Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Síðari
hálfleikur
GETUR það verið að
allir - Háskóli íslands,
verkalýðshreyfingin,
félög eldri borgara,
sveitarfélögin, fölmiðl-
amir, alþingismennirn-
ir og ekki síst sjálft
fólkið í landinu, vilji sjá
þá framtíðarsýn að
full'orðið fólk sem fer af
vinnumarkaði sé sett í
sérstaka bása í þjóðfé-
laginu - gert að óvirk-
um þátttakendum sem
eru mataðir af öðrum.
Eftir þá stöðnun sem
verið hefur í málum
aldraðra í hálfa öld og
þá kyrrstöðu sem þessi
mál eru í núna koma þessar spurn-
ingar upp og eru áleitnar og þó að
það sé óþægilegt verður að kalla
eftir svörum.
Aldraðir
Fólki, segir Hrafn
Sæmundsson, er í raun
safnað saman á
grafarbakkanum.
Hvað gerir Háskóli íslands í þess-
um þætti þjóðfélagsins? Fulltrúar
félagsvísindadeildar koma raunar
gjarnan á fundi og ráðstefnur. En
hver er heildstæð stefna og hvar er
áhugi Háskólans sem slíks á þessu
stóra félagslega verkefni í þjóðfélag-
inu? Hvar er áhugi Háskólans á fé-
lagslegum afdrifum þeirra tugþús-
unda landsmanna sem eru að ganga
út á ónumið landsvæði vaxandi frí-
tíma og vaxandi félagslegra verk-
efna á komandi öld? Hvar er áhugi
Háskólans á þeirri breytingu á gerð
þjóðfélagsins sem hlýtur að orsakast
af tilkomu tugþúsunda manna sem
fara af vinnumarkaði á næstu árum
með meiri og minni starfsorku í
10-30 ár eftir verkalok? Eru þessar
pæhngar kannski ekki á verksviði
Háskólans?
Hvað gerir verkalýðshreyfingin í
þessu gríðarlega hagsmunamáli
meðlima sinna sem gjarnan eiga
eftir 10-20 ár með góðri heilsu eftir
verkalokin? Það starf sem unnið er
byggist fyrst og fremst á því að búa
fólk undir óvirka bið á lífeyrisaldri.
Að kenna fólki að passa heilsuna,
með hollu mataræði, hollri hreyf-
ingu, hollri hegðun og mikilli þekk-
ingu á réttindum og hagsmunamál-
um ellilífeyrisþega. En minna um
hitt að hafa frumkvæði um að losna
ekki úr tengslum við þjóðfélagið og
yngri aldurshópa. Sum verkalýðsfé-
lög safna meira að segja fólki í sér-
stakar „ellideildir". Sérstaka bása
fyrir lífeyrisþega!
Hvað gera félög eldri borgara? I
þeim safnast fullorðið fólk saman,
60 ára og eldra - núna um 14 þús-
und manns. Megnið af félagslegu
starfi er skipulagt þannig að fullorð-
ið fólk gerir eitthvað með öðru full-
orðu fólki. Þannig einangra félögin
fullorðið fólk frá þjóð-
félaginu og blöndun
kynslóðanna og slæva
þannig frumkvæði og
áræði einstaklinganna.
Fólki er í rauninni
saftiað saman á grafar-
bakkann til að bíða og
á meðan sjá „aðrir“ að
stórum hluta um „afþr-
eyinguna" á þessum
biðtíma.
Hvað gera sveitarfé-
lögin? Þau styðja full-
orðið fólk oft myndar-
lega til að einangrast.
Leggja til húsnæði og
starfsfólk og peninga.
Fullorðna fólkið kemur
saman í þessum húsakynnum, syng-
ur saman, dansar saman, spilar
saman, fóndrar saman og fer í
ferðalög saman og svo framvegis.
Kanmnski er það í ferðalögunum
sem fólk fær helst tækifæri til að
sjá aðrar kynslóðir út um bílrúðuna!
Hvað gera fjölmiðlamir? Yfírleitt
er fullorðnu fólki stillt upp eins og
bömum og talað niður til þess. Oft
minna vandræðalegar spumingar
fjölmiðlafólks á það þegar talað er
við þroskahefta. Fjölmiðlafólkið
þekkir ekki viðfangsefnið og tekur
það ráð að klappa fólkinu. Hella
súkkulaði yfir fullfrískt fólk sem
ekkert hefur gert af sér annað en að
vera með vitlausa kennitölu.
Kannski er það þessi vandræða-
gangur og þekkingarleysi sem gerir
það að verkum að fjölmiðlafólkið
dembir sér út í peningamálin, hið
pólitíska umræðuform sem allir
kunna. Það er átakanlegt að vera á
fundum þar sem fram koma nýjar
hugmyndir en þessu er sleppt í fjöl-
miðlunum og í staðinn spólað af
„kjaramálaspólunni“ í þúsundasta
sinn.
Hvað gera alþingismennirnir?
Þrátt fyrir Ár aldraðra og áskomn
Sameinuðu þjóðanna og tilmæli Gro
Harlem Brundtland minntust þeir í
kosningabaráttunni aldrei á stærsta
félagslega verkefnið í þjóðfélaginu.
Þó að frambjóðendur eyddu milljón-
um orða í þennan málaflokk minnt-
ust þeir aldrei á félagslega velferð
eða félagslega framtíð þeirra tug-
þúsunda sem fara af vinnumarkaði
á næstu ámm og áaratugum. Þing-
menn sjá aðeins og karpa um lífeyr-
isgreiðslur í dag og sjá ekki einu
sinni hina fjárhagslegu hhð málsins
í framtíðinni. Þann gífurlega spam-
að í heilbrigðiskerfinu og stofnana-
vist sem sannanlega fæst með við-
horfsbreytingu og öðruvísi þjónusu
hins opinbera við þá sem koma af
vinnumarkaði þar sem hver einstak-
lingur héldi reisn sinni og hefði
fmmkvæði og eðlileg viðfangsefni á
stöðugt lengri lífeyrisaldri.
Vonandi sjá nýir þingmenn svolít-
ið út úr augunum þegar þeir koma í
vinnuna og að minnsta kosti væri
óskandi að þeir hefðu það mikla for-
vitni að þeir vildu kynna sér málið
af eigin raun.
Höfundur er fulltrúi.
Hrafn
Sæmundsson
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 67
Líttu vel út.
Ársfundur [ Ársfundur Sameinaða lífeyrissjóðsins 1999 verður haldinn mánudaginn 17. mai 1999 kl. 16.00 að Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38. Dagskrá 1* Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins. 2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins. 3. Önnur mál löglega upp borin. Aðitdarfélögum sjóðsins hefur verið send fundarboð og eru þau beðin aó tilkynna skrifstofu sjóðsins fyrir 10. maí n.k. hverjir verða fulltrúar þeirra á fundinum. AlLir sjóðfélagar eiga rétt til setu á fundinum með tillögu og málfrelsi. Tillögur til breytinga á samþykktum liggja frammi á skrifstofu sjóðsins m og geta þeir sjóðfélagar sem áhuga hafa á að kynna sér þær fyrir fundinn, 1 fengið þær á skrifstofu sjóðsins eða sendar í pósti. Einnig er hægt að | náLgast tillögurnar á veraLdarvefnum. Slóð sjóðsins er www.lifeyrir.is 1 # Reykjavík 21. april 1999 íý. Bjj fesypg yi Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins. • >£• Suðurlandsbraut 30 • 108 Reykjavík • Simi: 510 5000 . Fax: 510 5010 • Grænt númer: 800 6865 lireyrÍSS|OOUrinn Heimasíða: lifeyrir.is • Netfang: mottaka@lifeyrir.is
TOSHIBA
BYLTINGIN!
Mynddiskaspilari
Æuintýraleg mynd- og tóngæði!
Toshiba er frumkuöðuil og brautryðjandi í DUD-tækninni.
T0SHIBA þróaði þessa stórkostlegu nýjung í samuinnu við
WARNER kuikmyndarisann og nú getur þú fengið allar nýjustu
myndirnar á DUD-diskum á öllum betri myndbandaleigum.
Nú fyrst færðu „bíófflinginn" beint í æð. Komdu til okkar og
kynnstu Toshiba DUD af eigin raun, það er meiriháttar upplifun!