Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIB_________
UMRÆÐAN
rp<., i . <rr,r , ^nVT1,»iTTM HT
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 71
FRÉTTIR
FRÁ afhendingu bikaranna f.v.: Heiðar Þdrðarson, Sigurður Pálsson,
Lárus Johnsen, Sigurveig Jónsdóttir, Haraldur A. Sveinbjörnsson og
Lárus Arnórsson.
s
Islandsbanki gefur
skákdeild FEB bikara
að hafa undir höndum tölvupóstfang
gefur fyrirtækjum ekki heimild til
þess að senda viðkomandi markpóst.
Það eru til margar leiðir til þess að
fá leyfi til að senda tölvunotendum
markpóst. Til dæmis með því að bjóða
viðkomandi eitthvað á móti á heima-
síðu fyrirtækisins á Intemetinu.
Gagnagrunnur
En það er ekki nóg að hafa vand-
lega uppsettan póstlista þvi ein af
meginhættunum stafar af því að
gagnagrunnurinn er gjörsamlega
laus við persónulegar upplýsingar
um viðtakendur. Þegar setja á upp
gagnagrunn þarf að tilgreina tölvu-
póstfóng viðkomandi aðila auk ann-
arra upplýsinga, s.s. fullt nafn, heim-
ilisfang, aldur, kyn, starf, o.s.frv.
Þessar upplýsingar nýtast vel við
hönnun markpóstsins.
Eins er mjög mikilvægt að halda
utan um það hvemig viðkomandi að-
ili er tilkominn í grunninn því þessar
upplýsingar geta skorið úr um hvort
pósturinn sé virkilega markpóstur
eða ruslpóstur. Dæmi: Aðili óskar
eftir upplýsingum um þjónustu fyr-
irtækisins og gefur upp tölvupóst-
fang sitt. Mörgum mánuðum seinna
er þjónustunni breytt og fyrirtækið
sendir viðkomandi upplýsingar um
það með markpósti. Ef þessi aðili er
búinn að gleyma því að hann hafði
áður óskað upplýsinga mun hann
líta á markpóst fyrirtækisins sem
raslpóst. Ef hins vegar er bent á að
viðkomandi hafi óskað eftir upplýs-
ingum mun hann/hún líta á sending-
una sem fyrsta flokks þjónustu.
Ekki er síður mikilvægt að fjarlægja
aðila úr gagnagrunninum sé þess
óskað.
Útlit og hönnun
Tölvupóstsendingar geta verið af
öllum toga; með myndum,
tengiskjölum, lógóum og fleira. Hins
vegar er best að senda hreinan texta
og ekkert annað því hafa verður í
huga að margir notast enn við 14.4
og 28.8 bita mótöld. Þessir aðilar
hafa margt annað við tímann að gera
en að bíða eftir að tölva þeirra opni
ofhlaðinn markpóst. Þá skiptir heiti
markpóstsins miklu máli og gilda
tvær reglur þar um: Ekki nota
HÁSTAFI í titillínu og ekki byrja á
orðum eins og ,Athugið:“. Best er að
setja nafn viðtakanda í titillínu og til-
vitnun um að viðkomandi hafi óskað
eftir upplýsingunum.
Eg viðurkenni að ég opna þann
markpóst sem mér berst því sem
markaðsfræðingur tengist það starf-
inu að fylgjast með hvernig verið er
að nýta þennan miðil. Það er einmitt
þess vegna sem ég rita þennan pistil
því ég vil vara við rangri notkun raf-
rænna markaðssetninga því þetta á
eftir að verða mikilvægur miðill í
samskiptum fólks og misnotkun á
eftir að aukast. En með góðri skipu-
lagningu era tölvupóstsendingar
mjög hagkvæmur vettvangur mark-
aðssetninga og á mikilvægi þeirra
eftir að aukast er fram líða stundir
því markaðsmenn og -konur þessa
heims þurfa ávallt að leita nýrri og
betri leiða til að ná til einstaklinga á
markvissari og ódýrari hátt.
Að lokum get ég ekki staðist
freistinguna að greina frá því að á
meðan ég var að skrifa þennan pistil
barst eftirfarandi póstur inn í gegn-
um póstkerfið mitt: „Mono 87,7 og
Skugginn ætla að kveðja veturinn og
taka á móti sumrinu í kokteil festival
þann 21. aprfl. Húsið opnar kl. 21.58
og til 24.00 verður allt seyðandi og
freyðandi í kokteilum. Láttu sjá
þig-“
Markpóstur eða raslpóstur? Eg
læt dómgreind þína taka afstöðu til
þess. Þó vil ég taka það fram að ég
er góður viðskiptavinur Skuggabars-
ins en hlusta þó öllu meira á FM 957.
Og þó að ég þekki þann sem sendi
mér póstinn ekkert persónulega þá
ætla ég samt að taka hann á orðinu
og þiggja þetta „seyðandi og freyð-
andi“ góða boð. Gleðilegt sumar.
Höfundur er niarkaðsfræðingur
og starfar hjá Islandsbanka.
SKÁKDEILD Félags eldri borg-
ara í Reykjavík og nágrenni var
stofnuð 23. september 1998. Sig-
urður Pálsson er formaður henn-
ar. Teflt er á þriðjudögum kl. 13.
Nýlega voru veitt verðlaun fyr-
ir haustmót sem haldið var í oktd-
ber/nóvember sl. Veitt voru 1., 2.,
og 3. verðlaun ásamt farandbikar.
Fyrsti verðlaunahafi varðveitir
farandbikarinn í eitt ár. Fyrstu
verðlaun hlaut Haraldur Á. Svein-
björnsson, önnur verðlaun Lárus
Johnsen og þriðju verðlaun Lárus
Arnórsson.
Skömmu eftir áramót var hald-
ið meistaramót. Sams konar verð-
laun voru veitt fyrir það. Fyrstu
verðlaun hlaut Lárus Johnsen,
önnur verðlaun Heiðar Þórðarson
og þriðju verðlaun Haraldur A.
Sveinbjörnsson.
íslandsbanki gaf alla þessa 8
bikara ásamt þremur sem verða
til afhendingar á næsta haust-
móti. Skákdeildin þakkar af alhug
þessa höfðinglegu gjöf. Sigurveig
Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Is-
landsbanka, var viðstödd afliend-
inguna.
-------.......—
Útvarp KR hef-
ur útsendingar
ÚTVARP KR, fm 104,5, hefur út-
sendingar á Rauða ljóninu við Eiðis-
torg á laugardaginn. Ætlunin er að
útvarpað verði í sumar efni tengdu
Knattspyrnufélagi Reykjavíkur og
leikjum félagsins.
KR keypti nýlega Rauða Ijónið.
KR-bandið mun leika fyrir gesti
staðarins á fostudags- og laugar-
dagskvöld. í fréttatilkynningu segir
að lögð verði áhersla á að þjónusta
vesturbæinga bæði í mat og drykk.
Fegurðardrottning Is-
lands valin á Broadway
23 stúlkur *
keppa
FEGURÐARDROTTNING íslands
1999 verður valin úr hópi 23 kepp-
enda á Broadway föstudaginn 21.
maí nk.
Æfmgar era hafnar á sviðinu á
Broadway og er það Kadri Hint,
danshöfundur frá Eistlandi, sem sér
um sviðsetningu og þjálfun stúlkn-
anna. Undanfarnar vikur hafa þær
æft líkamsrækt hjá Dísu í World
Class. Förðun er í höndum Face, um
hárgreiðslu sjá Hárstofan Spes og ‘
Karítas, neglur og aðra snyrtingu
Heilsa og fegurð og brúni liturinn
kemur frá Sólbaðsstofu Grafarvogs.
Framkvæmdastjóri keppninnar er
Elín Gestsdóttir.
Söngvararnir Birgitta Haukdal og
Kristján Gíslason úr sýningunum
Abba og Prímadonnum syngja fyrir
gesti og dansarar undir stjóm Kadri
Hint koma fram milli innkomu kepp-
enda en þær koma fram þrisvar um
kvöldið þ.e. í tískusýningu frá Blues,
Kringlunni, á Knickerbox baðfötum
og á síðkjólum. Valin verða 5 sæti;
ljósmyndafyrirsæta, vinsælasta
stúlkan, Oroblu-stúlkan og einnig
velja notendur Netsins netstúlkuna
1999. Slóðin er centram.is/netstulk- ^
an. Krýning verður upp úr miðnætti
og að henni lokinni verður dansleik-
ur með Skitamóral.
Kynnir kvöldsins verður Bjarni
Ólafur Guðmundsson en dómnefnd
skipa: Sólveig Lilja Guðmundsdóttir,
ungfrú ísland 1996, Hrannar Péturs-
son, fréttamaður, Hrafn Friðbjörns-
son, framkvæmdastjóri, Andra Bra-
bin, fyrirsæta, Þórarinn Jón Magn-
ússon, útgefandi, Hákon Hákonar-
son framkvæmdastjóri og Elín
Gestsdóttir.
Radisson S4S
SAGA HOTEL REYKJAVÍK
Hagatorg 107 Reykjavík lceland
ftMMVetöÍ'
* 9 " 9 *r\ r\
fýwýUt 77
Dagana 15. og 16. maí verður haldin í Sunnusal
Radisson S.A.S. Hótel Sögu, glæsileg sýning á
fjölbreyttu úrvali af vörum sem tilheyra stanga-
veiðinni. Margvísleg tilboð í gangi.
Heiðursgestur sýningarinnar er Stangaveiðifélag
Reykjavíkur 60 ára, sem verður með sölu-
og kynningarbás.
Opnunartímar: Laugardagur 15. maí kl. 13-19 og
sunnudagur 16. maí kl. 11-19.
Aðgangseyrir kr. 300.- en frítt fyrir börn yngri en
12 ára í fylgd með fullorðnum. Hver miði gildir
sem happdrættismiði sem dregið verður úr í
sýningarlok. Tugir glæsilegra veiðivinninga.
4