Morgunblaðið - 13.05.1999, Page 8

Morgunblaðið - 13.05.1999, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Jón Kr. Gunnarsson lét veiöa Keikó: VILTU ekki komast í heimspressuna aftur, Keikó minn? Rýmum fyrir nýjum vörum -allt að ðjl NINTENDO.64 LOEWE. Á þriðju hæð í verslun okkar að Lágmúla 8 B R Æ Ð U R N I R BOSCH ^indesíl1 @ Husqvarna FINLUX AEG |“ SANGEAN OYAMAHA OLYMPUS ^ IMQKIA Lógmúla 8 • Slmi 533 2800 jamg Nikon ORION ÆiasCópœ 'M íþróttasamband fatlaðra 20 ára Afmælisárið til- einkað hinum al- menna iðkanda Sveinn Áki Lúðvíksson + . ÞROTTASAMBAND fatlaðra verður 20 ára 17. maí næstkomandi og af því tilefni verður ým- islegt um að vera. Sveinn Áki Lúðvíksson er formað- ur sambandsins. „Þegar Iþróttasamband fatlaðra var sto&að voru aðildarfélögin fimm. I dag eru þau orðin tuttugu og tvö innan 16 héraðssam- banda. Við erum ' sérsamband innan ISI en höfum þá sér- stöðu að hafa innan okkar raða mismunandi fatlaða hópa sem æfa hinar ýmsu íþróttagreinar. Starfsemi okkar er því mjög fjöl- breytt og aðeins öðruvísi en annarra sérsambanda." - Hversu margir eru að æfa innan Iþróttasam- bands fatlaðra? „Um 1.500 einstaklingar eru að æfa og keppa en sumir taka þátt í fleiri en einni íþróttagrein.“ - Hversu margar íþróttagreinar eruð þið með innan sambandsins? „Þær eru fjölmargar og má nefna frjálsar íþróttir, sund, bog- fimi, boccia, borðtennis, lyftingar, blindrabolta, fótbolta og hand- bolta. Þá höfum við merkt aukinn áhuga á skíðum og sleðum.“ Sveinn Áki segir að flestir stundi boccia innan sambandsins og þá ekki hvað síst aldraðir og mildð hreyfihamlaðir. ,Á Húsavík eru aldraðir mjög virkir í boccia og þeir taka m.a. þátt í Islandsmótum.“ - Hefur íþróttasamband fatl- aðra ekki líka staðið fyrir nám- skeiðum fyrir þjálfara ogkennara- nema? „Jú, auk þess sem við sinnum útbreiðslumálum á skrifstofu sam- bandsins höfum við reglulega skipulagt námskeið og kynningar innan skólakerfisins og einnig ver- ið með námskeið fyrir væntanlega íþróttakennara svo og fyrir verð- andi sjúkraþjálfara." Sveinn Áki segir að þjálfarar hjá íþróttafélögum um land allt hafi sótt námskeið og þá ekki hvað síst af landsbyggðinni þar sem ekki er aðstaða til að leiðbeina fótl- uðum sérstaklega. -Nú hafa ýmsir innan sam- bandsins náð góðum árangri í íþróttum? „Já, og við höfum náð mjög góð- um árangri í sundi og frjálsum íþróttum. Þar eigum við ólympíu- meistara og sá sem fyrstur náði athygli fjölmiðla var Haukur Gunnarsson sem varð ólympíu- meistari í Seoul árið 1988 í frjáls- um íþróttum.“ Hann segir að annar sem hafi náð mjög góðum árangri sé Geir Sveinsson en hann hreppti verð- laun í sundi og fijálsum íþróttum þegar keppt var í Barcelona árið 1992. Auk þessara drengja eru fjölda- margir sem hafa náð mjög góðum árangri og frægt er orðið þeg- ar Sigrún Huld Hrafnsdóttir sópaði að sér níu gullverð- launum í Madrid árið 1992 og sigraði á heimsmeistara- keppninni í Svíþjóð árið 1989 og á Möltu árið 1994. Fleiri má nefna eins og Kristínu Rós Hákonardótt- ur, Báru B. Erlingsdóttur, Ólaf Eiríksson og Pálma Guðmundsson og marga aðra sem náð hafa góð- um árangri fyrr og síðar í sögu sambandsins. - Eru miklar framfarir í tækja- búnaði fyrir fatlaða sem stunda íþróttir? ►Sveinn Áki Lúðvíksson er fæddur í Reykjavík árið 1947. Hann hefur lengst af starfað sem sölumaður og vann um ára- bil hjá Hugbúnaði hf. og starfar nú hjá Landsteinum. Sveinn Áki hefur verið viðrið- inn fþróttasamband fatiaðra frá upphafi, hann gerðist þjálfari fatlaðra í borðtennis frá árinu 1974 og hefur verið fararsljóri á flestum ólympíumótum fatl- aðra fram að þessu. _ Hann hefur verið formaður Ólympíuráðs fatlaðra frá árinu 1980 og formaður fþróttasam- bands fatlaðra frá árinu 1996. Sveinn Áki er kvæntur Sig- rúnu Jörundsdóttir og eiga þau tvo syni, Jörund Áka og Svein Áka. „Já, þær hafa verið mjög örar að undanfomu en að sama skapi eru þær mjög dýrar. Það má tál dæmis nefna að Danir hafa látið hanna litla stóla fyrir þá krakka sem vilja stunda innanhússbolta. Það væri mjög gaman að eiga slík- an búnað en hver stóll kostar á bil- inu 200.000-300.000 krónur. Að sama skapi eru ýmis tæki að koma á markað fyrir fatlaða einstaklinga sem hafa áhuga á vetraríþróttum eins og til dæmis sleðar.“ -Þið eigið 20 ára afmæli á næstu dögum. Hvað er framundan hjá ykkur á afmælisárinu? „Við ætlum að halda upp á af- mælisdaginn 17. maí með móttöku í Ársölum á Hótel Sögu. Forseti Alþjóða ólympíusambands fatl- aðra, dr. Robert Steadward, ætlar að heiðra okkur með nærveru sinni. Þá verðum við með sérstak- an ratleik í Laugardalnum klukk- an 14 hinn 16. maí.“ Sveinn Áki segir að afrnælisárið sé tileinkað hinum almenna iðkanda og af því tilefni á að senda um 40 þroskahefta þátttakendur á mót tfl Raleigh í N- Karólínu. Þar verður keppt er í öllum hugs- anlegum íþróttagrein- um. „Þá ætlum við líka að senda mörg böm á norrænt bama- og unglingamót í sumar og höldum að lokum sérstakt nám- skeið fyrir leiðbeinendur mikið fatlaðra í haust. Við emm auk þess að undirbúa fór okkar á ólympíumótið í Sydney á næsta ári og stefnum að því að senda að minnsta kosti tíu þátttak- endur þangað. Þá er framundan þátttaka í mótum fyrir afreksfólk- ið í sundi, borðtennis og ftjálsum íþróttum auk móta innanlands og sumarbúða á Laugarvatni." Um 1.500 ein- staklingar æfa og keppa innan sam- bandsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.