Morgunblaðið - 13.05.1999, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 35
Hneykslismál valda Bertie Ahern erfíðleikum
Hriktir í stoðum
írsku stjórnarinnar
AP
ABDULLAH Jórdaníukonungur ásamt Raniu drottningu og Karli
Bretaprins fyrir utan skrifstofur Karls í St. James-höll í Lundúnum á
mánudag.
Opinber heimsókn
Abdullah Jórdaníukon-
ungs til Vesturlanda
Lundúnum. AFP.
ABDULLAH Jórdamukonungur
lauk í gær tveggja daga opinberri
heimsókn sinni til Bretlands eftir að
hann tók við embætti föður síns sem
lést af völdum krabbameins fyrr á
árinu. Fyrr í vikunni sóttu konung-
urinn og Rania drottning Þýskaland
og Frakkland heim og frá Bretlandi
verður haldið til Kanada og þaðan
til Bandaríkjanna.
Heimboð bresku stjórnarinnar er
til marks um sterk tengsl Bretlands
og Jórdaníu og viðleitni breskra
stjórnvalda til að viðhalda þeim
tengslum eftir daga Husseins.
Abdullah hlaut menntun sína í
einkaskóla í Lundúnum og stundaði
framhaldsnám í Sandhurst liðsfor-
ingjaskólanum líkt og faðir hans
hafði gert áður.
Þörf á auknu samstarfi
ríkjanna við Persaflóa
I viðtali við dagblaðið Al-Hayat
sem birtist í gær sagðist Abdullah
vona að breytingar yrðu á málefn-
um íraks og að komið yrði í veg
fyrir neyðina meðal almennings.
Hins vegar vísaði hann því á bug að
Jórdanfa myndi gegna pólitísku eða
hernaðarlegu lykilhlutverki við að
koma á slíkum breytingum.
Konungurinn sagðist vera fylgj-
andi aukinni stofnanalegri samhæf-
ingu milli rflyanna við Persaflóa og
taldi að saga undanfarinna áratuga
sýni fram á mikilvægi slíks sam-
starfs. „Öryggi Persaflóa sem
heildar er ekki hægt að skilja frá
öryggi Jórdaníu,“ sagði Abdullah.
Þá taldi hann opinbera heimsókn
sína til Damaskus í Sýrlandi í síð-
asta mánuði hafa snúið við blaðinu í
torveldum samskiptum ríkjanna.
„Það er rétt að okkur greinir á um
tiltekin atriði, en það er eðlilegt."
Sagði Abdullah að bæði ríkin deili
sömu sýn um friðsamlega framtíð.
I viðtalinu sagðist Abdullah enn-
fremur gera ráð fyrir að koma á
auknu lýðræði í Jórdaníu og sagði
að fyrir liggi tillögur um að styrkja
fjölmiðia í landinu og breyta kosn-
ingalöggjöf þess.
HART er nú deilt um það á írlandi
hvort þegnar landsins séu í reynd
jafnir fyrir lögunum eftir að í ljós
kom að virtum arkitekt var sleppt
úr fangelsi, án þess að hann hefði
lokið afplánun fangelsisdóms. Tveir
dómarar neyddust tO að segja af
sér vegna málsins en deilan náði
hámarki þegar spurðist út að
Bertie Ahem, forsætisráðherra ír-
lands, hafði haft afskipti af málinu.
Hrikti í kjölfarið í stoðum sam-
steypustjórnar hans og Fram-
sækna demókrataflokksins (PD),
enda em ekki nema örfáir mánuðir
síðan litlu munaði að PD sliti
stjórnarsamstarfinu eftir að Ahern
hafði verið bendlaður við spillingar-
mál.
Mary Harney, leiðtogi PD, er
sögð hafa verið fjúkandi 01 yfir því
að Ahem skyldi ekki gera grein fyr-
ir afskiptum sínum af málum arki-
tektsins PhOips Sheedys. Ahern
neyddist á endanum til að biðja
Harney opinberlega afsökunar á því
að hafa ekki greint henni skilmerki-
lega frá hvernig í málinu lá.
Mál Philips Sheedys
PD er ekki stór flokkur en án
stuðnings hans nytu Ahern og Fi-
anna Fáil ekki þingmeirihluta.
Stjórnarsamstai-fið hafði farið
ágætlega af stað fyrir tveimur ár-
um, og stjórnin naut mikilla vin-
sælda, en fyrr í vetur þegar farið
var að fletta ofan af spillingu er
tengdist Charlie Haughej, fyrrver-
andi forsætisráðherra Irlands og
leiðtoga Fianna Fáil, seig heldur á
ógæfuhliðina. Harney hefur nefni-
lega gert sér far um að berjast
gegn spillingu í stjómmálum.
Þessi nýjustu vandræði Aherns
tengjast vel metnum arkitekt, Phil-
ip Sheedy. Sheedy þessi var sak-
felldur í júní 1997 fyrir að hafa ver-
ið undir áhrifum áfengis er hann ók
á konu, Anne Ryan, og olli dauða
hennar.
Sheedy var sleppt úr fangelsi, án
þess að hafa afplánað dóm sinn að
fullu, og þegar málið komst í há-
mæli fyrir skömmu var það talið til
marks um að ekki væra allir jafnir
fyrir lögunum, augljóst væri að
Sheedy hefði verið sleppt vegna
þjóðfélagsstöðu sinnar og tengsla
við háttsetta embættismenn. Svo
mikla hneykslun vakti málið að
tveir dómarar, sem komið höfðu að
málinu, neyddust til að segja af sér
fyrir um tveimur vikum.
Talsmenn forsætisráðherrans
fullyrða að hann hafi á engan hátt
beitt sér fyrir því að Sheedy var
sleppt úr haldi en fyrir liggur að
fjölskylda Sheedys hafði hins vegar
upphaflega samband við Ahern og
bað um aðstoð. Segist Ahem ein-
faldlega hafa vísað þessu kunn-
ingjafólki sínu á dómsmálayfirvöld.
Ahern þverskallaðist hins vegar
lengi við að gangast við því að hafa
komið að málinu með þessum hætti
sem vakti grunsemdir um að hann
hefði ýmislegt að fela. Mun Harney
hafa verið afar ósátt við hversu
tregur forsætisráðherrann var til
að gera hreint fyrir sínum dyrum.
Ormagryfja opnuð
Stjórnarki’eppan nú á sér hins
vegar talsverða forsögu. Virðist
sem alger onnagryfja hafi verið
opnuð í írskum stjórnmálum þegar
flett var ofan af spillingu Haugheys
fyrir tæpum tveimur árum. Fyrir
dómstólum, sem settir voru á fót í
kjölfar uppljóstrana um fjármála-
misferli Haugheys, hefur á undan-
fórnum mánuðum komið upp úr
dúrnum að Haughey var ekki einn
um að hafa flekkaðan skjöld. Var
e.t.v. óhjákvæmilegt að eitthvað af
aurnum slettist á pólitískan skjól-
stæðing Haugheys og eftirmann í
embætti, Bertie Ahem.
I febrúar var það vitneskjan um
að Padraig Flynn, fyrrverandi
þingmaður Fianna Fáil og fráfar-
andi fulltrúi Irlands í framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins, hefði
tekið við fjármunum sem olli írsku
stjórninni vandræðum. Nú er það
hins vegar Sheedy-málið sem veld-
ur Ahem vanda, sem og deila um
góðvin Aherns Ray Burke, fyrrver-
andi utanríkisráðherra, en Burke
er einnig gmnaður um að hafa tek-
ið við greiðslum.
Ahern skipaði Burke utanríkis-
ráðherra í samsteypustjóm Fianna
Fáil og PD fyrir tveimur ámm en
einungis þremur mánuðum síðar
neyddist Burke til að segja af sér
vegna spillingarmálanna.
Ahern fullyrðir að hann hafi enga
vitneskju haft um að Burke hefði
sitthvað misjafnt í pokahorninu en
ljóst er að þessi mál hafa skaðað
ímynd Aherns og margir spá því að
stjórn hans muni ekki ná að sitja út
kjörtímabilið, og að boðað verði til
nýrra þingkosninga, jafnvel þegar í
haust. Sérstaklega væri Ahem í
vondum málum sannaðist að hann
hefði vitað um meint fjármálamis-
ferli Burkes en kosið að líta fram
hjá þeim. Er trúnaðartraust milli
stjórnai’flokkanna sagt afar lítið um
þessar mundir og næsta víst að illa
fer, sigli fleh-i hneyklismál á fjörur
Aherns.
1^4***»* 2000 26" fjallahjól,
stell Hi-ten Shock-Works,
Zone LT dempari,
‘'fWXVA 600 26“ fjallahjól, 21 qíra Grip Shitt MRX 200,
V-bremsur, karla- og kvennastell KT. 22.900,-
80026“ fjallahjól,21 gíraGrigShift MRX170,
V-bremsur, karla- og kvennastell 8CT. 26.900,-
|E2Sa^5f4oo 24“ fjallahiól. 18 aíra Grip Shift MRX 200.
V-bremsurkT. 19.900,-
KVmSZWBBO 26" fjallahjól,
21 gíra Shimano ST-EF28 EZ Fire plu:
Wheeler demparagaffall
:‘ff/ray.flfli8oo 26“ fjaiiahjói,
21 gíra Shimano ST-EF28 EZ Fire plu
karia- og kvennastell
Galaxy barnahjól. Fjöldi gerða. Verð frá kr. 8.900,*
1200 20“ fjallahjól, 6 gíra Grlp Shlft MRX-170 kr. 18.500,
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sími: 540 7000
Fax: 540 7001 • Netfang: falkinn@falkinn.is