Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Gerhard Schröder, kanzlari Þýzkalands, ræðir við kínverska ráðamenn í Peking
Itreka
kröfu
um að
árásum
liimi
GERHARD Schröder, kanzlari
Þýzkalands, hitti í gær ráðamenn í
Peking og baðst afsökunar á því að
sprengjur Atlantshafsbandalagsins
skyldu hafa lent á kínverska sendi-
ráðinu í Belgrad. Sagði Schröder
Kínverja hins vegar ekki hafa viljað
ræða nein friðaráform fyrir Kosovo
fyrr en loftárásunum á Júgóslavíu
hefur verið hætt.
Schröder, sem var í eins dags
vinnuheimsókn í Peking, hitti Zhu
Rongji forsætisráðherra, Tang Ji-
axuan utanríkisráðherra og Jiang
Zemin forseta. Hann sagðist á
fréttamannafundi hafa beðizt afsök-
unar fyrir hönd Þýzkalands og
NATO, en viðmælendur hans hafi
haldið fast við þá kröfu, að bandalag-
ið hætti árásum sínum á Júgóslavíu
áður en Kínastjórn tæki tO greina að
styðja einhverja friðaráætlun fyrir
Kosovo-hérað.
Kanzlarinn sagðist hafa haldið til
Kína í því skyni að reyna að telja
kínverska ráðamenn á að taka upp-
byggilegan þátt í að stuðla að frið-
samlegri lausn Kosovo-deilunnar.
Heimsókn Schröders átti upp-
runalega að vera fjögurra daga opin-
ber heimsókn, með stórri viðskipta-
sendinefnd með í för, en vegna reiði
SKRIN með ösku þeirra, sem létust í árásinni sem NATO gerði fyrir mistök á sendiráð Kína í Belgrad,
eru hér borin frá borði á flugvellinum í Peking í gær, að viðstöddum fjölda syrgjenda.
Kínverja yfir sendiráðsárásinni sl.
föstudagskvöld var hún minnkuð
niður í eins dags vinnuheimsókn
kanzlarans eins.
Jarðneskar leifar kínversku blaða-
mannanna þriggja, sem létu lífið í
sendiráðsárásinni, voru fluttar til
Kína í gær. Skrínin með ösku þeirra
voru bornar að viðstöddum miklum
fjölda syrgjenda frá borði flugvélar-
innar sem sótti þau og hina 20 sem
slösuðust í árásinni til Belgrad, á al-
þjóðaflugvellinum í Peking og þorri
þjóðarinnar fylgdist með í beinni
sjónvarpsútsendingu. Stjómvöld
gerðu að þessu sinni viðeigandi ráð-
stafanir til að önnur eins fjöldamót-
mæli upphæfust ekki við þetta tæki-
færi eins og gerðist strax eftir árás-
ina. Her og lögregla stóð vörð um
sendiráðsbyggingar Bandaríkjanna
og Bretlands í Peking, sem urðu illa
úti í heiftúðugum mótmælaaðgerð-
um sem stóðu fram yfir helgina.
ER MAFW
BAKKAPLONTURI
MIKLU ÚRVALI
MOLTA íLAUSU OG í30L. PK.
HÚSDÝRAÁBURÐUR íLAUSU
Fundur stærstu viðskiptavelda heims
Kína fái inn-
göngu í WTO
á þessu ári
Tókýó. AFP.
FULLTRUAR fjögurra helztu við-
skiptavelda heimsins urðu í gær
ásáttir um að mæla með því að Kína
fengi fulla aðild að Heimsviðskipta-
stofnuninni (WTO) á þessu ári og að
Kínverjar taki þátt í næstu lotu
samningaviðræðna um alþjóðavið-
skipti. Af inngöngu Kína í WTO virð-
ist þó ekki geta orðið vandkvæða-
laust og er allt útlit fyrir að Kína-
stjórnar bíði veruleg vinna við að að-
laga stjóm- og efnahagskerfið eigi af
aðildinni að verða.
Innganga Kína í WTO var efst á
dagskránni á fundi viðskiptaráð-
herra Bandaríkjanna, Japans og
Kanada og fulltrúa framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins (ESB)
í Tókýó. Lýstu fjórmenningamir því
yfir að þeir hörmuðu mjög árásina
sem Atlantshafsbandalagið gerði
fyrir mistök á kínverska sendiráðið í
Belgrad, en stóðu fast á því að árásin
yrði ekki til þess að spilla fyrir und-
irbúningi WTO-aðildar Kína.
I sameiginlegri yfirlýsingu sögðu
ráðherramir að þeir myndu leggja
allt kapp á að samkomulag um aðild-
ina yrði í höfn fyrir ráðherrafund
WTO sem hefst í Seattle hinn 30.
nóvember nk.
Ekkert samkomulag um
nýjan yíírmann WTO
En þessir fjórn- aðilar, sem standa
fyrir tvo þriðju hluta allra heimsvið-
skipta, virtust ekki mjakast neitt nær
lausn deilunnar um val nýs yfirmanns
WTO, sem hefur verið „höfuðlaus"
frá því í lok apríl. Né heldur virtist í
sjónmáli lausn á harðri deilu Banda-
ríkjamanna og ESB um innflutning
bandarísks hormónakjöts. Frestur
sem WTO gaf ESB til að aflétta tíu
ára gömlu banni við innflutningi kjöts
af nautgripum sem aldir hafa verið
með hormónalyfjum, rennur út í dag,
13. maí. Verði banninu ekki aflétt má
ESB eiga von á að Bandaríkin grípi
til refsiaðgerða. Charlene Barshef-
sky, viðskiptaráðherra Bandaríkj-
anna, ítrekaði þetta á fundinum.
Barshefsky átti tveggja daga við-
ræður við starfsbræður sína frá Jap-
an, Kaoru Yosano, og frá Kanada,
Sergio Marchi, auk Sir Leon Britt-
ans, sem fer með viðskiptamál í
framkvæmdastjórn ESB og er vara-
forseti hennar.
Fái Kína inngöngu í WTO á árinu
taka Kínverjar þátt í næstu lotu al-
þjóðaviðræðna um heimsviðskipti,
sem á að hefjast á Seattle-fundinum
í haust. Gert er ráð fyrir að þessi
lota, kölluð „aldamótalotan“, standi
yfír í um þrjú ár. Þetta verða fyrstu
alhliða viðræðurnar um tilhögun
heimsviðskipta frá því „Úrúgvæ-
lotu“ GATT-viðræðnanna lauk loks
árið 1994, eftir átta ára þref.
Þurfa að taka sig á
Barshefsky sagði Kínverja munu
þurfa að taka sig verulega á á mörg-
um sviðum ef þeim á að takast að ná
því takmarki að komast í WTO á ár-
inu. „Innganga Kína er einstök, ekki
eingöngu vegna stærðar og efna-
hagsmáttar landsins, heldur einnig
vegna þeirra margslungnu viðskipta-
hindrana sem skarast á margan hátt,
hinnar veiku stöðu réttarríkis í Kína
og skortsins á gegnsæi í stjómkerfí
viðskiptalífsins þar,“ sagði hún.