Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.05.1999, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Birna Mjöll SJOÐSSTJÓRNIN f.v.: Sr. Hannes Björnsson, Þórólfur Halldórs- son, Jón Hákonarson og Sigurður Skagflörð. Minningarsjóður um Málfríði Guðbjartsdótt- ur og Hákon Jónsson Patreksflrði - Nýverið stofnaði Jón Hákonarson rausnarlegan sjóð til minningar um foreldra sína Málfríði Guðbjartsdóttur og Hákon Jónsson, fyrrum ábúend- ur á Hnjóti í Örlygshöfn. Jón var áður búsettur á Hnjóti en býr nú á Patreksfirði. Tilgangur sjóðsins er líknar- starfsemi innan Vestiu-byggðar eða innan Vesturbyggðar í V- Barðastrandasýslu ef sveitarfé- lögin í sýslunni verða gerð að einu sveitarfélagi. Styrkir úr sjóðnum verða veittir til fátækra fjölskyldna eða einstaklinga þar sem fátækt stafar af örorku eða ill- eða ólæknandi sjúkdómi. Til munaðarlausra barna sem ekki njóta öruggrar framfærslu, til þeirra sem orðið hafa fyrir frá- falli fyrirvinnu og til þeirra sem orðið hafa fyrir fjárhagslegum áfollum vegna náttúruhamfara, eldsvoða, slysa eða veikinga. Stofnfé sjóðsins er 10 milljónir króna. Formaður stjómar er Sigurð- ur Skagfjörð, útibússtjóri Lands- banka Islands á Patreksfirði, Hannes Bjömsson, sóknarprest- ur á Patreksfirði og Þórólfur Halldórsson, sýslumaður á Pat- reksfirði em meðstjómendur. Landsbanki * Islands Útibúið á ísafírði 95 ára ísafirði - Útibú Landsbanka Islands á Isafirði á 95 ára af- mæli á laugardaginn, 15. maí, en það tók til starfa þann dag árið 1904. Aðsetur Landsbankans á Isafirði hefur verið á ýmsum stöðum í bænum í tímans rás. Fyrstu fjórtán árin var útibúið til húsa við Bankagötu, eins og hún hét þá, en heitir nú Mána- gata. Árið 1918 fluttist útibúið í safnaðarhúsið Hebron við Steypuhúsgötu, sem nú er hús H-prents við Sólgötu en var löngum þekkt sem Góðtempl- arahúsið. Árið 1926 var flutt búferlum í Stjömuna við Pól- götu, þar sem séra Sigurður Kristjánsson bjó seinna, og átta árum seinna í nýtt hús- næði í eigu Tryggva konsúls Jóakimssonar við Aðalstræti 24. Það var loks árið 1958 sem bankinn fluttist í eigið húsnæði að Pólgötu 1, en það hús var byggt sérstaklega fyrir bank- ann og ber hið dæmigerða svipmót Landsbankahúsa. Þar hefur nú verið haldið kyrru fyrir í rúm 40 ár. Fyrsti útibússtjóri Lands- banka íslands á ísafirði var Þorvaldur læknir Jónsson. Áð- ur hafði Þorvaldur veitt for- stöðu Sparisjóði ísfirðinga, sem stofnaður var árið 1876 og rann inn í útibú Landsbanka fslands við stofnun þess. Árið 1897 var byggt sérstakt hús fyrir sparisjóðinn, en það var einmitt húsið við Bankagötu sem dró nafn sitt af honum og þar sem útibú Landsbankans var síðan til heimilis mörg fyrstu árin. Nú gegnir Brynjólfur Þór Brynjólfsson stöðu útibússtjóra Landsbank- ans á ísafirði, tólfti maðurinn í því starfi á 95 áram. Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir FUNDARMENN á aðalfundi og málþingi Ferðamálasamtaka Suðurlands sem haldið var í Hrauneyjum, ásamt nokkrum sleðahundum og eigendum þeirra, en þau stofnuðu nýlega fyrirtækið „Dog Steam“ um rekstur hundasleðaferða. Markaðsskrif- Hellu - Aðalfundur og málþing á vegum Ferðamálasamtaka Suður- lands vora haldin fyrir stuttu í Há- lendismiðstöðinni í Hrauneyjum. Að loknum hefðbundnum aðalfund- arstörfum samtakanna, þar sem Jóhanna B. Magnúsdóttir var end- urkjörin formaður, hófst málþing um stofnun markaðsskrifstofu, net upplýsingamiðstöðva og afþrey- ingu í ferðaþjónustu á Suðurlandi. Viðræður standa nú yfir milli Ferðamálasamtakanna og At- vinnuþróunarsjóðs Suðurlands um stofnun skrifstofu sem sinna myndi stofa í markaðssetningu hvers kyns fyrir- tækja sem þar starfa. í framsögu- erindum Óla Rúnars Ástþórssonar framkvæmdastjóra Atvinnuþróun- arsjóðs og Rögnvaldar Guðmunds- sonar ferðamálafræðings kom fram að markmiðið með stofnun bígerð slíkrar markaðsskrifstofu er að styrkja jákvæða ímynd Suðurlands gagnvart ferðamönnum, íbúum og þeim sem áhuga hafa á að setjast þar að eða hefja atvinnustarfsemi. Einnig að efla samstöðu og sam- vinnu sveitarfélaga, íbúa og at- vinnufyrirtækja á Suðurlandi, fjölga störfum og efla atvinnulíf á Suðurlandi með áherslu á ferða- þjónustu. Þá er einnig markmiðið að samhæfa störf ferðamálafulltrúa og starfsemi upplýsingamiðstöðva. Á málþinginu flutti Úlfar Ant- onsson frá Ferðaskrifstofu Islands áhugavert erindi um afþreyingu fyrir ferðamenn og samskipti ferðaskrifstofunnar við aðila í ferðaþjónustu. Líflegar umræður spunnust í lok ráðstefnunnar sem lauk með heimsókn þátttakenda í Hrauneyjafossvirkjun. Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir ALLIR nemendur og kennarar Laugagerðisskóla sungu fyrir gesti. Eyja-og Miklaholtshreppi - Nem- endur í Laugargerðisskóla héldu sína árlegu hátíð í skólanum fyrir nokkru. Hátíðin hófst á því að kór skólans, sem allir nemendur og kennarar eru í, fluttu nokkur lög. Formaður nemendaráðs Anna Sigrún Ásgeirsdóttir ávarpaði gesti, sem voru vel yfir hundrað, og bauð þá velkomna. Síðan tók við samfelld skemmti- dagskrá sem samanstóð af leikrit- um og tónlistarflutningi. Allir nemendur tóku þátt í að flytja Nemendur og kennarar saman á sviðinu skemmtidagskrána. Helmingur nemenda í Laugargerðisskóla er í tónlistarkennslu sem Steinunn Pálsdóttir sinnir tvo daga í viku. Árshátíðinni lauk á því allir drukku saman hátíðarkaffi og höfðu foreldrar eldri nema í skól- anum bakað meðlætið. Almenn ánægja var með það að árshátíðin var haldin í skólanum, en ekki að félagsheimilinu Breiða- bliki eins og undanfarin ár, en vegna þess hve nemendum hefur fækkað mikið var ekki talin ástæða til þess að lialda skemmt- unina annarsstaðar. Nemendur stóðu sig með stakri prýði og voru gestir ánægðir með kvöldið. i E* RR Hrunamannahreppi - Ungur kaninubóndi, Sigfús Bryiy'ar Sig- fússon í Vestra-Geldingaholti í Gnúpveijahreppi, hóf fyrir nokkru að rækta lioldakanínur og nú er selt kjöt af þeim í ail- mörgum verslunum. Sigfús er með um 100 læður og 15 högna í ræktuninni. Miðað við þennan meðalfjölda getur búið framleitt 5.000 til 6.000 unga á ári en nú fæðast um 300 á mán- uði. Að jafnaði koma átta ungar í goti en meðgangan er 31 dagur, got eru 5-6 á ári hjá hverri læðu. Ungarnir sjúga læðurnar í um fimm vikur og eru þá teknir frá þeim. Dýrin eru alin á sérstakri fóðurblöndu sem er blönduð hér- lendis. Kanínurnar eru um tveggja og hálfs mánaðar þegar þeim er lógað og vegur þá skrokkurinn um 1 kg. Slátrun fer fram í sláturhúsi Hafnar-Þríhyrnings á Hellu. Kjötið er selt í verslunum KÁ, Nýkaups og Gallerís Kjöts og segir Sigfús að því sé vel tekið. Uppskriftir að matreiðslu fást í þessum verslunum, en kjötið er talið gott sem grillmatur. Sigfús segir að búið sé að ná tökum á að súta feldinn af dýrun- um og vonast eftir að hann verði einhvers virði. Hann segir kan- ínubúskapiun vera nærri fullt starf þegar allt er talið, bókhald sem annað. Að auki stundar Sig- fús tamningar heima hjá sér, en hann er margverðlaunaður hestamaður. Sigfús hefur átt kanmur irá því hann var sex ára, en fá dýr, þar til honum datt í hug að gera þetta að búskap. Hann ræktar ekki feld- kanínur af tegundinni Castor Rex, sem er ung búgrein hér á landi, en á nokkur dýr af þeirri tegund. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson SIGFUS Brynjar Sigfússon kanínubóndi með fallega læðu. Holdakanínukjöt komið á markað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.