Morgunblaðið - 13.05.1999, Side 16

Morgunblaðið - 13.05.1999, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR + * Framkvæmdastjóri RUV segir sjónvarp og útvarp verða að aðlagast breyttum lífsháttum Islendinga Tíma frétta breytt til frambúðar MARGAR ástæður liggja að baki þeirri ákvörðun Ríkisútvarpsins að færa kvöldfréttatíma sjónvarps og útvarps að sögn Halldóru Ingva- dóttur, framkvæmdastjóra út- varpsins. Frá og með 1. júní nk. verður aðalfréttatími sjónvarpsins sendur út klukkan 19 á hverju kvöldi og aðalfréttatími útvarpsins klukkan 18. „Þetta fyrirkomuiag er til fram- tíðai’. Um er að ræða ákvörðun sem byggist á forsendum dag- skrárinnar en ekki fjárhagslegum forsendum og ég vona að í fram- haldinu getum við frekar aukið þjónustuna en dregið úr henni,“ segir hún. Minni hlustun eftir klukkan 19 Að sögn Halldóru byggist ákvörðunin m.a. á könnun sem Gallup gerði fyrir Ríkisútvarpið í lok síðasta árs. Heildarfjöldi svar- enda var 834 á aldrinum 1&-75 ára og af þeim gáfu 68% upp heim- komutíma, ríflega 17% sögðu mjög misjafnt hvenær þeir kæmu heim og ríflega 14% eru mestmegnis heima á daginn. Samkvæmt svör- um þeirra sem gáfu upp heim- komutíma má draga þá ályktun að um 74% Islendinga séu komin heim úr vinnu fyrir klukkan 19. „Meirihluti þjóðarinnar virðist hafa breytt lífsháttum sínum og það má búast við að hinir geri það einnig. Það er kannski aðallega í sveitum sem búast má við óá- nægju fyrst í stað, en við vonum að þar muni einnig ríkja sátt fyrr en varir.“ Halldóra segir að könnunin hafi ekki beint sjónum að einstökum starfsstéttum, heldur hafi verið um að ræða slembiúrtak af landinu öllu. „I þessu sambandi er ómögulegt að velta fyrir sér einstökum hópum og hversu fjölmennir þeir eru í hlutfalli við eitthvað annað. Við verðum að miða við lífshætti meiri- hluta þjóðarinnar. Við höfum séð þróunina í þá veru að fólk hlustar meira á útvarp á morgnana og fram undir kvölddagskrá sjónvarps og viijum leggja áherslu á þann tíma. Við leggjum ekki þyngdina í þann tíma sem hlustun er minni og því miður sáum við að almenn út- varpshlustun minnkar mjög mikið upp úr klukkan 19,“ segir hún. Halldóra segir þó að fjöl- miðlakannanir hafi ekki ráðið úr- slitum um þessa breytingu, enda hafi niðurstöður þeirra verið að mestu leyti hagstæðar íyrir ríkis- fjölmiðlana. „Stöð 2 er vissulega farin að nálgast mjög áhorf frétta sjónvarpsins og við höfuny gert okkur grein fyrir því lengi. Eg tel það tengjast breyttum lífsháttum, því fólk er komið fyrr heim, og við hljótum að fylgja þeirri þróun sem gætir í þjóðfélaginu. Umræðan um breytingar á út- sendingartímum er líka miklu eldri hjá RUV en þessar fjöl- miðlakannanir. í Morgunblaðinu á þriðjudag talaði fréttastjóri Stöðv- ar 2 um að horfun á ísland í dag væri orðin tvöfalt meiri en hlustun á kvöldfréttir útvarps. Ef ég gríp niður í síðustu könnun sem ég hef í höndunum virðist Stöð 2 hafa 26% áhorf klukkan 19 en útvarpið er með 17% hlustun. Eg vona að tvisvar sinnum sautján jafngildi ekki tuttugu og sex hjá frétta- stjóra Stöðvar 2,“ segir Halldóra. Tillögum starfshóps fylgt Hún segir að útvarpsstjóri, framkvæmdastjórar og frétta- stjórar hafi sent útvarpsráði bréf í mars síðastliðnum, þar sem færð voru helstu rök fyrir þess- um breytingum. „Eg setti á fót vinnuhóp í september í fyrra sem skoðaði þessi mál varðandi út- varpið og skilaði hann af sér um miðjan janúar síðastliðinn. I nið- urstöðunum var eindregið mælt með því að færa útvarpsfréttirnar og þær voru einnig lagðar til grundvallar ákvörðun RUV. Könnun Gallup var sérstaklega til stuðnings fyrir þennan vinnuhóp og þær vísbendingar sem hún gaf um lífshætti íslendinga í dag,“ segir Halldóra. „I könnuninni kom mér talsvert á óvart að fólk er tekið að borða kvöldmat svo snemma að það var helst eldra fólkið sem hlustaði á kvöldfréttir yfir matnum en ekki yngra fólkið." Þá segir Halldóra að hafa verði í huga að RÚV sendir ekki aðeins út á Rás 1 og Rás 2, heldur einnig á svæðisstöðvunum á Norðurlandi, Austurlandi og Vestfjörðum, auk langbylgju. Haustið 1986 var ákveðið að færa fréttatíma sjónvarpsins, sem sendur hafði verið út klukkan 20 frá upphafi útsendinga 1966, til klukkan 19.30.- Halldóra segir að þessi breytti útsendingartími hafi aðeins staðið í tvo mánuði, en þá ákvað útvarpsráð að færa frétta- tímann til fyrra horfs. Halldóra kveðst telja það mistök að hafa hætt við þessa breytingu á sínum tíma. Átti ekki að breyta aftur „Það komst aldrei reynsla á þennan fréttatíma, sem er miður, því það tekur mun lengri tíma að festa nýjan tíma í huga notenda og fá fram raunveraleg viðbrögð þeirra við breytingunni. Breyting- in var því ekki marktæk. Fólk er svo vanafast og það voru uppi raddir um að þessi breyting væri ómöguleg, en fólk fékk aldrei tíma til að aðlagast henni, auk þess sem alltaf heyrist mest í óánægjurödd- unum. Það hefði verið skynsam- legra að halda fast við breyting- una á sínum tíma, því ef maður gerir breytingar held ég að maður eigi að standa við þær,“ segir Halldóra. „Á þessum tíma var að hefjast samkeppni við Stöð 2 og menn vissu ekki hvernig hún yrði í fram- kvæmd, þannig að kannski var ákveðið reynsluleysi í samkeppn- inni.“ Reshetov sæmdur stórkrossi FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur sæmt Jury Reshetov, fyrr- verandi sendiherra Rúss- lands á Islandi, stórkrossi hinnar íslensku fálka- orðu. Stórkrossinn er æðsta heiðursmerki sem íslenska ríkið veitir ís- lenskum eða erlendum borgara fyrir utan þjóð- höfðingja. Jón Egill Egils- son, sendiherra íslands í Moskvu, afhenti Reshetov orðuna við hátíðlega at- höfn í sendiráðinu að við- staddri fjölskyldu Res- hetovs og vinum. Á mynd- inni er Jury Reshetov ásamt konu sinni, Ninu Nikolawvnu, en þau áttu brúðkaupsafmæli daginn sem athöfnin fór fram, fimmtudaginn 6. maí. Kísilgúrsjóður auglýsir eftir umsóknum um áhættulán og styrki Reynt að minnka styrkveit- ingar og auka hlutafj árkaup * Islandsvinur látinn LÁTINN er í Vínarborg mikill ís- landsvinur, dr. Hermes Massimo, 84 ára að aldri. Að sögn Einars Sig- urðssonar landsbókavarðar kviknaði Islandsáhugi Hermes á unga aldri við kynni af bókum Nonna en það var ekki fyrr en eftir 1974 að hann vandi komur sínar hingað til lands. „Mun sá maður vandfundinn sem víðar hefur farið um ísland enda varði dr. Massimo sex vikum til þremur mánuðum, samfleytt í tólf ár, í gönguferðir um landið,“ segir Einar. Eftir að Hermes lét af sínum reglubundnu gönguferðum stundaði hann sumarvinnu 1 Háskólabóka- safni og síðan hinu nýja safni í Þjóð- arbókhlöðu. Hann ætlaði að halda uppteknum hætti nú í sumar og hefði það orðið 28. íslandsferð hans á rúmlega aldarfjórðungi. Einar segir að Hermes hafi haldið áfram háskólanámi eftir síðari heims- styrjöldina og lokið doktorsprófi í heimspeki árið 1948. Eftir það hafi hann aðallega stundað bókasafns- störf, m.a. í þjóðbókasafninu í Vínar- borg. Honum hafi safnast allmikið af bókum um dagana. „Hann ákvað að færa Landsbókasafni Islands - Há- skólabókasafni bækur sínar að gjöf, þær þeirra sem safnið átti ekki fyrir, og afhenti hann þær sumarið 1996, alls 350 bindi,“ segir Einar. „Dr. Hermes Massimo var ein- stakt ljúfmenni og eignaðist fjöl- marga vini hér á landi. Síðasta hálfa árið dvaldist hann á heimili fyrir eldri borgara og lést þar af hjarta- bilun 7. maí síðastliðinn. Dr. Massimo lætur eftir sig eiginkonu og dóttur," sagði Einar Sigurðsson að lokum. KÍSILGÚRSJÓÐUR hefur aug- lýst eftir umsóknum um áhættulán sem sjóðurinn veitir og einnig eftir umsóknum um styrki, auk þess sem sjóðnum er heimilt að kaupa hlut í nýjum og starfandi félögum. Fyrirtæki, félagasamtök og ein- staklingar geta sótt um stuðning sjóðsins og er þá m.a. horft til und- irbúningskostnaðar verkefna, vöruþróunar, átaks til markaðsöfl- unar og náms eða starfsnám- skeiða. Atvinnuþróunarfélag Þingey- inga annast rekstur sjóðsins. Kjör á lánum sjóðsins taka mið af kjör- um hliðstæðra lána hjá fjárfesting- arlánasjóðum. „Ég tel fyrirsjáan- legt að þessi sjóður starfi áfram. Hann mun þó reyna að draga úr styrkveitingum og auka fremur hlutafjárkaup, með það að mark- miði að hægt sé að endurheimta útlagt fé að einhverju leyti þegar viðkomandi hlutar eru losaðir," segir Árni Jósteinsson, fram- kvæmdastjóri Atvinnuþróunarfé- lags Þingeyinga. Um 10 milljónir í sjóðnum Tilgangur sjóðsins er að kosta undirbúning aðgerða til eflingar atvinnulífs í þeim sveitarfélögum sem nú eiga verulegra hagsmuna að gæta vegna starfsemi Kísiliðj- unnar hf. Arni segir að kísilgúr- sjóðurinn sé umhverfissjóður sem ríkið hafi stofnað fyrir allmörgum árum, en árið 1994 var rekstur sjóðsins endurskoðaður og hann fjármagnaður á nýjan leik. „Sjóð- urinn er annars vegar fjármagn- aður með framlagi frá umhverfis- ráðuneytinu, sem byggist á hluta af námagjaldi Kísiliðjunnar, eða alls um 700 þúsund krónur á ári, en hins vegar koma bein framlög á fjárlögum sem nema um 5 millj- ónum króna á ári. Hlutverk sjóðs- ins er að styrkja og örva atvinnu- starfsemi og atvinnusköpun í þeim sveitarfélögum sem eiga mikið undir rekstri Kísiliðjunnar, til að skjóta stoðum undir aðra þætti en þá sem tengjast kísilnám- inu beint og gætu verið til staðar þegar að því kemur að Kísiliðjan hættir rekstri einhvern tímann í framtíðinni," segir Árni. í sjóðn- um eru alls um tíu milljónir króna um þessar mundir og er auglýst efth- umsóknum tvisvar á ári. Árni segir að fram að þessu hafi eingöngu verið veittir styrkir til verkefna, auk þess sem keypt hafi verið hlutafé í nokkrum fyr- irtækjum. „Megnið hefur runnið til aðila sem hafa lagt fram nýjar viðskiptahugmyndir á þessu svæði, markaðskannanir og vöru- þróun. Alls hafa 39 aðilar verið styrktir síðan 1994 og var hæsta úthlutunin 2,2 milljóna króna styrkur til Skútustaðahrepps þegar hann kom á sínum tíma upp svokölluðum Náttúruskóla. Þá má einnig nefna að Atvinnu- þróunarfélag Þingeyinga hefur einnig fengið styrk, þar á meðal árið 1994 þegar ferðamálafulltrúi var ráðinn. Flestir styrkir eru á bilinu 200 til 500 þúsund krónur,“ segir hann. Þá hefur sjóðurinn meðal ann- ars keypt hlutafé í fjórum iðn- og ferðaþjónustufyrirtækjum. Stjórn sjóðsins er skipuð full- trúum umhverfisráðuneytisins, iðnaðarráðuneytisins, samgöngu- ráðuneytisins, Húsavíkurkaup- staðar, Skútustaðahrepps og Kísiliðjunnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.