Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 79
I DAG
BRIDS
Um.sjón Guðmiindur
I'áll Arnarson
SUÐUR spilar þrjú grönd
og þarf að hitta í laufið.
Hversu hittinn er lesand-
inn?
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
* 32
V Á6
* K94
* ÁKG973
Suður
A G1097
VG7
♦ ÁD82
+ 642
Veslur Norður Austur Suður
Pass 1 lauf 1 spaði 1 grand
Pass 3grönd Pass Pass
Pass
Vestur kemur út með
spaðakóng og spilar meiri
spaða, sem austur tekur
með drottningu og skiptir
yfir í hjartatíu. Það mátti
búast við því. Þú lætur gos-
ann og vestur kónginn. Þú
drepur, tekur laufás, en
færð ekkert bitastætt í
þann slag. Hvernig
hyggstu halda áfram?
Það liggur svo sem ekk-
ert á að taka ákvörðun
varðandi laufið strax. Þú
tekur því þrjá efstu í tígli
og báðir andstæðingar
fylgja. Ertu einhverju nær?
Norður
A 32
VÁ6
♦ K94
* ÁKG973
Vestur Austur
A K5 * ÁD864
V K8543 V D1092
♦ G65 ♦ 1073
*D108 *5
Suður
* G1097
VG7
♦ ÁD82
* 642
Þú veist að austur á
fimmlit í spaða og þrjá
tígla. En hvað á hann mörg
hjörtu? Á meðan þú ert að
íhuga málið rifjast upp fyr-
ir þér að vestur sagði pass í
byrjun. Þú h'tur á
kerfiskort andstæðinganna
og þai' stendur að þeir noti
„veika tvo“. Vestur vakti
ekki á tveimur hjörtum,
sem bendir til að hann sé
ekki með sexlit. Skipting
austurs er þvi að öllum lík-
indum 5-4-3-1. Þú spilar því
laufi og svínar gosanum,
fullur sjálfstrausts.
„Grisari," segja mótherj-
arnir, en þú veist betur.
Pennavinir
Hollensk fjölskylda skrifar
og kveðst hafa áhuga á að
komast í samband við ís-
lenska fjölskyldu sem vildi
skiptast á íbúðum í sumar
eða næsta sumar:
Fam. A. Grundeken,
Vrouwestraat 54,
4381 EN Vlissingen,
Holland.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags-
blað. Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símamímer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100,
Sent í bréfsíma 569-1329,
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík.
Arnað heilla
Qf^ÁRA afmæli. Á
i/Omorgun, föstudag-
inn 14. maí, verður 95 ára
Sigríður Valdimarsdótt-
ir, Birkimel 8b. Hún tek-
ur á móti gestum í Ársal
Hótel Sögu kl. 15-19 á af-
mælisdaginn.
n AÁRA afmæli. Á
O Vr morgun, föstudag-
inn 14. maí, verður áttræð
Matthildur S. Maríasdótt-
ir. Hún tekur á móti gest-
um í Félagsheimili Raf-
magnsveitu Reykjavíkur í
Elliðaárdal frá kl. 17 á af-
mælisdaginn.
ry/AÁRA afmæli. Næst-
I V/komandi laugardag
15. maí verður sjötugur
Jón Guðmundsson, for-
stjóri Sjólaskipa, Háa-
hvammi 4, Hafnarfirði.
Hann og eiginkona hans,
Marinella R. Haraldsdótt-
ir, taka á móti gestum á
afmælisdaginn kl. 16-19 í
nýinnréttuðum sal, Turn-
inum, á 7. hæð verslunar-
miðstöðvarinnar á Fjarð-
argötu 13-15 í miðbæ
Hafnarfjarðar.
A AARA afmæli. Á
Ovlmorgun, föstudag-
inn 14. maí, verður sex-
tugur Jón Gunnar Gísla-
son, Túngötu 18, Eyrar-
bakka. Hann og eiginkona
hans, Alda Guðjónsdóttir,
taka á móti ættingjum og
vinum í samkomuhúsinu
Stað, Eyrarbakka, kl.
20-22 á afmælisdaginn.
Með morgunkaffinu
*
Ast er...
5-21
... að kynda undir
ástinni öðru hvoru.
TM R*fl. U.S. P*t. Otl. — all riflht* reswved
(c) 1999 Los Angeles Times Syndéste
-öaiNÓwí^
LJOÐABROT
ÆSKUAST
Hví leitar það hljómdjúpi hörpunnar frá,
sem helzt skyldi í þögninni grafið?
Ég kalla þó aldrei þá sól úr sjá,
sem sefur á bak við hafið.
Ég er eins og kirkja á öræfa tind,
svo auð sem við hinzta dauða,
fi»Tf3„gfffren Þó brosir hin heilafcr;l Maríumynd,
(1887-1916) þín minning, frá vegginum auða.
Sakleysið hreint eins og helgilín
var hjúpur fegurðar þinnar,
sem reykelsisilmur var ástin þín
á altari sálar minnar.
Þú hvarfst mér, og burt ég í fjarska fór,
en fann þig þó, hvert sem ég sneri,
sem titrandi óm í auðum kór
og angan úr tómu keri.
Ljóöiö
Æskuást
STJÖRIYUSPA
eftir Frances Drake
NAUT
Afmælisbarn dagsins: Þú
ert lífsglaður og hefur
gaman af að fá sem flesta í
leikinn með þér en kannt
líka að halda þér til hlés
þegar þú vilt.
Hrútur _
(21. mars -19. apríl)
Það hefur ekkert upp á sig
að halda í annað fólk ef það
er staðráðið í að fara sína
leið. Slepptu frekar því það
er þér sjálfum fyrir bestu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er alltaf skynsamlegt að
hafa varaáætlun að grípa til
ef eitthvað skyldi nú fara úr-
skeiðis. I þessum efnum þýð-
ir ekki að reiða sig á aðra.
Tvíburar .
(21. maí - 20. júní) AA
Þú sækir innblástur og orku
í óvænta átt. Leitaðu frekar
eftir samstarfi við aðra held-
ur en samkeppni því það
mun gefa þér góðan árangur.
Krabbi
(21. júnl - 22. júlí)
Þótt skoðanir séu skiptar er
ástæðulaust að láta það
verða til vinslita. Það er allt í
lagi að segja meiningu sína
en þó þannig að það særi
engan sem í hlut á.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) W
Þú lærir ný sannindi í dag
svo það er eins gott að vera
undir þau búinn því þau geta
gjörbreytt lífí þínu ef þú ferð
rétt með þau.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) (DSL
Varastu að ganga svo langt
að þú misbjóðir heilsu þinni.
Það er bara skynsemi á eng-
an hátt flokkast undir
sjálfselsku.
(23. sept. - 22. október) m
Það eru ýmis smáviðvik sem
þú þarft að leysa af hendi áð-
ur en þú getur tekið til við
stóru verkefnin aftur. Vertu
uppörvandi í samskiptum við
aðra.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Það gengur svo mikið á í
kringum þig að þú þarft að
gæta þess að verða ekki
stressinu að bráð. Mundu að
ekkert er þess virði að missa
heilsuna fyrir það.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. desember) XSf
Þér stendur ótti af einhverju
gömlu atviki en hann er
ástæðulaus því fortíðin getur
engin áhrif haft úr þessu.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) *Sf
Vertu ekki að eyða tfmanum í
það sem ekki fæst því lífið er
eins og naglasúpan að maður
á fyrst og fremst að hugsa
um það sem hendi er næst.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar)
Oft er skammt á milli hláturs
og gráturs. Varastu að láta
vonbrigði þín bitna á öðrum
og reyndu heldur að sjá
björtu hliðarnar á tilverunni.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Mundu að góðverk á ekki að
gera með það í huga að fá
þau endurgoldin. Gættu þess
að tala svo skýrt að aðrir
þurfi ekki að velkjast í vafa
um meiningu þína.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
GLERAUGNABÚDIN
Helmout Krekllcr
Laugavegi36
MORGUNHANI
fær 20% afslátt af
viðskiptum milli
kl. 9 og 11
T -
Tilboð 2 fyrir 1
Verkfæradagar frá 14/5 til 21/5
Þú kaupir einn hlut og færð annan í kaupbæti
Sýnishorn af tegundum sem í boði eru:
Sérstakt tilboð kr. 698
Verkfærataska,
stærö; L-40 cm
B-23 cm
H-19 cm
búðin
Einstakt á Islandi,
öll verð í okkar
búðum frá
kr. 198-998.
Laugavegi 118, sími 511 4141
Kringlunni, sími 588 1010
Keflavík, sími 421 1736
PRENTARAR
Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699
Vefsíða: www.oba.is