Morgunblaðið - 13.05.1999, Side 36
36 FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Afrakstur Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda sýndur í Gerðubergi
FALLVÖRN Eyglóar Benediktsdóttur, 12 ára nemanda í Hjallaskóla í Kópavogi.
Morgunblaðið/Goiii DÓTATÍNIR Guðfinns Baldurs Skæringssonar, 10
ára nemanda í Foldaskóla í Reykjavík.
V erðlaun fyrir uppfinningar
og útlits- og formhönnun
Skólatdn-
leikar Tón-
listarskóla
Isafjarðar
HEFÐBUNDNIR vortónleikar
Tónlistarskóla Isafjarðar hefjast í
dag, fimmtudag. A Isafirði verða
fernir tónleikar: í dag, fimmtudag,
kl. 15 og kl. 17, laugardaginn 15.
maí kl. 15 og kl. 17. Mismunandi
efnisskrá verður í hvert skipti.
Mest ber á einleikurum, sem eru
hátt á annað hundrað, einnig
nokkur samspilsatriði, og barna-
kórinn syngur á seinni tónleikun-
um á fimmtudag.
Tónleikamir á Isafirði fara allir
fram í sal Grunnskóla Isafjarðar.
Agóðinn af miðasölunni rennur
til kaupa á flyglí í hinn nýja sal
Tónlistarskólans.
Vortónleikar á Suðureyri
Tónlistarnemendur á Suðureyri
halda vortónleika í Bjamarborg,
húsi Verkalýðsfélagsins, sunnudag-
inn 16. maí kl. 17. Þar munu nem-
endur leika á píanó og ýmis blást-
urshljóðfæri.
---------------
Lesið ur ljóða-
bók Þorsteins
frá Hamri
HJALTI Rögnvaldsson leikari les
úr ljóðabók Þorsteins frá Hamri,
Ný ljóð í kvöld, fímmtudag, kl. 22 á
Næsta bar, Ingólfssstræti la. Bók-
in kom út árið 1985.
KÚSTAHLÍF, hjálparhönd, vax-
haldari, fótahaldari, tónlistarskór,
hringsigti, dekkjaormur og blikk-
belti. Ennfremur dótatínir, ástarút-
rásarpúði, tvöfaldur tannbursti, sjó-
mannahringur og eksemputtar.
Þessar uppfinningar og fleiri má sjá
á sýningunni Hugvit og hönnun, Ný-
sköpunarkeppni grunnskólanem-
enda og Fantasi design, sem hefst í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi á
laugardaginn kl. 14.
Nýsköpunarkeppni grunnskóla-
nemenda er nú haldin í áttunda sinn
og að þessu sinni í samvinnu við
Fantasi design sem er samnorrænt
verkefni og farandsýning þar sem
lögð er áhersla á hönnun og hugvit
barna og unglinga.
Forseti íslands
afhendir verðlaun
Forseti íslands, herra Ólafur Ragn-
ar Grímsson, mun afhenda verðlaun
við opnun sýningarinnar í Gerðubergi
á laugardag og þá verða jafnframt
verðlaunahafamir og verk þeirra
kynnt sérstaklega. Til sýnis verður
allur afrakstur nýsköpunarkeppninn-
ar, alls rúmlega 50 hlutir. Þrjátíu hug-
myndir verða svo sendar á Fantasi
design farandsýninguna í Kalmar í
Svíþjóð næsta vor, en hún kemur
hingað til lands í september 2000, sem
hluti af dagskrá Reykjavíkur menn-
ingarborgar Evrópu árið 2000.
Veitt verða sex verðlaun, þrenn í
flokki uppfinninga og önnur þrenn í
flokki útlits- og formhönnunar. Verð-
launin veita Nýsköpunarsjóður at-
vinnulífsins, Samtök iðnaðarins, ITR,
Tækniskóli Islands, Mjólkursamsalan
o.fl. Nýsköpunarkeppni grunnskóla-
nemenda er styrkt af Altech, Össuri,
Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins,
menntamálaráðuneytinu, forsætis-
ráðuneytinu og iðnaðarráðuneytinu.
Dagskráin í Gerðubergi á laugar-
dag stendur frá kl. 14 til 16 og eru
allir velkomnir meðan húsrúm leyfir,
að því er segir í fréttatilkynningu.
Sýningunni lýkur 27. ágúst.
FÉLAG
ELDEI
BORGARA
Ásgarður - Glæsibæ
Eldri borgarar! - Danir í heimsókn
Tökum vel á móti dönskum eldri borgurum sem eru í
heimsókn og vilja hitta og skemmta sér með okkar fólki
föstudaginn 14. maí.
Matur kl. 19.30
Sjávarréttasúpa og steiktur lax.
Verð kr 1.500, dansleikur innifalinn.
Húsið opnað kl. 19 fyrir matargesti.
Skemmtiatriði, söngur og gaman.
Borðapantanir í síma 588-2111 og 568-5660.
Almennur dansleikur frá kl. 22.
Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar leikur.
Ahugaleiksýning ársins
Stæltu stóðhestarnir
í Þjóðleikhúsinu
SÝNING Leikfélags Keflavíkur á
Stæltu stóðhestunum eftir Stephen
Sinclair og Anthony McCarten í leik-
stjóm Andrésar Sigurvinssonar hef-
ur verið valin Ahugaleiksýning árs-
ins af dómnefnd Þjóðleikússins. Að
venju verður sérstök hátíðarsýning
af þessu tilefni býður Þjóðleikhúsið
Leikfélagi Keflavíkur að sýna Stæltu
stóðhestana á Stóra sviði Þjóðleik-
hússins sunnudagskvöldið 16. maí
1999.
Samkeppni Þjóðleikhússins um at-
hyglisverðustu áhugaleiksýningu
leikársins hefur nú verið haldin
sjötta árið í röð, en hún er opin öllum
aðildarfélögum Bandalags íslenskra
Söluaðili: Hrafn Sturluson, löggi
tur bílasali, s. 899 5555, 581 2474
Bílasala og ráðgjöf. Útvegum bílalán.
Innflutningur notaðra, nýlegra bíla á hagstæðu verði.
Til sölu M. Benz E 230 Accentgarde,
1996, ek. 115 þús. m/flestum auka-
búnaöi, s.s. sjálfsk., loftkælingu,
Xanon Ijós o.fl. Gullfallegur bíll.
M. Benz 190, 2,5 diesel, 1992, ek.
176 þús. Álfelgur, topplúga o.fl. s.s.
ökukennslubúnaður.
Tilvalinn bíll fyrir ökukennara.
HRINGIÐ OG FAIÐ UPPLYSINGAR.
tír SÝNINGU Leikfélags Keflavíkur á Stæltu stóðhestunum,
Áhugaleiksýningu ársins 1999.
leikfélaga. í fréttatilkynningu Þjóð-
leikhússins segir að undirtektii’ leik-
félaganna hafi sem fyrr verið afar
góðar, og óskuðu alls tólf félög eftir
að koma til greina við valið með sýn-
ingar sínar á þessu leikári.
Dómnefnd Þjóðleikhússins í ár var
skipuð Stefáni Baldurssyni þjóðleik-
hússtjóra, Melkorku Teklu Ólafsdótt-
ur, leiklistarráðunauti Þjóðleikhúss-
ins, og Þórhalli Sigurðssyni leik-
stjóra. I umsögn dómnefndar um sýn-
inguna segir: „Sýning Leikfélags
Keflavíkur á Stæltu stóðhestunum er
afar kraftmikil og skemmtileg sýning.
Öll burðarhlutverk í sýningunni eru í
höndum yngri kynslóðar leikara í fé-
laginu, og hefur leikstjóranum,
Andrési Sigurvinssyni, tekist óvenju
vel að vinna með þessum ungu leikur-
um, sem margir hverjir ná að skapa
einkar trúverðugar og hugstæðar
persónur, hverja með sínum sérkenn-
um. Leikmynd er fremur einiold en
útsjónarsöm og umgjörð sýningar-
innar er heildstæð og skemmtileg.
Dansatriði í þessari sýningu eru ákaf-
lega vel heppnuð, en það er Emelía
Jónsdóttir sem er höfundur þeirra.
Það er einnig athygli vert að hér er
um frumflutning á erlendu verki að
ræða hérlendis. Sýning Leikfélags
Keflavíkur er vel unnin áhugasýning,
sem ber vott um mikinn metnað og
alúð aðstandenda hennar.“
Að almennri umsögn dómnefndar
kemur einnig fram að mikill metnað-
ur ríki í starfi áhugaleikfélaganna,
m.a. hvað varðar verkefiiaval. At-
hyglisvert sé að nokkur félaganna
ráðast í að frumflytja eriend verk á
íslandi. Einnig sé gleðilegt að sjá
hversu íslensk verk eru áberandi á
verkefnaskrá félaganna. Þá er þess
sérstaklega getið hversu lofsverð
viðleitni það sé hjá mörgum leikfé-
laganna að ýta undir íslenska leik-
ritagerð með því að fá íslenska höf-
unda til að skrifa fyrir sig. Fjórar af
þeim tólf sýningum sem komu til
greina við valið í ár voni sýningar á
nýjum íslenskum verkum.