Morgunblaðið - 13.05.1999, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 33
Murdoch veldur
usla á þýzkum
sj ónvarpsmarkaði
Netanyahu fær blessun bókstafstrúaðra gyðinga
Allt bendir til ör-
uggs sigurs Baraks
Jerúsalem. Reuters.
Reuters
NETANYAHU heilsar upp á kjósendur á Calmel-markaðnum í Tel
Aviv en sá borgarhluti er mikið vígi Likudflokksins.
ÁSTRALSKI Qölmiðlakóngur-
inn Rupert Murdoch hefur nú
staðið við fyrri yfirlýsingar sín-
ar um að hasla sér völl á þýzka
sjónvarpsmarkaðnum með því
að tryggja sjónvarpsstöðinni
TM 3, sem hann á 66% hlut í, út-
sendingarréttinn í Þýzkalandi á
Evrópukeppni meist-
araliða í knattspyrnu.
Heimildir herma að
stöðin hyggist borga
200 milljónir marka,
andvirði 8 milljarða
króna, fyrir útsending-
arréttinn, sem er
nærri tvöfalt hærri upphæð en
RTL-stöðin hefúr greitt fyrir
hann.
Stór hluthafi í TM 3 Iýsti því
síðan yfír um helgina, að stöðin
myndi auk þess bjóða í sjón-
varpsréttinn að Bundesligunni,
þýzku meistarakeppninni í
knattspyrnu. Talsmenn annarra
sjónvarpsstöðva í Þýzkalandi
sögðust á mánudag óttast að
„hinir djúpu vasar Murdochs“
myndu gera Bundesligu-rétt-
indin of dýr. „Við höfum að
sjálfsögðu áhuga, en ekki á
hvaða verði sem er,“ sagði tals-
maður ARD, sambands opin-
berra sjónvarpsstöðva Þýzka-
lands, og í sama streng tók tals-
maður RTL.
Knattspyrna leikur lykilhlut-
verk í samkeppni einkarekinna
sjónvarpsstöðva í Evrópu. Með
útsendingarréttinum að vinsæl-
ustu fótboltaleikjunum nær sú
stöð sem á hann til milljóna
áhorfenda og getur þar af leið-
andi halað inn miklar auglýs-
ingatekjur. Með kaupum á
knattspyrnuútsendingarréttind-
um tókst RTL að breyta stöðu
sinni úr hornreku frá Lúxem-
borg (þar er stöðin upprunnin)
upp í stærstu einkareknu sjón-
varpsstöð Þýzkalands.
Murdoch á nú þegar útsend-
ingarréttinn að ensku úrvals-
deildinni (sem hann keypti árið
1996 fyrir um 60 milljarða
króna til fímm ára) og hefur
notfært sér vinsæla íþróttavið-
burði til að byggja upp Fox-
sjónvarpsstöðina í Bandaríkjun-
um og alþjóðlegt gei-vihnatta-
sjónvarpsveldi sitt með heima-
höfn í Astralíu.
Murdoch hóf afskipti sín af
sjónvarpsrekstri í Þýzkalandi
með því að kaupa 49,9% hlut í
sjónvarpsstöðinni Vox árið
1994. Áhorf á þá stöð var og er
takmarkað, en Murdoch lýsti
því yfir að sá tími myndi koma
að sín dagskrá myndi ná inn á
hvert heimili í Þýzkalandi. í
fyrra eignaðist hann tvo þriðju
í TM 3, lítilli sjónvarpsstöð í
Munchen sem sendi út dagskrá
sem sérstaklega var ætluð kon-
um.
Með kaupunum á Evrópu-
keppni meistaraliða steig Mur-
doch stórt skref í átt að því að
láta TM 3-stöðina ná til miklu
stærri áhorfendahóps. Samn-
ingurinn hljóðar upp á að út-
sendingar frá leikjum Evrópu-
keppninnar, sem geta borið
uppi sjónvarpsdagskrá 33 kvöld
á ári, verði í Þýzkalandi aðeins .
hægt að sjá á TM 3, þótt þar
starfi eins og er ekki einn ein-
asti íþróttafréttamaður.
Upphæðir sem sprengja
buddu keppinautanna
Talsmaður RTL, sem hefur
haft réttinn að Evrópukeppn-
inni frá árinu 1991 og hefur
langmestu veltuna og áhorfíð af
öllum einkareknum stöðvum í
Þýzkalandi, sagði á mánudag
að of snemmt væri að segja til
um hvort stöðin myndi freista
þess að ganga á hólm gegn
Murdoch, en hann sagðist
hneykslaður á þeim upphæðum
sem komnar væru í
spilið. „Við erum ekki
reiðubúnir að greiða
hvaða verð sem er
fyrir knattspyrnurétt-
indi,“ sagði hann, og
benti á að fáeinir
mánuðir væru til
stefnu til að semja um réttindin
að Bundesligunni. Einkastöðin
Sat-1 hefur útsendingarréttinn
að Bundesligunni út næsta
keppnistímabil, þ.e. til júní
2000.
Þijár hugmyndir um nýtingu
sjónvarpsréttarins
í nýjasta hefti Der Spiegel,
sem út kom á mánudag, segir
talsmaður RTL að móðurfélag
RTL, CLT-Ufa, sé að íhuga
hugsanlega lagalega mögu-
Ieika á því að hindra TM 3 í að
nýta réttinn að Evrópukeppn-
inni.
Þijár hugmyndir eru uppi af
hálfu TM3 um nýtingu réttar-
ins. Einn er sá að allir leikirnir,
sem alltaf eru á þriðjudags- og
miðvikudagskvöldum, verði
sendir út í opinni dagskrá TM 3
til að auka áhorf og vinsældir
stöðvarinnar. Annar er sá að
TM 3 eftirláti - gegn greiðslu -
Vox-stöðinni þriðjudagsútsend-
ingarnar. Þetta kæmi Bertels-
mann-fyrirtækjasamsteypunni
vel, sem bæði á RTL og hluta í
Vox. Þriðji möguleikinn er sá
að selja Leo Kirch - harðasta
keppinaut Bertelsmanns - hluta
leikjanna, en Kirch ræður yfir
nokkrum áskriftarsjónvarps-
stöðvum, sem þýðir að leikirnir
sem þar yrðu sýndir yrðu að-
eins aðgengilegir hinum tak-
markaða Ijölda áskrifenda, en
slíkt er ekki vinsælt meðal
þýzkra knattspyrnuáhuga-
manna.
BENJAMIN Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, fékk í gær form-
lega stuðningsyfirlýsingu frá rabbín-
um bókstafstrúaðra gyðinga en ekki
er þó líklegt, að það nægi til sigurs í
kosningunum á mánudag því að hinir
bókstafstrúuðu styðja hann flestir
hvort eð er. Ehud Barak, frambjóð-
andi Verkamannaflokksins, hefur
enn gott forskot á Netanyahu sam-
kvæmt skoðanakönnunum.
Akvörðun rabbínanna kemur ekki
á óvart en hún bindur þó enda á
bollaleggingar um hvort Netanyahu
fengi opinberlega stuðning „hinna
guðhi-æddu“ eða „haredim“. Helsti
stjórnmálaflokkur þein-a er Shas og
skoruðu rabbíarnir á áhangendur
sína að kjósa hann eða flokk Net-
anyahus, Likudflokkinn. Segja
fréttaskýrendur, að yfirlýsingin
komi sér vel fyrir Netanyahu að því
leyti, að hún sýni, að bandamenn
hans í ríkisstjórninni standi með
honum en á hinn bóginn skipti hún
líklegu sáralitlu eða engu í kosning-
unum.
Skoðanakönnun, sem birt var á
þriðjudagskvöld, gaf Barak 44% at-
kvæða og Netanyahu 35% í fyrri um-
ferðinni 17. maí en ef enginn fram-
bjóðandi fær meira en 50% verður
kosið aftur á milli tveggja efstu 1.
júní. í könnuninni kom fram, að
Barak fengi þá 50% en Netanyahu
33%.
Týndir töfrar
Netanyahu finnst sjálfum sem
ísraelsku fjölmiðlarnir hafi snúist
gegn sér og í gær bar hann til baka
frétt í dagblaðinu Maarív þar sem
sagt var, að hann hefði sagt sínum
nánustu samstarfsmönnum, að hann
byggist við ósigri.
„Eg mun ekki bíða ósigur þrátt
fyrir heilaþvott fjölmiðlanna,“ sagði
hann og kvaðst finna mikla bylgju
með sér. Var hann miklu barátt-
uglaðari en í sjónvarpsauglýsingu á
mánudag þar sem hann skoraði á
fyrrum stuðningsmenn sína að „skila
sér heim“ á kjördag. Var hann þá
mjög afsakandi og viðurkenndi, að
sér hefði orðið ýmislegt á í embætti.
Þegar Netanyahu sigraði Shimon
Peres mjög óvænt í kosningunum
1996 var það ekki síst þakkað því, að
hann var ungur, málsnjall og kom af-
ar vel fyrir í sjónvarpi. Nú er aftur
eins og þessir töfrar hans séu týndir
og önuglyndið allsráðandi. Hefur
hann gripið til ýmissa óyndisúrræða
að margra mati, eins og t.d. að ala á
ótta Israela við hermdarverk, en það
er eins og vopnin hafi öll snúist í
höndum hans.
Aukin sundrung með
nýja kerfínu
Kosningabaráttan í ísrael stendur
ekki aðeins um það hver verði for-
sætisráðherra, heldur líka um skipt-
ingu 120 þingsæta milli flokkanna,
sem eru 31 að tölu. Hún mun svo aft-
ur ráða því hvemig væntanlegum
forsætisráðherra gengur að mynda
stjórn. Það mun örugglega verða
erfitt hvor sem sigrar, Barak eða
Netanyahu, enda er ljóst, að hvorug-
ur flokkurinn þein-a mun komast ná-
lægtþvi að fá meirihluta.
I Israel er hlutfallskosningakerfi
og hafa stjórnmálin i landinu ein-
kennst af mikilli sundrungu lengst
af. Til að vinna gegn því var ákveðið
1996 að bjóða kjósendum upp á það í
fyrsta sinn að kjósa forsætisráðherr-
ann beinni kosningu. Útkoman er
hins vegar allt önnur en að var
stefnt. Smáflokkunum hefur fjölgað
en að sama skapi dregið af stóru
flokkunum, Likudflokknum og
Verkamannaflokknum.
ÞRÁÐLAUSU
KALLTÆKIN
Kalltækjunum frá Hapé er stungiö í tengil í 230 volt
og hægt er að tala og hlusta úr báðum tækjunum.
Tilvalið í sveitabæinn, fjárhúsið,
stór hús og vinnustaði.
Kr. 5.995 parið
SENDUM í PÓSTKRÖFU
Glóey ehf.
Ármúla 19, sími 568 1620
i/ænalísfan
Kynnum náttúrulegu ME
húðvörunar frá Marja Entrich
í Holtsapóteki á morgun,
föstudaginn 14. maí frá 13-18
iö's
Náttúrulegu snyrtivörurnar frá ME hafa
marga þá eiginleika sem húðin þarfnast
til að viðhalda mýkt og raka.
Nýja Bio-línan er ómótstæðileg.
20%
"j^TÚNÍNGÁRÁFS^ÍyE
- fæst nú í apótekum
Heildsöludreifing: Evroís ehf. sími 698-2188
Hart tekizt á
um knatt-
spyrnu-
útsendingar-
réttindi