Þá er eldri borg-
urum og fjölskyldum þeirra boðið
sérstaklega til guðsþjónustu. Aldr-
aðir taka virkan þátt í guðsþjónust-
unni með söng og upplestri. Þarna
gefst fjölskyldum tækifæri á að eiga
hátíðarstund saman í kirkjunni sinni
og á eftir bjóða félög innan kirkn-
anna upp á góðar veitingar. Einnig
eru víða í kirkjum sýningar á verk-
um sem aldraðir hafa unnið í vetrar-
staríinu.
Utvarpsguðsþjónusta á vegum
Ellimálanefndar þjóðkirkjunnar
verður að þessu sinni frá Digranes-
kirkju kl. 11. Prestur er sr. Magnús
Guðjónsson. Söngvinir, kór aldraðra
í Kópavogi, syngja undir stjóm Sig-
urðar Bragasonar. Organisti er
Kjartan Sigurjónsson.
Ellimálanefnd þjóðkirkjunnar
hvetur alla til að koma í kirkju þenn-
an dag og kynna sér það sem í boði
er fyrir eldri borgarana og gleðjast
með þeim á kirkjudegi aldraðra.
Dagur eldri
borgara í Graf-
arvogskirkju
UPPSTIGNIN GARDAGUR er í
kirkjunni tileinkaður eldri borgur-
um safnaðanna. í Grafarvogskirkju
verður hátíðarguðsþjónusta kl. 14.
Ræðumaður dagsins er Ólafur
Ólafsson, fyrrverandi landlæknir og
forrnaður eldri borgara í Reykjavík.
í kirkjunni verður haldin sýning á
munum og listaverkum sem eldri
borgarar hafa unnið í vetur undir
umsjón og leiðsögn Unnar
Malmquist. Séra Vigfús Þór Árna-
son og sr. Anna Sigríður Pálsdóttir
Fríkirkjan
í Reykjavík
Uppstigningardagur
Dagur aldraðra
Sameiginleg guðsþjónusta
Dómkirkju- og Fríkirkjusafnað-
arins kl. 14.00.
Séra Hjalti Guðmundsson
þjónar fyrir altari.
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson
predikar.
Einsöngur: Þorgeir Andrésson
óperusöngvari.
Organisti og kór Fríkirkjunnar í
Reykjavík.
Safnaðarfólki er boðið til kaffidrykkju í
eftir messu í safnaðarheimilinu.
Allir hjartanlega velkomnir.
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson.
Vorferð barnastarfsins
laugardaginn 15. maí.
Lagt verður af stað
kl. 11.00 frá kirkjunni
og farið i Vatnaskóg.
—
_i J. © ® ® ffl ® sb tnj tm ud m tm ct ud -A 1 L
þjóna fyrir altari og kór Grafarvogs-
kirkju ásamt Unglingakór kirkjunn-
ar syngja undir stjórn Hrannar
Helgadóttur organista.
Boðið er til kaffisamsætis af sókn-
arnefnd og Safnaðarfélagi Grafar-
vogsldrkju að lokinni guðsþjónustu.
Prestamir.
Uppstigningar-
dagur í Seltjarn-
arneskirkju
UPPSTIGNINGARDAGUR verður
haldinn hátíðlegur í Seltjarnarnes-
kirkju, sem dagur aldraðra í ár,
fimmtudaginn 13. maí. Hátíðin hefst
með messu Jd. 14. Prestur er sr.
Guðný Hallgrímsdóttir og organisti
er Sigrún Steingrímsdóttir. Kór Sel-
tjarnameskirkju syngur. Eftir
messuna verður veislukaffi í safnað-
arheimilinu. AJlir eldri bæjarbúar á
Seltjarnarnesi eru sérstaldega vel-
komnir með gesti sína í kirkjuna
þennan dag svo og allir þeir sem
vilja taka þátt í þessari hátíð í kirkj-
unni.
Dagur eldri
borgara í Laug-
arneskirkju
Á UPPSTIGNINGARDEGI er
haldin guðsþjónusta í Laugarnes-
Jdrkju kl. 14. Þar mun kór Laugar-
nesldrkju flytja messu eftir Haydn í
stað hefðbundins tónlags undir
stjóm Gunnars Gunnarssonar org-
anista. Laufey Geirlaugsdóttir syng-
ur einsöng. Fulltrúar úr þjónustu-
hópi kirkjunnar flytja ritningartexta
og prestur er sr. Bjami Karlsson.
Að messu loldnni em kaffiveitingar í
boði safnaðarins.
Vorferð barna-
starfs Fríkirkj-
unnar
VORFERÐ barnastarfs Fríkirkj-
unnar í Reykjavík verður farin laug-
ardaginn 15. maí nk. Lagt verður af
stað frá ldrkjunni ld. 11 og farið í
Vatnaskóg. Þátttaka tilkynnist í
síma 553 6787 og í síma 552 7270
fyrir hádegi á föstudag.
Háteigskirkja. Taizé-messa kl. 21.
Langholtskirkja. Opið hús föstudag
kl. 11-13. Létt hreyfing og slökun.
Kyrrðar- og fyrirbænastund fóstu-
dag ld. 12.10. Eftir stundina er súpa
og brauð.
Laugarneskirkja. Mömmumorgunn
föstudag ld. 10-12.
Breiðholtsldrlga. Mömmumorgunn
á föstudögum Jd. 10-12.
Digraneskirkja. Foreldramorgnar
kl. 10-12 í umsjá Fjólu Grímsdóttur
og Bjargar Geirdal. Leikfimi aldr-
aðra kl. 11.15.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir
11-12 ára kl. 17.
Grafarvogskirkja. Mömmumorgn-
ar kl. 10-12. Áhugaverðir fyrirlestr-
ar, létt spjall og kaffi og djús fyrir
bömin. Kyrrðarstundir í hádegi kl.
12.10. Orgelleikur, fyrirbænir, alt-
arisganga og léttur hádegisverður.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar. St-
arf fyrir 7-9 ára böm kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Starf eldri borg-
ara í dag kl. 14-16 í safnaðarheimil-
inu Borgum. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag ld. 18. Fyrirbænaefnum
má koma til prests eða ltírkjuvarð-
ar.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 10-12 ára böm frá kl. 17-18.30
í safhaðarheimilinu, Linnetstíg 6.
Æskulýðsfundur ld. 20-22.
Hafnarfjarðarkirkja.
Mömmumorgnar ld. 10-12 í Vonar-
höfn. ÁTN-starf íyrir 8-9 ára kl.
17-18.30 í Vonarhöfn.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 22. Kaffi eftir athöfn. Bibl-
íulestur kl. 21.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgunn
milli Jd. 10-12.
Lágafellskirkja. Kyrrðar- og bæna-
stundir alla fimmtudaga kl. 18.
Keflavíkurkirkja. Kirkjudagur
eldri borgara. Guðsþjónusta kl. 14.
Böm borin til sldmar. Eldri borgar-
ar lesa lexíu og pistil. Lilja G. Hall-
grímsdóttir, djákni, prédikar og
þjónar íyrir altari ásamt sóknar-
presti. Kór Keflavíkurkirkju leiðir
söng. Organist Einar Örn Einars-
son.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
14 guðsþjónusta helguð eldri borg-
urum. Rúta fer frá Hraunbúðum í
kirkjuna. Messukaffi á degi aldr-
aðra í boði Kvenfélags Landaldrkju.
Kl. 20.30 unglingar! Opið hús í
KFUM & K húsinu.
Hjálpræðisherinn. Uppstigningar-
dagur kl. 20.30. Samkoma í umsjón
systranna. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl.
18.30.
Grindavíkurkirkja. Helgistund í
kirkjunni. Eldri borgarar frá Mos-
fellsbæ koma í heimsókn ásamt
sóknarpresti, sr. Jóni Þorsteinssyni.
Fíladelfía. Unglingasamkoma
fóstudag ld. 20.30. Mikill og hress
söngur. AJlir velkomnir.
Caritas á Islandi
Söfnun fyrir holdsveik
börn á Indlandi gekk vel
FOSTUSOFNUN hjálparstofn-
unar kaþólsku kirkjunnar, Carit-
as, var gerð til þess að styrkja
holdsveik börn á Jeevodaya-mið-
stöðinni á Indlandi. Söfnunar-
fénu verður varið til að sjá böm-
unum fyrir nauðsynlegri að-
hlynningu og kennslu. Að sögn
Sigríðar Ingvarsdóttur, for-
manns Caritas á íslandi, hafa
safnast 240.000 krónur og eru
gjafir enn að berast. Þetta er
það mesta sem safnast hefur í
föstusöfnun Caritas hér á landi.
Þennan góða árangur er fyrst
og fremst að þakka velvild
þeirra fjölmörgu einstaklinga
sem lagt hafa söfnuninni lið og
vill Caritas á Islandi færa öllum
þeim sem það gerðu bestu þakk-
ir, segir í fréttatilkynningu frá
félaginu.
verður
Sprækir
öðlingar
SKÁK
Tafl félag
Reykjavfkur
HRAÐSKÁKMÓT
ÖÐLINGA
6. maí 1999
ÞEIR Júlíus Friðjónsson og Jón
G. Friðjónsson sigmðu á Hraðskák-
móti öðlinga sem fór fram 6. maí.
Þeir hlutu báðir 11 vinninga í þrett-
án umferðum. Öðlingamótin njóta
mikilla vinsælda, en þau era fyrir
skákmenn sem náð hafa 40 ára
aldri. Úrslit urðu sem hér segir:
1.-2. Júlíus Friðjónsson 11 v.
1.-2. Jón G. Friðjónsson 11 v.
3. Bragi Halldórsson lOVz v.
4. Jón Torfason 9 v.
5. -6. Ögmundur Kristinsson 8 v.
5.-6. Jóhann Öm Sigurjónsson 8 v.
7.-8. Ingimar Jónsson 7‘/2 v.
7.-8. Kristján Örn Elíasson 7!/2 v.
o.s.frv.
Þátttakendur vora 14. Skákstjóri
var Ólafur Ásgrímsson.
Hraðskákmótið var haldið í kjöl-
far Skákmóts öðlinga, sem áður hef-
ur verið getið hér í skákþættinum.
Þar vora tefldar sjö umferðir eftir
Monrad-kerfi. Skáluneistari öðlinga
1999 varð Júlíus Friðjónsson, en
hann hlaut 5VÍ: vinning. Júhus tapaði
í fyrstu umferð fyrir Vigfúsi Ó. Vig-
fússyni og náði ekki að tryggja sér
efsta sætið fyrr en í síðustu umferð
þegar sigurvegarinn frá því í fyrra,
Jón Torfason, tapaði fyrir hinni
gamalreyndu kempu Sverri Norð-
fjörð. Keppt var um veglegan far-
andbikar sem gefinn var af Nesti.
Úrsht öðhngamótsins urðu sem hér
segir:
1. Júlíus Friðjónsson 5'/2 v.
2. Vigfús Ó. Vigfússon 5 v.
3. Jón Torfason 5 v.
4. Sverrir Norðfjörð 5 v.
5. Magnús Gunnarsson 4 v.
6. Hörður Garðarsson 4 v.
7. Ágúst Ingimundarson 3'á v.
8. Haraldur Haraldsson 3‘/2 v.
9. Bjarni Magnússon 3‘/2 v.
o.s.frv.
Eftirfarandi skák var tefld á
Skákmóti öðlinga. Sverrir fær held-
ur rýmri stöðu eftir byrjunina og
eftir að Jón skiptir upp á ridduram
nær Sverrir að hrista leikfléttu
fram úr erminni eins og hann er
þekktur fyrir. Eftir það er eftirleik-
urinn auðveldur.
Hvítt: Sverrir Norðfjörð
Svart: Jón Torfason
Caro-Kann vörn [B18]
l.e4 c6 2.d4 d5 3.Rc3 dxe4 4.Rxe4
Bf5 5.Rg3 Bg6 6.RÍ3 Oftast leikur
svartur hér 6...Rd7 til að koma í veg
fyrir Re5. 6...e6 7.h4 h6 8.Re5 Bh7
9.Bc4 Rd7?! Betra er 9...Rf6 til að
geta svarað 10.De2 með 10...Rd5
eftir textaleildnn situr svartur uppi
með heldur þrengra tafl. 10.De2!
Rxe5 ll.dxeð Re7 12.c3
með hugmyndinni Bd2 og 0-0-0.
12...Dd7 Upphafið að rangri áætlun.
Betra er 12...Rd5 13.Bd2 Dc7 og
langhróka í kjölfarið. 13.Be3 Rf5?
Jón áttar sig eldd á því að
riddarauppsldptin eru hvítum í hag.
Ennþá var eldd of seint að sldpta
um áætlun með 13...Rd5. 14.Hdl
Dc7 15.Bf4 Rxg3 16.Bxg3 Be7?!
Sér greinilega ekki fléttu Sverris,
en eftir 16...Hd8 17.0-0 Be7
18.Hxd8+ Dxd8 19.Hdl Dc7
20.Dg4! er svarta staðan mjög
óþægileg. 17.Dg4 0-0
18.Bxe6!! h5 Ef 18...fxe6 19.Dxe6+
Hf7 20.Dxf7+! Kxf7 21.e6+ og
vinnur sldptamun. 19.Dc4 Had8
20.Bxf7+! Kh8 20...Hxf7 21.Dxf7+
Kxf7 22.e6+ og hvítur verður
skiptamun yfir. 21.Bxh5 Með þrem-
ur peðum yfir verður Sverri ekki
skotaskuld úr að landa vinningnum.
21...b5 22.De2 Hxdl+ 23.Dxdl Hd8
24.Dg4 Da5 25.0-0 Dxa2 26.Bg6
Bxg6 27.Dxg6 Dxb2 28.e6 Hf8
29.Be5 Bf6 30.e7 Bxe7 31.Dxg7 1-0
Hraðskákmót Lundar
Meistararmót Lundar í hraðskák
fór fram 9. maí í húsakynnum
LASK skákklúbbsins í Lundi í Sví-
þjóð. Jens Riis sigraði á mótinu, en í
2. -4. sæti urðu Gunnar Finnlaugs-
son, Nejib Bouaziz og Fredrik
Flyckt. AJlir verðlaunahafarnir era í
LASK.
Sonsbeek SNS skákmótið
Sonsbeek SNS skákmótinu sem
fram fór í Arnhem í Hollandi er nú
lokið. Tefld var tvöföld umferð, allir
við alla. Úrslit urðu þessi:
1.-2. Korchnoi, Sadler 4 v.
3. Nijboer 2!4 v.
4. Xie Jun V/2 v.
Junior teflir við ísraela
Tilraunaútgáfa af Junior 5.x
skákforritinu tefldi á mánudaginn
tveggja skáka einvígi við stór-
meistarann Boris Gelfand. Tíma-
mörkin voru 30 mínútur á skák,
auk þess sem 20 sekúndur bættust
við tímann fyrir hvern leik. Úrslit
urðu þau, að Junior sigraði IV2-V2.
Junior keyrði á Compaq Proline
550 tölvu með fjórum 450Mhz Xe-
on-Pentium III örgjörvum. Með
þessu náðust u.þ.b. þreföld afköst
miðað við einn örgjörva. Innra
minni tölvunnar var 500Mb. Junior
skoðaði u.þ.b. 1.300.000 stöður á
sekúndu. Með þessari uppsetningu
kalla höfundar forritið Deep-Juni-
or!
Samhliða keppninni við Gelfand
fór einnig fram keppni milli ísra-
elska Ólympíuliðsins og Junior.
Tímamörkin voru klukkustund á
skák. Boris Alterman og Lev Psak-
his gerðu jafntefli við Junior, Yona
KosashviH vann, en Boris Avruch
tapaði. í þessari keppni keyrði
Junior á venjulegum PC tölvum
með Pentium III örgjörvum.
ísraelska skáksambandið stóð
fyrir þessari keppni sem fór fram í
Tel-Aviv í ísrael. Höfundar Junior
eru ísraelarnir Amir Ban og Shay
Bushinsky.
Skákmót á næstunni
Tilkynningar um skákmót og
aðra viðburði sem eru á dagskrá
má senda til umsjónarmanna skák-
þáttar Morgunblaðsins. Tölvupóst-
fangið er dadi@vks.is. Einnig má
senda annað efni og athugasemdir
við skákþættina á sama póstfang.
15.5. Grand-Rokk. Hraðskákmót
kl. 14
17.5. Hellir. Fullorðinsmót (25+
ára)
27.5. Meistaramót Skákskólans
29.5. SÍ - Aðalfundur
30.5. Hellir. Kvennamót
Athugið að þar sem ákveðið hef-
ur verið að Meistaramót Skákskól-
ans hefjist 27.5. fellur niður helg-
aratskákmót Hellis sem átti að
fara fram um þá helgi.
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson