Morgunblaðið - 13.05.1999, Qupperneq 40
40 FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LISTAMAÐURINN Mark og lögfræðingurinn Joanne í tangó. Rúnar Freyr Gíslason
og Margrét Eir Iíjartardóttir.
HEIMSPEKINGURINN Collins og klæðskiptingurinn Angel. Atli Rafn Sigurðarson
og Helgi Björnsson.
|
Dúndrandi
rokkópera
„Það er auðvitað meira spennandi að setja upp söng-
leik sem er óþekktur, fólk þekkir ekki tónlistina eða
söguna, svo það er hægt að fara eigin leiðir við upp-
setninguna,“ segir Baltasar Kormákur leikstjóri söng-
leiksins Rent sem frumsýndur verður annað kvöld af
Þjóðleikhúsinu í Loftkastalanum. Hávar Sigurjónsson
átti samtal við Baltasar af þessu tilefni.
Morgunblaðið/Ásdís
ELSKENDURNIR Mímí og Roger. Björn Jörundur Friðbjörnsson
og Brynhildur Guðjónsdóttir.
Rent var frumsýnt af New York
Theatre Workshop utan Broadway í
febrúar 1996. Söngleikurinn sló
strax í gegn og var fljótt fluttur í
stærra leikhús á Broadway þar sem hann
var sýndur við miklar vinsældir næstu tvö
árin. Rent hlaut bæði Tony verðlaun og Pu-
litzer verðlaun það árið.. Eftir að leyft var að
sýna Rent utan Broadway hefur hvert leik-
húsið á fætur öðru tryggt sér sýningarrétt-
inn og er Þjóðleikhúsið í hópi hinna fyrstu
sem tekur verkið til sýninga.
Lést fyrir frumsýningu
Höfundur Rent, bæði texta og tónlistar
var Jonathan Larson, sem lést sviplega rétt
áður en forsýningar á verkinu hófust. Hann
hafði unnið að samingu verksins meira og
minna í sjö ár, lengst af án þess að eygja
möguleika á sviðsetningu þess. Dauði Lar-
sons ýtti enn frekar undir alla umfjöllun um
verkið en það fjallar um fjölbreytt mannlífið
í East Village í New York, persónur verksins
eru fátækir lista- og menntamenn, fatafella,
eyðnisjúklingar, eiturlyfjaneytendur, homm-
ar, lesbíur, lögfræðingar og klæðskiptingar.
Larson var sjálfur fátækur listamaður en
banamein hans var þó hvorki eyðni né eitur-
lyf, heldur lést hann úr meðfæddum æða-
sjúkdómi.
„Menn verða alltaf frægastir ef þeir deyja á
réttum tíma,“ segir Baltasar. „Það sem gert
hefur verið úr dauða hans í kringum Rent
vinnur samt á vissan hátt gegn verkinu. Það
verður stærra en það nokkum tíma var og
væntingar fólks verða óraunhæfar. Verkið
hefur fengið yfir sig hálfgerða helgislepju og
menn hafa varla þorað að taka á því og ydda
það til fyrir hverja uppsetningu. Larson dó
frá sýningunni áður en hún var tilbúin
þannig að það getur vel verið að hann hefði
gert breytingar á sýningunni ef hann hefði
lifað.“ Þær breytingar sem Baltasar ýjar að
eru kannski flestar smávægilegar en þó er
gerð veigamikil breyting í lok verksins þar
sem Mímí í upprunalegu sýningunni lifnaði
við eftir tímabundið andlát, en þetta segir
Baltasar að sér hafi þótt fáránlegt þegar
hann sá það í New York. „Ég fékk svona
aumingjahroll og ákvað að þessu skyldi ég
breyta." Mímí deyr sumsé að fullu og öllu,
rétt eins og Mimi Puccinis hefur ætíð gert í
rúma öld.
Byggt á La Bohéme
Efnislega byggir Rent á óperunni La
Bohéme eftir Puccini og er söguþræði fylgt
nokkuð nákvæmlega, flestar persónur eru í
grunninn hinar sömu þó allt sé fært til nú-
tímans og umhverfið og persónumar taki
mið af því. „Við höfum leitast við að gera
sögunni í verkinu eins góð skil og okkur er
unnt. Sagan er nokkuð margslungin sem er
óvenjulegt fyrir söngleik, yfirleitt eru þeir
fremur einfaldir. Hér em mörg ástarsam-
bönd í gangi í einu og tengslin á milli persón-
anna þurfa auðvitað helst að vera svo skýr að
áhorfandinn sé alveg með á nótunum," segir
Baltasar.
Höfundurinn Jonathan Larson var fæddur
í White Plains í New York árið 1960. For-
eldrar hans vom frjálslyndir gyðingar í milli-
stétt og eftir hefðbundna skólagöngu stund-
aði Larson nám í leiklist við Adelphi háskól-
ann. Hann hafði þá þegar vakið nokkra at-
hygli fyrir leiklistar- og tónlistarhæfileika
sína. Eftir að námi lauk fluttist hann til West
Village í New York og hóf að reyna fyrir sér
sem leikari og tónlistarmaður og framfæri
sitt hafði hann af því að vinna á veitingastað
nokkra daga í viku. Hann samdi og flutti ein-
leik sem hann nefndi Tick, tick...Boom sem
hann byggði á eigin reynslu sem listamaður.
Einnig samdi hann tónlist fyrir bamaefni,
myndbönd og dansverk. Uppmnalegma hug-
myndin að Rent kom frá leikskáldinu Billy
Aronson sem var mikill óperaunnandi og
langaði til að skrifa nútímasöngleik upp úr
La Bohéme um ungt listafólk sem lifir fyrir
listina. Samstarf þeirra hófst 1989 en hug-
myndir þeirra um efnistök reyndust ólíkar
svo uppúr slitnaði en Larson fékk leyfi til að
halda áfram með verkið einn. Mun hann oft
hafa verið við það að gefa upp vonina um að
verkið kæmist nokkum tíma á svið en loks
árið 1995 komst hann í samstarf við New
York Theatre Workshop um sýningu á verk-
inu. Eftir að fengist höfðu framleiðendur að
verkinu var írumsýning ákveðin 13. febrúar
1996 en Larson lést þann 25. janúar.
Tónlistin er aðalatriðið
Baltasar segir að auðvitað fylgi Rent
sterkur New York blær. „í fyrstu fannst mér
þetta næstum óbærilega amerískt. En við
nánari skoðun er það bara yfirborðið. La
Bohéme gerist í París og þó við reynum ekki
að færa þetta til íslands er fjölmargt í verk-
inu, persónum þess og söguþræði, sem höfð-
ar til okkar. Svo má auðvitað ekki gleyma því
sem skiptir mestu máli og það er tónlistin.
Hún er hafin yfir öll landamæri og söngleik-
ur stendur nú fyrst og fremst og fellur með
tónlistinni. Ég tel að þetta sé besta rokk-
ópera sem komið hefur fram síðan á áttunda ■
áratugnum eftir Hárið, Súperstar og Rocky “
Horror.“
Tónlistarstjóri sýningarinnar er Jón
Ólafsson og að sögn Baltasar tóku þeir þá
ákvörðun að haga útsetningum á nokkuð
annan veg en gert var uppranalega. „Við
vildum forðast ameríska rokkstíl níunda ára-
tugarins sem aldrei höfðaði neitt sérstaklega
til okkar íslendinga." Um leikmyndina segir
Baltasar að hún sé byggð á hugmyndum frá I
East Village í New York. „Einkenni á hverf- U
inu era svokallaðir raslaskúlptúrar sem fólk ■ ■
býr til út á götu. Þeir era útum allt og urðu
grannurinn að þeirri leið sem við fóram með
leikmyndina."
Ekki fer á milli mála að Rent er dúndr-
andi rokkópera, hvert númerið rekur annað
þar sem leikararnir fjórtán syngja, leika og
dansa án þess að virðast nokkurn tíma hafa
gert annað. „þetta er mun erfiðara en það
lítur út fyrir að vera, tónlistin er mjög flók-
in og erfið í söng. Það er svo sannarlega
ekki á allra færi að gera þetta og ég tel að jjj
fyrir tíu árum hefðum við ekki átt mögu- p
leika á að setja saman 14 manna leikhóp
sem hefði klárað sig af þessu,“ segir
Baltasar. Hann segir val leikara í sýning-
una hafa verið mikið umhugsunarefni.
„Verkið gerir miklar kröfur til leikaranna
þar sem atburðarásin er byggð inn í söngat-
riðin. Þau verða því að leika og dansa á fullu
um leið pg þau eru að syngja mjög erfiða
tónlist. Ég fékk mjög góðan danshöfund i :
með mér, Aletta Collins, heitir hún. Við
völdum þá leið að semja ekki beinlínis ■
dansa í sýninguna heldur semja hreyfing- *
arnar og sporin útfrá hugmyndum leikar-
anna sjálfra. Þau eiga því talsvert í þessu
enda gengum við í þetta sem eins konar
leiksmiðjuverkefni."
Nýir leikarar
Það vekur athygli að í leikhópnum eru
nokkrir ungir og upprennandi leikarar sem
lítið hafa áður birst á leiksviði. I þeim hópi ■
eru Brynhildur Guðjónsdóttir, Margrét Eir §1
Hjartardóttir og Bjöm Jörandur Frið- ■
bjömsson. Öll hafa þau stundað leiklistar-
nám erlendis undanfarin ár en Margrét Eir
hafði áður vakið athygli íyrir söng sinn í
Hárinu og Björn Jörandur er vel þekktur úr
hljómsveitinni Nýdönsk. „Brynhildur var al-
veg óþekkt stærð en hún vakti athygli í vetur
fyrir hlutverk Tinkerbell í Pétri Pan í breska
þjóðleikhúsinu í vetur. Hún smellpassaði í
hlutverkið," segir Baltasar. Annar nýliði er f
Rúnar Freyr Gíslason sem útskrifast eftir f;
nokkra daga úr Leiklistarskóla Islands. ■
Hann er þó ekki alveg óþekktur því margir p
muna sjálfsagt eftir honum úr söngleiknum
Grease í fyrra. Yngst í hópnum er Alfrún
Ömólfsdóttir 18 ára en hún á engu að síður
talsverðan leik- og dansferil að baki úr kvik-
myndum og sýningum Þjóðleikhússins und-
anfarin ár. Aðrir leikendur era Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir, Pálmi Gestson, Helgi
Bjömsson, Atli Rafn Sigurðarson, Vigdís
Gunnarsdóttir, Bergur Þór Ingólfsson, Bald-
ur Trausti Hreinsson og Linda Ásgeirsdótt- f
ir. Leikmynd gerir Vytautas Narbutas, Lýs-
ingu Bjöm Bergsteinn Guðmundsson, bún- •■
inga Helga I. Stefánsdóttir og þýðingin er
verk Karls Ágústs Úlfssonar.